Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 17
16 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 Sport f i) UEFA-BIKARINN * —--------------- 1. umferð, fyrri leikir: Hapoel Haifa - Club Brugge ... 3-1 Benfica - Dinamo Búkarest ... 0-1 Lausanne Sports - Celta Vigo . . 3-2 Beira Mar - Vitesse ...........1-2 Amica Wronki - Bröndby ........2-0 Roma - Vitoria Setubal ........7-0 Atletico Madrid - Ankaragucu . . 3-0 Celtic - Hapoel Tel-Aviv ...... 2-0 West Ham - Osijek .............3-0 Tottenham - Zimbru Chisinau . . 3-0 MTK Húngaria - Fenerbache ... 0-0 Mónakó - St. Johnstone ........3-0 AB - Grasshoppers .............0-2 Zurich - Lierse ...............1-0 Grazer AK - Spartak Trnava ... 3-0 Kaiserslautern - Kilmarnock ... 3-0 Ionikos - Nantes ..............1-3 Ajax - Dukia Banská Bystrica . . 6-1 Aris Saloniki - Servette.......1-1 Omonia Nicosia - Juventus .... 2-5 Parma - Kryvbas Kryvyi Rig ... 3-2 Anderlecht - Olimpija Ljubljana 3-1 Zenit St.Petersburg - Bologna . . 0-3 Skonto Riga - Widzew Lodz .... 1-0 Inter Bratislava - Rapid Wien .. 1-0 Roda - Shakhtar Donetsk.......2-0 Viking Stav. - Sporting Lissabon 3-0 CSKA Sofia - Newcastle.........0-2 Vojvodina - Slavia Prag........0-0 Gorica - Panathinakos..........0-1 Torpedo Kutaisi - AEK Aþena . . 0-1 Hajduk Split - Levski Sofia .... 0-0 Lokomotiv Tbilisi - PAOK......0-7 Sigma Olomouc - Real Mallorca . 1-3 Maccabi Tel Aviv - Lens.......2-2 Bodö/Glimt - Werder Bremen . . 0-5 Lyngby - Lokomotiv Moskva ... 1-2 Helsingborg - Karpati Lviv .... 1-1 Lech Poznan - Gautaborg .......1-2 Teplice - Ferencvárosi.........3-1 A.Famagusta - Legia Varsjá ... 1-0 Rússneskir dómarar sem áttu aö dæma hjá Hapoel Haifa og Club Brugge í Israel voru settir af og rúm- enskir kollegar þeirra sóttir í skyndi í staðinn. Rússamir mættu ofurölvi til ísraels, sungu og dönsuðu á flugvellin- um, áreittu lögreglukonur og þjón- ustustúlkur, og tóku til við að stjóma umferðinni í miðborg Tel Aviv. Alessandro del Piero lék sinn fyrsta leik með Juvent- us í 10 mánuði þegar liðið vann auðveldan sigur á Kýpur. Hann skoraði fimmta og síðasta markið en staðan var 0-4 eft- ir 24 minútur. Sigur Newcastle í Búlgaríu var fyrsti sigur liðsins í 15 leikjum. Dimitri Alenitchev skoraði þrennu fyrir Roma í 7-0 sigrinum á Vitoria fíá Portúgal. Marco Di Vaio skoraði tvö mörk fyr- ir UEFA-meistara Parma sem mörðu Kryvbas frá Úkraínu, 3-2, og eiga erf- iðan útileik fyrir höndum. -VS Valsmenn bjóða stuðningsmönnum sínum í hópferð á fallslaginn i Grindavik á morgun. Farið verður frá Hlíðarenda kl. 12.45 og heim strax að leik loknum. Skráning er að Hlíð- arenda, í síma 551 2187 og í tölvu- pósti, valur@valur.is. Enska B-deildarliöiö Charlton og ítalska stórliðið Inter Milano hafa gert með sér þriggja ára samning um samstarf og skipti á leikmönnum. Leikmenn sem ekki komast í lið hjá Inter fá því tækifæri til að spila með enska liðinu. Úkrainumenn ætla að fara þess á leit við UEFA að leikur þeirra við Rússa í Evrópukeppninni í knattspymu 9. október fari fram í hlutlausu landi. Þeir telja Moskvu og Rússland mikið hættusvæði þessa daga vegna hinna mannskæðu sprenginga sem þar hafa dunið yfir. Rússar em ekki hrifnir af þessum áformum og segja að nágrannar sínir séu bara aö reyna að trufla einbeit- ingu þeirra fyrir mikilvægan leik. Christophe Dugarry, franski lands- liðsmaðurinn i knattspymu, þarf ekki að sæta refsingu þrátt fyrir að steralyfið nandrolone hafi fundist i líkama hans. í ljós kom að læknirinn sem framkvæmdi lyfjaprófið á hon- um hafði ekki tilskilin réttindi til þess. ,yg Temur Ketsbaia, Warren Barton, Didier Domi og Gary Speed fagna fyrra marki Newcastle gegn CSKA í Búlgaríu í gær. Newcastle vann góðan útisigur, 2-0, og er nokkuð öruggt með að komast í 2. umferðina. Reuter ^ UEFA-bikarinn í knattspyrnu: Ovænt í Stavanger - þegar Viking skellti Schmeichel og félögum í Sporting Lissabon Norska liðið Viking Stavanger vann óvæntan og glæsilegan sig- ur á Sporting Lissabon frá Portú- gal, 3-0, í 1. umferð UEFA-bikars- ins í knattspyrnu í gærkvöld. Ríkharður Daðason og Auðun Helgason léku báðir allan leikinn með Viking og Ríkharður var óheppinn að ná ekki að skora. Hann fékk Qögur góð færi og í tvigang varði markvörðurinn frægi Peter Schmeichel frá hon- um úr dauðafærum. Auðun átti góðan leik í sterkri vörn Viking. Öll mörkin komu í síðari hálfleik en íslendingamir komu ekki við sögu í þeim. Staða Viking er sterk fyrir seinni leikinn í Portú- gal. Helgi Sigurðsson var ekki í liði Panathinaikos sem vann Gorica í Slóveníu, 0-1. Amar Grétarsson kom heldur ekki við sögu hjá AEK sem vann Torpedo Kutaisi í Georgíu, 0-1. Gunnar Einarsson lék ekki með Roda sem vann Shakhtar frá Úkraínu, 2-0. Ensku liðin áttu mun betra gengi að fagna en í meistaradeild- inni fyrr í vikunni og Tottenham, West Ham og Newcastle virðast öll örugg áfram. Newcastle vann CSKAf Búlg- aríu með mörkum frá Nolberto Solano og Temur Ketsbaia. Tottenham sigraði Zimbra frá Moldavíu, 3-0, með mörkum frá Öyvind Leonhardsen, Chris Perry og Tim Sherwood. West Ham vann Osijek frá Kró- atíu, 3-0, og skomðu þeir Paolo Wanchope, Paolo Di Canio og Frank Lampard mörkin. KR-banarnir í Kilmarnock höföu lítið að gera í hendumar á Kaiserslautem í Þýskalandi sem vann, 3-0, og skoraði öll mörkin á fyrstu 40 mínútunum. -VS Vernharö í 26. sæti Vernharð Þorleifsson, einn fjögurra keppenda frá Islandi á komandi heimsmeistaramóti í júdó, er í 26.-27. sæti yfir evrópska júdómenn í -100 kg flokki og það þrátt fyrir að hafa keppt aðeins á tveimur mótum í ár. Vemharð fer utan til Birmingham á heimsmeistaramótið í byrjun október en þar leggja íslensku keppendurnir mikla áherslu á að lenda meðal sjö efstu en með því tryggja þeir sér sæti á komandi Ólympiuleikum. Aðrir íslendingar á lista eru þeir Gísli Magnússon í 39.^45. sæti í +100 kg flokki og Þorvaldur Blöndal í 58.-80. sæti i -90 kg flokki. Óvenjustór hópur fer utan því auk okkar keppenda fjögurra fara tíu manns með til að fylgjast meö keppni sterkustu júdómanna heims í dag. -ÓÓJ Vígsla hjá Þrótturum Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, mun í dag klukkan 17 vígja nýbyggt og glæsilegt félagshús Þróttar í Laug- ardal og afhenda það félaginu til afnota og eignar. Húsið stendur við gervigrasvöllinn og samhliða þessu mun Þróttur yfirtaka rekst- ur þess vallar. Byggð hafa verið upp þrjú æfingasvæði víðs vegar um Laugardalinn fyrir Þróttara sem hafa einnig yfirtekið Valbjam- arvöll en það er heimavöllur félagsins. Á morgun, laugardag, mun Þróttur flytja formlega niður í Laug- ardalinn en þá verður hópganga frá Sæviðasundi í gegnum dalinn og í ný heimkynni. Fjölskylduskemmtunin verður á gervigrasvell- inum undir stjóm Gunnars Helgasonar leikara. -GH Kristófer til Ethnikos Kristófer Sigurgeirsson, fyrram leikmaö- ur Fram og Breiðabliks, er genginn til liðs við gríska knattspyrnufélagið Ethnikos frá Pireus. Kristófer lék seinni hluta síðasta vetrar með Aris Saloniki í grísku A-deild- inni en samningur hans þar var ekki endur- nýjaður. Ethnikos Pireus féll niður í B-deildina í vor en liðið varð langneðst í A-deildinni, vann ekki leik og fékk aðeins 8 stig á tíma- bilinu. Kristófer er 27 ára og á að baki 2 A-landsleiki og 90 leiki í efstu deildinni hér heima með Breiðabliki og Fram. Hann er fyrsti íslenski knattspymumaðurinn sem spilar í grísku B-deildinni. -VS Makedóníumenn ekki úrkula vonar - mæta íslendingum í Skopje á sunnudag Makedóníumenn telja sig ekki úti í baráttunni þrátt fyrir níu marka ósigur gegn íslendingum í undankeppni Evrópukeppninnar í handknatt- leik i Hafnarfirði um síðustu helgi. Þeir hafa kallað inn í liðiö þrjá menn sem léku ekki á íslandi og er stórskyttan Pepi Manaskov þar á meðal. Hann var hættur að leika með landsliðinu en ætlar að hjálpa til við að vinna upp forskot íslenska liðsins. Islenska landsliðið kemur til Skopje i dag og eftir komu þangað verð- ur tekin æfmg og svo aftur á morgun. Leikurinn verður á sunnudag kl. 18. -JKS gft tNGLAHD Framtíð Marks Bosnich, markvarð- ar hjá Manchester United, er óráðin og svo gæti farið að Sir Alex Fergu- son seldi hann frá félaginu, nokkrum mánuöum eftir aö Ástralinn gerði þriggja ára samning viö United. Eins og staöan lítur út i dag er Bosnich þriðii markvöröur Manch- esterliösins. Italinn Massimo Taibi er markvörður númer eitt en hann varöi mark United gegn Liverpool um síðustu helgi og þótti standa sig vel þrátt fyrir að fyrra mark Liver- pool skrifaðist á hann. Taibi veröur í marki United sem tekur á móti Wimbledon á laugardag- inn. Taibi er ekki löglegur í Evrópu- keppninni og því var hann ekki í markinu gegn Croatia Zagreb. Stöðu hans tók Hollendingurinn Raimond van der Gouw. Bosnich var á bekkn- um og lék með varaliöinu gegn Liver- pool í fyrrakvöld. Svissneski varnarmaöurinn Stephan Henchoz leikur sinn fyrsta leik með Liverpool á morgun þegar það mætir Leicester. Henchoz hefur verið meiddur í nára frá því hann var keyptur til félagsins í sumar en hann hefur nú fengiö sig góðan af þeim meiðslum. Það kemur í hans hlut að stoppa upp í götótta Liverpool. Meiðsli Franck Lebouef, varnar- mannsins sterka hjá Chelsea, reynd- ust ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Hann fékk þungt högg á kvið- inn í leiknum gegn AC Milan í fyrra- kvöld og var fluttur á sjúkrahús. Ótt- ast var að Frakkinn væri rifbeins- brotinn en svo reyndist ekki vera. Leboeuf verður þó líklega ekki með í leiknum gegn Watford á sunnudag- inn. Alan Ball, stjóri Portsmouth, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning viö félagið. Portsmouth, sem undanfarin ár hefur verið í miklum vandræðum, er í 11. sæti i B- deildinni með 9 stig eftir 6 leiki. -GH 17 . DV DV Sport Kjartan Másson, þjálfari Keflvíkinga, spáir í fallslaginn á morgun: Barist verður til síðasta blóðdropa - hallast að því að Víkingur og Grindavík vinni sína leiki Lokaumferðin í efstu deild knattspym- unnar fer fram á morgun og beinast augu flestra að fallslagnum sem hefur sjaldan verið meiri. KR-ingar taka við ís- landsmeistaratitlinum eftir viðureignina gegn Keflvíkingum og þar verður örugg- lega mikið um dýrðir. Eyjamenn taka á móti Skagamönnum og Breiðablik og Leiftur eigast við í Kópavogi. Þeir leikir sem skipta öllu máli eru annars vegar viðureign Fram og Víkings á Laugardalsvelli og hins vegar viður- eign Grindvíkinga og Vals í Grindavík. Allir leikimir hefjast klukkan 14. Kjartan Másson, þjálfari Keflvíkinga, var fenginn til að spá í leikina tvo í fallslagnum. Kjartan tók fram að hann vildi engu liði svo illt að falla niður um deild því það væri í raun viðbjóðsleg hlutskipti fyrir lið að standa frammi fyr- ir þeirri staðreynd. Grindvíkingar blása til sóknar „I mínum huga verða Grindvíkingar að blása til sóknar i leiknum gegn Val. Þeir eru meðvitaðir um það að ekkert annað en sigur kemur til greina í þeirra huga. Sigur heldur þeim í deildinni. I plássum eins Grindavík skapast einhver stemning sem liðin á höfuðborgarsvæð- inu geta ekki skapað. Lið Grindvíkinga hefur reynsluna af því að standa í fallslag og fram að þessu hafa þeir bjargað sér á elleftu stundu. Ég hef trú á því að það geri þeir einnig í þetta skiptið en það er alveg ljóst að þetta verður mikill baráttuleikur og leik- ið til síðasta blóðdropa. Valsmenn mæta með sama hug í leikinn eins og Grind- víkingar þannig að leikurinn verður örugglega spennandi allan tímann. Til- finning mín segir að Grindvfkingar vinni leikinn en ég skal viðurkenna að ég hef ekki verið talinn mikill spámað- ur fram að þessu,“ sagði Kjartan. Hann sagði að það sama yrði upp á teningnum í viðureign Fram og Víkings. Leikurinn er upp á líf og dauða fyrir bæði liðin. „Það er enn þá líf í Víkingsliðinu, að minnsta kosti sýndi liðið það í leiknum gegn KR um síðustu helgi. Það sama get ég ekki sagt um Framliðið sem mér fmnst vera hreinlega sprungið," sagði Kjartan. Andleysi hefur ríkt hjá Framliðinu Af þessum sökum flnnst mér Víking- amir vera líklegri til að halda sér í deild- inni. Bæði lið mæta til leiks meðvituð um að ekkert annað en sigur kemur til greina. Liðin munu kannski þreifa fyrir sér í byrjun en síðan verður látið sverfa til stáls. Það era miklir baráttumenn í herbúðum Víkings og ekki mun af veita í þessum slag. Andleysi hefur rikt hjá Framliðinu seinni parts sumars og úr þessu verður erfitt fyrir liðið að rétta úr kútnum. Það er samt aldrei að vita nema liðið nái að hrista af sér slenið á þessari mikilvægu stund. Hörkuslagur í Laugardalnum Hjá Fram era innan um ágætir ein- staklingar en sem heild hefur liðið ekki náð að leika sem skyldi seinni hluta mótsins. Þetta verður hörkuslagur en ég hallast að því að Víkingar hafl betur 1 honum,“ sagði Kjartan Másson en endur- tók að hann vildi engu liði svo illt að falla. -JKS Grindvíkingar standa í ströngu á morgun þegar þeir mæta Valsmönnum á heimavelli. Sá leikur sker úr um hvort liðið heldur sæti sínu í efstu deild, eða þá bæði. Þessi mynd er frá leik liðsins á Skaganum fyrr í sumar og er þarna mikill handagangur í öskjunni eins og eflaust verður einnig á morgun. Líkurnar eru Val og Fram í hag í fallslagnum: Einn möguleiki hjá Víkingi Miðað við hreina tölfræði og mögu- leika á úrslitum í fallleikjimum tveim- ur á morgun era mestar líkur á að Val- ur sleppi og að Víkingur falli. Fram mætir Víkingi og Grindavík leikur við Val, og úrslitin þar ráða því hvaða tvö af þessum liðum leika i 1. deild á næsta ári. Úrslitin geta orðið á níu mismunandi vegu sem era eftirfarandi: 1. Grindavík og Fram sigra: Valur og Víkingur falla. 2. Jafntefli í báðum leikjum: Grinda- vík og Víkingur falla. 3. Valur og Víkingur sigra: Fram og Grindavík falla. 4. Grindavík sigrar, Fram og Víking- ur skilja jöfn: Fram og Víkingur falla. 5. Grindavík og Víkingur sigra: Vík- ingur og Fram falla. 6. Víkingur sigrar, Grindavík og Val- ur skilja jöfn: Víkingur og Fram falla (nema Víkingur vinni 10-0, þá fellur Grindavík). 7. Valur og Fram sigra: Grindavik og Víkingur falla. 8. Fram sigrar, Grindavík og Valur skilja jöfn: Grindavik og Víkingur falla. 9. Valur sigrar, Fram og Víkingur skUja jöfn: Grindavík og Víkingur falla. Eins og sést á þessu á Víkingur að- eins einn mögideika á að sleppa, í dæmi númer þrjú. Valur getur hins vegar að- eins faUið í dæmi númer eitt. I fimm til- feUum fellur Grindavík og í fjórum tU- fellum feUur Fram. -VS Bland i P oka AGF, liö Ólafs H. Kristjánssonar og Tómasar Inga Tómassonar, var 1 fyrrakvöld slegið út úr dönsku bikar- keppninni í knattspyrnu. AGF tapaði þá fyrir B-deUdar- Uöinu Glostrup á útiveUi, 2-1. Glostrup komst í 2-0 í fyrri hálfleik en Tómas Ingi minnk- aöi muninn með skaUamarki 15 mín- útum fyrir leikslok. Viktor B. Arnarson, hinn 16 ára gamli unglingalandsliðsmaður úr Víkingi, er þessa dagana tU reynslu hjá enska liðinu Liverpool. Viktor lék með varaliði félagsins gegn Manch- ester United í fyrrakvöld og endaði leUturinn meö markalausu jafntefli. Viktor lék fyrri hálfleikinn en náði sér ekki á strik og var skipt út af i leikhléi. Viktor, sem hefur leikið með 2. og 3. flokki Víkings i sumar, lék með með köppum eins og Brad Friedel markverði, Stephane Henc- hoz og Stig Inge Björnebye. Viktor er mikið efni og hafa fleiri er- lend félög sýnt honum áhuga. Þar má nefna Tottenham og franska liðið Bordeaux en hann var við æfingar hjá báðum þessum félögum i sumar. Eiöur Smári Guöjohnsen hefur náð sér af meiðslum sem hann varð fyrir í bikar- leiknum gegn GUlingham í vikunni. Eiður, sem skoraði tvö mörk I leikn- um, verður því í fremstu vig- línu þegar Bolton fær Barnsley í heimsókn á morgun. Siguröur Jónsson hefur ekkert æft með skoska liðinu Dundee United frá því eftir landsleikinn gegn Úkraínu í síðustu viku en hann varð fyrir meiðslum í þeim leik. Hann verður því ekki með Dundee United í leikn- um gegn Aberdeen á morgun. Fimm félög í 1. deUdinni í hand- knattleik munu leika heimaleiki sína á fóstudagskvöldum i vetur. Þetta eru: Stjarnan, ÍR, Valur, KA og ÍBV. HK mun spUa sína heimaleiki kl. 17 á laugardögum. Á dögunum var haldiö golfmót hjá KeUi í Hafnarfirði fyrir þá sem hafa tekið þátt í golfferðum tU Flórída i janúar undanfarin ár. Keppnisfyrfr- komulagið var höggleikur með fuUri forgjöf. Valgeir Magnússon, GR, sigraði á 63 höggum nettó, Agnar Ár- mannsson, GKG, varð annar á 65 höggum og Siguröur Hólm, GK, þriðji á 66 höggum. Dregið var um flugfer í næstu golfferð tU Flórída sem Flugleiöir gefa og kom hún á nafn Eiriks Helgasonar, GK. Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og Ólympíusambands íslands, var eftir- litsmaður á Evrópuleik Viking Stav- anger og Sporting Lissabon í Noregi í gær. EUert veitti forráðamönnum Viking leyfi tU að koma upp 1250 aukasætum á leikinn. -GH Lokaumferðin í 1. deildinni í dag: Gífurleg spenna - fimm lið berjast um að komast upp og fíögur að forðast fall Lokaumferðin í 1. deild karla í knattspymu verður leikin í kvöld og þá skýrist hvaða lið fylgir Fylki upp í úrvalsdeildina og hvaða lið fer með KVA niður í 2. deild. Gífurleg spenna er fyrir lokaumferðina enda deildin óvenjujöfn, að því undan- skildu að Fylkismenn hafa haft mikla yfirburði. Fimm félög eiga fræðilega mögu- leika á að komast upp í úrvalsdeild- ina en það era ÍR, Stjaman, FH, Dal- vík og Skallagrímur, en Skallagrím- ur er í þeirri óvenjulegri stöðu að geta einnig fallið i 2. deildina eins og Þróttur, KA og Víðir. ÍR-ingar upp með sigri ÍR-ingar tryggja sér sæti í úrvals- deildinni ef þeir vinna KA-menn í kvöld. Geri þeir hins vegar jafntefli eða tapi og Stjarnan leggi Víði að velli komast Garðbæingar upp. Fari svo að ÍR og Stjömunni tak- ist ekki að vinna sína leiki og FH fari með sigur af hólmi gegn KVA kemur úrvalsdeildarsætið í hlut FH- inga. Dalvíkingar eiga möguleika á að komast upp og til þess að svo verði mega ÍR, Stjaman og FH ekki vinna leiki sína. Möguleiki Skallagríms á að hreppa úrvalsdeildarsætið er þó hæpinn. Skallagrímur þarf að stóla á að ÍR og Stjaman tapi leikjum sín- um og að FH og Dalvík nái í mesta lagi jafntefli í sínum leikjum. Á sama tíma þarf Skallagrímur að vinna stóran sigur á Fylki. Auk Skallagríms geta Þróttur, KA og Víðir faliið en einu sætin í deild- inni sem era ráðin fyrir lokaumferð- ina eru efsta og neðsta sætið. Leikir lokaumferðarinnar í dag hefjast klukkan 17.30 og þá mætast: KA-ÍR SkaUagrimur-Fylkir KVA-FH Stjaman-Víðir Þróttur R-Dalvík Staðan í deildinni fyrir leikina í kvöld er þessi: Fylkir 17 14 0 3 43-20 42 ÍR 17 8 2 7 46-34 26 'Stjarnan 17 8 2 7 33-30 26 FH 17 7 4 6 38-30 25 Dalvík 17 7 4 6 26-34 25 SkaUagrímurl7 7 2 8 36-35 23 Víðir 17 6 3 8 29-42 21 KA 17 5 5 7 23-24 2C Þróttur R. 17 6 2 9 26-28 20 KVA 17 4 2 11 27-50 14 -GH Birgir Leifur í 5.-6. sæti Birgir Leifur Hafþórsson er í 5.-6. sæti að loknum þremur keppnisdögum af fjórum í undankeppni fyrir úrtökumót evrópsku mótaraðarinnar í golfi sem nú stendur yfir í Essex-sýslu á Englandi. Birgir Leifur lék á 72 höggum í gær eða á pari vallarins og hefur alls leikið á 208 höggum. 28 efstu kylfingarnir komast á sjálft úrtökumótið. Paul Simpson, Englandi, er efstur á 203 höggum, Richard Coughlcm, írlandi, er annar á 204 höggum og i 3.-4. sæti era Simon Burnell, Englandi og Jean Hugo, A S-Afríkuu á 206 höggum. -JKS ^ Kærumál Stjörnunnar gegn FH: Urslit leiksins standa Knattspyrnudómstóll KSÍ féllst ekki á kröfu Stjörnunnar um að dæma leik FH og Stjöm- unnar í 1. deild karla í knattspymu tapaðan fýrir FH en Stjömumenn kærðu umræddan leik sem endaði með 1-1 jafntefli eftir að í ljós kom að nafn Jóns Gunnars Gunnarssonar var tvískráð á leikskýrslu en nafn Jónasar Grana Garðarssonar var þar ekki skráð. Áður hafði kæran komið til kasta Knattspymudómstóls Reykjaness sem úrskurðaði að úrslit leiksins skyldu standa og í framhaldinu áfrýjuðu Stjömumenn til dómstóls KSÍ. Jt I úrskurði dómstóls KSÍ segir að leikskýrslan hafi vegna þessara mistaka ekki verið fyllt rétt út í samræmi við gr. 2.3.1 í reglugerð KSÍ um knattspymumót. Jafnframt liggur það fyrir að Jónas Grani var hlutgengur til leiks með FH í umræddum leik og var ekki í leik- banni. Þátttaka Jónasar í leiknum og mistök við útfyllingu leikskýrslunnar leiddu ekki til þess að lið FH hefði verið ólöglega skipað í leiknum. Með vísan til þessa era ekki forsend- ur til að fallast á kröfu áfrýjanda um að dæma leikinn tapaðan fyrir FH skv. grein í reglu- gerð 4.4.1 í reglugerð KSÍ um knattspymumót og er hinn áfrýjaði dómur því staðfestur -GH (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.