Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Qupperneq 11
3D"V FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999 ennmgv Sálmar lífsins Það vekur athygli að meðal fjölmargra tónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur eru einir í Hall- grímskirkju. Þar leika saman á sunnudaginn á orgel og saxófón Gunnar Gunnarsson og Sigurð- ur Flosason og hefjast tónleik- arnir kl. 14. Við erum óvön því að leikið sé saman á þessi hljóð- færi ein og sér og töldu þeir fé- lagar að það hefði ekki verið gert á opinberum tónleikum hér- lendis fyrr en nú. Eru þá tón- verk samin sérstaklega fyrir þessi hljóðfæri á efnisskránni? „Nei, verkin sem við leikum á tónleikunum eru sálmar - bara upp úr sálmabók kirkjunnar - en við leikum okkur með þá og spinnum út frá þeim,“ segir Gunnar. Sálmarnir kom víða að og spanna langt tímabil, allt frá gregoriskum kirkjusöng til nýrra sálma, til dæmis eftir Þor- kel Sigurbjömsson. „Við köllum tónleikana „Sálma lífsins" og valið endur- speglar að vissu leyti lífshlaup mannsins eins og það kemur við kirkjulegar athafnir," segir Sigurður, „til dæmis er á efnisskránni lagið við „Ég kveiki á kertum mínurn" eftir Guðrúnu Böðvars- dóttur sem oft er flutt við jarðarfarir. Við leikum líka sálma sem tengjast stórhátíðum kirkjunnar." „Flestir eru þeir kunnuglegir nema gamla lagið við passíusálm númer 49, Um Kristí greftran," bætir Gunnar við. „Þetta er eitt af lögunum sem voru sungin við sálmana á fyrri öldum, samin löngu áður en farið var að spila undir söng. Þau eru nánast gleymd í dag. Þetta eru sérkennileg lög, í öðrum tóntegundum en maður er vanur, og það er nauðsynlegt að þau fái að heyrast við og við. Tónlistararfur okkar er ekki svo stór að við megum við því að glutra niður hluta af honum.“ Lykilatriði tónleikanna er spuninn. „Djass er eiginlega of þröng nálgun," segir Sigurður. „Við endurútsetjum þessa sálma eftir okkar eigin hugmyndum og spilum út frá þeim á mismunandi vegu. Við leikum okkur með Kirkjuorganistinn Gunnar Gunnarsson og djassleikarinn um sálma í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. hljóðmöguleika. Annars vegar höfum við org- el Hallgrímskirkju með yfir sjötíu raddir og svo verð ég með fjóra saxófóna, sópran-, alt-, tenór og barítonsaxófón, þó að ég sé vanastur að leika bara á altsaxófóninn. Við röðum sam- an hinum ýmsu hljóðmöguleikum til að fá fram fjölbreytilega nálgun að sálmunum." Sálmunum sýnd virðing Tónleikamir eiga sér alllangan aðdraganda og þeir félagar hafa þróað samleikinn smám saman á nokkrum árum. Þeir hafa leikið sam- an við kirkjulegar athafiiir í Laugameskirkju þar sem Gunnar er organisti og um síðustu mánaðamót léku þeir sömu efnisskrá á Akur- eyri og verður á tónleikunum á sunnudaginn. Sigurður Flosason er víðkunnur djassleik- ari og hefur ekki átt ýkja mikið við kirkjulega tónlist fram að þessu. En hann er klassískt menntaður og fór í gegnum tónlist af öllu tagi í námi og kemur því ekki alveg kaldur úr Sigurður Flosason mætast á miðri ieið í spuna DV-mynd Hilmar Þór djassheiminum inn í kirkjumúsíkina. Gunnar er líka aktífur djasspíanisti þannig að þeir mætast einnig þar. En hefði ekki þótt ótil- hlýðilegt fyrir einhverjum árum að blanda saman djassspuna og sálmum? „Jú, og kannski þykir einhverjum það enn,“ segja þeir félagar hlæjandi. „Frá einu sjónarmiði er þetta allt saman músík og hana má leika á marga vegu,“ segir Sigurður. „Á hinn bóginn er þetta trúarleg tónlist og við nálgumst hana af fullri virðingu þó við fórum aðrar leiðir með hana en venja er til. Frá því sjónarmiði teljum við alit leyfi- legt - af því við virðum tónlistina fýrir það sem hún er.“ Sem sagt, góðir hálsar: Heyr himnasmiður, Ég kveiki á kertum minum og tugur annarra fallegra sálmalaga í spennandi útsetningum Sigurðar Flosasonar og Gunnars Gunnarsson- ar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kl. 14. Ekki missa af því. Spuninn í aðalhlutverki Jazzhátíð Reykjavíkur var sett í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17 á miðvikudag og fengu gestir þar að heyra sýnishom af þrennu því sem fram undan var. Það er gott til þess að vita að við höf- um eignast dixielandhljómsveit, en dixieland- hljómsveit Áma ísleifssonar lék fýrst sveita við setninguna. Aðeins þarf að slípa hijóðfæraleik- inn, en fjörið var ósvikið. Agnar Már Magnús- son pianisti er með tríó sem lék þrjú lög í mis- munandi takttegundum, og sænsku innflytjend- umir gáfu sýnishom af sínu prógrammi. En um kvöldið var Hilmar Jensson með sveit í Kaffileikhúsinu, og var þar meðal annars leik- ið verk Hiimars, Kerfiil. Það var tekið upp fyrr á árinu, og nú er platan komin til landsins og var boðin til sölu á staðnum. Með Hilmari léku Andrew D’Angelo (altsaxófón/ bassakiarínett), Óskar Guðjónsson (ten- ór/sópransaxófón), Bryndis Halla Gylfadóttir Djass Ársæll Másson (selió), Eyþór Gunnarsson (píanó) og Matthías Hemstock (trommur/slagverk) en þetta er sú sveit sem leikur á plötunni. D’Angelo er einn þeirra sem léku á fyrri plötu Hilmars, Dofinn 1995, en að öðru leyti er New York-áhöfninni skipt út fyrir íslendingana. Fyrir hlé vom leikin nokkur styttri verk, hið fyrsta var bráðsmellin saxorgía með frumstæð- um hryn eftir Matthías, Doktor Pepper. Óskar átti líka eitt verk fyrir hlé, Hvítu nótumar, sem Eyþór hóf einn og notaði þær svörtu reyndar óspart strax frá byrjun. En kraftmikið stefið gekk upp á þeim hvítu, og virkaði vel. Kerfiii Hilmars var svo síðari hluti tónleik- anna, og kom þá Bryndis Halia til liðs við dreng- ina. Það hófst á því að Eyþór hljóp til og frá á pí- anóborðinu á meðan þau hin gerðu sig tilbúin undir tréverk og málningu, en fljótlega fór öli hljómsveitin af stað. Kannski er það helsta ein- kenni þessa verks, sé miðað við fýrri verk Hiim- ars, að rytmískir kaflar era uppistaðan, og áber- andi em kaflar þar sem tvö eða fleiri stef ganga rytmískt hvort á móti öðm og skapa þannig skemmtilega spennu. Spuninn var vitaskuld í aðalhlutverki, og aldrei var dauður punktur í flutningnum. Sé hann jafngóður á plötunni og hann var í Kaffileikhúsinu þetta kvöld, þá á platan skiiið góðar viðtökur. Það var ágætlega mætt á staðinn og óhætt að segja að Jazzhátíð Reykjavíkur hafi farið vel af stað í Kaflileikhúsinu. Engar skógarferðir The Immigrants léku í Súlnasainum fyrsta kvöld djasshátíðár í Reykjavík. Nafnið er komið til af því að allir em meðlimimir innfluttir í þvísa landi Svíþjóð. Hjörleifúr Bjömsson bassa- leikari var fyrstur íslendinganna til að flýja Frón og setjast að ytra, hinir em Erlendur Svav- arsson trommari sem lék m.a. með Pónik á árum áður og Halldór Pálsson saxófónieikari sem hefur af og tfl komið og leikið fyrir okkur hér á skerinu. Með þessum fyrrverandi íslend- ingum vom í fór píanóleikarinn Jerry Stenssen frá Hollandi og trompetleikarinn George Nistor, ættaður frá Transylvaníu. Halldór, sem vanalega blæs í altsaxófón, hafði nú skipt um rör og notaðist af þessu tilefni við tenór. Kannski hentaði eftiisskráin fremur síð- amefnda hijóðfærinu; fonksveifla með gamla laginu eins og tíðkaðist hjá Horace Silver, Benny Golson og fleirum. Fyrsta lagið, Friday, var þó eftir yngri mann, Bob Berg, en síðan kom Grease Piece eftir Silver. Einnig gaf að heyra Big P, eftir Jimmy Heath og On the Stairs eftir gítarleikarann Pat Martino. Blásaranir áttu einleik í tveimur ballöðum. Halldór lék Sophisticated Lady listavel og trompetleikarinn flutti Moonlight in Vermount og heimsótti örskotsstund þrjú önnur lög í ágætu sólói sínu. Og þeir vom fleiri góðu ein- leikskaflamir hjá Rúmenanum ljúfa, sérstak- lega á flygilhomið. Ein nýleg samba, Another Djass Ingvi Þór Kormáksson Fine Mess, eftir Steve Swallow var síðasta lag fýrir hlé. í henni naut sín smekklegur trommu- leikur Erlends. Hann er fúrðu rólyndislegur trommari miðað við uppruna sinn í rokkinu. Hjörleifui er ekki mikill sólisti en traustur imd- irleikari. Báðir hefðu þeir Erlendur mátt vera ævintýragjamari og fýlgja þannig hressilegum píanistanum betur eftir en kannski hefði það endað með einhveijum skógarferðum. Stenssen er spilari af Horace Silver/ Ramsey Lewis skól- anum og lék af góðri tilfinningu fýrir blúsnum sem nóg var af i lögunum sem flutt vom. Hann tók líka eitt píanótríóstykki og var þá meira á Gamer/Shearing nótunum. Tvö prýðisgóð lög eftir Stenssen pössuðu við annað efni tónleik- anna eins og flís við rass. Einhver sagði að Halldór væri svona saxófón- leikari sem ekki-djassgeggjarar fila. Hann fer sko ekki í neinar skógarferðir; fremur er eins og hann sé ailtaf að finna upp á nýjum og nýjum melódíum sem er einkar þægilegt áheymar. Auðvitað er stokkið í blúsinn og skaiahlaup við og við en í heildina er yfirbragðið dálítið fast- mótað og laust við þessa ævintýramennsku sem áður er minnst á. Það vora sem sé helst útlendingamir í hljóm- sveitinni, það er þessir sem ekki era íslenskir, sem reyndu að spenna bogann aðeins. Þannig gengur það. Þetta var skemmtilegt prógramm en gestir hefðu máit vera fleiri. Furðuleg ævintýri Á sunnudaginn kl. 14 verður finnska ævin- týramyndin um Rölla og fúrðuleg ævintýri sýnd í Norræna húsinu. Myndin er með finnsku tali og ætluð áhorfendum 8 ára og eldri. Tröllið Rölli og fallega huldukonan úr skóginum takast á við svartklædda Ruslara- fólkið. Það reynir á greind og styrk allra skógarbúa í átökunum. Hinn frægi leikari Allu Tuppurainen leikur Rölla. Aðgangur er ókeypis. JSfKaoua í Salnum Á sunnudagskvöldið kl. 20:30 heldur hinn virti franski píanóleikari Désiré N'Kaoua tónleika i Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Þess er nú minnst víða um heim að 150 ár eru liðin frá andláti Fredericks Chopin og af því tiiefni leikur N'Kaoua eftiisskrá tileink- aða minningu hans. Tónleikamir eru þeir fyrstu af fimm í Tíbrár-áskriftarröðinni númer 1, en sú röð hefur á að skipa góðum einleikurum sem auk N'Kaoua eru þau Ala- in Lefevre píanó, Guðný Guðmundsdóttir fiðla og Liene Circene píanó, auk árlegs Jóla- barokks þann 12. desember 1999. Désiré N'Kaoua fæddist í Constantine í Al- sír. Strax í bernsku komu óvenjuiegir tónlist- arhæfileikar hans í ljós og innan við tvítugt hafði hann unnið til fyrstu yerðlauna í al- þjóðlegri keppni í píanóleik. Á þessum aldri varð N'Kaoua einieikari með Fílharmoníu- hljómsveit Berlinar, en 27 ára gamali hlaut hann hin viðurkenndu og fágætu fyrstu verð- laun í alþjóðakeppninni í Genf. Framúrskar- andi árangur N'Kaoua í píanóleik hefúr geri hann að eftirsóttum einleikara með virtum hljómsveitum svo sem Filharmóníuhljóm- sveitum Berlínar, Varsjár, Prag, Búdapest, Aþenu og Sviss. Á efnisskrá Désiré N'Kaoua á smmudags- kvöldið eru tvö næturljóö op. 27, tvær póló- nesur op. 26, sónata op. 35 í b-moll og aliar ballöður Chopins: nr. 1 op. 23 í g-moll, nr. 2 op. 38 í F dúr, nr. 3 op. 47 í As-dúr og að lok- um nr. 4 op. 52 í g-moll. Þess má einnig geta að Sigfúsar Hafldórs- sonar tónleikarnir sem hafa fylit Salinn alla þessa viku verða endurteknir í sióasta sinn á þriðjudagskvöldið kl. 20.30. Þar leiða saman hesta sína Jónas Ingimundarson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson. Miðasala og sala áskriftarskírteina fer fram í anddyri Salarins alla virka daga frá kl. 9-16 og frá kl. 19 tónleikadaga. Pinter: Til ösku Sunnudagsleikrit Útvarpsleikhússins á rás 1 er Til ösku eftir Harold Pinter. Hjón sitja heima hjá sér að kvöldlagi og konan fer að segja manni sLnum frá eldheitu ástarsam- bandi sem hún hafði einu sinni átt við ann- an mann. Eig- inmaðurinn hefur aldrei heyrt um það fyrr og reynir að spyija hana nánar út í atvik en konan víkur sér undan á ekta „pintersk- an“ hátt. Hjónin leika þau Guðrún S. Gísladóttir og Amar Jónsson en leikstjóri er Hjáimar Hjálm- arsson. Leikrit- ið verður frum- flutt kl. 14 á sunnudag og endurflutt á miðvikudags- kvöldið kemur kl. 22.20. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.