Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1999, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999
Viðskipti
Þetta helst: Viðskipti á Verðbréfaþingi námu alls 1.120 m.kr., mest með húsbréf fyrir 600 m.kr., með spariskírteini
fyrir 251 m.kr. og með hlutabréf 192 m.kr. ••• Mest viðskipti með einstök hlutabréf voru með bréf Samherja fyrir 83
m.kr., með bréf íslandsbanka fyrir 32 m.kr. og með bréf Granda fyrir 11 m.kr. ••• Mest lækkun varð á verði bréfa
Haraldar Böðvarssonar, 5,7%.*** Úrvalsvísitala Aðallista lækkaði um 1,2% í dag og er nú 1.327 stig.
Frostfiskur ehf. flyt-
ur til Þorlákshafnar
Nú stefnir í að velta Frostsfisks
verði nálægt 700 milljónum króna á
þessu ári og ríflega milljarður á því
næsta, en að sögn Steingríms Leifs-
sonar framkvæmdastjóra hefur fyr-
irtækið aldrei verið rekið með tapi
frá því það var stofnað árið 1992. Nú
er verið að flytja fyrirtækið til Þor-
lákshafhar. Það er stefna stjómenda
Frostfisks ehf. að fyrh-tækið verði
öflugt bæði í veiðum og vinnslu á
botnfiski. „Við höfum keypt allan
fisk á fiskmörkuðum og selt afurðir
okkar beint til dýrra stórverslana-
keðja og veitingahúsa og það hefur
gengiö upp.“
Frostfiskur er sérhæft fisk-
vinnslufyrirtæki sem hefur aðallega
stundað vinnslu og útflutning á
kældum fiskafúrðum og hefur náð
góðum árangri í sölu til Bretlands
og Bandaríkjanna. Undanfarin ár
hefur Frostfiskur unnið úr 3.000 til
4.000 tonnum á ári, en breytinga-
skeið stendur nú yfir hjá fyrirtæk-
inu. í byrjun mánaðarins festi
Frostfiskur kaup á togbátnum
Danska Pétri frá Vinnslustöðinni
- stefnt á skráningu á Verðbréfaþing
hf. ásamt um 500 þorskígildistonna
kvóta í þorski og ýsu, auk fisk-
vinnsluhúss í Þorlákshöfn. Fyrir
fiárfestinguna var greitt með 40%
hlut í Frostfiski, enda segir Stein-
grímur að verkefnið sé það stórt í
sniðum að Frostfiskur hefði vart
haft tök á því nema með því að selja
hlutafé og bætir því við að það sé
fyrst og fremst skortur á hráefni til
vinnslu sem veldur að af því hafi
ekki orðið.
Samvinnan styrkur
Steingrímur dregur ekki dul á að
samstarfið við Vinnslustöðina og
væntanlegt sameinað félag Vinnslu-
stöðvarinnar og ísfélags Vest-
mannaeyja hf. geti styrkt hráefnis-
stöðu Frostfisks og bátar þess kunni
að landa í Þorlákshöfn. „Ef við
stöndum okkur vel munum við hafa
greiðari aðgang að góðum fiski.“
Hann segir þó ekki á döfinni að
Frostfiskur gangi inn i það félag.
„Við þurfum að halda vel á spilun-
um, vera cilltaf viðbúnir til að ná
áframhaldandi góðum árangri. Ég
Steingrímur Leifsson, fram-
kvæmdastjóri Frostfisks ehf.
sé ekki fyrir mér að við munum ná
sama árangri og við höfum verið að
ná með því að vera deild inni í öðru
fyrirtæki.“
Næstu skref hjá Frostfiski segir
Steingrímur vera að endurbæta
nýtt húsnæði fyrirtækisins í Þor-
lákshöfn, ná tökum á útgerðarþætti
starfseminnar og stækka enn frek-
ar. Til lengri tíma litið er það mark-
mið stjómenda Frostfisks að fyrir-
tækið verði skráð á hlutabréfa-
markað og segist Steingrimur sjá
fyrirtækið fyrir sér á Verðbréfa-
þingi að fjórum árum liðnum.
Arðsemi að leiðarljósi
Steingrímur segir fyrirtækið vera
rekið með arðsemi að leiðarljósi,
enda sé það forsenda þess að það
verði áhugaverð fjárfesting. „Við
þurfum að gefa okkur um fiögur ár
til þess að búa til fyrirtæki sem
verður boðlegt á hlutabréfamark-
aði.“ Steingrímur segir að í því
felist meðal annars að fyrirtækið
auki aflaheimildir sínar. Frostfisk-
ur hyggst þannig taka þátt í þeirri
miklu gerjun sem á sér nú stað í
sjávarútvegi á íslandi. „Við lítum
svo á að aldrei i sögunni hafi verið
meiri tækifæri til staðar í grein-
inni,“ segir Steingrímur. -bmg
Baugur
stendur á
bremsunni
- segir Jón Ásgeir
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, hefúr sent frá sér til-
kynningu þar sem fúllyrðingum
um minni samkeppni á matvöru-
markaði er mótmælt. Þar segir:
„Á þeim átján mánuðum sem
liðnir eru frá því að Baugur hf.
var stofnaöur hefúr matvöruverð
hækkað minna
en almennt
verðlag. Því
hefur verið
haldið fram að
vegna stækk-
unar fyrir-
tækja á mat-
vörumarkaði
hafi sam-
keppni minnk-
að og vöruverð hækkað umfram
verölagsvísitölu. Tölumar tala
allt öðru máli. Samkeppni harðn-
aði mjög á matvörumarkaði með
tilkomu Baugs hf. Vegna magnaf-
sláttar í innkaupum og stærðar-
hagkvæmni í rekstri Aðfanga,
sem kaupa inn matvöru fyrir
Bónus, Hagkaup, Nýkaup og 10-
11, hefur tekist að hagræða í
rekstri þannig aö 6-7% hækkun á
vörum í innkaupum hefur ekki
komið fram í hækkunum á verði
til neytenda. Baugur hefur því
með umbótum í verslunarháttum
staðið fast á bremsunni til þess að
hemja þá veröþenslu sem er í
þjóðfélaginu. Matvörukaupmenn,
almenningur og stjómvöld þurfa
nú að ná saman um að kveða nið-
ur veröbólgudrauginn sem kom-
inn er á kreik.“ -bmg
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sími: 568 3330
hUp://www.Vortcx.is/~skip/
Bjart fram undan á
sku Idabréfamarkaði
- að mati íslandsbanka F&M
Að mati íslandsbanka F&M er
bjart fram undan á skuldabréfa-
markaði og líklegt að löng skulda-
bréf gefi góða ávöxtun næsta árið í
það minnsta. Fram kemur í Morg-
unfréttum F&M í gær að ástæður
þess séu einkum þær að verðbólga
hafi gefið eigendum verðtryggðra
skuldabréfa mjög góða ávöxtun á
árinu og ekki sé annað að sjá en að
svo verði áfram um tíma.
Þá er bent á að fiárlög fyrir árið
2000 verði tilkynnt í byrjun október.
Fjármálaráöherra hefur lýst yfir að
líklega verði skilað meiri afgangi en
6-7 milljörðum til þess að slá á eft-
irspum í hagkerfinu. Ríkisstjómin
virðist hafa fullan hug á því þannig
að fyrirhugaður afgangur af fiárlög-
um getut orðið meiri. F&M bendir á
að þessi viömiðun sé án sölu eigna
ríkisins sem gætu fallið til á næsta
ári eins og Landsbanka íslands,
Búnaðarbanka og Landsímans. „Út-
íslandsbanki F&M telur ekki að
skuldabréfaeign bankanna hamli
gegn frekari vaxtalækkunum.
lit er því fyrir áframhaldandi upp-
greiðslur á lánum ríkisins á næsta
ári sem gæti skilað sér í spum eftir
ríkisskuldabréfum," segir F&M.
Þá er bent á að erlendir aðilar
hafi sýnt íslenskum ríkistryggðum
skuldabréfum mikinn áhuga að
undanfomu. „Skuldabréfaeign er-
lendra aðila er þegar orðin umtals-
verð og mun án efa aukast á árinu
2000. Mögulegt samstarf verðbréfa-
þings við erlendar kauphallir auk
stofnunar verðbréfamiðstöðvar
mun auðvelda erlendum aðilum
viðskipti með íslensk skuldabréf,"
segir i Morgunfréttum Islands-
banka F&M í gær.
F&M ósammála Búnaðar-
bankanum
íslandsbanki F&M telur ekki að
skuldabréfaeign bankanna hamli
gegn frekari vaxtalækkunum, líkt
og bent var á í Hálf fimm fréttum
Búnaðarbankans í fyrradag. F&M
segir staðreyndina vera þá að stór
hluti ríkisverðbréfaeignar sé vegna
fiárstýringar bankanna. Einnig
bendir F&M á að ríkisskuldabréfa-
eign hafi þann tilgang að verja
vaxtaáhættu bankanna vegna af-
leiðusamninga. F&M segir mikil-
vægt að greina á milli brúttóstöðu
skuldabréfaeignar bankanna og
nettóstöðu hennar. -bmg
Veltuaukning en minni
hagnaður hjá Vírneti
Afkoma Vírnets hf. í Borgarnesi
var lítiö eitt lakari á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs en á sama tímabili i
fyrra. Viðskiptablaðið greindi frá.
Tap fyrirtækisins, samkvæmt óend-
urskoðuðu uppgjöri, nam 6 milljón-
um króna, samanborið við 1,5 millj-
óna tap á fyrstu sex mánuðum síð-
asta árs. Afkoma Vírnets er jafnan
mjög árstiðabundin og var 15 millj-
öna króna hagnaður allt árið í fyrra
þrátt fyrir tap á fyrri helmingi árs.
Fjármagnsliðir voru 3 milljónum
króna óhagstæðari en á sama tima i
fyrra og voru neikvæðir um 8 millj-
ónir. Vímet er iðnfyrirtæki sem
sérhæfir sig i fram-
leiðslu alls kyns vara úr
jámi og stáli, svo sem
nagla, vírs og þakjáms,
t.d. undir vörumerkinu
Borgames-stál. Afkoma
Vírnets er mjög árstíöa-
bundin. Þannig var 15
milljóna hagnaður af
starfsemi félagsins í
fyrra þrátt fyrir tap á
fyrri hluta árs. Stefán
Logi Haraldsson, nýráð-
inn framkvæmdastjóri,
segist vona að afkoman
verði svipuð þegar yfir-
Logi Haraldsson,
framkvæmdastjóri
Vírnets.
standandi ár verði gert
upp. Heildartekjur Vírnets
á fyrri hluta þessa árs vom
177 milljónir króna og juk-
ust um 14 milljónir milli
ára. Árið 1998 var velta
Vfrnets um 400 milljónir en
Stefán segir að í ár sé
stefnt aö því að rekstrar-
tekjumar verði nálægt 450
milljónum króna. „Aðstæð-
ur í samfélaginu gefa okk-
ur góðar vonir um að það
takist," segir Stefán Logi
Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Vfrnets. -bmg
Útboðið hjá Össuri gekk vel
Að sögn Þórðar Pálssonar hjá
Kaupþingi, sem sér um hlutfiárút-
boð í Össuri, gekk útboðið mjög
vel. Þórður segir að mikill áhugi
sé á bréfunum, þó svo að hann
geti ekki gefið upp neinar tölur í
því sambandi. Útboðinu lauk í
gær, kl. 16.
Lágmarksfjárhæð náðist ekki
Utboði á 3ja, 5 og 11 mánaða
ríkisvíxlum lauk með opnun til-
boða hjá Lánasýslu ríkisins í gær.
Með þessu útboði skuldbatt ríkis-
sjóður sig til að taka tilboðum á
bilinu 1000 til um það bil 5000
milljónir króna. Lágmarksfiár-
hæð útboðsins náðist ekki.
Ekki rými til vaxtalækkunar
11/2 5 fréttum Búnaðarbankans
kemur fram að framboð ríkisbréfa
sé að minnka en framboð annarra
innlendra skuldabréfa að aukast.
Á sama tíma sé almenn eftirspurn
eftir innlendum skuldabréfum að
dragast saman. Ekki sé því rými
til vaxtalækkana að svo stöddu.
JC stofnar viðskiptafélag
Junior Chamber ísland hefur
ákveðið að stofna viðskiptafélag
innan hreyfingarinnar i samvinnu
við Verslunarráð. Markmiðið með
þessu nýja félagi er að bjóða félags-
mönnum upp á öflug námskeið
með sérstaka áherslu á stjómun og
framsögn, ásamt þvi að bjóða fiöl-
mörg tækifæri til að vinna að við-
skiptatengdum verkefnum.
Ný sjónvarpsstöð í loftið
Á laugardaginn hefur göngu
sína ný íslensk sjónvarpsstöð,
Popptíví, og mun hún senda út
popp allan sólarhringinn.
Kostnaðarlaus viðskipti
Vegna vaxandi áhuga á verð-
bréfaviðskiptum á Wall Street á
Vefnum í gegnum Kauphöll Lands-
bréfa hafa Landsbréf ákveðið að
bjóða viðskipta-
vinum sínum
upp á sérstakt
tilboð, að því er
fram kemur í
frétt frá Kaup-
höll Landsbréfa.
Það felst í því að
dagana 16. og 17.
september býðst viðskiptavinum
Kauphallarinnar að eiga gjaldeyr-
iskaup í Kauphöllinni sér að
kostnaðarlausu.
Verðfall í Japan í gær
Verðbréf í Japan féllu meira í
verði í gærmorgun en dæmi eru
um á einum degi á þessu ári. Það er
sterkt jen gagnvart dollar sem ógn-
ar útflutningsfyrirtækjum þar í
landi. Nikkei 225-vísitalan lækkaði
um 3,32%, eða um 589,98 stig, og var
hún í 17.187,24 á hádegi þar eystra.
Aukinn hagvöxtur í Sviss
Þjóðarframleiðsla í Sviss jókst
um 1,2% á öðrum ársfiórðungi
þessa árs, samanborið 1,1% vöxt á
sama tíma í fyrra. Þetta er nokkru
meira en hagfræðingar höfðu
spáð en gert var ráð fyrir minnk-
un frá fyrra ári.
Símasamruni
British Telecom og bandarískur
samstarfsaðili, AT&T, tilkynntu í
gær að þeir ætluðu að mynda mjög
stórt alþjóðlegt farsímafyrirtæki.
Samningur fyrirtækjanna er met-
inn á 10 milljarða Bandaríkjadala.
Beðið er eftir samþykki samkeppn-
isyfirvalda. Hlutabréf í báðum fé-
lögum hækkuðu mikið í verði í
kjölfar tilkynningarinnar. -bmg