Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1999, Síða 29
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1999
37
Þrír af fimm meðlimum
Immigrants slá á létta strengi.
Landnemar í
Deiglunni
Immigrcints, djasskvintett frá
Stokkhólmi, leikur á heitum
fimmtudegi í Deiglunni frá kl. 21.
Nafhið Immigrants þýðir landnem-
ar, en það er sameiginlegt með fé-
lögunum fimm að þeir fluttu til
Svíþjóðar frá öðrum löndum. Þar af
eru þrír íslendingar: Erlendur
Svavarsson á trommur, Halldór
Pálsson á tenórsaxófón og Hjörleif-
ur Bjömsson á kontrabassa. Sá síð-
astnefndi er Akureyringm- og kom-
inn tími til að bjóða þessum góða
og víðkunna bassaleikara að leika í
fæðingarbæ sínum. Á trompet leik-
ur Rúmeninn George Nistor, sem
leikið hefur með heimsnöfnum í
djassinum, til að mynda Thelonius
Monk. Píanistinn, Jerry Stensen,
er Hollendingur og hefur leikið
með Josephine Baker og Clark
Terry. Landar okkar í kvintettin-
um eru einnig ~-----
miklir afreks- TÓlll6Íkdr
menn á sviði _____________
djassins. Efnisskráin tengist sígild-
um söngvum vinsælustu kvintett-
skipunar djasssögunnar, þ.e. tenór-
saxófónn, frompet, píanó, bassi og
trommur. Gamli, góði djassinn er
síungur í flutningi svo góðra
manna, eins og þeirra sem skipa
Immigrants.
Sinfóníuhlj óms veitin
á tónleikaferð
Á hveiju ári fer Sinfóníuhljóm-
sveitin í tónleikaferðir um landið
og nú í byrjun starfsársins verður
farið um Norðurland eystra.
Hljómsveitin spilar fyrst í íþrótta-
höllinni á Húsavík kl. 20.30 í
kvöld, síðan er haldið að Reykja-
hlíð við Mývatn og tónleikar
haldnir í íþróttahúsinu á sama
tíma annað kvöld. Siðustu tónleik-
amir að þessu sinni eru í Akur-
eyrarkirkju á laugardag kl. 15.
Flutt verða verkin L’Arlesienne,
úr svítu 1 & 2 eftir Georges Bizet,
Trompetkonsert eftir Alexander
Arutunian og 8. sinfónía Dvoráks.
Einleikari er Ásgeir Steingríms-
son en hann er fæddur og uppal-
inn á Húsavík. Stjómandi er Bem-
harður Wilkinson.
Gítartónleikar á Dalvík
Einar Kristján Einarsson gítarleik-
ari heldur áfram tónleikaferð sinni
um Norðurland og í kvöld heldur
hann tónleika í Dalvíkurkirkju kl.
20.30. Á efnis-
skránni er tónlist
úr ýmsum áttum,
spænsk og suður-
amerísk, verk eftir
J.S. Bach, Lennon
og McCartney, svo
að eitthvað sé
nefht. Einar Krist-
ján hefur komið
ffarn á tónleikum í
Svíþjóð, Englandi og á Spáni og við
margvísleg tækifæri hér á landi, með-
al annars á gítarhátíð á Akureyri,
sumartónleikum í Skálholti, sumar-
tónleikum á Norðurlandi og Myrkum
músíkdögum. Hann hefur leikið með
Caput-hópnum og komið fram sem
einleikari með hljómsveitum.
Einsöngstónleikar
í Bolungarvík
Sigrún Pálmadóttir sópransöng-
kona heldur einsöngstónleika í Fé-
lagsheimilinu Víkurbæ í Bolung-
arvík í kvöld kl. 20.30. Undirleik-
ari er Ivona Jagla. Á efhisskránni
eru meðal annars íslenskir ljóða-
söngvar eftir Sigvalda Kaldalóns,
næturljóð eftir Richard Strauss,
Benjamin Britten og Alban Berg,
norræn ljóð eftir Grieg og Sibelius
og atriði úr óperum.
Einar Kristján
Einarsson.
Jazzhátíð Reykjavíkur:
Dansaðu fíflið þitt, dansaðu
Dcuisaðu fíflið þitt, dansaðu, er yf-
irskrift tónleika í Kafflleikhúsinu í
kvöld, kl. 20.30. Löng hefð er fyrir
samruna ljóðs og djass og hafa mörg
ljóðskáld lesið upp við djassundir-
leik og nú bætist Einar Már Guð-
mundsson í hópinn. Voldug rödd
hans hæflr djasshljómsveit vel og
má segja hann annan blásaranna.
Tónlistina hefur Tómas verið að
Skemmtanir
semja undanfarin þrjú ár og er hún
innblásin af kveðskap Einars, ljóð-
Einar Már Guðmundsson og Tómas R. Einarsson sameina krafta sína í Kaffi-
leikhúsinu í kvöid.
um eins og Dansaðu fíflið þitt, dans-
aðu, Sósíalismi í einu herbergi,
Skæruliðarnir hafa umkringt
Vatnaskóg og Til vamar sauðkind-
inni.
Tómas hefur lengi verið i hópi
fremstu djassmanna íslands og sent
frá sér fjölda hljómskífa. Sú nýjasta
kom út í fyrra, Á góðum degi. Hann
hóf ungur að leika á harmoníku en
skipti yfir á bassa eftir að hafa
heyrt í Niels-Henning. Undanfarið
hefur Tómas leikið með tríói Ólafs
Stephensens, slegið kúbusveiflu og
samið tónlist fyrir sjónvarpsútgáfu
á leikriti Ólafs Jóhanns Ólafssonar,
Fjögur hjörtu.
Félagar þeirra Einars Más og
Tómasar eru í hópi þekktustu djass-
leikara íslands: Óskar Guðjónsson
er margverðlaunaður saxófónleik-
ari þrátt fyrir ungan aldur og hefur
á valdi sínu breitt litróf djassins frá
bíboppi til teknódjass. Eyþór Gunn-
arsson gerði garðinn frægan með
Mezzoforte og hefur um langt árabil
verið fremstur meðal jafningja í
djasspíanóspili hérlendis. Matthías
M.D. Hemstock er höfuðtrommari
hins frjálsa djass á íslandi og er all-
vel liðtækur í öðrum stílbrigðum
djassins.
Veðríð í dag
Búist er við
stormi
Viðvörun: Búist er við stormi,
eða meira en 20 m/s, á Vestfjörð-
um, Ströndum og Norðurlandi
vestra. Norðanátt 18-23 m/s norð-
vestanlands en annars mun hægari.
Rigning um norðanvert landið en
skúrir sunnantil. Lægir heldur er
líður á daginn. Norðaustan 10-15
m/s vestantil á landinu í nótt en
hægari breytileg átt austantil. Skúr-
ir, síst þó suðvestanlands. Hiti yflr-
leitt 6 til 11 stig.
Höfuðborgarsvæðið: Norðan
10-15 m/s en norðvestlæg átt um
tíma í dag. Skýjað en úrkomulítið.
Norðaustan 13-18 m/s seint í nótt.
Hiti 7 til 12 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.17
Sólarupprás á morgun: 06.34
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.14
Árdegisflóð á morgun: 06.36
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri rigning 8
Bergsstaöir rigning 6
Bolungarvík rigning 5
Egilsstaðir 9
Kirkjubœjarkl. alskýjaö 10
Keflavíkurflv. rigning 7
Raufarhöfn þokumóða 9
Reykjavík skýjað 8
Stórhöfði hálfskýjaö 7
Bergen rigning 14
Helsinki skýjað 11
Kaupmhöfn' þokumóða 17
Ósló alskýjað 14
Stokkhólmur 11
Þórshöfn skúr 11
Þrándheimur hálfskýjaö 17
Algarve heiðskírt 23
Amsterdam þokumóöa 17
Barcelona þokumóöa 20
Berlín þoka á síö. kls. 16
Chicago hálfskýjað 18
Dublin léttskýjaó 9
Halifax þokumóða 21
Frankfurt heiöskírt 15
Hamborg þokumóöa 16
Jan Mayen súld 5
London skýjað 13
Lúxemborg þokumóóa 15
Mallorca léttskýjaö 18
Montreal 21
Narssarssuaq léttskýjaó 1
New York mistur 24
Orlando þokumóós 24
París léttskýjaö 13
Róm heiöskírt 18
Vín léttskýjaö 17
Washington þokumóöa 22
Winnipeg þoka 8
Helstu vegir um
hálendið færir
Helstu vegir um hálendið eru nú færir. Það skal
áréttað að þótt vegir um hálendið séu sagðir færir
er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum og öðr-
um vel útbúnum fjallabílum.
Færð á vegum
Vegimir um Kjöl, Kaldadal og yflr í Landmanna-
laugar frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum.
Ástand vega
4*-Skafrenningur
0 Steinkast
03 Hálka
QD Ófært
Vegavinna-aögát h Öxulþungatakmarkanir
□ Þungfært (£) Fært fjallabílum
Ragna Dís
Á myndinni eru tvær
systur, Ragna Dís og Stef-
ánía Sól. Ragna Dís kom í
heiminn 21. mai síðastlið-
Bam dagsins
inn. Viö fæðingu var hún
4475 grömm og 54 sentí-
metrar. Systir hennar er
fimm ára gömul. Foreldr-
ar þeirra eru Guðný Ósk
Stefánsdóttir og Svein-
bjöm Reyr Hjaltason.
Svali pabbinn (Adam Sandler) tek-
ur strákinn með sér í vinnuna.
Svalur pabbi
í Svölum pabba (Big Daddy)
leikur Adam Sandler letiblóðið
Sonny Koufax sem neitar að fúll-
orðnast, lifir á örorkubótum og fé-
lagsstofnun. Þegar myndin hefst
er kærastan að yfirgefa hann fyr-
ir sextugan mann sem hefur það
sem Koufax hefur ekki, er traust-
vekjandi. Óvænt bankar á dymar
hjá honum hinn fimm ára Julian
sem er í pabbaleit og það vill svo
til að faðir hans leigir
er á löngu ferðalagi. A' ‘"
Kvikmyndir
Koufax sér þarna kjör
ið tækifæri til að endurheimta
kærustuna og gengur drengnum í
pabba stað. Gallinn er að hann
veit ekki neitt um barnauppeldi
og nennir ekki að setja sig inn í
slíkt hlutverk svo glansinn fer
fljótt af pabbanum.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Analyze This
Saga-Bíó: Resurrection
Bíóborgin: Sex: The Anabelle
Chung Story
Háskólabíó: Notting Hill
Háskólabíó: Svartur köttur, hvítur
köttur
Kringlubíó: Wild Wild West
Laugarásbíó: Thomas Crown Affair
Regnboginn: Star Wars: Episode I
Stjörnubíó: Big Daddy
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14 15
16 17 18
19 20 21
22 23
Lárétt: 1 gerast, 6 möndull, 8 hærra,
9 muldur, 10 duft, 11 afl, 13 mastrið,
16 stétt, 18 matarveisla, 19 kapp, 20
tafði, 22 mál, 23 gort.
Lóðrétt: 1 hampa, 2 óvissu, 3 nöld-
ur, 4 slæpist, 5 eðja, 6 kindum, 7 lé-
legt, 12 röskur, 14 stunda, 15 bylgja,
17 kraftur, 19 borðaði, 21 vein.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 skörpu, 8 voða, 9 ana, 10
öfugt, 11 at, 12 launaði, 15 usla, 17
suð, 18 mó, 19 trúr, 20 spurðum.
Lóðrétt: 1 svölu, 2 kofa, 3 öðu, 4 'r*
ragnar, 5 pata, 6 unaður, 7 fat, 13
ultu, 14 iðum, 16 sóp, 17 súð, 18 ms.