Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Qupperneq 32
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
á laugardögum
og dregið
kl. 19.45
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
t hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Grunnskólarnir:
Leiðbeinendum
fjölgar ört
■4 Samtals 549 beiðnir um undan-
þágu fyrir leiðbeiðendur til kennslu
í grunnskólum höfðu borist mennta-
málaráðuneytinu í gær, að sögn Sig-
urðar Helgasonar deildarstjóra. Þar
af höfðu 400 verið samþykktar, 141
hafði verið synjað, 2 vísað frá og 6
voru settar í bið.
Sigurður sagði að þær kröfur sem
gerðar væru færu algjörlega eftir
því hvað viðkomandi ætti að kenna.
Horft væri á hvort hann ætti að vera
í almennri bekkjarkennslu eða
kenna sérgreinar, svo sem hand-
mennt, íþróttir, tónmennt eða val-
greinar. Fjölmennasti hópurinn sem
samþykktur væri sé fólk með há-
skólapróf. Næstfjölmennasti hópur-
inn væri fólk með meistaranám, fólk
sem fer í handmenntakennslu, leik-
skólakennarar, þeir sem kenna í 1.
bekk, og þroskaþjálfar. Þriðji stærsti
hópurinn, um 90 manns í fyrra, væri
fólk sem er í kennaranámi og kenn-
ir með því.
“Aðalatriðið er að menntunin falli
að þeirri grein sem viðkomandi á að
kenna. Stúdentspróf nægir t.d. ekki
eitt og sér til að kenna í bekkjar-
kennslu. Viðkomandi þarf þá að
hafa þeim mun meiri reynslu. „
«3*
Lónið
Nýja Bláa lóninu hefur verið líkt
við hönnun Le Courbusiers. 'Hönn-
uðurinn segir markmiðið í hönnun-
inni hafa verið að láta bygginguna
falla að umhverfinu í Illahrauni.
Stefán Jóhannsson ráðgjafi hefur
um skeið staðið fyrir hjónabands-
námskeiðum og segir illmögulegt að
ala upp börn nema annað foreldrið
sé heimavinnandi. Jasshátíð í
Reykjavík hefst í vikunni og þar
verður ýmislegt óvenjulegt í boði.
Guðjón Þórðarson segir frá æskuár-
+ um sínum á Akranesi og í innlendu
fréttaljósi verður fjallað um þróun
bensínverðs hér á landi síðasta árið.
r waiPi
Alþjóöarall bílabúðar Benna hófst í gærdag og var fyrsti keppnisdagur mjög spennandi. Eftir fyrsta dag eru lan Gwynne og Lyn Jenkins með einnar sekúndu forskot á Jón
Ragnarsson og Rúnar Jónsson. Rallið heldur áfram í dag. Mikill fjöldi aðstoðarmanna fyigir keppendum og hér má sjá tvo slíka ræða málin. DV-mynd Pjetur
Ríkisstjórnin leitar leiða til að slá á bensinokrið:
Olíufélögin mala gull
- segir formaður BSRB. Engin þjóðarvá, segir Vilhjálmur
„Það má ekki gleyma þeirri
staðreynd að olíufélögin mala gull
á kostnað almennings," segir Ög-
mundur Jónasson, alþingismaður
og formaður BSRB, um þær hækk-
anir á bensíni sem dunið hafa á al-
menningi að undanförnu. Meðal-
hækkun er um 25 prósent frá ára-
mótum og það kostar eiganda
venjulegs fólksbíls um 30 þúsund
krónum meira á ári að kaupa elds-
neyti á bíl sinn. Þá liggur fyrir að
á ársgrundvelli kosta bensínhækk-
anirnar meðalfjölskyldu yfir
hundrOað þúsund krónur. í fyrra-
dag stöðvuðu flutningabílstjórar
alla umferð á Reykjanesbraut um
hríð til að mótmæla hækkununum
sem að stærstum hluta renna til
ríkissjóðs eða sem nemur þremur
krónum af 5 króna hækkun. Sam-
kvæmt heimildum DV leitar nú
ríkisstjórnin leiða til að milda
áhrif hinna gríðarlegu bensín-
hækkana og er helst horft til þess
að lækka bensíngjald til ríkisins
en það nemur nú um 28 krónum af
hverju lítra. Ögmundur segist
vara við því að ríkissjóður einn
verði kallaður til vegna bensínok-
ursins.
„Stjórnvöld verða auðvitað að
endurskoða sínar ákvarðanir.
Ábyrgðin er
þó ekki síður
olíufélaganna
og það má
ekki firra þau
ábyrgð,“ segir
Ögmundur
sem heldur
stjórnarfúnd í
samtökum
sínum í dag
þar sem bens-
ínokrið verð-
ur m.a. á dagskrá.
„Vegna hinnar miklu þenslu í
efnahagslífmu myndi ég segja að
skattalækkun fæli í sér röng skila-
boð,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
alþingismaður Sjálfstæðisflokks,
um mögulegar aðgerðir ríkisins.
Vilhjálmur segir að hægt væri að
fresta hluta af hækkunum á bensín-
gjaldi með reglugerð en hann sjái
ekki að alvaran sé slík að breyta
þurfi lögum vegna málsins.
„Það er engin þjóðarvá fyrir
dyrum þannig að það þurfi að
setja bráðabirgðalög. Heimsmark-
aðsverð hlýtur að fara að lækka
aftur eins og
alltaf hefur
gerst. Ef menn
vilja verjast
þessum sveifl-
um er spurn-
ing hvort
menn vilja
setja sérstak-
an verðjöfnun-
arsjóð fyrir
bensín. Það er
þó frekar ólík-
legt,“ segir Vilhjálmur.
Ekki tókst að ná sambandi við
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sem gegnir embætti fjármálaráð-
herra í fjarvistum Geirs H. Haar-
de. DV fékk þau skilaboð frá Dav-
íð að verið væri að skoða þessi
mál og tíðinda væri að vænta. -rt
Nánar á bls. 2
Átla bíla
árekstur
Átta bila árekstur varð í morgun á
Stekkjarbakka. ÖIl umferð á stóru
svæði stöðvaðist, allt frá Elliðánum
upp á Breiðholtsbraut. Einnig urðu
margir smáárekstrar í þessu umferð-
aröngþveiti. Lögreglan hafði ekki bda
til að sinna öllum árekstrunum. Ekki
var komið á hreint í morgun hvað olli
átta bíla árekstrinum. Því miður getur
DV ekki birt mynd af ósköpunum
vegna þess að ljósmyndari blaðsins er
fastur í umferðinni. -EIS
Borgarstjóri:
Skiptir um
hægri hönd
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri efndi til kaffisamsætis í ráð-
húsi Reykjavíkur í morgun þar sem
hún kvaddi Áma Þór Sigurðsson
aðstoðarmanna sinn sem hverfur til
annarra starfa. í leiðinni bauð borg-
arstjóri Kristínu Árnadóttur vel-
komna í ráðhúsið á ný en Kristín
hefur verið í ársleyfi frá störfum
sem aðtoðarmaður borgarstjóra.
Ámi Þór Sigurðsson fær nú starfs-
aðstöðu í Hafnarhúsinu þar sem
hann mun sinna ýmsum nefndar-
störfum fyrir borgina en hann er
meðal annars formaður Hafnar-
stjórnar. -EIR
Ögmundur
Jónasson.
Veðrið á morgun:
Áfram suddi á
höfuðborgar-
svæðinu
Á morgun verður suðvestan- og
sunnanátt á landinu, 8-13 metrar
á sekúndu allra austast en norð-
austanátt, 8-13 metrar á sekúndu,
á Vestfjörðum. Víða verða skúrir
eða rigning, einkum sunnan- og
vestanlands. Hiti 9-15 stig, hlýjast
á Austurlandi.
Veðrið í dag er á bls. 29.
8=
//
'/sy/i
/'W/
/////'(//
// // /\
iW'/
Y/ATr///
'''íétí'AP/,
z/wM/Y/
// Z/j^/^ZZ/ /// //Z/ úk
Z//Z////Z///tá//
/////////// m ///z/z
V
///////////<(
/////////+
15°
12°
/ /// /
"//////
j// /// /// /// /// /
////. ,
///////
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt 2
islenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9,12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
0E ný vél
.8
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffanq: www.if.is/rafport
reyklaust
flug /
með Nicotinell
APÓTEK
. SUÐURNESJA
L.EIFSSTÖO