Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
Fréttir
i>v
Lögreglan sér mynstur í innbrotafaraldri:
„Sérfræðingar" af Litla-
Hrauni leika lausum hala
„Við sjáum slóð þekktra manna
sem nýsloppnir eru úr fangelsum
um alla höfuðborgina. Afbrotamenn
sérhæfa sig í afbrotum og nú er
gengi sem sérhæft hefur sig í inn-
brotum í bíla laust og það skýrir
aukna tíðni þeirra afbrota," sagði
Geir Jón Þórisson aðstoöaryfirlög-
regluþjónn og þvertók fyrir að
tengsl væru á milli innbrotafarald-
urs sem geisað hefur í Reykjavík og
niðurskurðar á yfirvinnu lögreglu-
þjóna. „Eftirlit hefur ekkert skerst
enn vegna takmörkunar á yfir-
vinnu, hvað sem svo verður síðar,“
sagði Geir Jón.
Lögreglan telur að ekki
verði lát á innbrotum í bíla á
höfuðborgarsvæðinu fyrr en
„sérfræðingagengið" af Litla-
Hrauni verði aftur komið á
bak við lás og slá. Þá megi
hins vegar gera ráð fyrir að
nýtt gengi losni sem sérhæft
hefur sig í öðrum afbrotum
og þá aukist þau umtalsvert.
„Því er ekki að leyna að
við sjáum ákveðið mynstur í
þessum afbrotum og getum
oft tengt þau beint við þá af-
brotamenn sem ganga
lausir hverju sinni. Við
þurfum bara að sjá nöfnin,
þá vitum við á hverju er
von. Oftar en ekki þekkj-
um við bílainnbrotin á
handbragðinu sem er hið
sama,“ sagði Geir Jón.
„Ekki má heldur gleyma
myrkrinu sem fylgir
haustinu. í myrkri er betra
Geir Jón Þóris- fyrir þjófa að athafna sig
son aðstoðaryf- og það gefur hvetjandi
iriögregluþjónn. áhrif á þá.“
Þrátt fyrir staðhæfingar
um að eftirlit lögreglu í höfuðborg-
inni hafi ekki skerst þrátt fyrir tak-
mörkun á yfirvinnu þá hlaðast mál-
in upp á skrifborðum rannsóknar-
aðila. Lögregluþjónn í rannsóknar-
deild sagðist ekki sjá fram úr verk-
efnum: „Mér líður eins og figúru í
teiknimyndasögu sem er að
drukkna í pappírum og reyndar líð-
ur mér þannig,“ sagði lögreglu-
þjónninn og bætti því við að hann
væri að leita sér að annarri vinnu
þar sem hann gæti í það minnsta
sinnt þeim störfum sem honum
væri trúað fyrir. -EER
Sportbílakvóti hjá Bílabúð Benna:
Selja Porsche úr landi
Ofgreidd laun:
Ætla ekki að
endurgreiða
- segir kennari
„Kennarar eru orðnir þreyttir á
þeirri neikvæðu umræðu sem verið hef-
ur um þá í þjóðfélaginu. Mörgum þóttu
þessi orð fræðslustjóra Reykjavíkur
stuðandi," sagði Lilja Þorkelsdóttir,
kennari í Háteigsskóla, við DV.
Samkvæmt viðtölum blaðsins við
kennara í skólum í Reykjavík vöktu
ummæh Gerðar G. Óskarsdóttur
fræðslustjóra, svo og kjaraþróunar-
nefndar, mikla undrun meðal kennara
þar sem höfðað var til samvisku þeirra
og siðferðiskenndar. Voru þessi um-
mæli víða til umræðu á kennarastofum
og „mæltust illa fyrir hjá sumum, en
öðrum var sama,“ eins og viðmælandi
DV orðaði það.
Lilja sagði að sjö kennarar í Háteigs-
skóla hefðu fengið ofgreidd laun frá
Reykjavíkurborg. Hún kvaðst vera einn
þeirra og ekki ætla að endurgreiða.
„Ég veit ekki um einn einasta kenn-
ara sem ætlar að endurgreiða," sagði
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, varaformaður
Kennarasambands íslands, við DV en
hún kvaðst hafa heyrt í mörgum kenn-
urum í gær í kjölfar ummæla fræðsluyf-
irvalda í fiölmiðlum.
„Þetta mál hefúr ekkert með sam-
visku og siðferðiskennd að gera. Reykja-
víkurborg verður að sætta sig við hafa
ofgreitt laun sem samkvæmt lögum eru
ekki endurkræf. Þetta eru ekki mistök
kennara." -JSS
6,2 milljóna króna Porsche.
„Við erum búnir að selja 14 Porsche-
sportbíla nú þegar, þar af 11 til út-
landa," sagði Jón Einar Eyjólfsson hjá
BUabúð Benna sem hefur umboð fyrir
þessa eftirsóttu bUategund. „Þetta er
eins og í sjávarútveginum. Við fengum
ákveðinn kvóta af bilum og þar sem
eftirspurn úti í heimi er meira en
framboðið þá flytjum við bUana út.“
Porsche-bUarnir hjá BUabúð Benna
kosta frá tæpum fimm mUljónum upp í
sautján miUjónir. Þegar hefur einn
sautján mUljón króna bíU selst en
hann var keyptur af erlendum aðUa:
DV-mynd Pjetur
„Kaupandinn kaupir bUinn af okkur
og sækir hann svo tU Stuttgart þar sem
hann er framleiddur. BUlinn kemur
því aldrei hingað tU lands en ég útbý
reikninginn og sendi viðkomandi.
Þetta eru ánægjuleg viðskipti," sagði
Jón Einar. -EIR
Uppteknir kamfýlumenn
,
tU matvælaframleiðsiu og skapaði kjöraðstæður
og gróðrarstíur fyrir m.a. sjúkdómavaldandi
bakteríur.
Þrátt fyrir þetta hélt búið áfram að setja
kjúklinga á neytendamarkað og lítið hafði að
segja þótt fram kæmi við rannsóknir að 80 pró-
sent af sýnum sem tekin voru úr kjúklingum á
búinu innihéldu kamfýlubakteríuna sem veldur
matareitrun og getur verið hættuleg fólki. Þar
virtust talnafréttir og þrætur málsaðUa í öUum
fjölmiðlum litlu skipta. Það dró að vísu eitthvað
úr sölu en í meginatriðum hélt fólk áfram að
kaupa þessa vöru, ýmist á útsölu eða tUboðum.
Bakteríusölunum þótti boðlegt að halda áfram
þrátt fyrir úttekt heilbrigðiseftirlitsins. Það eina
sem þeir höfðu áhuga á að vita var hvemig það
spuröist út að aUt væri í óstcmdi hjá kjúklingabú-
inu. Þeir vUdu finna sendiboða tU að hengja í
stað þess að skammast sin og koma skikki á sín
mál.
Það var ekki fyrr en kamfýlufréttin persónu-
gerðist í sjónvarpi fyrr í vikunni að almenningur
fór að skilja málið. Þá kom fram móðir sem lýsti
kvölum sínum og innantökum, sem og ungs son-
ar síns, eftir eitrun af völdum kamfýlunnar. Sár-
ir magaverkimir og niðurgangurinn voru eitt-
hvað sem aUir skUdu, nema kannski þeir sem
halda áfram að koma kamfýlunni á markað.
Þeir eru nefnUega uppteknir við annað, það
eitt að finna hvemig sannleikurinn fféttist, opin-
bemn greinargerðarhmar um ógeðið.
Dagfari
Fréttir sitja mislengi
i mönnum. Sumar
gleymast strax en aðr-
ar sitja eftir í þankan-
um. Það er ákveðin
kúnst fréttamanna að
persónugera fréttir.
Með því móti er hægt
að færa stórmál á það
plan að auðskUið sé öU-
um. Menn geti þannig
sett sig í spor þeirra
sem fjallað er um.
Frægar era eilífar
talnafréttir sem fara
inn um annað eyrað og
út um hitt. Prósentur
eru notaðar út og suð-
ur og fæstir nenna að
leggja sig eftir inni-
haldinu.
Þetta á jafnvel við
um mál sem skipta aU-
an almenning verulegu
máli. Dæmi um þetta
er hið fræga kamfýlu-
mál kjúklingaframleiðanda á Suðurlandi. Vaskir
heUbrigðiseftirlitsmenn komast að því við rann-
sóknir sínar að þar var aUt í pati. Sóðaskapurinn
var slíkur að ormarnir skriðu upp úr hrægámi.
Eftirlitsmennimir stóðu sína piigt og skUuðu
réttum yffrvöldum greinargerð um ástandið í von
um bót. Búið var ekki með tUskUin starfsleyfi og
í greinargerðinni sagði að miðað við hina miklu
matvælaframleiðslu kæmi á óvart hversu fjöl-
breytUegir möguleikar væm á aUs konar sjúk-
dómasmiti af völdum skordýra, baktería og veira.
Umhverfi búsins væri með ólíkindum með tiUiti
Markaðsverðlaun
Nú mun sú stund nálgast að
markaðsverðlaun Norðurlanda
verða veitt. Verðlaun þessi urðu
fræg á íslandi þegar Jón Óttar
Ragnarsson, einn
frumkvöðlanna að
baki stoíhunar
Stöðvar 2, féklc þau
fyrir að selja mynd-
lykla inn á tugþús-
undir íslenskra
heimUa. Nú finnst
mönnum mál tU
komið að íslend-
ingur njóti á ný þessa heið-
urs. Er útvarps- og markaðsmaður-
inn Jón Axel Ólafsson títt nefndur
í því sambandi en hann hefur selt
fleiri útvarpsstöðvar en menn hafa
tölu á. En það sem þykir standa
upp úr er sala hans á útvarpsstöð-
inni MatthUdi tU Færeyinga. Geri
aðrir betur segja verseraðir menn í
markaðsbransanum um það af-
rek....
Safna liði
Litlir fulgar fljúga nú um og
segja sögur af formannsmálum
Samfylkingarinnar. Ein er sú að
Guðmundur Ámi Stefánsson og
fleiri ónefndir fari
um og safni liði. I
því -sambandi er
nefht að þó sumir
kratar eigi sér aðra
ósk heitari en að
sjá gamla Hafhar-
fjarðarforingjann í
formannsstól geti
þeir aUtént hugg-
að sig við að þar
muni sitja krati en ekki AUabaUi
og því síður „maður að utan“,
hvort sem hann heitir Stefán Jón,
eða eitthvað annað. Því má bæta
við að nafh kennaraforingjans Ei-
ríks Jónssonar hefur verið nefnt í
þessu sambandi en Sandkom veit
ekki tU þess að við hann hafi verið
talað um þessi mál. Af þrautseigum
aðdáendum Jóns Baldvins sendi-
herra er það að frétta að þeir sætta
sig við Guðmund Áma í formanns-
stól, í þeirri fuUvissu að gamli for-
inginn muni ryðja sviðið við heim-
komu eftir tvö ár....
Hjartslættir
Mikið hefur verið rætt um hjart-
slátt Karls Sigurbjömssonar
biskups vegna Eyjabakka og hætt-
unar á að þeim verði
sökkt í vatni. Af því
tUefni er haft eftir
Davið Baldurs-
syni, prófasti á
Eskifirði, að hjarta
hans slægi með
fólkinu. En tU að
kóróna nú aUt
þetta hjartsláttar-
tal er sjálfsagt að
geta þess þegar talsmenn Lands-
sambands kúabænda heimsóttu
Guðna Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra fyrr í sumar með ósk um
að fá að flytja inn fósturvísa úr
norskum kúm. Varð drengurinn
frá Brúnastöðum hugsi um stund
en sagði síðan sinni djúpu röddu:
Hjarta mitt slær með íslensku
kúnni...
Sektað af krafti
Það er oft handagangur í öskj-
unni við Leifsstöð, bæði vegna
brottfarar og komu. í þeim slag
freistast bUstjórar tU að leggja bU-
um sínum ólöglega
og fá auðvitað sekt ~
fyrir. HeimUdar- /
maður Sandkoms,
sem fékk 1000
króna sekt, fékk
upplýst hjá starfs- /
manni syðra að /
ftöldi slíkra miða / i
gætu farið í 40- L/
100 á dag og sektarupphæðin
þvi í 40 fil 100 þúsund krónur. Þó
sparnaður og niðurskurður sé efst
á baugi hjá Reykjavíkurlögregl-
unni þykir ljóst að menn baða sig í
seðlum suður á Miðnesheiði. Lög-
reglumenn í atvinnuleit ættu
kannski að horfa þangað...
Umsjón Haukur L Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is