Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Skólaliðar sem fengu ofgreidd laun fyrir ári:
Hýrudregnir án
alls fyrirvara
Skólaliðar sem starfa við heils-
dagsskóla í grunnskólum Reykja-
víkur fengu ofgreidd laun frá 1.
september 1998. Þann 1. september
sl. var fyrirvaralaust dregið af laun-
um þeirra upphæð sem sögð var
nema ofgreiðslunni. Nam upphæðin
sem dregin var af laununum 40-50
þúsund krónum eftir því hve hár
starfsaldur viðkomandi var. Byrjun-
arlaun skólaliða eru rúmlega 70
þúsund á mánuði.
„Þetta kom mjög illa út fyrir mig,“
sagði Sara Haraldsdóttir, skólaliði í
Háteigsskóla. „Ég var ekkert látin
vita en fékk svo launaseðlilinn upp á
miklu lægri upphæð en ég hafði búist
við. Þetta hefði sett allt úr skorðum
hjá mér en ég gat samið um að þetta
yrði dregið af mér 1. september á
næsta ári. Með því móti get ég undir-
búið mig fyrir það.“
Sara sagðist hafa haft samband við
Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar
til að leita útskýringa. Henni hefði
skilist að launareikningur hefði
skekkst fyrir ári því þá hefðu skóla-
liðar verið settir á launadreifmgu,
þ.e. laununum dreift á alla mánuði
ársins.
„Ég skil þó ekki enn hvers vegna
þetta er of mikil útborgun því ég kom
fyrr til starfa í fyrra, eða 12. ágúst. Þá
var allt á öðrum endanum og við
þurftum að ganga frá áður en starfið
hæfist."
Guðfmna Óskarsdóttir skólaliði
fékk einnig miklu lægri upphæð á
launaseðlinum um síðustu mánaða-
mót en hún hafði átt von á. Frádrátt-
urinn var sagður vegna ofgreiddra
launa. „Ekki getur verið um að ræða
mistök vegna launadreifíngar hjá
mér því ég fór ekki inn á það kerfi
fyrr en 12. ágúst sl.,“ sagði hún.
„Þetta var afar slæmt fyrir mig en ég
lét þó ekki fresta þessu. Ég skil hins
vegar ekki þá mismunun sem er í
gangi, að ekki sé lagastoð fyrir því að
láta kennara endurgreiða ofgreidd
laun en draga svona fyrirvaralaust af
okkur." -JSS
Seinagangur byggingaverktaka í Kópavogi:
Eins og Harlem
„Mér finnst að setja ætti reglur
sem banna verktökum að skila af
sér íbúðum áður en allt er fullfrá-
gengið. Hér átti allt að vera klárt 1.
september en ég æli þegar ég lít út
um gluggann á morgnana á leið til
vinnu," segir Katrín Jakobsdóttir
lyfsölukona sem keypti sér 118 fer-
metra íbúð við Galtalind 9 í Kópa-
vogi í fyrra, íbúð sem átti að vera
tilbúin án gólfefna með frágenginni
lóð við innflutning. „Nú eru verk-
takamir búnir að grafa skurði hér
fyrir utan þannig að sorphreinsun-
armenn geta ekki tæmt sorpgámana
hjá okkur. Sorpið hleðst upp og
vegna þess að hér er mikið af bama-
fólki em kúkableiurnar stór hluti
sorpsins, svo ekki sé minnst á allt
hitt sem er að grotna í gámunum.
Ég bý á jarðhæð við hliðina á sorp-
inu og ekki bætir úr skák að kett-
imir í hverfmu draga sorpið og
kúkableiumar um allt. Þetta er eins
og í Harlem og ég æli oft á dag,“ seg-
ir Katrín Jakobsdóttir.
Það er byggingafyrirtækið Gustur
sem byggði og seldi Katrínu íbúðina
við Galtalind og Guðmundur Jóns-
son byggingaverktaki segir það mið-
ur að ekki sé hægt að fjarlægja sorp
vegna framkvæmda við bílaplanið:
„Við erum mánuði á eftir áætlun
eins og svo margir aðrir í þessum
bransa. Góðærið er þvílikt að erfitt
reynist að fá undirverktaka. Þetta
er allt þenslunni að kenna en alls
ekki fólkinu sem keypti af okkur
því það hefur allt staðið við sitt. Ég
vona bara að við kunnum að fara
með góðærið og ég lofa að kippa
þesu í liðinn með sorpið. Það er
náttúrlega ótækt að fólk æli þegar
það vaknar," segir Guðmundur
Jónsson hjá byggingafyrirtækinu
Gusti. -EIR
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra tippaði á að Neisti frá Miðey og Sigur-
björn Bárðarson muni sigra í 150 metra skeiði á veðreiðum Fáks um næstu
helgi, er hann opnaði nýjan leik á sölukerfi íslenskra getrauna á Internetinu.
Fyrir utan heimili Katrínar við Galtalind í Kópavogi.
Formaöur Heilbrigöisnefndar Suöurlands í campyloslagnum:
Engír hagsmunaárekstrar
- segir Guömundur Ingi sem sendi undirmenn í lögreglurannsókn
„Það hefur ekki komið til tals að
ég viki sæti í þessu máli,“ sagði
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
sem segist ekki sjá neina hættu á
hagsmunaárekstrum þótt hann sé
formaður Heilbrigðisnefndar Suður-
lands, sveitarstjóri á Hellu og
stjórnarformaður Sorpstöðvar
Rangvárvallasýslu. Sorpstöðin réð
Gámastöðina ehf. sem verktaka,
m.a. til gámaþjónustu við Reykja-
garð sem framleiðir Holtakjúklinga.
Reykjagarður rekur umfangsmikið
kjúklingasláturhús á Heilu sem er
stórt hagsmunamál fyrir sveitarfé-
lagið.
Heilbrigðisfulltrúar Suðurlands
höfðu m.a. gagnrýnt mjög sóðalega
umgengni á Ásmundarstöðum,
fuglasláturhúsinu á Hellu og ófull-
nægjandi gámaþjónustu í skýrslu
sem Bjarni Ásgeir Jónsson, forstjóri
Reykjagarðs, hefur kallað „grófa og
ruddalega" í samtali við DV. Að
sögn Guðmundar Inga urðu „harðar
ásakanir" Bjarna Ásgeirs til þess að
heilbrigðisnefnd óskaði eftir að
embætti ríkislögreglustjóra rann-
sakaði starfshætti heilbrigðisfull-
trúanna.
„Það er þeirra besta tækifæri til
að hreinsa sig af áburði ef hann á
ekki við rök að styðjast," segir Guð-
mundur Ingi.
Heilbrigðisfulltrúarnir hafa verið
kallaðir fyrir, annar tvisvar til yfir-
heyrslu hjá lögreglunni á Hvolsvelli
og hinn í umhverfisráöuneytinu.
Eftirlit með campylobacter í Reykja-
garði var tekið úr þeirra höndum og
fært til Hollustuverndar „af því að
ekki virtust líkur á að samband
kæmist á milli forsvarsmanna
Reykjagarðs og þeirra," segir Guð-
mundur Ingi. Heilbrigðisnefndin fái
öll gögn frá Hollustuvemd, segir
Guðmundur Ingi sem ekki kveðst
hafa nein gögn um sýnatökur úr
kjúklingabúum né hafi forstjóri
Reykjagarðs nokkum tima rætt við
nefndina.
„Það var óhjákvæmilegt fyrir
nefndina að fá utanaðkomandi aðila
til að kanna hvort þessar ásakanir
um lögbrot ættu við rök að styðjast.
Heilbrigðisfulltrúarnir hafa verið
sakaöir um að hafa brotið ákvæði
laga um hollustuvemd og mengun-
arvarnir, svo og ákvæði stjómsýslu-
réttar. Það var óhjákvæmilegt fyrir
nefndina, sem er stjóm heilbrigðis-
eftirlitsins, að fá utanaðkomandi
álit um það. En hvort um trúnaðar-
brest verður að ræða verður tíminn
að leiða í ijós.
Aðspurður um hvort formanni
heilbrigðisnefndar þætti það viðun-
andi ástand að dæla sýktum
• kjúklingum á markaðinn eftir þær
rannsóknir sem fyrir lægju um
mengun í kjúklingabúum sagði
Guðmundur Ingi: „Ég þekki ekki
hvað er sett á markaðinn. Ég er
ekki í heilbrigðiseftirliti sjáifur og
hef ekki þessa vitneskju."
-JSS
Stuttar fréttir i>v
Meiðyrðamál
Kjartan Gunnarsson, fyrrum
fomaður bankaráðs Landsbankans,
ætlar að höfða
meiðyrðamál á
hendur Sigurði
G. Guðjónssyni
hæstaréttarlög-
manni vegna
greinar sem Sig-
urður ritaði um
samskipti ís-
lenska útvarpsfélagsins við Lands-
bankann.
Erlendir iðnaðarmenn
Byggingafyrirtæki hafa orðið að
tlytja inn erlenda iðnaðarmenn til
að mæta þenslunni sem er á mark-
aðnum. Þarna er aðallega um að
ræða Svía, Þjóðveija, Portúgala og
Pólverja. Dagur sagði frá.
Enga lista
Samtökunum um vemdun Laug-
ardalsins hefur verið meinað að
vera með undirskiftalista sína á
bensínstöðvum olíufélaganna
þriggja í borginni. Samtökin telja
að olíufélögin hafi sammælst gegn
undirskriftalistunum. Þau vilji
ekki styggja borgaryflrvöld. Dagur
greindi frá.
Seldu vel
Dagur segir að verðmæti þeirra
sölusamninga sem gerðir voru á
sjávarútvegssýningunni nýlega séu
minnst 5-600 milljóna króna virði,
meira en nokkru sinni áður.
Frjálslyndir takast á
Dagur segir að illvig átök eigi
sér stað innan
Fijálslynda
flokksins, þar
sem deilt er um
stöðu Valdimars
Jóhannessonar
og hvort flokk-
urinn eigi að
styrkja hann
vegna kvótamálaferla hans.
Fornminjar fundnar
Blótsteinn frá 10. öld hefur fund-
ist í Nesjum í A-Skaftafellssýslu.
Þetta er talinn mjög merkur fund-
ur. Morgunblaðið sagði frá.
Atkvæöagreiðsla
Atkvæðagreiðsla mun líklegast
fara fram næsta vor um það hvort
Reykvíkingar vilja hafa Reykjavík-
urtlugvöll áfram á sama stað. Stöð
2 greindi frá.
Fordæma uppsagnir
Formenn stéttarfélaga starfs-
manna íslenska álfélagsins for-
dæma „tilefnislausar og ruddalegar
uppsagnir starfsmanna fyrirtækis-
ins“ í opnu bréfi til stjómenda ís-
lenska álfélagsins. Upplýsingafull-
trúi fyrirtækisins vísar þessum
ásökunum á bug.
Slátrið ódýrara
Sláturtíðin hófst á Akureyri í
gær en að sögn sláturhússtjóra
KEA við Dag er stefnt að því að
slátra 23.000 til 24.000 fjár í slátur-
húsinu í ár. Búast megi við því að
slátrið lækki í verði.
93% nýting
Meðalnýting hótelherbergja í
Reykjavík í ágústmánuði var 93%
og hefur aldrei verið betri sam-
kvæmt frétt frá Samtökum ferða-
þjónustunnar.
ÍS til Hafnarfjarðar
íslenskar sjávarafurðir ákváðu í
gær að kaupa þriðju og fjórðu hæð
í húseign við Fjarðargötu 13 til 15 í
Hafnarfirði af Sjólastöðinni hf. og
Sjólaskipum hf. Morgunblaðið
greindi frá.
Nor.Web hætta
Eigendur Nor.Web Ltd. í
Manchester ætla
að hætta starf-
semi fyrirtækis-
ins. Nor.Web er
samstarfsaðOi
Linu.Nets, fyrir-
tækis Reykja-
víkurborgar um
gagnaflutninga
á raflínum borgarinnar. Inga Jóna
Þórðardóttir, oddviti minnihluta
sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
segir þetta mjög alvarleg tíöindi.
-SÁ