Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Side 12
enski
nn
víkuna 2.8-9.9. 1999
NR. 339
Skítamórall - eða Shitty Moral eins og
þeir kalla sig erlendis - nálgast nú
toppinn á ógnarhraða með lagið Hey þú,
af nýju plötunni. Strákarnir sýna
margar hliöar á þeirri plötu, en vinsæla
lagið með þeim nú er gott rokklag sem
næstum því er hægt að heddbanga við.
Áfram Skítamórall!
LAST KISS
Vikur á lista
.PEARL JAM
.SKUNK ANANSIE
LATELY ..............
MAMBO NO. 5..........
WHEN YOU SAY NOTHING.....RONAN KEATING I
.LOU BEGA
COFFEE& TV
. .BLUR
HANGIN AROUND......
.......THE CARDIGANS
f
KING OF MY CASTLE
.WAMDUE PROJECT i
W
2 TIMES
.ANN LEE
EVERYTHING IS EVERYTHING
.LAURYN HILL I
IF YOU HAD MY LOVE
.JENNIFER LOPEZ I
V
11 HEYÞU
.SKlTAMÓRALL
12 BAILAMOS
.ENRIQUE IGLESIAS
13 BILLS, BILLS, BILLS
.DESTINY'S CHILD
t
14 JIVIN' ABOUT
.QUARASHI te
15 ÞAR SEM ALLT GRÆR
.UR LITLU HRYLLINGSB.
t
16 MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON
17 SUMMER SON........................TEXAS
18 UNPRETTY
.TLC
19 GEIMSKIPIÐ SÓL
.S.S.SÓL 4-
20 FÆ ALDREI FRIÐ
.SÓLDÖGG
(|| TELL ME IT’S REAL
.K-CI & JOJO
t
^ BLUE (DA BA DEE)
.EIFFEL 65
RENDEZ-VU
SO PURE . .
.BASEMENT JAXX
.ALANIS MORISSETTE
(|^ SOMEDAY WE’LL KNOW 1
QfBETTER OF ALONE . .. DJ JURGEN & ALICE DEEJAY 4 ii
^SCARTISSUE .RED HOT CHILLI PEPPERS 4 mmim
^ SING IT BACK frn
^0 IF YA GETTIN’ DOWN . . 4,1111
^ Ml CHICO LATINO frn
1 FEEL LONELY 4ii
(jfep HEY LEONARDO .BLASSED UNION OF SOULS i
Qjf ALEINN
.BUTTERCUP
Qj MAMBO ITALIANO
.FLABBY
t
SÆT
•Á MÓTI SÓL
4
IF I LET YOU GO
.WESTLIFE mI |
STRONGER
.GARY BARLOW
DO SOMETHING
.MACY GRAY
$0 STEAL MY SUNSHINE
.LEN
I
(fa SMOOTH
.SANATA & ROB THOMAS |
íslenski listinn er samvinnuverkefni
Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400
manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk
hringt í síma 550 0044 og tekið þátt í
vali listans. íslenski listinn er
frumfluttur á Mono á fímmtudags-
kvöldum kl. 20.00 og birtur á
hverjum íostudegi í Fókus. Listinn er
jafnframt endurfíuttur á Bylgjunni á
hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn
er birtur, að hluta, í textavarpi MTV
sjónvarpsstöðvarinnar. íslenski
listinn tekur þátt í vali „World
Chart“ sem framleiddur er af Radio
Express í Los Angeles. Einnig hefur
hann áhrif á Evrópulistann sem
birtur er i tónlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandaríska
tónlistarblaöinu Billboard.
m \
Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá
listanum síöustu viku síðustu viku
Taktu þátt í vali
listans í síma
550 0044
If ókus
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiöslu: Ivar Guömundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
• Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir í útvarpi: Ivar Guömundsson
plötudómur
The International
-Rock n'roll Summer of
Egill Snæbjörnsson ★ ★
Kropið og grínast
Ameríski draum
urinn/
Sean „Puffy" Combs hefur tekist
að rækta nafn sitt upp í eitt það
stærsta í ameríska tónlistarbrans-
anum. Áður en hann hóf feril sinn
sem „söngvari" kom hann víða við
í bransanum. Þegar hann var í
Howard University vann hann hjá
Uptown Records sem alt-
muligmand. Nafn hans varð lítil-
lega þekkt þegar hann byrjaði
stuttu seinna að dansa í hinum og
þessum tónlistarmyndböndum, sjá
um hip hop tónleika og hljóðvinna
fyrir Uptown Records. Hann varð
fljótt hæfileikasnuðrari Uptown en
hélt áfram að hljóðvinna með Mary
J. Blige, Heavy D, Jodeci og fleir-
um.
Bragð í eyra
Eitthvað voru Uptown Records
samt óánægðir með drenginn því
stuttu seinna ráku þeir hann. Þar
hafa þeir eflaust séð Svarthöfða í
litla Anakin. Hann fór með föggur
sínar yfir til Arista Records, sem
eru með mjög öflugt dreifingar-
kerfi, og eiga þeir að hafa borgað
litla fimm milljarða króna til að
koma plötufyrirtæki Combs, Bad
Boy Entertainment, á laggirnar.
Bad Boy byrjaði á að gefa út hina
frábæru smáskífu Craig Mack,
Fiava In Ya Ear, og hófst þá vel-
gengnin. Næst fylgdi sjálfur Notor-
ious B.I.G., Biggie Smalls, með
Juicy. Þessi tvö lög ásamt Warn-
ing, One More Chance og Big
Poppa frá Biggie settu sinn svip á
sumarið 1994 og gerðu það að verk-
um að Bad Boy var kominn til að
vera. Eftir að báðar plötumar seld-
ust í platínum varð Combs eftir-
sóttur í bransanum. Hann vann
með fullt af liði og kynnti okkur
fyrir Faith Evans, Junior Mafla,
Lil¥ Kim og væluranum Mase og
The Lox.
Ósvífni samplarinn
Combs hefur alltaf verið um-
deildur þegar hann tekur að hljóð-
vinna. Hann notar fræg, einföld
sömpl á glæfralegan hátt. Það sem
fer í taugamar á flestum er einfald-
lega að hann er að græða-á-tónlist
annarra. Það varð samt aldrei
verra en daginn sem hann ákvað
að stíga út úr hljóðvinnslunni inn í
hljóðverið fyrir aftan hljóðnemann,
þá fylgdu óhljóð. í desember 1996
gaf hann út sína fyrstu smáskífu,
Can¥t Nobody Hold Me Down, þar
sem Mase vældi með honum. Þetta
mart
Puff Daddy gaf
nýlega út plötuna | ^ ^
Forever. Þetta er önnur
plata kauöa, þar sem hanTi
sankar að sér hinum og þessum
listamönnum. Flann hefur löngum verið
kallaður krabbamein rappsins enda
stendur hann efst á þeirri glysbylgju
sem vestanhafsmenn sörfa blint á.
seldist auðvitað í miklu magni og
var í 12 vikur númer 1 í BNA, best
selda smáskifa ársins, enda notaði
Puíf hið klassíska stef Grandmast-
er Flash, The Message.
Biggie R.I.P.
f mars 1997 gerist það síöan að
Notorious B.I.G. er myrtur á
fólskulegan hátt. Þetta kom sér
auðvitað illa fyrir Combs en þeir
vora félagar til margra ára. Samt
sem áður var þetta ekki óþægilegt
fjárhagslega þar sem plata Biggies,
Life after Death, seldist eins og
heitar lummur í margfalt platín-
um. Þá vippaði Combs saman
minningarlagi ásamt konu Biggies,
Faith Evans, I¥ll Be Missing You.
Þar notaði hann gamalt Police lag,
Every Breath I Take, sem svínvirk-
aði auðvitað. Sá sem ekki kannast
við það er heppinn þar sem það
hljóðaði stanslaust á öldum ljós-
vakans í allt of langan tíma. Síðan
gaf hann út plötuna No Way Out
nokkrum mánuðum seinna og vel-
gengnin náði hámarki.
Ameríski draumurinn
Ætli það hafi ekki verið dauði
Biggies sem gerði það að verkum
að Sean „Puffy“ Combs er það
ofurstirni sem hann er í dag. Stutt-
ur ferill hans var ótrúlega áhrifa-
ríkur og við dauða hans skapaðist
gjá sem Combs reyndi að fylla upp
í. Þetta hefur honum tekist að
vissu marki. Það eina sem hann
vantar er framleiki, karakter og
sál. Hann heldur aðdáendunum
ánægðum, dælir út efni og er ótrú-
lega sniðugur í markaðssetningu.
Hann heldur uppi munaðarleys-
ingjaskóla í gettóinu og styður
mörg góð málefni. Hann á vinsæl-
an veitingastað í N.Y., Justin¥s
(sonur hans heitir Justin), ætlar í
fatabransann, kvikmyndabrans-
ann, og þar fram eftir götunum.
Sean „Puffy“ Combs hefur ekki
enn sungið sitt; síðasta. Hann er
einn af þeim sem lifir ameríska
drauminn en er í leiðinni martröð
margra. Hann á eftir að stækka og
stækka þar til hann loks springur.
altari rokksins
Þegar Egill Sæbjömsson var ný-
útskrifaður úr fjöltæknideild MHÍ
kom hann sér í sögubækurnar með
handaflinu á Kjarvalsstöðum.
Óþarfi er að fara mörgum orðum
um snilli stráksins - hann er einn
af þeim ferskustu og býður þar að
auki af sér góðan þokka.
Þegar Egill var um fermingu var
hann í bílskúrshljómsveitinni Síld,
ást og ávextir sem hitaði einu
sinni upp fyrir Dýrið gengur laust
í Duus-húsi. Þótt hljómsveitin hafi
aldrei tekið þátt í Músíktilraunum
situr rokkið eftir í Agli og þegar
hann fær leiða á öllu öðra tekur
hann upp gítarinn og rokk’ar inn á
tölvuna. Þessi plata er afrakstur-
inn: fimm lög sem bæði krjúpa við
altari rokksins og gera grín að því
á þann lausgyrta flipphátt sem
kenndur er í fjöltækninni.
Egill syngur og leikur á ýmis
hljóðfæri. Hann er slarkfær á flest
nema trommur, sem hann ætti að
fá einhvem annan til að spila á
næst. Þá yrði allt þéttara.
Fyrst kemur „Dýrarokk", sem er
spretthart og sperrt þramurokk og
langmest grípandi. Það kæmist
hátt á X-listann ef það væri tekið
upp prófessjónal. Þetta er nefnilega
allt í föndurstíl hjá Agli, eða „ló-
fæ“ og allt í lagi með það. Egill nær
sér ekki á strik í þramurokkinu
fyrr en í aukalaginu „Metal Dri-
ver“, sem er hreinasti viðbjóður. í
millitíðinni era ballöður og hvítt
sorpufönk. Egill ruslast í Beck-legu
kassagítarstemmunni „Oh I Need
Your Love“, sem er tjásulegt og
einum of teygt til að teljast til stór-
virka rokksins þó til að byrja með
sé það ágætt. „Krass N’Kil N’Crád
Egill nær sér ekki á strik í
þrumurokkinu fyrr en í auka-
laginu „Metal Driversem er
hreinasti viðbjóður.
N’Keil“ er skemmt skemmtara-
búggí í þrem hlutum og skemmti-
legt; þó ekki jafn skemmtilegt og
„No Sincerity Around" sem er
fönk eins og maður gæti ímyndað
sér að gæti verið búið til í geð-
veikrahæli í Úkraínu.
Þessi plata Egils er frekar
skemmtileg og svo er hún gefin út
í örfáum eintökum. Ef Egill
ákveður að gerast poppari fremur
en listari gæti hann náð langt og
þá verður þessi plata safnaraein-
tak sem barist verður um. Ef ekki
er þetta samt athyglisverður af-
leggjari af hringvegi íslenska
poppsins.
Gunnar Hjálmarsson
12
f Ókus 3. september 1999