Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Síða 9
Baldur Stefánsson
Sonur þjóðleikhússtjóra hristi
meikhópinn GusGus fram úr
erminni og er án efa helsta ástæð-
an fyrir sigrum hópsins - það
stendur að vísu eitthvað á frekari
sigrum í augnablikinu. Þetta er
bransamaður á borð við Einar
Bárðarson. Einsi er í vinnu hjá
Bónusi en Baldur hjá Oz.
Báðir hafa þeir skap-
að meikbönd, ann-
ar fyrir ísland og
hinn fyrir heim-
inn. Baldur er
auk þess, líkt
og Einar, mikil-
vægari en
hljómsveitin
sem hann skopp-
ar í kringum.
Linda Björk Árnadóttir
Fatahönnun á íslandi hefur ver-
ið hallærislegt fag i gegnum árin.
Allavega datt engum íslenskum
fatahönnuði í hug að útlendingar
hefðu áhuga á fótum af klakanum
fyrr en Linda Björk Árnadóttir
mætti á svæðið með Cry Lab. Það
fyrirtæki framleiðir hennar eigin
línu sem heitir Svo og
selur um víða veröld.
Linda á líka skóbúðina
KRON með manninum
sínum, Frey Einars-
syni, framkvæmda-
stjóra Plúton. Það er
fyrirtæki sem er farið
að láta ráðendur í aug-
lýsingabransanum
finna fyrir sér. En sam-
an eru þau Linda og
Freyr hörkubiss-
nesspar. Hafa gert góða samninga
í útlöndum og hún þykir hafa bein
í nefmu. Ætlar sér að verða stórt
nafn í fatabransanum, á nokkur ár
í það en barráttan fer vel af stað
hjá stelpunni.
Eyþór Arnalds
Borgarfulltrúinn var fljótur að fatta að
það var engin framtíð í stjórnmálum.
Það er líka eitthvað sem þessi kynslóð
veit: Það er betra að hafa stjórnmála-
mann í vasanum en vera í vasanum á
bisnessmanni. En allavega, Eyþór er
stjórnarformaður Skjás 1, poppari og
framkvæmdastjóri Íslandssíma en
stjórnarformaðurinn þar er Páll Kr. og
sá maður þykir nokkuð tengdur Hofi
(eignarhaldsfélag Hagkaupssystkin-
anna). Þetta fyrirtæki er þvi alvöru og
stærðarinnar áform á teikniborðinu.
Ljósleiðari í öll hús en hann mun þá
sameina síma, Net og sjónvarp. Þegar
það gerist gæti Íslandssími orðið raun-
veruleg samkeppni við Landssímann.
Ingvar og Balti
Frumherjamir í að flytja leik-
húsið frá stofnunum og yfir til
fólksins. Þeir em samt aðeins of
gamlir til að teljast til kynslóðar-
innar sem fæðist í kringum 1970
og er nú að taka við keflinu frá
nauðugri (og auðugri) ‘68 kynslóð.
En einhvem veginn, þrátt fyrir lít-
inn dug sinnar kynslóðar, tókst
Ingvari og Balta að rísa upp og
gera góða hluti. Það má segja að
þeir hafi verið þeir fyrstu sem
kveiktu á breytingunum sem hafa
orðið frá einokun yfir i frelsi. Það
má stofna leikhús og græða pen-
inga á öllu nema klámi og dópi nú
til dags. Nú em Ingvar og Balti því
miður hættir að bylta og famir að
gera bíó. 101 Reykjavík eftir Balta
og Hallgrím Helga verður frum-
sýnd í vetur (auðvitað með út-
lenskri stórleikkonu, þeir þora
piltarnir) og þvi er ekki að neita
að bíóbraskið hefur bitnað á Loft-
kastalanum. Það er allavega lítið
um að vera þar þetta misserið,
annað en Hattur og Fattur og svo
Rent, en Þjóðleikhúsið á það
stykki. Aðdáendur strákanna
verða bara að vona að Ingvar og
Balti bylti kvikmyndaheiminum
þrátt fyrir að fyrsta verk þeirra
hafi floppað -- Popp í Reykjavík.
Gunnar Hilmarsson
Auðvitað hefur fólk eignast búð-
ir áður á íslandi. En þetta er
sjoppa þessarar framkvæmdaglöðu
kynslóðar. Gunni og Arnar Gauti
eru heilamir á bak við GK en Arn-
ar hættur, er nú innkaupastjóri
hjá Hagkaupi. Gunni er þá einn
eftir ásamt konu
sinni, Kolbrúnu
Petreu Gunnars-
dóttur, og ein-
hverjum háleyni-
legum hluthöfum.
Þau hjónin ætla
sér stóra sigra í
framtíðinni. Eru
komin með sína
eigin línu sem þau
hanna saman og
láta sauma fyrir
sig erlendis. Þar eru þau svo með
umboðsaðila sem selja vöruna úti.
Þetta er fólk sem þorir. Virkilega
hugguleg hjón sem era á beinu
brautinni til mikilla efna. Era að
fara að opna nýja búð í Kringlunni
-- GK fyrir konur.
r r
KVIKMYNDASKOLI ISLANDS
HAUSTÖNN
27. september - 20. desember 1999
in 21. aldarinni
Nám í kvikmyndagerð undir leiðsögn íagíólks.
. '
Bóklegt nám í handritagerð, leikmyndagerð,
kvikmyndatöku, lýsingu, klippingu,
hljóðvinnslu, leikstjórn o.íl.
Nemendur fá verklega þjátfun við gerð
fjögurra stuttmynda.
Boðið er upp á kvöldskóla og dagskóla.
Nemendur hljóta viðurkenningu í námslol; ser
nýtist þeim hvort heldur vegna starfsumsók" e
eða umsókna í framhaldsnám.
Ötskrifaðir nemendur Kvikmyndaskóla (sla:: s
starfa víðsvegar í kvikmyndaiðnaði, til dæmis
hjá sjónvarpsstöðvum, auglýsingafyrirtæi .m
og kvikmyndaframleiðendum.
Skráning er hafin í síma 588 2720
Takmarkaður fjöldi nemenda!
KVIHMYNDflSKOLI
íS LfiNDS
Kvikmyndaskóli íslands • Ármúla 38 • 108 Reykjavík* Sími 588 2720 • kvikmyndaskoli@islandia.is
10. september 1999 f Ókus