Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 4
'« 5 *** * »1 TÍT Stórpopparinn Robbie Willi- ams leikur fyrir dansi í Hamborg í kvöld. Svo fer Bretinn og spilar í Tilburg, París og Berlín og mætir loks galvaskur í tollinn á Keflavík- urvelli nk. fimmtudag. Tónleik- arnir í Höllinni á föstudaginn eru síðustu tónleikar Robbies í mikl- um Evróputúr sem hann hefur staðið í og því hlakka hann og aðr- ir í fylgdarliðinu mikið til að koma til íslands. Hér ætlar gengið að dvelja þar til á sunnudaginn. Eðlilega er hart barist um athygli stórpopparans. Á eftir stórtónleik- um er alltaf haldið eftirpartí þar sem poppararnir slappa af. Almúg- inn reynir eftir fremsta megni að komast í slík partí til að fá smjörþef af stjörnu- ljómanum. £ „1 JtL Nú þegar - hafa fjórir . - - skemmtistað- A samband viö A í s 1 e n s ka Robbie-geng- ið og boðist til að hýsa eftirpartíið. Ekki er þó enn komið á hreint hvert farið verður með Robbie og hjörð hans eftir tónleikana. Búist er við að ýmsir burgeisar og Robbie-vinir kíki til landsins til að gleðjast með söngvaranum. Nöfn litlu bræðranna, Noels og Liams úr Oasis, hafa heyrst í þessu sambandi en ekki er vitað hvort einhver fæst til að setja fram tryggingu fyrir hótelher- bergjunum sem þeir myndu gista á. Þá er ekki talið útilokað að dvergvaxna söngkonan Kylie Minogue mæti. Ýmsir hafa stungið upp á tóm- stundverkefnum fyrir Robbie og kó á laugardaginn. KR-menn vilja t.d. ólmir fá hann til að lýsa leik í KR-útvarpinu en liklegast er þó að Robbie kjósi útivist og fari með fylgdarliði upp á Langjökul á Hummer-jeppum. Ekki er enn vitað hverjir hita upp á tónleikum Robbies nk. föstudag. Framkvæmdastjóri söngvarans er einna hrifnastur af Bellatrix en þær Kolrössur eru bókaðar annars staðar sama kvöld. Miðasala stendur nú sem hæst á tónleikana og er góð stemn- ing fyrir þéim. Eg myndi kjósa þig, Baldur" segir Þorsteinn. fer fram á X-inu. Til að gera kvöld- ið enn fýsilegra verða þrjár gesta- hljómsveitir með: GusGus, Hljóm- sveitin Thievery Corportation frá Washington, og ein í viðbót, sem EMI er að velja. EMI er stærsta rétthafafyrirtæki í heiminum og sér fram á aö finna hér hljómsveit- ir sem fallið geta í „Alternative commercial“-dálkinn - „Öðruvísi en aðgengilegt". Það er auðvitað mikill spenning- ur í skúrunum fyrir því að komast í flugskýlið. Baldur: „Bönd hafa engu að tapa við að ná sambandi við traustan dreifíngar- og söluað- ila erlendis. Það versta sem gerist er að mönnum lítist ekki á þau til- boð og þær umræður sem fara af stað og segja þá bara nei. En ég veit af fenginni reynslu að þetta er mjög vænlegur upphafspunktur." Súpa og samningur Erlendu bransakarlarnir mæta á klakann fimmtudaginn 14. október og verða snuðrandi utan í rokkinu fram á sunnudag. Tónleikarnir á laugardag eru bara hluti af pakk- anum og Baldur hvetur flestar ís- lenskar hljómsveitir til að reyna að nálgast gestina. Skífan ætlar að setja upp tónleika fyrir sin bönd og það má búast við að borgin verði iðandi af vongóðum poppurum. „Við setjum upp lítinn fund þar sem böndin geta mætt með prufu- upptökur og eitthvað um sig á blaði. Svo er bara stefnan að vera með fólkið úti á lífinu svo hver og einn geti notað tækifærið og boðið þeim í glas og náð kontakt. Það er ekkert sem segir að böndin sem spila í Flugskýlinu nái endilega samningi. Hljómsveit sem heldur hádegiskonsert á Kakóbarnum í Hinu húsinu gæti alveg eins náð samningi ef einn af þessum er- lendu gestum rambaði þangað inn í súpu. Það er ekkert gefið í þessu.“ Skipulagt kaos árið 2000? Baldur segir að það komi í ljós sirka viku fyrir konsertinn í flug- skýlinu hvaða hljómsveitir berjist þar um athygli bransafólksins. Hann vonast svo til að svipað dæmi verði árviss viðburður. Hvernig kemst ég á samning í út- löndum? er spurning sem oft heyr- ist í bílskúmum þegar hljómsveit hefur spilað tvisvar á Gauknum og komið lagi á safnplötuna „Sveittir sprettir". Fítonsboltinn Baldur Stefánsson, kenndur við GusGus, og Þorsteinn Stephensen hafa svör við þessari spumingu. Um miðjan október ætla þeir að halda risatónleika. „Þetta snýst um það að EMI Publishing í Bandaríkjunum vildi standa fyrir stórri ferð fólks úr músíkbransanum til íslands. Þeir höfðu samband við Flugleiðir sem höfðu samband við okkur og báðu okkur að hjálpa sér að setja upp þetta „show-case“.“ Sjó-keisið sem Baldur er að tala um er eins konar sjávarútvegssýn- ing rokksins, en hún verður ekki haldin í Smáranum heldur í Flug- skýli 4 þar sem GusGus-tónleikarn- ir voru í vetur. „Fyrir tónlistariðnaðinn á ís- landi væri það frábært að geta skapað stemningu fyrir árvissri tónlistarhátíð. Vonandi getum við stækkað þetta þannig að á næsta ári verði þetta skipulagt kaos út um allan bæ í viku.“ Hvaö er annars aö gerast hjá GusGus? „Við erum að fara til Mexíkó í lok mánaðarins og spilum á þrennum tónleikum þar. Okkur tókst að fá tónleikahaldarana til að bjóða öllum spúsunum með og ætlum að að slaka aðeins á í sól- inni. Beint eftir það förum við og spilum á Coachella-hátíðinni í Kaliforníu. Vikuna fyrir tónleik- ana hér förum við í vikuferð upp á hálendið með fólki sem vann þá ferð í leik á Netinu. í lok október fórum við til Frakklands og í nóv- ember byrjum við að pæla í nýrri plötu.“ „Djöfull talarðu, maður,“ segir Þorsteinn sem ekkert hefur komist að. „Þú ættir að fara í stjórnmál. Ég / / \ myndi kjósa þig.“ Vænlegur upphafs- punktur íslensku hljómsveitirnar þrjár verða valdar í flóknu ferli sem m.a. <5*3A, ÞÁ £R BÚIÐ A0 LEYSA ÞtTTA M£0 EYJABARKAMA„, OG HVAP *TLAR HANN At» 6ERA VI© ÞÁ? HANN &R 0ÚINN AO 036©A ÖUUM RÁBHERRUNUM SUMARBÚSTA0A UANO Er ísland heitasta pleis jarðar? Koma ' cá' t bestu böndin í dag úr Bolungarvík? Baldur og Steini eru ofurumbar og ætla að taka vel á móti eriendum poppsnuðrurum sem eru á leið- inni til landsins f Ó k U S 10. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.