Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 32
Sölukössum er lokað
kl. 19.30
á laugardögum
og dregið
kl. 19.45
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Hjónin á Tóarseli í Breiðdal:
Lokuö í aurskriðu
- Qöldi aurskriðna lokar veginum við EskrQörð
Veðrið á morgun:
Súld eöa
rigning
Á landinu verður víða norð-
austlæg átt, 8-13 m/s. Súld eða
rigning með köflum, einkum suð-
austan til.
Hiti verður 8 til 15 stig, hlýjast
vestaniands.
Veðrið í dag er á bls. 29.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-210E nv véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgerðir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffanq: www.if.is/rafport
reyklaust
flug
með Nicotinell
APÓTEK
.Ruðurnuja
'UEirssTöo
Hún var að mála nýja glugga sem settir hafa verið í Alþingishúsið og sagði
þær fréttir að glerið væri nú orðið skothelt. Svo hélt hún áfram að mála.
DV-mynd GVA
Geysilegt vatnsveður gekk yfir
Austfirði í nótt og fylgdi því víða
skriðuföH. í Breiðdal féll
mikil aurskriða við bæ-
inn Tóarsel og á Eskifirði
féllu fjölmargar skriður
niður í fjöru og þar var
allt á floti í vatni í morg-
un.
„Það virðist hafa kom-
ið hálf fjallshlíðin niður
og heim undir bæ,“ sagði
Hörður Gilsberg, sem hóf
í vor búskap ásamt eigin-
konu sinni, Stefaníu Há-
varðardóttur, á bænum
'fóarseli í Norðurdalnum
m Breiðdal. Gríðarleg aur-
skriða féll úr efstu brún
fjallsins ofan við bæjar-
húsin upp úr klukkan
hálfsex í morgun. Stein-
steypt skemma, sem
Sigursæll
. þjálfari
í Helgarblaði DV verður rætt við
Vöndu Sigurgeirsdóttur, félags-
málatröll og þjálfara KR í
kvennaknattspyrnunni sem hefur
unnið 52 leiki í úrvalsdeildinni, gert
fjögur jafntefli en aldrei tapað leik.
Einnig segir Guðný Halldórsdóttir
kvikmyndaleikstjóri frá nýjustu
kvikmynd sinni, Ungfrúin góða og
Húsið, sem frumsýnd verður á
næstunni. Úttekt verður á stóra
fíkniefnamálinu og innlenda frétta-
ljósinu verður beint að kreppu Sam-
fylkingarinnar. í erlendu fréttaljósi
er fjallað um njósnamálin í Bret-
landi. Þingmaðurinn Ólafur Örn
Haraldsson segir frá því þegar hann
Htfuskaðist við nemendur á Laugar-
vatni og reri á bílslöngu út á vatnið.
J FÓLK VILL VELJA A
( SITT KJÚKLINGA-
V KRYDDl J
t.d. leiðinni inn í húsið bakdyramegin
og hindraði að flóðið næði inn í hús-
ið.
Það er ljóst að eyðileggingin að Tó-
arseli er mikil en Hörður sagðist ekki
geta lagt mat á umfang skemmdanna
enn sem komið væri. Hann sagði
fleiri tonna
steina vera í
túnum og girð-
ingar laskaðar.
Hjónin búa
ein að Tóarseli
og voru sofandi
þegar skriðan
féll. „Konan
mín vaknaði
við gauragang-
inn. Það var
eins og kæmi
vindhviða og
síðan högg á
húsið,“ sagði
Hörður.
„Það voru gríðarlegar drunur i
fjallinu í nótt og maður hélt að Tind-
urinn væri að koma en maður hefur
aðeins heyrt af sögusögnum að það
hafi hlaupið í honum,“ sagði Þórarinn
Hávarðarson á Eskifirði í morgun en
gríðarlegt vatnsveður var þar í nótt
og mældist úrkoman um 100 mm frá
því klukkan sjö í gærkvöld og fram
undir morgun.
Að minnsta kosti tíu skriður féllu
yfir veginn við kaupstaðinn og i sjó
fram. „Það er allt á floti hér. Það flæð-
ir yfir Strandgötima og það flæddi inn
í bíl,“ sagði Þórarinn.
Ekki var enn hafist handa við að
ryðja veginn um hálfníuleytið í morg-
un og fólki var ekki hleypt að skriðun-
um.
Á bæjarskrifstofum Reyðarflarðar
og Fáskrúðsfjarðar var sagt að engar
skriður hefðu fallið þar og ekki væri
vitað um tjón af völdum vatnsgangs.
-GAR
Aurskriðurnar á Eskifirði í morgun.
skemmdist hins vegar og þar drapst
annar af hundum hjónanna. „Ég
braust út til að athuga um hundana í
Sósinu og leðjan náði mér í mitti. Við
erum innilokuð í drullu og getum ekk-
ert farið þvi drulluspýjurnar ná alveg
niður í Breiðdalsána hér fyrir neðan
og afleggjarinn heim að húsi er lokað-
ur,“ sagði Hörður. Hann sagðist hafa
heyrt að hlaupið hefði í flallinu árið
1940.
Heyrúllur og ýmis tæki og vélar,
m.a. Benz-rúta, lögðust upp að íbúðar-
húsinu í atganginum og rútan lokaði
stendur 20 metra ofan við íbúðarhús-
ið, beindi flóðinu fram hjá húsinu að
mestu leyti
en fjós, sem
áfast er
íbúðarhús-
inu, stór-
Tóarsel
* Jr
Breiödalsvík
^DJúpivogur
Haraldur Briem:
Fólk er meðvitað
„Fólk er meðvitað um að það vill
hafa matvöruna í lagi,“ sagði Harald-
ur Briem sóttvarnalæknir um niður-
stöðu skoðanakönnunar DV, þar sem
tæp 90 prósent aðspurðra vilja ekki að
kjúklingar frá búum með mikla
campylobactersýkingu séu seldir.
„Hins vegar eru ýmis vandamál sem
gera það að verkum að þetta hefur
ekki verið bannað. Við vitum m.a.
ekki nóg um hvar þetta er að finna,
útbreiðsluna á þessu og hvort það eru
einhveijar aðgerðir til sem er hægt að
beita tU að fá campylobacter niður
eða burt. Það hefur verið okkar stefna
að benda fólki á
hvemig það geti
forðast að smitast.
Maður getur
aldrei verið viss
um að matvara sé
algjörlega laus við
sýkla. Þess vegna
á alltaf að um-
gangast hana eins
og hún gæti verið
varasöm, þótt gera
eigi allt sem hægt
er til að tryggja að hún sé laus við alla
sjúkdómsvalda." -JSS
Haraldur Briem
sóttvarnalæknir.