Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999 37 Þrír af fimm meðlimum Immigrants slá á létta strengi. Landnemar í Deiglunni Immigrcints, djasskvintett frá Stokkhólmi, leikur á heitum fimmtudegi í Deiglunni frá kl. 21. Nafhið Immigrants þýðir landnem- ar, en það er sameiginlegt með fé- lögunum fimm að þeir fluttu til Svíþjóðar frá öðrum löndum. Þar af eru þrír íslendingar: Erlendur Svavarsson á trommur, Halldór Pálsson á tenórsaxófón og Hjörleif- ur Bjömsson á kontrabassa. Sá síð- astnefndi er Akureyringm- og kom- inn tími til að bjóða þessum góða og víðkunna bassaleikara að leika í fæðingarbæ sínum. Á trompet leik- ur Rúmeninn George Nistor, sem leikið hefur með heimsnöfnum í djassinum, til að mynda Thelonius Monk. Píanistinn, Jerry Stensen, er Hollendingur og hefur leikið með Josephine Baker og Clark Terry. Landar okkar í kvintettin- um eru einnig ~----- miklir afreks- TÓlll6Íkdr menn á sviði _____________ djassins. Efnisskráin tengist sígild- um söngvum vinsælustu kvintett- skipunar djasssögunnar, þ.e. tenór- saxófónn, frompet, píanó, bassi og trommur. Gamli, góði djassinn er síungur í flutningi svo góðra manna, eins og þeirra sem skipa Immigrants. Sinfóníuhlj óms veitin á tónleikaferð Á hveiju ári fer Sinfóníuhljóm- sveitin í tónleikaferðir um landið og nú í byrjun starfsársins verður farið um Norðurland eystra. Hljómsveitin spilar fyrst í íþrótta- höllinni á Húsavík kl. 20.30 í kvöld, síðan er haldið að Reykja- hlíð við Mývatn og tónleikar haldnir í íþróttahúsinu á sama tíma annað kvöld. Siðustu tónleik- amir að þessu sinni eru í Akur- eyrarkirkju á laugardag kl. 15. Flutt verða verkin L’Arlesienne, úr svítu 1 & 2 eftir Georges Bizet, Trompetkonsert eftir Alexander Arutunian og 8. sinfónía Dvoráks. Einleikari er Ásgeir Steingríms- son en hann er fæddur og uppal- inn á Húsavík. Stjómandi er Bem- harður Wilkinson. Gítartónleikar á Dalvík Einar Kristján Einarsson gítarleik- ari heldur áfram tónleikaferð sinni um Norðurland og í kvöld heldur hann tónleika í Dalvíkurkirkju kl. 20.30. Á efnis- skránni er tónlist úr ýmsum áttum, spænsk og suður- amerísk, verk eftir J.S. Bach, Lennon og McCartney, svo að eitthvað sé nefht. Einar Krist- ján hefur komið ffarn á tónleikum í Svíþjóð, Englandi og á Spáni og við margvísleg tækifæri hér á landi, með- al annars á gítarhátíð á Akureyri, sumartónleikum í Skálholti, sumar- tónleikum á Norðurlandi og Myrkum músíkdögum. Hann hefur leikið með Caput-hópnum og komið fram sem einleikari með hljómsveitum. Einsöngstónleikar í Bolungarvík Sigrún Pálmadóttir sópransöng- kona heldur einsöngstónleika í Fé- lagsheimilinu Víkurbæ í Bolung- arvík í kvöld kl. 20.30. Undirleik- ari er Ivona Jagla. Á efhisskránni eru meðal annars íslenskir ljóða- söngvar eftir Sigvalda Kaldalóns, næturljóð eftir Richard Strauss, Benjamin Britten og Alban Berg, norræn ljóð eftir Grieg og Sibelius og atriði úr óperum. Einar Kristján Einarsson. Jazzhátíð Reykjavíkur: Dansaðu fíflið þitt, dansaðu Dcuisaðu fíflið þitt, dansaðu, er yf- irskrift tónleika í Kafflleikhúsinu í kvöld, kl. 20.30. Löng hefð er fyrir samruna ljóðs og djass og hafa mörg ljóðskáld lesið upp við djassundir- leik og nú bætist Einar Már Guð- mundsson í hópinn. Voldug rödd hans hæflr djasshljómsveit vel og má segja hann annan blásaranna. Tónlistina hefur Tómas verið að Skemmtanir semja undanfarin þrjú ár og er hún innblásin af kveðskap Einars, ljóð- Einar Már Guðmundsson og Tómas R. Einarsson sameina krafta sína í Kaffi- leikhúsinu í kvöid. um eins og Dansaðu fíflið þitt, dans- aðu, Sósíalismi í einu herbergi, Skæruliðarnir hafa umkringt Vatnaskóg og Til vamar sauðkind- inni. Tómas hefur lengi verið i hópi fremstu djassmanna íslands og sent frá sér fjölda hljómskífa. Sú nýjasta kom út í fyrra, Á góðum degi. Hann hóf ungur að leika á harmoníku en skipti yfir á bassa eftir að hafa heyrt í Niels-Henning. Undanfarið hefur Tómas leikið með tríói Ólafs Stephensens, slegið kúbusveiflu og samið tónlist fyrir sjónvarpsútgáfu á leikriti Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Fjögur hjörtu. Félagar þeirra Einars Más og Tómasar eru í hópi þekktustu djass- leikara íslands: Óskar Guðjónsson er margverðlaunaður saxófónleik- ari þrátt fyrir ungan aldur og hefur á valdi sínu breitt litróf djassins frá bíboppi til teknódjass. Eyþór Gunn- arsson gerði garðinn frægan með Mezzoforte og hefur um langt árabil verið fremstur meðal jafningja í djasspíanóspili hérlendis. Matthías M.D. Hemstock er höfuðtrommari hins frjálsa djass á íslandi og er all- vel liðtækur í öðrum stílbrigðum djassins. Veðríð í dag Búist er við stormi Viðvörun: Búist er við stormi, eða meira en 20 m/s, á Vestfjörð- um, Ströndum og Norðurlandi vestra. Norðanátt 18-23 m/s norð- vestanlands en annars mun hægari. Rigning um norðanvert landið en skúrir sunnantil. Lægir heldur er líður á daginn. Norðaustan 10-15 m/s vestantil á landinu í nótt en hægari breytileg átt austantil. Skúr- ir, síst þó suðvestanlands. Hiti yflr- leitt 6 til 11 stig. Höfuðborgarsvæðið: Norðan 10-15 m/s en norðvestlæg átt um tíma í dag. Skýjað en úrkomulítið. Norðaustan 13-18 m/s seint í nótt. Hiti 7 til 12 stig. Sólarlag í Reykjavík: 20.17 Sólarupprás á morgun: 06.34 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.14 Árdegisflóð á morgun: 06.36 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 8 Bergsstaöir rigning 6 Bolungarvík rigning 5 Egilsstaðir 9 Kirkjubœjarkl. alskýjaö 10 Keflavíkurflv. rigning 7 Raufarhöfn þokumóða 9 Reykjavík skýjað 8 Stórhöfði hálfskýjaö 7 Bergen rigning 14 Helsinki skýjað 11 Kaupmhöfn' þokumóða 17 Ósló alskýjað 14 Stokkhólmur 11 Þórshöfn skúr 11 Þrándheimur hálfskýjaö 17 Algarve heiðskírt 23 Amsterdam þokumóöa 17 Barcelona þokumóöa 20 Berlín þoka á síö. kls. 16 Chicago hálfskýjað 18 Dublin léttskýjaó 9 Halifax þokumóða 21 Frankfurt heiöskírt 15 Hamborg þokumóöa 16 Jan Mayen súld 5 London skýjað 13 Lúxemborg þokumóóa 15 Mallorca léttskýjaö 18 Montreal 21 Narssarssuaq léttskýjaó 1 New York mistur 24 Orlando þokumóós 24 París léttskýjaö 13 Róm heiöskírt 18 Vín léttskýjaö 17 Washington þokumóöa 22 Winnipeg þoka 8 Helstu vegir um hálendið færir Helstu vegir um hálendið eru nú færir. Það skal áréttað að þótt vegir um hálendið séu sagðir færir er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum og öðr- um vel útbúnum fjallabílum. Færð á vegum Vegimir um Kjöl, Kaldadal og yflr í Landmanna- laugar frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum. Ástand vega 4*-Skafrenningur 0 Steinkast 03 Hálka QD Ófært Vegavinna-aögát h Öxulþungatakmarkanir □ Þungfært (£) Fært fjallabílum Ragna Dís Á myndinni eru tvær systur, Ragna Dís og Stef- ánía Sól. Ragna Dís kom í heiminn 21. mai síðastlið- Bam dagsins inn. Viö fæðingu var hún 4475 grömm og 54 sentí- metrar. Systir hennar er fimm ára gömul. Foreldr- ar þeirra eru Guðný Ósk Stefánsdóttir og Svein- bjöm Reyr Hjaltason. Svali pabbinn (Adam Sandler) tek- ur strákinn með sér í vinnuna. Svalur pabbi í Svölum pabba (Big Daddy) leikur Adam Sandler letiblóðið Sonny Koufax sem neitar að fúll- orðnast, lifir á örorkubótum og fé- lagsstofnun. Þegar myndin hefst er kærastan að yfirgefa hann fyr- ir sextugan mann sem hefur það sem Koufax hefur ekki, er traust- vekjandi. Óvænt bankar á dymar hjá honum hinn fimm ára Julian sem er í pabbaleit og það vill svo til að faðir hans leigir er á löngu ferðalagi. A' ‘" Kvikmyndir Koufax sér þarna kjör ið tækifæri til að endurheimta kærustuna og gengur drengnum í pabba stað. Gallinn er að hann veit ekki neitt um barnauppeldi og nennir ekki að setja sig inn í slíkt hlutverk svo glansinn fer fljótt af pabbanum. Nýjar myndir í kvikmynda- húsum: Bíóhöllin: Analyze This Saga-Bíó: Resurrection Bíóborgin: Sex: The Anabelle Chung Story Háskólabíó: Notting Hill Háskólabíó: Svartur köttur, hvítur köttur Kringlubíó: Wild Wild West Laugarásbíó: Thomas Crown Affair Regnboginn: Star Wars: Episode I Stjörnubíó: Big Daddy Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 Lárétt: 1 gerast, 6 möndull, 8 hærra, 9 muldur, 10 duft, 11 afl, 13 mastrið, 16 stétt, 18 matarveisla, 19 kapp, 20 tafði, 22 mál, 23 gort. Lóðrétt: 1 hampa, 2 óvissu, 3 nöld- ur, 4 slæpist, 5 eðja, 6 kindum, 7 lé- legt, 12 röskur, 14 stunda, 15 bylgja, 17 kraftur, 19 borðaði, 21 vein. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 skörpu, 8 voða, 9 ana, 10 öfugt, 11 at, 12 launaði, 15 usla, 17 suð, 18 mó, 19 trúr, 20 spurðum. Lóðrétt: 1 svölu, 2 kofa, 3 öðu, 4 'r* ragnar, 5 pata, 6 unaður, 7 fat, 13 ultu, 14 iðum, 16 sóp, 17 súð, 18 ms.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.