Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 26
26
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999
Afmæli
Messur
Árbæjarkirkja: Almenn guðsþjónusta kl. 11
árdegis. Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur.
Organleikari: Pavel Smid. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13. Upphaf sunnudagaskólastarfsins.
Foreldar - afar - ömmur eru boðin velkomin
með bömunum. Prestamir.
Áskirkja: Bama- og Qölskylduguösþjónusta
kl. 11.
Breiðholtskirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11. Guösþjónusta á sama tíma. Þátttöku
fermingarbama og foreldra þeirra eru
vænst. Fundur með foreldrum fermingar-
barna veröur aö lokinni guösþjónustu. Org-
anisti: Daníel Jónasson. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11. Léttir
söngvar, biblíusögur, bænir, umræöur og
leikir við hæfi bamanna. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi
Matthíasson.
Digraneskirkja: Kl. 11. Messa. Prestur dr.
Siguijón Ámi Eyjólfsson. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjón sr. Gunnars Sigurjónssonar og Þór-
unnar Amardóttur. Léttur málsveröur eftir
messu.
Dómkirkjan: Fjölskyldumessa kl. 11 í Frí-
kirkjunni i Reykjavík. Prestar sr. Jakob Á.
Hjálmarsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Dómkórinn leiöir söng. Organleikari Mart-
einn H. Friðriksson. Mikil gleði, tónlist og
fræösla. Æðmleysismessa kl. 21 í Fríkirkj-
unni í Reykjavík. Sr. Anna S. Pálsdóttir pré-
dikar. Anna Sigríöur Helgadóttir syngur.
Elliheimilið Grund: Messa kl. 14. Prestur
sr. Tómas Guðmundsson. Organisti Kjartan
Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Guömundur Karl Ágústsson. Org-
anisti Lenka Mátéová. Bamaguösþjónusta á
sama tíma. Umsjón Margrét Ólöf Magnús-
dóttir. Prestamir.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjónusta kl.
14. Böm borin til skímar. AUir hjartanlega
velkomnir. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
Grafarvogskirkja: Sunnudagaskóli í Graf-
arvogskirkju kl. 11. Prestur sr. Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Org-
anisti: Hörður Bragason. Sunnudagaskóli í
Engjaskóla kl. 11. Umsjón: Signý og Guðrún.
Organisti:Guðlaugur Viktorsson. Guðsþjón-
usta í Grafarvogskirkju kl. 14. Sr. Anna Sig-
ríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti
Hörður Bragason. Prestamir.
Grensáskirkja: Bamastarfið hefst í dag kl.
11. Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjamarson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
Hallgrímskirkja: Messa og bamastarf kl.
11. Orgelmessa í tilefni af Norrænu þingi
organista. Organisti Hörður Áskelsson. Sr.
Jón D. Hróbjartsson.
Háteigskirkja: Bama- og íjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Bjami Þór Jón-
atansson. Sr. Helga Sofíia Konráösdóttir
Messa kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie.
Sr. Tómas Sveinsson.
Hjallakirkja: Fjölskylduguösþjónusta kl. 11
Bam boriö til skímar. Sr. íris Kristjánsdótt-
ir þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja
og leiöa safnaöarsöng. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Viö minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriöjudag kl. 18. Prestarair.
Hrafnista: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jóhanna
Sigmarsdóttir messar. Ámi Bergur Sigur-
bjömsson.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Altar-
isganga. Prestur sr. Guðni Þór Ólafsson. Kór
Kópavogskirkju syngur. Organisti: Hrönn
Helgadóttir.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ingileif
Malmberg.
Langholtskirkja: Kirkja Guöbrands bisk-
ups. Hátíðarmessa kl. 11 á kirkjudegi Lang-
holtssafnaðar. Biskup íslands helgar nýtt
orgel og kórglugga. Kórar kirkjunnar syngja.
Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Kvenfélag Langholts-
sóknar býöur kirkjugestum aö þiggja veit-
ingar í safnaðarheimili eftir messu. Vígslu-
tónleikar orgels kl. 16.30. Peter Sykes frá
Bandaríkunum leikur.
Laugarneskirkja: Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Kór Laugameskirkju syngur, org-
anisti Ástríöur Haraldsdóttir. Hmnd Þórar-
insdóttir stýrir sunnudagaskólanum með
sínu fólki. Prestur sr. Bjarni Karlsson.
Messukaffi og djús fyrir bömin á eftir.
Messa kl. 13 í dagvistarsalnum Hátúni 12.
Kór Laugameskirkju syngur, Ástríður Har-
aldsdóttir leikur og sr. Bjami Karlsson þjón-
ar.
Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Prest-
ur sr. Kristín Þómnn Tómasdóttir. Bama-
starf i safnaöarheimilinu kl. 11. Jón Þor-
steinsson.
Neskirkja: Sunnudagaskólinn kl. 11. Upphaf
bamastarfsins.
Hátíðarmessa kl. 14. Biskup íslands, hr. Karl
Sigurbjömsson, helgar nýtt orgel kirkjunnar
og prédikar. Altarisþjónustu og ritningar-
lestra annast sr. Frank M. Halldórsson sókn
arprestur, sr. Öm Bárður Jónsson, sr. Hall
dór Reynisson, Reynir Jónasson organisti
Heimir Fjeldsted, formaður kirkjukórs Nes-
kirkju, Guðfinna Inga Guðmundsdóttir og
Kristin Bögeskov, djákni. Kór kirkjunnar
syngur ásamt Ingu Backman, einsöngvara.
Organistar Reynir Jónasson og Peter Sykes.
Formaöur sóknamefndar, Guömundur
Magnússon, flytur ávarp. Veitingar í safnaö-
arheimilinu að messu lokinni.
Hátíðartónleikar kl. 20.30. Sænski organist-
inn Anders Bondeman leikur.
Njarðvíkurkirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm
Steinars Guðmundssonar organista. Baldur
Rafn Sigurðsson.
Seljakirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Nýtt
og líflegt fræösluefni. Mikill söngur. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráösson pré-
dikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Sókn-
arprestur.
Selfosskirkja: Messa kl. 11. Sóknarprestur.
Seltjamarneskirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Nemendur úr Tónlistarskóla Sel-
tjamamess spila. Sunnudagaskólinn hefur
göngu sína og em foreldrar og böm hvött til
að mæta til guðsþjónustu. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Hugleiðingu flytur sr. Sig-
uröur Grétar Helgason. Verið öll hjartanlega
velkomin. Prestamir.
Ómar Garðarsson
Ómar Garðarsson, ritstjóri Frétta
í Vestmannaeyjum, Hilmisgötu 1,
Vestmannaeyjum, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Ómar fæddist í Reykjavík en
flutti með foreldrum sínum til Seyð-
isfjarðar 1951 þar sem hann ólst
upp. Hann var í bamaskóla á Seyð-
isfirði, lauk landsprófi frá Alþýðu-
skólanum á Eiðum, stundaði nám
við KÍ og stundaði síðar nám við
Lögregluskólann og lauk þaðan
prófum 1978.
Ómar fór ungur til sjós og var á
bátum frá Seyðisfirði og Vest-
mannaeyjum. Hann var búsettur á
Seyðisfirði og stundaði þar smíðar
með föður sínum 1972-74. Þá flutti
hann aftur til Vestmannaeyja og var
um árabil á togaranum Vestmanna-
ey, fyrst háseti en síðar kokkur. Þá
var hann lögregluþjónn í Vest-
mannaeyjum um skeið.
Ómar tók að sér kosningastjóm í
bæjarstjórnarkosningunum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1986 og hóf síð-
an blaðamannastörf hjá Fréttum.
Hann var síðan blaðamaður og
fréttaljósmyndari í Vestmannaeyj-
um en hefur verið ritstjóri Frétta
frá 1992. Auk þess hefur Ömar verið
fréttaritari DV í Eyjum um árabil.
Ómar var í framboði til
bæjarstjómar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1986.
Hann hefur starfað mikið
að íþróttamálum í Vest-
mannaeyjum, var formað-
ur ÍBV 1989-92 og situr í
stjórn íþróttafélagsins
ÍBV frá 1997.
Fjölskylda
Eiginkona Ómars er
Þorsteina Grétarsdóttir, f.
5.4. 1950, hárgreiðslu-
kona. Hún er dóttir Grétars Þorgils-
sonar, f. 19.3. 1926, sjómanns í Vest-
mannaeyjum, og Þórunnar Pálsdótt-
ur, f. 27.9. 1928, verslunarmanns.
Böm Ómars og Þorsteinu era
Þórarinn Grétar, f. 25.7. 1969, sím-
virki í Reykjavík, en kona hans er
Jóna Björk Grétarsdóttir og er dótt-
ir þeirra Margrét Björk en sonur
Þórarins Grétars frá því áður er
Sindri Þór; Berglind, f. 3.10. 1971,
nemi í fatasaumi við Iðnskólann í
Reykjavík en maður hennar er Sig-
urgeir Þorbjörnsson; Karólína, f.
6.7. 1971, föðrunarfræðingur í
Reykjavík; Vigdís Lára, f. 29.4. 1981,
starfsmaður við ísfélagið í Vest-
mannaeyjum.
Systkini Ómars:
Sævar, f. 2.6. 1951, kaupmaður í
Omar Garðarsson.
Reykjavík, kvæntur Láru
Vilhjálmsdóttur og á
hann tvær dætur; Gréta,
f. 31.10. 1962, sjúkraliði á
Seyðisfirði, gift Þórði
Jakobssyni og eiga þau
þrjá syni; Júlíana Björk,
f. 21.6. 1965, verslunar-
maður í Reykjavik, og á
hún eina dóttur en hún
býr með Jónasi
Jónassyni bílasprautara.
Hálfbróðir Ómars, sam-
feðra, er Ingimundur
Bergmann Garðarsson, f. 29.3. 1949,
bóndi og vélstjóri að Vatnsenda í
Flóa.
Foreldrar Ómars eru Garðar Ey-
mundsson, f. 29.6. 1926, húsasmíða-
meistari á Seyðisfirði, og k.h., Kar-
ólína Þorsteinsdóttir, f. 27.1. 1928,
húsmóðir.
Ætt
Garðar er sonur Eymundar Ingv-
arssonar, verkamanns á Seyðisfirði,
og k.h., Sigurborgar Gunnarsdóttur
húsmóður.
Karólína er dóttir Þorsteins
Brynjólfssonar, b. á Hreiðurborg í
Sandvíkurhreppi, og k.h., Júlíönu
Jóhönnu Sturlaugsdóttur húsfreyju.
Ómar er að heiman á afmælisdag-
inn.
Margrét M. Árnadóttir
Margrét Matthildur
Ámadóttir, Hólabraut 7,
Blönduósi, varð sjötug á
miðvikudaginn, 15.9. sl.
Starfsferill
Margrét fæddist í
Þverdal í Aðalvík og ólst
upp í Aðalvík til 1941.
Hún gekk í barnaskóla í
Aðalvík og stundaði síð-
ar nám við Námsflokka
Reykjavíkur.
Margrét bjó í Þverdal
með foreldrum sínum til
þriggja ára aldurs. Þá lést faðir
hennar og hún fór í fóstur til Sölva
Jónssonar og Halldóru Guðnadótt-
ur, móður hans, að Stakkadal í Að-
alvík. Halldóra var móðursystir
Margrétcir. Sölvi giftist síðar Lauf-
eyju Jakobínu Guðmundsdóttur og
eiga þau fjögur börn.
Með Sölva og Halldóru flutti Mar-
grét að Látrum í Aðalvík 1941, til
Hnifsdals 1943 og þaðan til Reykja-
víkur 1944.
Árið 1948 flutti Margrét norður í
Húnavatnssýslu og varð kaupakona
á Tindum i Svínavatnshreppi en fór
að Hömrum í sömu sveit árið eftir.
Til Blönduóss flutti hún 1952 og hef-
ur búið þar síðan.
Margrét vann í Efnalaug Blöndu-
óss 1960-62 en frá 1963 hefur hún
unnið hjá Sölufélagi Austur-Hún-
Margrét Matthildur
Árnadóttir.
vetninga og Kaupfélagi
Húnvetninga á Blönduósi.
Fjölskylda
Margrét hóf sambúð með
Sigurbimi Sigurðssyni ár-
ið 1949 og þau giftu sig
fjórum ámm síðar. Sigur-
björn er fæddur 23.8.1912,
fyrrv. verkamaður á
Blönduósi. Foreldrar hans
voru Sigurður Stefánsson
og Sigríður Jónsdóttir, bú-
endur á Brunná í Kald-
rananeshreppi í Stranda-
sýslu.
Böm Margrétar eru Signý Magn-
úsdóttir, f. 20.1.1948, búsett á Skaga-
strönd, gift Eðvarð Á. Ingvarsyni og
eiga þau fjögur böm og þrjú barna-
börn; Ingi Einar Sigurbjömsson, f.
16.4. 1950, búsettur í Reykjavík, en
sambýliskona hans er Sigurjóna
Lúthersdóttir og á hann tvö börn og
tvö bamabörn; Ema Hallfríður Sig-
urbjömsdóttir, f. 22.5. 1951, búsett í
Hafnarfirði, gift Þorvaldi Skaftasyni
og eiga þau þrjú börn og þrjú barna-
börn;Baldur Bragi Sigiu-bjömsson,
f. 30.10. 1952, d. 5.7. 1971; Sigurður
Agnar Sigurbjömsson, f. 4.4. 1954,
búsettur í Vestmannaeyjum, kvænt-
ur Ámeyju Óskarsdóttur og eiga
þau þrjá syni; Kolbrún Harpa Sigur-
bjömsdóttir, f. 9.11. 1956, búsett í
Reykjavík, en hún á þrjú börn og
eitt barnabarn; Dóra Sigurbjörns-
dóttir, f. 23.11. 1962, búsett í Noregi,
gift Birni Ragnarssyni og eiga þau
þrjú börn; Erla Sigurbjörnsdóttir, f.
15.4. 1965, búsett á Blönduósi og á
hún tvo syni.
Systkini Margrétar:
Þórarinn, f. 1910, lengst af í Bol-
ungarvík;
Sigrún, f. 15.11. 1914, lengst af á
ísaflrði; Guðrún Kristín Sólveig, f.
3.5.1917, lengst af á Isafirði; Finney
Rakel, f. 8.1. 1919, lengst af á Suður-
eyri; Þorstína María, f. 3.12. 1922,
lengst af á Flateyri; Rannveig Guð-
munda Þórunn, f. 1.12.1925; Herbert
Finnbogi, f. 26.12. 1930, lengst af í
Keflavík.
Foreldrar Margrétar voru Árni
Finnbogason, f. 14.10. 1889, d. 16.3.
1933, húsmaður og bóndi, og k.h.,
Hallfríður Ingveldur Guðnadóttir, f.
15.5. 1893, d. 16.12. 1981, húsfreyja.
Þau bjuggu að Látram, Sæbóli og
Þverdal í Aðalvík.
Ætt
Árni, faðir Margrétar, var sonur
Finnboga Ámasonar, bónda í Efri-
Miðvík, og Herborgar Kjartansdótt
ur, sem bæði voru ættuð af Horn-
ströndum.
Hallfríður, móðir Margrétar, var
dóttir Guðna Jósteinssonar og Matt-
hildar Arnórsdóttur, búenda í
Tungu og Atlastöðum í Fljótavík á
Homströndum. Þau vora bæði ætt-
uð af Hornströndum.
Þór Ólafur Helgason
Þór Ólafur Helgason, yfirvélstjóri
á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270,
Seljalandi 15, Isafirði, varð fertugur
þriðjudaginn 14.9. sl.
Starfsferill
Þór Ólafur fæddist á ísafirði og
ólst þar upp. Hann var í barnaskóla
á ísafirði, lauk þar gagnfræðaprófi
1975, lauk 3. stigs vélstjóraprófi á ís-
firði 1978, lauk 4. stigs vélstjóraprófi
í Reykjavík 1979 og sveinsprófi í
vélvirkjun frá Vélskóla íslands 1990.
Þór Ölafur var vélstjóri á skipum
Einars Guðfinnssonar hf. 1979-86,1.
vélstjóri á Heiðrúnu ÍS 4 til 1980, yf-
irvélstjóri á Hugrúnu ÍS 7 til 1984 og
á Sólrúnu ÍS I til 1986. Hann hefur
síðan verið yfirvélstjóri hjá Gunn-
vöra hf. á Júlíusi Geirmundssyni ÍS
270.
Þór Ólafur var búsettur í Bolung-
arvík 1980-89 en er
búsettur á ísafirði.
nu
Fjölskylda
Þór Ólafur kvæntist
11.8. 1979 Álfhildi Jóns-
dóttur, f. 23.4. 1962, en
hún sér um veitinga-
rekstur í Djúpmanna-
búð. Hún er dóttir Jóns
H. Oddssonar og Guð-
mundu Guðmundsdóttur
frá Ingjaldssandi en nú á
ísafirði.
Böm Þórs Ólafs og Álf-
Þór Ólafur
Helgason.
hildar era Þórunn Ágústa Þórsdótt-
ir, f. 27.2. 1979, nemi í Vélskóla ís-
lands, búsett í Reykjavík, en sam-
býlismaður hennar er Björn Birgir
Jensson, nemi við Vélskóla íslands;
Guðný Ósk Þórsdóttir, f. 23.2. 1984,
nemi; Sædís Ólöf Þórsdóttir, f. 7.5.
1991.
Systkini Þórs Ólafs eru
Hjörtur Ágúst Helgason,
f. 16.8. 1955, húsasmíða-
meistari, búsettur á Ak-
ureyri; Sigurrós Emma
Helgadóttir, f. 3.10. 1969,
húsmóðir á ísafirði.
Foreldrar Þórs Ólafs era
Helgi Hjartarson, f. 14.11.
1925, verkamaður á ísa-
firði, og Guðný Magna
Einarsdóttir, f. 19.7. 1933,
húsmóðir á ísafirði.
Ætt
Helgi er sonur Hjartar Ólafssonar
og Sigurrósar Helgadóttur á ísa-
firði.
Guðný Magna er dóttir Einars
Ágústs Eianrssonar, frá Dynjanda í
Leirufirði en þau voru síðast búsett
á ísafirði.
Tll hamingju
með afmælið
17. september
80 ára
Benedikt Jónsson,
Tjarnargötu 29, Keflavík.
75 ára
Guðlaugur Gunnarsson,
Víðihlíð, Svínafelli II,
Hornafirði.
Jens Ásgeir Guðmundsson,
Selnesi 34, Breiðdalsvík.
Sigurður Jónsson,
Jófríðarstaðavegi 13,
Hafnarfirði.
70 ára
Andrés Már Vilhjálmsson,
Hvassaleiti 61, Reykjavík.
Ragnar Gunnarsson,
Einigrund 7, Akranesi.
60 ára
Erlingur Guðmimdsson,
Heiðvangi 4, HeUu.
Guðmundur Ásgeirsson,
Barðaströnd 33,
Seltjarnamesi.
Margrét G. Albertsdóttir,
Blikahólum 12, Reykjavík.
50 ára
Bjöm R. Ragnarsson,
HólavaUagötu 5, Reykjavík.
Brynja Harðardóttir,
Hverafold 49, Reykjavík.
Christian Deutinger,
Grænumörk 10, Hveragerði.
Gunnar Gunnarsson,
Þemunesi 4, Garðabæ.
Hallur Bjömsson,
Þórðargötu 20, Borgamesi.
Kolbrún Leifsdóttir,
Bjarmalandi 15, Sandgerði.
Sigríður Gísladóttir,
GrenUundi 11, Akureyri.
Sigurður Gunnarsson,
Sæviðarsundi 15, Reykjavík.
Sigurður Jóhannsson,
Hagalandi 16, MosfeUsbæ.
Soffía Guðmundsdóttir,
Neðstabergi 18, Reykjavík.
40 ára
Ari Eggertsson,
Sjávargötu 28,
Bessastaðahreppi.
Eiríkur Thorsteinsson,
Tjarnarbóli 6, Seltjarnamesi.
Halldóra Lydía
Þórðardóttir,
Logafold 165, Reykjavik.
Haraldur Gíslason,
HjáUavegi 3 K, Njarðvík.
Ingunn Jónsdóttir,
VaUarhúsum 53, Reykjavík.
Ingþór Eiríksson,
Hamraborg,
Svalbarðsstrandarhreppi.
Linda Hrönn Magnúsdóttir,
Bakkastöðum 1A, Reykjavík.
Michael Gordon Silvester,
Sundlaugavegi 34, Reykjavík.
Níels Adolf Ársælsson,
Skógum, Tálkaíjarðarhreppi.
Ólafur Ragnarsson,
Hvarfi, MosfeUsbæ.
Ólafur Helgi Bjömsson,
Lækjarhjalla 42, Kópavogi.
Sigrún Þórdís
Þóroddsdóttir,
Bakkaflöt 6, Garðabæ.
Sigurjón Bjarnason,
FeUsmúla I,
Holta- og Landsveit.
Sigurlaug Stefánsdóttir,
Hafnarbraut 23, Hólmavík.
TJrval
- gott í hægindastóliim