Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 Fréttir Skoðanakönnun DV um afstöðu til campylosýktrar kjúklingaframleiðslu: DV-frétt setur Færeyjar á annan endann: Útvarpsstjórinn fékk „nervasjokk" - staðfestir frétt DV „Skítadreyfari" íhaldsins Og áfram með áðurnefnda grein Grósku.is sem enn var þar í gær- kvöldi í hinni milduðu þriðjudags- útgáfu. í henni er farið mörgum og ómildum orðum um Hannes Hóm- stein Gissurarson prófessor sem „skítadreyfara" (eins og þeir Gróskumenn staf- setja það) íhalds- ins. í upphaflegu greininni, sem fjallað er um að ofan, var orðið „skítadreifari" (eins og rétt stafsetning þess orðs er) skrifað ýmist með einfóldu eða yf- síloni. Það vakti því kátínu margra þegar greinin birtist í breyttri mynd á þriðjudag að búið var að samræma stafsetningu orðsins og er það ritað sem „skítadreyfari“ út alla greinina. Samfylkingardreifari í framhaldi af þessari skíta dreifaraumræðu ungliða Samfylk ingarinnar hafa ýmsir velt fyrii sér uppruna þessa ágæta orðs í ís lenskum stjórnmálum. Reyndai þarf ekki að leita lengra en til síð- ustu kosningabar- áttu í því sam- hengi þegar Stein- grímur J. Sigfús- son ritaði grein í Morgunblaðið. í greininni beindi Steingrímur meðal annars spjótum sínum að fyrrverandi ritstjóra Dags, Stei áni Jóni Hafstein, sem hann tit aði „skítadreifara" Samfylkingar. Umsjón Stefán Ásgrímsson Netfang: sandkorn @ff. is 90% vilja bann Nei takk! - Mikill meirihluti kjósenda andsnúnir kjúklingum frá framleiðendum þar sem 80% af sýnum eru sýkt af campylobacter. Allt úrtakið . Þeir sem tóku afstöðu • ílagi® Clí ólagi 0 »Óákveönlr/svara ekki eru greind kemur í ljós að 10,7% kjósenda finnst í lagi að kjúklingaframleiðsla fari fram við fyrrnefndar aðstæður. 82% finnst það hins vegar í ólagi. Svarhlutfall í könnuninni var 92,7% en 2,7% voru óákveðin og 4,6% neituðu að svara. Sé einungis horft til þeirra sem afstöðu tóku fannst 11,5% í lagi að leyfa kjúklingaframleiðslu þar sem er 80% campylobactersýking en 88,5% fannst það ekki í lagi. Andstaðan við kjúklingafram- leiðslu við fyrmefndar aðstæður var meiri hjá konum en körlum. Ef litið er á afstöðu eftir búsetu kemur í ljós að meðal höfuðborg- arbúa eru helmingi fleiri en á landsbyggðinni sem fmnst í lagi að framleiða kjúklinga þar sem er 80% campylobactersýking. -hlh færeyska íjölmiðla. í viðtali við Heimatíðindi i Færeyjum sagðist Lárus til dæmis hafa fengið „nervasjokk" þegar hann sá fréttina „Eigendur stöðvarinnar hafa bannað mér að tala. Annað hef ég ekki að segja,“ sagði Lárus Arason sem rekur útvarpsstöðina Atlantic Radio í Þórshöfn í Færeyjum. Eins og DV greindi frá um síðustu helgi þá hafa yfirvöld í Fær- eyjum ofsótt Lárus og aðra starfsmenn útvarpsstöðvarinn- ar og hugðist Lárus senda neyðarkall til utanríkisráðu- neytisins í Reykja- vík með ósk um að- stoð. í framhaldi af fréttinni hafa fær- eyskir fjölmiðlar Frétt Dv sem Uppnámj í færeyskum fjölmiðlum. farið hamförum í fréttaflutningi af málefnum útvarps- stöðvarinnar og lagt frétt DV til grundvallar. í samtali við DV í gær staðfesti Lárus að frétt DV væri i öllum atriðum rétt þó hann hafl neyðst til að halda öðru fram við og að hún væri „totally far out“. Færeyska lögreglan hefur vísað meintum ofsóknum á hendur Atl- antic Radio á bug sem hugarburði útvarpsstjórans og Bergleif Brimvik í færeysku rannsóknarlögreglunni segir „...eg einki kenna til at lögregl- an hevur verið á kroppinum hjá Lárusi Arasyni" sem útleggst á ís- lensku: ...ég veit ekki til þess að lög- reglan hafi verið að ónáða Lárus Arason. Samkvæmt frétt- um frá Færeyjum er málið komið á það stig að menntamálaráð- herra eyjanna hyggst hafa af- skipti af því. Að sögn Lárusar Ara- sonar þá snýst deilan um áhuga færeyskra dag- blaða á að eignast stöðina og beiti þau öllum brögðum til þess að ná því markmiði sínu. Nú síðast hafi verið gerðar athugasemdir við nafn stöðvarinnar sem færeyskir fjöl- miðlar staðhæfi að brjóti í bága við færeysk lög. -EIR Þolir illa fólk Annan fostudag verður ný ís- lensk kvikmynd eftir sögu Hall- dórs Laxness, Ungfrúin góða og húsið, frumsýnd í Háskólabíói. Fyrir frumsýninguna verður for- sýning á myndinni fyrir Kvikmynda- eftirlitið. Sagt er að Matthías Jo- hannesen, rit- stjóri Morgun- blaðsins, hafí ósk- að sérstaklega eftir því aö fá að vera viðstaddur þá sýningu vegna þess að hann treysti sér illa til að sitja í kjaftfúllum bíósal. Honum líði illa við þannig aö- stæður. Þetta var látið eftir rit- stjóranum... Vandræði Enginn endir virðist vera á vandræðagangi Samfylkingar þessa dagana. Ekki nóg með að flokkurinn bíöi afhroð í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri heldur hefur vefút- gáfa liðsmanna hennar sjaldan ris- ið jafnlágt og nú. í mánudagstölu- blaði nettímarits- ins Grósku.is, sem Björgvin G. Sigurðsson ber veg og vanda af, gat meðal annars að finna umfjöllun um Hannes Hólmstein Gissurarson með því- líku orðbragði að flestum jafnað- armönnum þótti nóg um og Hann- esi hefði gefist næg tilefni til málssóknar, hefði hann séð grein- ina og nennt. í greininni var Jón Ólafsson lofaður af miklum eld- móði, um leið og dylgjað var um einkalíf Hannesar Hólmsteins. Svo virðist sem einhverjum yfir- boöurum Grósku.is hafi þótt nóg um því að á þriðjudag var búið að breyta greininni verulega og draga úr skömmum á hendur Hannesi Hólmsteini en lofsöngur- inn um Jón Ólafsson var sá sami. Þriggja skipa japanskur túnfiskveiðifloti liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Skipin sækja afla sinn djúpt suður af landinu. 1r* DV-mynd S Málefni Þingeyrar: Guðjón stað- festir mín orð - segir Einar Guðfinnsson Einar Kristinn Guðfinnsson al- þingismaður segir að sér sýnist á öllu aö Guðjón Amar Kristjáns- staðfesti son það sem hann hafi sagt um að málefni Þing- eyrar hafi verið rædd á formleg- um fundi fyrr í sumar eða vor. „Síðan höfum við rætt þessi mál óformlega eins og ég hef haldið fram. Við höfum tekið þátt í fundum á Þingeyri og á Núpi þar sem atvinnumálin voru rædd vítt og breitt og málefni Þingeyrar líka sérstaklega. Ég tel því að það sem Guðjón segir í DV í gær sé í samræmi við það sem ég hef haldið fram, að þessi mál voru rædd á formlegum fundi. Hvernig nákvæmlega var staðið að honum finnst mér ekki skipta máli í þessu sambandi. Þessi um- ræða lyktar af því, en þar undan- skil ég Guðjón Arnar algjörlega, að það sé verið að láta í veðri vaka að þingmenn hafi ekki sýnt áhuga eða vilja til að hafa jákvæð áhrif í þessu máli. Því vísa ég til föðurhúsanna," sagði Einar Krist- inn Guðfinnsson. -HKr. Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður. Tæp Níu af hverjum tíu kjósendum finnst ekki í lagi að leyfð sé kjúklingaframleiðsla þar sem campylobactersýking hefur mælst í stórum hluta sýna - og vilja bann. Þetta eru niðurstöð- ur skoðanakönnunar DV sem gerð var á mánudag. Úrtakið í könnuninni var 600 manns, jafnt skipt á milli höfuð- borgarsvæðis og landsbyggðar, sem og kynja. Spurt var: Telur þú í lagi eða ólagi að leyfa kjúklingaframleiðslu þar sem er 80% campylobactersýking? Spurningin á rætur að rekja til rannsókna heilbrigðisyfirvalda sem sýnt hafa að um og yfir 80% sýna sem tekin voru á Ásmund- arstaðabúinu voru sýkt campylobacter. Þegar svör allra í könnuninni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.