Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 22
»
I
Gadget lögregluforingi er enginn venjulegur lögregluforingi, er mjog teygjan-
legur, svo ekki sé meira sagt.
I dag verður frumsýnd í Bíóhöll-
inni, Kringlubíói, Laugarásbíói,
Nýja bíói, Keflavík, og Nýja bíói, Ak-
ureyri, ævintýramyndin Inspector
Gadget sem byggð er á teiknimynda-
figúru sem notið hefur töluverðra
vinsælda. Um er að ræða villta og
gamansama ævintýramynd um ör-
yggisvörðinn John Brown (Matthew
Broderick) sem dreymir um að
verða mesta lögregluhetja í heimi.
Óvæntar aðstæður gera það að
verkum að hann er hentugt til-
raunadýr í leyniaðgerð á vegiun
enn leynilegra samtaka sem
hafa það að markmiði að búa
til hinn fullkomna lögreglu-
mann. Þannig breytist John
Brown í Inspector Gadget
Græna mílan
Ef einhver leikari hefur dómineraö ósk-
arsverðlaunin undanfarin ár er það Tom
Hanks sem fékk hinn eftirsótta óskar
tvisvar í röð. Sú kvikmynd sem á að
tryggja honum áframhaldandi óskarsvið-
veru á næsta ári er The Green Mile sem
frumsýnd verður 17. desember. Myndin
var forsýnd í vikunni til að fá viðbrögö al-
mennings og útkoman er það hæsta sem
þeir hjá Warner-bræðrum hafa fengið, eða
rúmlega 90 af hundrað mögulegum
(áhorfendur gáfu einkunn). Græna mílan
er gerð eftir framhaldssögu Stephens
Kings og segir frá fangaverði í dauðadeild
og sambandi hans við fanga sem ræður
yfir miklum krafti. Gæði myndarinnar
koma kannski ekki svo mikiö á óvart þeg-
ar haft er í huga aö leikstjóri myndarinnar,
Frank Darabont, leikstýrði The Shaws-
hank Redemptlon, einni bestu kvikmynd
sem gerö hefur verið eftir skáldsögu
Kings. Mótleikarar Hanks eru David
Morse, Gary Sinese, Patricia Clarkson,
Graham Greene og James Cromwell.
sem engi
krakki vii!
í fyrstu kvikmyndinni um brúð-
una Chucky, Child’s Play, sem
hafði að geyma sál geðveiks
raðmorðinga, var skilið við
Chucky sundurlimaðan á lögreglu-
stöð og þar er hann enn í byrjun
Bride of Chucky. Fyrrum kærasta
raðmorðingjans, Tiffany (Jennifer
Tilly), sem ekki hefur getað gleymt
vini sínum, tekst að bjarga leifum
brúðunnar og byrjar að púsla
henni saman og eina stormasama
nótt blæs hún lífi í Chucky og þar
með er fyrrum kærasti kominn aft-
ur til lífs og lima og nú ætlast
Tiffany til þess að hann giftist
henni. Þegar Chucky er ekki á
sama máli brjálast Tiffany og lokar
hann inni með annarri brúðu sem
klædd er brúðarskarti. Chucky er
ekki á því að láta temja sig og tek-
ur fljótt völdin og nær tökum á sál
Tiffany sem hann minkar í sina
stærð ...
Eins og sjá má er hér ýmislegt á
ferðinni sem ekki þolir dagsins ljós
og víst er að aðdáendur hryllings-
mynda fá sinn skammt í Bride of
Chucky sem óvænt náði nokkrum
vinsældum fyrir ári í Bandaríkjun-
um. Framhald af Child’s Play var
gert tvisvar en náði ekki vinsæld-
um og það er því merkilegt að
fjórða myndin, sem er í raun fram-
hald af þeirri fyrstu, skuli slá í
gegn.
Auk Jennifer Tilly leika í mynd-
inni Katherine Heigl, John Ritter
og Alexis Arquette. Sem fyrr er það
leikarinn góðkunni, Brad Douriff,
sem ljær Chucky rödd sína. Leik-
stjóri er Ronny Yu sem kemur úr
kvikmyndabransanum í Hong
Kong.
-HK
Willis Kilmer
í Útlögum
Maður dagsins I
Hollywood um þess-
ar mundir er Bruce
Willis en nýjasta
kvikmynd hans, The
Slxth Sense, er
fimmtu vikuna í efsta
sæti yfir mest sóttu
kvikmynd-
irnar og
kemur hún
til með aö verða næstvin-
sælasta kvikmynd ársins
á eftir Star Wars. Þessa
dagana tekur Willis
það rólega, hætti
við að leika í Ace in
the Hole og nýtur
frægðarinnar og ætl-
ar að gera það um
stund. Ekkert er
á dagskrá hjá
honum fyrr en í
janúar en þá mun
hann að öllum lík-
indum leika á
móti Val Kilmer
í Outlaws sem
sögð er vera í lík-
ingu við Butch
Cassidy and the Sundance
Kid. Þess má þó geta að eftir
er að frumsýna þrjá kvikmyndir
sem Willis leikur í og verða tvær
þeirra frumsýndar fyrir áramót,
Breakfast of Champlons og The
Story of Us.
Pearl Harbour
- eina ferðina
enn
Framleiðandinn stórtæki, Jerry Bruck-
heimer, og leikstjórinn Michael Bay, sem
gerðu Arma-
geddon og The
Rock, ætla að
sameina krafta
sína á næsta
ári í rúmlega
100 milljón
dollara kvik-
mynd sem hef-
ur vinnuheitiö
Tennessee og
gerist innrásar-
dagana á Pearl
Harbour t
seinni heimsstyrjöldinni. Þessi atburður
hefur oft verið kvikmyndaður en Bay segir
að áhorfendur eigi eftir að sjá atburðina í
allt öðru Ijósi en áður hefur verið gert.
Handritið skrifar Randall Wallace sem
hlaut óskar fyrir Braveheart. Verður Tenn-
essee næstdýrasta kvikmynd sem gerö
hefur veriö á Hawaii (Waterworld var dýr-
ari). Ekki hefur enn verið ráðið t helstu hlut-
verkin en Bay hefur lýst áhuga sínum á að
fá Gene Hackman í hlutverk Franklins
Roosevelts auk þess sem Gwyneth Pal-
trow hefur veriö boðið hlutverk hjúkrunar-
konu.
Gadget lögregluforingi er teiknimyndafígúra
með hæfileika sem engum öðrum eru gefnir, '
enda fórnarlamb vísindatilrauna. Gadget
hefur nú öðlast nýtt líf í meðförum
Matthews Brodericks sem þarf á öllum
sínum líkamsstyrk að halda til að
komast gegnum hlutverkið.
Gadget
bjargar
heiminum
sem hefur vissulega mikla og
óvænta hæfileika sem rekja má til
tölvukubba sem plantað er í hann.
Honum er nú att gegn mesta glæpa-
manni heimsins, Claw (Rupert Ever-
ett), sem hefur ekkert minna í huga
en heimsyfirráð.
Auk Brodericks og Everetts leikur
i Inspector Gadget Joely Fisher, sem
ekki er óvön að leika á móti teygjan-
legum náungum, en hún lék einnig í
The Mask á móti Jim Carrey. Leik-
stjóri er David Kellogg sem hér heyr
frumraun sína í kvikmyndum. Hann
kemur, eins og flestir ungir leikstjór-
ar í dag, úr auglýsingabransanum og
á að baki margar auglýsingar sem
unnið hafa til verðlauna. -HK
Háskóiabíó frumsýnir
í dag Brúður Chuckys
þar sem við hittum
aftur dúkkuna sem hefur
að geyma sál rað-
morðingjans Charles
„Chuckys" Lees Rays og
ekki hefur skapið batnað
með árunum.
Matthew Broderick -
Ferillinn
Matthew Broderick er fæddur 21. mars
1962 inn í listamannafjölskyldu í New
York. Faðir hans, James Broderick, var
leikari og móðir hans er leikskáldið Pat-
ricia Broderick. Eftir aö Ijóst var aö Matt-
hew gæti ekki orðið íþróttakappi eins og
hugur hans stóð til vegna hnémeiðsla inn-
ritaðist hann í leiklistarskóla meö skyldu-
náminu og steig sín fyrstu skref á sviöi
sautján ára þegar hann lék meö fööur sin-
um í leikriti eftir Horton Foote. Hann þótti
standa sig svo vel að leikskáld á borö viö
Neil Simon og Harvey Fierstein báöu
hann sérstaklega aö leika í verkum sín-
um. Má nefna það aö hann fékk sín fyrstu
Tony-verðlaun fyrir leik í Brighton Beach
Memories eftir Simon og hann lék einnig
í Biloxi Blues eftir sama höfund og lék i
kvikmyndaútgáfu verksins sem Mike
Nichols leikstýrði. Matthew Broderick hef-
ur skipt tíma sínum á milli leikhússins og
kvikmynda og hans stærstu leiksigrar eru
á fjölunum þótt árangur hans í kvikmynd-
um sé einnig eftirtektarveröur. Þess má
geta að fimm sinnum hefur hann leikið
hlutverk í kvikmynd sem hann haföi áður
leikið á sviði. Hér á eftir fer listi yfir þær
kvikmyndir sem hann hefur leikiö í:
•War Games (1983)
•Max Dugan Returns (1983)
•1918 (1985)
•Ladyhawke (1985)
•On Valentlne’s Day (1986)
•Ferris Bueller’s Day Off (1986)
•Project X (1987)
•Courtship (1987)
•Biloxl Blues (1988)
•Torch Song Trilogy (1988)
•Famlly Business (1989)
•Glory (1989)
•Freshman (1990)
•Out on a Umb (1992)
•The Nlght We Never Met (1993)
•The Road to Wellvllle (1994)
•Mrs. Parker and the Viclous Clrcle
(1994)
•Infinity (1996)
•The Cable Guy (1996)
•Addicted to Love (1997)
•Godzilla (1998)
•Inspector Gadget (1999)
•Walklng the Waterllna (1999)
•Electlon (1999)
ll
22
f Ó k U S 10. september 1999