Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 10
i|Pff®S Hljóðverin eru þessa dagana pökkuð af sveittum popp- og rokkurum sem hugsa sér gott til glóðarinnar. Mánuðirnir fyrir jólin eru nefnilega uppskerutími íslenska poppbransans og eins og vanalega ætla margir að taka þátt í flóðinu. Fókus tékkaði á stöðunni. Hvaða plötur fara jólapakkana? Ekki færibandamúsík Hvað? Önnur plata Lands og sona. Heltlr? „Það er ekki komið nafn á kvikindið," segir Njáll hljómborðsleikari. Stendur hvar? Upptökur á hljóðfærum eru að klárast og byrjað verður að syngja um helgina. Platan verður svo mix- uð I Puk-stúdíóinu á Jótlandi og áætlað er að hún komi út I lok október. Hvernlg plata? „Ég myndi segja að þetta sé ólíkt því sem við höfum gert áður," segir Njáll, „en segja þaö ekki allir? Eigum viö ekki þara að segja aö þetta sé plata sem viö stöndum og föllum meö? Ef þetta virkar ekki þá lifum viö með þvi. Þetta er bara spurning um aö gera þá plötu sem við viljum gera, ekki þara einhveija færibandamúsík." Besti Bubbinn Hvað? Best of Bubbi. Heitlr? Ekki komið á hreint en „Stál og hnífur" gæti orðið ofan á. Stendur hvar? Nú er veriö að hanna umslagið. Platan kemur út 15. október. Hvernlg plata? Þetta er tvöföld plata með bestu og vinsælustu Bubba-lögun- um frá síðasta áratug. Einnig eru áður óútgefin lög í pakkanum, upptökur frá tónleikum og úr útvarpinu. Þar að auki fylgir þriðji diskurinn, fimm laga plata með þrem lögum sem Bubbi tók upp með Botnleðju og tvö lög sem hann tók upp með Ensími. Þessar upptökur voru geröar á þessu ári. Dauðar vogguvisur Hvað? Önnur plata 200.000 naglbíta. Heltlr? Ekki ákveðiö en vinnsluheitið er „Vögguvísur fyrir skuggaprinsa". Villi segír það nafn þó ítekað hafa verið baulað niður af öðrum hljómsveitarmeðlimum. Stendur hvar? Uþþtökur eru aö klárast, platan fer í hljóð- blöndun í byrjun október. Á að koma út í byrjun nóvember. Hvernlg plata? Textarnir eru lítil ævintýri um prinsa, prinsessur, dreka og fugla þar sem allir deyja í lokin. Tón- listin er ekki ósvipuð og á fyrri plötunni, nema harðari og árásargjarnari. Þá er meira notast við tölvur en síðast og ýmis skrýtin hljóö skjóta upp kollinum. Rafmagnslaus Sál Hvað? Sálin rafmagnslaus á tónleikum. Heltlr? „Ég veit það svei mér þá ekki," segir Stefán. „Við erum ! vandræðum." Stendur hvar? Verið er að mixa tón- leikaupptökurnar og gera umslagið. Platan á að koma Crt um miðjan októ- ber. Hvernlg plata? Eftir að Sálin spilaöi fjögur lög órafmagnað á styrktartónleik- j um fyrir síðustu jól vatt hugmyndin upp ; á sig og endaði sem heilir tónleikar 12. j ágúst sl. Platan er afraksturinn: 11 lög, þ.á m. tvö ný: „Kominn" eftir Jens og Friðrik, sem fer I spilun í þessum mán- i uði, og „Þetta er okkar nótt" eftir Guð- í mund og Stefán. Herra Diskó Hvað? Fjórða sólóskífa Páls Ósk- ars. Heltlr? Deep Inside Paul Oscar. Stendur hvar? Páll er ásamt hjálp- arkokkum sínum úti í Englandi þar sem verið er að setja punktinn yfir i- ið. Ef allt gengur vel kemur platan út 15. október. Hvernlg plata? „Páll Óskar er Hr. Diskó," segir Palli, „og þessi plata er sjálfstætt framhald af Seif-plöt- unni, bara plús 40%. Það er mikil klúbbastemning í gangi og ég vinn plötuna með rjómanum af helstu snillingum landsins í tölvutækri tón- list." Hér á Palli við Jóhann úr Lhooq, Barða úr Bang Gang, Herb Legowitz, Bjarka Jónsson og Viðar Hákon úr Traktor. „Þetta er fyrsta platan sem ég syng á ensku og það réttlætir nafnið. Nú geturfólk farið aö hlakka til að sjá umslagið," segir Palli og hlær striðnislega. Léttblúsaðir gamlir menn Hvað? Önnur samstarfsplata KK og Magga Eiriks. Heltlr? Það er ekki komið á hreint. Vinnsluheitið er KK og Maggi Eiriks 2. „Rnnst þér það ekki frumlegt?" spyr Maggi. Stendur hvar? „Viö erum byrjaðir að garfa í henni." Hvernlg plata? „Þegar við gerðum síöustu plötu vorum við ekki búnir að spila jafnmikið saman og núna," segir Maggi. „Þetta verður léttblúsað í anda þess sem við gerum þegar við komum fram saman. Við reynum að gera skemmtilega plötu. Það er eini tilgangurinn og eina ástæðan þegar gamlir menn eins og viö gerum plötu." Stórtækari en fyrr Hvað? Fjóröa breiðskífa Maus. Heltlr? „Viö erum í vandræöum með nafn," játar Birgir Örn. „Kannski ætt- um við að auglýsa eftir nafni í Fókusi?" Stendur hvar? „Platan verður kláruð í næstu viku. Þá á eftir að gera um- slag en platan ætti auöveldlega að nást út í lok október." Hvernlg plata? „Það er ein ballaða og níu rokkarar," segir Birgir. „Ég hélt að það yrðu engin popplög en nú sýnist mér að það séu a.m.k. tvö. Þetta er náttúrlega sama bandið og því sama ruglið. Nei, nei." Birgir segir að hann hafi reynt að syngja sómasamlega í þetta skiptið, án j þess þó að tónlistin missti karakterinn. Hann segir bandið hafa verið stór- j tækara en fýrr og það hafl verið í tvo mánuði samtals að taka plötuna upp. j „Það er helmingi meiri tími en síöast," segir hann. Með erlenda markaði í huga Hvað? Fyrsta sólóskífa Selmu. Heltlr? Ekki ákveðið, kannski bara „Selma". Stendur hvar? Upptökum er lokið. Hljóðblöndun hefst í j London og Stokkhólmi! næstu viku. Platan kemur út á ís- ; landi síðari hluta október en í Evrópu skömmu síðar ! ‘ annarri mynd. E.t.v. veröur nýjum upptökum af Todmobile- lögum bætt við I alþjóðlegu útgáfunni. Hvernlg plata? All out of Luck gefur vissulega forsmekkinn en er jafnframt léttasta lagið. Þorvaldur Bjarni semur öll lögin en hann, Sveinbjörn I. Baldvinsson og Selma textana. Þeir eru allir á ensku þv! platan er fyrst og fremst gerö með erlenda markaði! huga. Kafarinn sem drukknaði Hvað? Önnur plata Ensími. Heltir? „Þaö er óákveðið en gælt er við hugmyndir eins og „Á slóð tortímingar", „Kafarinn sem drukknaði" og „BMX“, sem er líklegasta nafnið." Stendur hvar? „Upptökur hófust í vikunni. Stórbokkinn Steve Albini kemur inn í verkefniö í enda mánaðarins. Stefnt er aö því að platan komi út 5. nóvember." Hvernlg plata? „Eins og siðast verður þetta rokkplata meö elektró-fíling," segir Frans gítarleikari. „En það verður farið í aðrar áttir. Svo veit maður aldrei hvaö Albini nær að draga fram. Kannski lætur hann okkur spila nakta í stúdíóinu." f Ó k U S 10. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.