Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999 Fréttir i>v Lögreglan sér mynstur í innbrotafaraldri: „Sérfræðingar" af Litla- Hrauni leika lausum hala „Við sjáum slóð þekktra manna sem nýsloppnir eru úr fangelsum um alla höfuðborgina. Afbrotamenn sérhæfa sig í afbrotum og nú er gengi sem sérhæft hefur sig í inn- brotum í bíla laust og það skýrir aukna tíðni þeirra afbrota," sagði Geir Jón Þórisson aðstoöaryfirlög- regluþjónn og þvertók fyrir að tengsl væru á milli innbrotafarald- urs sem geisað hefur í Reykjavík og niðurskurðar á yfirvinnu lögreglu- þjóna. „Eftirlit hefur ekkert skerst enn vegna takmörkunar á yfir- vinnu, hvað sem svo verður síðar,“ sagði Geir Jón. Lögreglan telur að ekki verði lát á innbrotum í bíla á höfuðborgarsvæðinu fyrr en „sérfræðingagengið" af Litla- Hrauni verði aftur komið á bak við lás og slá. Þá megi hins vegar gera ráð fyrir að nýtt gengi losni sem sérhæft hefur sig í öðrum afbrotum og þá aukist þau umtalsvert. „Því er ekki að leyna að við sjáum ákveðið mynstur í þessum afbrotum og getum oft tengt þau beint við þá af- brotamenn sem ganga lausir hverju sinni. Við þurfum bara að sjá nöfnin, þá vitum við á hverju er von. Oftar en ekki þekkj- um við bílainnbrotin á handbragðinu sem er hið sama,“ sagði Geir Jón. „Ekki má heldur gleyma myrkrinu sem fylgir haustinu. í myrkri er betra Geir Jón Þóris- fyrir þjófa að athafna sig son aðstoðaryf- og það gefur hvetjandi iriögregluþjónn. áhrif á þá.“ Þrátt fyrir staðhæfingar um að eftirlit lögreglu í höfuðborg- inni hafi ekki skerst þrátt fyrir tak- mörkun á yfirvinnu þá hlaðast mál- in upp á skrifborðum rannsóknar- aðila. Lögregluþjónn í rannsóknar- deild sagðist ekki sjá fram úr verk- efnum: „Mér líður eins og figúru í teiknimyndasögu sem er að drukkna í pappírum og reyndar líð- ur mér þannig,“ sagði lögreglu- þjónninn og bætti því við að hann væri að leita sér að annarri vinnu þar sem hann gæti í það minnsta sinnt þeim störfum sem honum væri trúað fyrir. -EER Sportbílakvóti hjá Bílabúð Benna: Selja Porsche úr landi Ofgreidd laun: Ætla ekki að endurgreiða - segir kennari „Kennarar eru orðnir þreyttir á þeirri neikvæðu umræðu sem verið hef- ur um þá í þjóðfélaginu. Mörgum þóttu þessi orð fræðslustjóra Reykjavíkur stuðandi," sagði Lilja Þorkelsdóttir, kennari í Háteigsskóla, við DV. Samkvæmt viðtölum blaðsins við kennara í skólum í Reykjavík vöktu ummæh Gerðar G. Óskarsdóttur fræðslustjóra, svo og kjaraþróunar- nefndar, mikla undrun meðal kennara þar sem höfðað var til samvisku þeirra og siðferðiskenndar. Voru þessi um- mæli víða til umræðu á kennarastofum og „mæltust illa fyrir hjá sumum, en öðrum var sama,“ eins og viðmælandi DV orðaði það. Lilja sagði að sjö kennarar í Háteigs- skóla hefðu fengið ofgreidd laun frá Reykjavíkurborg. Hún kvaðst vera einn þeirra og ekki ætla að endurgreiða. „Ég veit ekki um einn einasta kenn- ara sem ætlar að endurgreiða," sagði Guðrún Ebba Ólafsdóttir, varaformaður Kennarasambands íslands, við DV en hún kvaðst hafa heyrt í mörgum kenn- urum í gær í kjölfar ummæla fræðsluyf- irvalda í fiölmiðlum. „Þetta mál hefúr ekkert með sam- visku og siðferðiskennd að gera. Reykja- víkurborg verður að sætta sig við hafa ofgreitt laun sem samkvæmt lögum eru ekki endurkræf. Þetta eru ekki mistök kennara." -JSS 6,2 milljóna króna Porsche. „Við erum búnir að selja 14 Porsche- sportbíla nú þegar, þar af 11 til út- landa," sagði Jón Einar Eyjólfsson hjá BUabúð Benna sem hefur umboð fyrir þessa eftirsóttu bUategund. „Þetta er eins og í sjávarútveginum. Við fengum ákveðinn kvóta af bilum og þar sem eftirspurn úti í heimi er meira en framboðið þá flytjum við bUana út.“ Porsche-bUarnir hjá BUabúð Benna kosta frá tæpum fimm mUljónum upp í sautján miUjónir. Þegar hefur einn sautján mUljón króna bíU selst en hann var keyptur af erlendum aðUa: DV-mynd Pjetur „Kaupandinn kaupir bUinn af okkur og sækir hann svo tU Stuttgart þar sem hann er framleiddur. BUlinn kemur því aldrei hingað tU lands en ég útbý reikninginn og sendi viðkomandi. Þetta eru ánægjuleg viðskipti," sagði Jón Einar. -EIR Uppteknir kamfýlumenn , tU matvælaframleiðsiu og skapaði kjöraðstæður og gróðrarstíur fyrir m.a. sjúkdómavaldandi bakteríur. Þrátt fyrir þetta hélt búið áfram að setja kjúklinga á neytendamarkað og lítið hafði að segja þótt fram kæmi við rannsóknir að 80 pró- sent af sýnum sem tekin voru úr kjúklingum á búinu innihéldu kamfýlubakteríuna sem veldur matareitrun og getur verið hættuleg fólki. Þar virtust talnafréttir og þrætur málsaðUa í öUum fjölmiðlum litlu skipta. Það dró að vísu eitthvað úr sölu en í meginatriðum hélt fólk áfram að kaupa þessa vöru, ýmist á útsölu eða tUboðum. Bakteríusölunum þótti boðlegt að halda áfram þrátt fyrir úttekt heilbrigðiseftirlitsins. Það eina sem þeir höfðu áhuga á að vita var hvemig það spuröist út að aUt væri í óstcmdi hjá kjúklingabú- inu. Þeir vUdu finna sendiboða tU að hengja í stað þess að skammast sin og koma skikki á sín mál. Það var ekki fyrr en kamfýlufréttin persónu- gerðist í sjónvarpi fyrr í vikunni að almenningur fór að skilja málið. Þá kom fram móðir sem lýsti kvölum sínum og innantökum, sem og ungs son- ar síns, eftir eitrun af völdum kamfýlunnar. Sár- ir magaverkimir og niðurgangurinn voru eitt- hvað sem aUir skUdu, nema kannski þeir sem halda áfram að koma kamfýlunni á markað. Þeir eru nefnUega uppteknir við annað, það eitt að finna hvemig sannleikurinn fféttist, opin- bemn greinargerðarhmar um ógeðið. Dagfari Fréttir sitja mislengi i mönnum. Sumar gleymast strax en aðr- ar sitja eftir í þankan- um. Það er ákveðin kúnst fréttamanna að persónugera fréttir. Með því móti er hægt að færa stórmál á það plan að auðskUið sé öU- um. Menn geti þannig sett sig í spor þeirra sem fjallað er um. Frægar era eilífar talnafréttir sem fara inn um annað eyrað og út um hitt. Prósentur eru notaðar út og suð- ur og fæstir nenna að leggja sig eftir inni- haldinu. Þetta á jafnvel við um mál sem skipta aU- an almenning verulegu máli. Dæmi um þetta er hið fræga kamfýlu- mál kjúklingaframleiðanda á Suðurlandi. Vaskir heUbrigðiseftirlitsmenn komast að því við rann- sóknir sínar að þar var aUt í pati. Sóðaskapurinn var slíkur að ormarnir skriðu upp úr hrægámi. Eftirlitsmennimir stóðu sína piigt og skUuðu réttum yffrvöldum greinargerð um ástandið í von um bót. Búið var ekki með tUskUin starfsleyfi og í greinargerðinni sagði að miðað við hina miklu matvælaframleiðslu kæmi á óvart hversu fjöl- breytUegir möguleikar væm á aUs konar sjúk- dómasmiti af völdum skordýra, baktería og veira. Umhverfi búsins væri með ólíkindum með tiUiti Markaðsverðlaun Nú mun sú stund nálgast að markaðsverðlaun Norðurlanda verða veitt. Verðlaun þessi urðu fræg á íslandi þegar Jón Óttar Ragnarsson, einn frumkvöðlanna að baki stoíhunar Stöðvar 2, féklc þau fyrir að selja mynd- lykla inn á tugþús- undir íslenskra heimUa. Nú finnst mönnum mál tU komið að íslend- ingur njóti á ný þessa heið- urs. Er útvarps- og markaðsmaður- inn Jón Axel Ólafsson títt nefndur í því sambandi en hann hefur selt fleiri útvarpsstöðvar en menn hafa tölu á. En það sem þykir standa upp úr er sala hans á útvarpsstöð- inni MatthUdi tU Færeyinga. Geri aðrir betur segja verseraðir menn í markaðsbransanum um það af- rek.... Safna liði Litlir fulgar fljúga nú um og segja sögur af formannsmálum Samfylkingarinnar. Ein er sú að Guðmundur Ámi Stefánsson og fleiri ónefndir fari um og safni liði. I því -sambandi er nefht að þó sumir kratar eigi sér aðra ósk heitari en að sjá gamla Hafhar- fjarðarforingjann í formannsstól geti þeir aUtént hugg- að sig við að þar muni sitja krati en ekki AUabaUi og því síður „maður að utan“, hvort sem hann heitir Stefán Jón, eða eitthvað annað. Því má bæta við að nafh kennaraforingjans Ei- ríks Jónssonar hefur verið nefnt í þessu sambandi en Sandkom veit ekki tU þess að við hann hafi verið talað um þessi mál. Af þrautseigum aðdáendum Jóns Baldvins sendi- herra er það að frétta að þeir sætta sig við Guðmund Áma í formanns- stól, í þeirri fuUvissu að gamli for- inginn muni ryðja sviðið við heim- komu eftir tvö ár.... Hjartslættir Mikið hefur verið rætt um hjart- slátt Karls Sigurbjömssonar biskups vegna Eyjabakka og hætt- unar á að þeim verði sökkt í vatni. Af því tUefni er haft eftir Davið Baldurs- syni, prófasti á Eskifirði, að hjarta hans slægi með fólkinu. En tU að kóróna nú aUt þetta hjartsláttar- tal er sjálfsagt að geta þess þegar talsmenn Lands- sambands kúabænda heimsóttu Guðna Ágústsson landbúnaðar- ráðherra fyrr í sumar með ósk um að fá að flytja inn fósturvísa úr norskum kúm. Varð drengurinn frá Brúnastöðum hugsi um stund en sagði síðan sinni djúpu röddu: Hjarta mitt slær með íslensku kúnni... Sektað af krafti Það er oft handagangur í öskj- unni við Leifsstöð, bæði vegna brottfarar og komu. í þeim slag freistast bUstjórar tU að leggja bU- um sínum ólöglega og fá auðvitað sekt ~ fyrir. HeimUdar- / maður Sandkoms, sem fékk 1000 króna sekt, fékk upplýst hjá starfs- / manni syðra að / ftöldi slíkra miða / i gætu farið í 40- L/ 100 á dag og sektarupphæðin þvi í 40 fil 100 þúsund krónur. Þó sparnaður og niðurskurður sé efst á baugi hjá Reykjavíkurlögregl- unni þykir ljóst að menn baða sig í seðlum suður á Miðnesheiði. Lög- reglumenn í atvinnuleit ættu kannski að horfa þangað... Umsjón Haukur L Hauksson Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.