Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 8
Það er risin upp ný kynslóð sem svífst einskis og ætlar sér að taka við völdunum af '68-kynslóðinni, nauðugri. Hún er að gera allt sem millikynslóðin (fædd um og yfir '60) talaði um að gera. Sú kynslóð var kaldhæðin, gagnrýnin og of óuppbyggileg til að gera eitthvað af viti. Var líka alin upp í þeim skelfilega misskilningi að peningar væru frá djöflinum. Gott dæmi um það er að hér fyrir nokkrum árum máttu engir nema vitleysingar leika í auglýsingum. Nú græðir Tvíhöfði miklu meira en bara peninga á því að selja sig sem andlit Tals. Þeir þykja bara jafn flottir og Björk - en síðustu Bjarkartónleikar voru eiginlega bara Talstónleikar. Það eina sem þykir soldið ógnandi við hina nýju framtakssömu kynslóð, sem er að koma sér upp sinni eigin sjónvarpsstöð og stjórnar heilum banka, er að hún velkist ekki í vafa um að kerfið sé eins og það eigi að vera. Hún þarf ekki að burðast með efasemdir eða nagandi samvisku og gerir því bara allt sem henni dettur í hug. Þetta er svo sem í lagi á meðan allir eru ungir og sætir en verður án efa subbulegt þegar kynslóðin eldist og reynir að halda í alla sigrana sína. Guðjón í Oz Oz er fyrirtæki sem hvert mannsbarn veit allt um. Þeir eru útibú frá Ericsson og hafa eigin- lega horfið frá heimsyfirráðum í dag og miða frekar á næstu tíu, fimmtán, tuttugu ár. Ætla að koma með heildarlausn á þeirri framtíðarsýn að sjónvarp, sími og Netið renni saman í eitt. Og það má auðvitað segja að þeir tengist Íslandssíma, eiga hlut í honum og svo er Eyþór fyrrum Oz-maður og sagan segir einmitt að þegar Ey- þór og Guðjón voru í framtíðar- nefnd símamála íslands - skipaðir £if samgönguráðherra - hafi þeir (eða allavega Eyþór) fengið hug- myndina að Íslandssíma. Þeim leist sem sagt svo vel á framtíð Landssímans að þeir stofnuðu sér- stakt fyrirtæki utan um hana. Guttinn Guðjón er maður sem gripur tækifærin þegar þau gefast og er til alls vís í náinni framtíð. Jón Ásgeir Jóhannesson Pabbastrákur með vit á bisness. Það er nýtt fyrirbæri á íslandi en ástæðan fyrir því er auðvitað að Jóhannes í Bónusi er sonarstrák- ur. Jón Ásgeir hefur rifið Bónus upp úr útsölunum og yfir í að eign- ast hlut í mjög valdamiklum stór- fyrirtækjum. Auk þess er Baugs- drengurinn það framkvæmdaglað- ur að hann er ekki bara að vasast í grænmeti og seðlum heldur eru Hard Rock, Rex og Astró undir hans væng. Næsta skref hjá strákn- um er Top Shop fataverslun í Lækj- argötu. Jón Ásgeir rekur harðan bisness og er miklu klárari en Jón Ólafsson. s Bjarni Ármannsson Fóstur í jakkafötum. Bóndasonur ofan af Skaga og tengdasonur Guðrúnar Helgadóttur rit- höfundar. Minnir líka soldið á krakkana í bók- unum hennar. Fátækur drengstauli sem bróder- ar og er svo yfirmáta góður drengur að það er nánast óviökunanlegt. Ferill hans upp á við er á þá leið að kauði byrjaði sem verðbréfagutti hjá Kaupþingi og var fljótur að vinna sig upp, fór út í framhaldsnám og er svo sannarlega undrabarn þegar það kemur að seðlum og bréfum. Enda er maðurinn bankastjóri dýrasta banka á íslandi, samkvæmt verðmati fjármálasnillinga. Verðbréfaguttarnir Gullæði góðærisins er hér. Allt í einu sprottin upp ný leið til að græða bílhlöss af peningum. Þeir sem byrja hér eru líka bankastjórar morgundagsins. Millj- ón á mánuði og gomma af fríðindum. Þeir guttar sem hafa náð einna mestum árangri sem verðbréfaguttar eru þeir Árni Oddur Þórðarson, deildarstjóri hjá Búnaðarbankanum, Heimir Már Guðjónsson hjá Is- landsbanka, Stefán Sigurðsson hjá íslandsbanka, Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaup- þings, og svo er hann Steini úr Vinum vors og blóma að gera það helvíti gott hjá Landsbréfum. Þetta eru óskabörn þjóðarinnar þrátt fyrir aö grey þjóðin viti ekki alveg hvemig þeir fara að því að græða svona mikið af peningum með því að fjárfesta í fyrirtækjun- um sem þjóðin vinnur hjá. Einar Bárðarson Það er nokkuð ljóst að grúppurnar Skítamórall Land og synir og em ekki að taka við Greifunum og kompaníinu. hljómsveitir eru að taka við af miðaldra hljóm- sveitum, böndum á borð við Sálina, Sólina og Stuð menn. Þetta eru bönd sem eru sponseruð til fjandans og sköpun- a r v e r k manna á borð við Einar Bárð- arson. En hann er enn eitt undrið frá þessari kynslóð. Bjó til hljómsveitina Skítamóral og sá um staði eins og Astró, Rex og nú síðast Hard Rock — alt staðir í eigu Baugs, en það fyndna við Einar Bárðarson er að Skítamórall hefur varla beðið þess bætur að hafa misst hann yfir til Baugs. Það skiptir sem sagt meiru í dag að hafa almennilegan umba en gera góða tónlist. Magnús Geir Þórðarson Leikstýrir nánast öllum verkum Iðnó. Á bak við hann em fram- kvæmdamennirnir Karl Pétur Jónsson og Breki Karlsson. Breki er að vísu kominn yflr til Oz og hefur því lítið um starfsemina að segja annað en að skapa óbein tengsl á milli fyrirtækjanna. Iðnó er samt lítill fiskur i þessum sjó en er lýsandi dæmi fyrir hroka þessarar ungu kynslóðar sem nú rís. Þeir renna beint inn í farið sem Ingvar . og Balti mddu frá sér, eru aðeins harðari af sér og tróðu sér fram fyrir Loftkastala- mennina þeg- ^ ar Iðnó var laust til leigu. Þeir kunna líka að búa til sjóbisness-sýningar sem skila arði. Markaðsvænir drengir hér á ferð og nokkuð ljóst að þeir líta svo á að þeirra tími sé kom- inn. Hingað til hafa þeir allavega rifið í það sem þeir vilja og eru ekki á því að sleppa. Árni Þór Vigfússon Verslógutti og prestssonur sem varð fjáð- ur á því að framreiða Hellisbúann. Tapaði að vísu einhverjum peningum á tímaritinu Húsbændur og hjú en var fljótur að gleyma því og kaupa sjónvarpsstöðina Skjá 1. Það er nýjasta stökk þessarar ungu kynslóðar. Nú er hún að koma sér upp sjónvarpsstöð og það veltur margt á hvemig hún spjarar sig. Það var '68-kynslóðin sem tók yfir RÚV og á báknið enn þá, '68-kynslóðin stofnaði auk þess Stöð 2 og síðan hefur ekkert gerst nema að Stöð 3 fór á hausinn og tvisturinn gleypti Sýn. Það er annars lítil trú á Skjá 1 í sjón- varpsbransanum. Þeir skelfa engan eins og er og þá sérstaklega í ljósi þess að Stöð 3 fór á hausinn með stöndug stórfyrirtæki á bak við sig. En sjónvarp getur ekki fjallað um peninga og stórfyrirtæki. Það verður að vera rekið af sveimhugum og snillingum eins og Jóni Óttari. Nú á bara eftir að koma í ljós hvort Árni Þór Vigfússon er nógu mikill snillingur til að skapa almennilegt sjónvarp. f Ókus 10. september 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.