Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 7
3 haf Tóbakslausa skáldið tryllt Vá! Það fór illa fyrir hinni reyklausu Sóleyju sem var á síðustu forsíðu Fókuss. Það vildi svo til að ljósmyndarinn og hún ákváðu að nota leik- mynd fyrir myndatökuna; eitt stykki vindil. Flottar myndir og allt það, en nú er stúlkan ofsótt af skáldinu í Tóbaksvarnar- nefnd því nefndin og Eskimo Models eru með samning og Sóley er á samningi hjá Eskimo. Skáldið notar hvert tækifæri til að koma reyklaus- um skoðunum sínum á fram- færi og fannst ekkert sniðugt að Sóley héldi á vindli. Jafnvel þó hún sé sæt og góð og hafi aldrei reykt. Enda er ljótt að reykja, það vita allir. Popp tíví í loftið Ný sjónvarpsstöð, Popp tíví, á að fara í loftið 18. september. Sent verður út á örbylgju allan sólarhringinn á sama stað og Áttan er núna og aðgangur að stöðinni verður gjaldfrjáls. Eins og nafnið bendir til verður tón- list cillsráðandi í anda MTV og íslenskri tónlist verður gert hátt undir höfði. Sjónvarps- stjóri er Jón Jarl Þorgríms- son. Robbie fær hardkor- samkeppni Sama kvöld og Robbie tryllir gelgjuna í Höllinni verður hard- kor-kvöld í bUageymslu RÚV. Hingað kemur bandaríska bandið Sick of It AIl, sem lengi hefur verið eitt aðalbandið í hardkorinu. íslenskir fulltrúar verða Mínus og Bisund. Tónlist SOIA og Robbie er þó svo ólík að ekki er talið líklegt að fólk þurfi að pæla mikið í því hvora tónleikana það á að mæta á. Jónsi geimblöku- engilsareki Ágætisbyrjun með Sigur Rós sem hefur verið i efsta sæti ís- lenska sölulistans mestan hluta sumarsins og því ljóst að landinn er í stuði fyrir værukært rokk þeirra. Nú er hróður bandsins far- inn að berast út fyrir landstein- anna og vikublaðið NME mætti á tónleika Sigur Rósar í Höllinni um daginn. Þar urðu menn frekar kátir með Jónsa og félaga og blöðruðu m.a. þetta af sinni al- kunnu snilld: „Jónsi er þessi sjaldgæfa tegund af geimblöku- engilsdreka sem er með tilfinn- ingalegan hitamæli í raddböndun- um.“ Ekki er þetta síðra: „Jónsi er svo mjór að þegar hann snýr sér á sviðinu þá er eins og hann hverfi.“ 11 o # I nýjasta hluta af spumingaleikn- um sívinsæla, Gettu enn betur, sem fór í loftið á Fókus-vefnum inni á visir.is í morgun, verða popp- og rokkspurningar allsráðandi. Þeir sem eru fljótir og vel að sér eiga von á glæsilegum verðlaunum, öllum plötum Sigur Rósar, hljómsveitar- innar sem hefur hangið sem fastast í efsta sæti íslenska plötusölulistans í sumar. gur Bé; rðlaun meira a visir.is Fyrsta plata Sigur Rósar var Von, sem kom út 1997. í fyrra kom Von- brigði, þar sem ýmsir töffarar krukkuðu í Von, og þriðja platan, Ágætis byrjun, hefur svo verið að gera það gott i sumar. Næsta skref era alheimsyfirráð Sigur Rósar og verður fyrsta skrefið í þá átt stigið síðar í mánuðinum þegar út kemur lítil plata á vegum Fat Cat-platna í London. Platan heitir „Svefn-G- Hljómsveitin Sigur Rós. Englar" og mun innihalda nokkur lög af Ágætis byrjun auk tónleika- upptakna. Talið er að fimm lög séu á diskinum. Þessi nýja plata er að sjálfsögðu með í verðlaununum sem Fókus veitir þeim þrem sem vita mest og eru snöggastir. Það er ekki eftir neinu að bíða - skelltu þér nú beint inn á Fókus á Vísi og taktu þátt í Gettu enn betur. 10. september 1999 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.