Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1999, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Byggja upp ör-
yggissvæði í
Tsjetsjeníu
Flokkur öfgamannsins Haiders í öðru sæti:
Öngþveiti blasir
við í Austurríki
Rússar héldu í gær áfram upp-
byggingu öryggissvæðis í
Tsjetsjeníu til að koma í veg fyrir
að tsjetsjenskir skæruliðar geri
árásir á rússneskt landsvæði.
Talsmaður rússneska hersins
sagði rússneskar hersveitir víða
vera komnar um funrn kílómetra
inn fyrir landamæri Tsjetsjeníu.
Loftárásum var haldið áfram í
gær á meintar búðir skæruliða í
Tsjetsjeníu. Tsjetsjenar segja
árásirnar gerðar á hús óbreyttra
borgara. 28 manns, þar af 14 börn,
eru sagðir hafa látist í loftárás á
laugardagskvöld og 100 særst.
Stuðningsmenn hægriöfgamannsins
Jörgs Haiders fógnuðu góðum árangri
Frelsisflokks hans í þingkosningunum
í Austurríki i gær með bjór- og kampa-
vínsdrykkju. Sögðu stuðningsmenn-
irnir úrslitin sigur fyrir sönn austur-
rísk gildi.
Samkvæmt bráðabirgðatölum hlaut
Jafnaðarmannaflokkurinn, flokkur
Viktors Klima kanslara, 33,4 prósent
atkvæða. Frelsisflokkurinn hlaut 27,2
prósent en Þjóðarflokkurinn, sem er í
stjórn með Jafnaðarmannaflokknum,
hlaut 26,9 prósent atkvæða.
Karl Schlögl innanríkisráðherra
sagði þó að um bráðabirgðaúrslit væri
að ræða þar sem enn væri eftir að telja
um 200 þúsund utankjörstaðaatkvæði.
Talning þeirra getur tekið viku eða tíu
daga.
Wolfgang Schússel, leiðtogi Þjóðar-
flokksins og utanríkisráðherra Aust-
urríkis, hafði sagt að hann myndi
ganga til liðs við stjómarandstöðuna
lenti flokkur hans í þriðja sæti. í gær
neitaði Schússel hins vegar að játa sig
sigraðan. „Þessi bráðabirgðaúrslit eru
ails ekki endanleg úrslit,“ benti hann
á. Kvaðst hann viss um að þegar upp
væri staðið yrði flokkur hans í öðru
sæti.
Verði hins vegar Frelsisflokkurinn
í öðru sæti þegar öll atkvæði hafa ver-
ið talin þykir líklegt að Haider krefjist
þátttöku í stjórninni. Það veldur mörg-
um innan Evrópusambandsins áhyggj-
um, ekki bara vegna öfgafullra skoð-
ana Haiders og hatms á innflytjendum
heldur einnig vegna andstöðu hans
við aðild Austurrikis að sambandinu.
Búist er við að velgengni Frelsis-
flokksins breyti stjómmálunum I
Austurríki og leiði til öngþveitis eftir
langt samstarf Jafnaðarmannaflokks-
ins og Þjóðarflokksins. Forystumenn
beggja flokkanna hafa báðir lýst því
yfir að þeir vilji ekki stjórna með
flokki Haiders.
Sjálfur neitaði Haider í gær að leiða
getum að því hvort hann yrði í næstu
stjórn. Sagði hann eðlilegt að Thomas
Klestil forseti sneri sér fyrst til Klima
þar sem hann væri leiðtogi stærsta
flokksins.
INFLUEN SU SPRAUTA
íbúum starfssvæðis Heilsugæslustöðvarinnar
á Seltjamamesi er boðið upp á inflúensusprautu
fimmtudaginn 7. október og föstudaginn 8. október
kl. 14. til 16 báða dagana.
Gengið er inn gegnt Valhúsaskóla.
Starfsfólk Heilsugæslustöðvarinnar
á Seltjamamesi.
Símmúla 28 - 108 Reykjavík - Sími 568 0606
Geymið auglýsinguna!
Jörg Haider fær koss frá stuðningsmanni. Haider var sigurvegarinn í
þingkosningunum í Austurríki í gær. Símamynd Reuter
Draskovic bjargast
úr dularfullu slysi
Serbneski stjórnarandstöðuleið-
toginn Vuc Draskovic slasaðist lít-
ils háttar í gær þegar vörubíl, sem
kom úr gagnstæðri átt, var skyndi-
lega sveigt í veg fyrir bíl sem hann
var í. Þrír lífverðir Draskovics og
mágur hans, sem var embættis-
maður í Belgrad, létust við árekst-
urinn.
Draskovic og fylgdarsveinar
hans voru á ferð í tveimur bílum
skammt frá Lazarevac, sunnan við
Belgrad, þegar vörubílnum var ek-
ið yfir á rangan vegarhelming, að
því er lögmaður Draskovics greindi
frá. Ökumaður vörubílsins stakk af
frá slysstaðnum eftir að hafa ekið á
báða bílana.
í gærkvöld stöðvaði óeirðalög-
regla göngu um 15 þúsund mótmæl-
enda í Belgrad. Neyddi lögreglan
göngumenn til að breyta um
stefnu.
Draskovic fullyrti í gærkvöld að sér
hefði verið sýnt banatilræði.
INNKA UPA STOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
F ríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
ÚTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í verkið:
Sturlugata, gatnagerð og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 7.000 m3
Fylling 10.000 m3
Púkk 2 300 m2
Holræsi 285 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2000.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 5. október 1999
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 14. október 1999 kl. 14.00 á sama stað.
gat 100/9
ens
darstólar
Hvíldarstóll úr ledri
i
kr. 65.900,-
Husgogn
TILBOÐ
HvíldarstóH
úrtaui
kr. 39.900,-
Heimfararleyfi
Yfirvöld í Indónesíu hafa gefið
tugþúsundum A-Timorbúa, sem
eru í flóttamannabúðum á V-
Tímor, heimfararleyfi.
Rannsaka kjarnorkuslys
Rannsókn er nú hafin í Japan á
kjarnorkuslysinu þar á fimmtu-
daginn. Yfirmenn vinnslustöðvar-
innar viðurkenna aö hafa breytt
vinnureglum án samþykkis yfir-
valda.
Gagnrýnir Bradley
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, réðst í gær á keppinaut
sinn, Bill
Bradley, og sak-
aði hann um að
hafa stutt niður-
skurð Ronalds
Reagans, fyrr-
verandi Banda-
ríkjaforseta.
Gore lýsti því
einnig yfir aö hann ætlaði ekki að
reka kosningastjóra sinn, Tony
Coelho, þrátt fyrir umdeildar
greiðslur hans vegna heimssýn-
ingarinnar í Portúgal.
Öllum verði refsað
Þegar unglingar í innflytjenda-
fjölskyldum í Danmörku gerast
sekir um alvarlega glæpi á að
refsa allri fjölskyldunni með því
að vísa henni úr landi, að mati
Þjóðarflokksins danska.
Konungur bænheyrður
Þegar íbúar Lesotho höfðu safn-
ast saman í kirkjum landsins í
gær, að beiðni Letsies HI. kon-
ungs, til að biðja um regn féllu
þungir regndropóir til jarðar. Mik-
il þurrkatíð hefur verið í landinu
í nokkra mánuði.
Ofbeldisfullar kosningar
Tugir létu lífið í átökum á Ind-
landi í gær. Átökin tengdust
fimmtu og síðustu umferð þing-
kosninganna.
Þjófnaður í höllinni
Breska lögreglan rannsakar
þjófnað í Buckinghamhöll, heim-
ili Elísabetar
Englands-
drottningar.
Lögreglan verst
allra frétta en
bresk blöð full-
yrtu i gær að
gimsteinum og
erfðagóssi hefði
verið stolið. Heimildarmenn inn-
an lögreglunnar segja að þó hall-
arinnar sé vel gætt utandyra sé
öryggi ábótavant innanhúss.
Taka á móti milljón
Þrátt fyrir að atvinnuleysið á
Spáni sé það mesta innan Evrópu-
sambandsins eru spænsk yfirvöld
reiðubúin að taka á móti 1 milljón
innflytjenda til starfa við bygging-
ar og landbúnað.
Hleruðu sendiráð
Þýska tímaritið Focus segir
þýsk yfirvöld hafa sannanir fyrir
því að bandarískir njósnarar hafi
hlerað sendiráð Þýskalands í
Washington.
105 kíló af heróíni
Búlgarskir landamæraverðir
tilkynntu i gær að þeir hefðu lagt
hald á' 105 kíló af heróíni sem
falið var í Mercedesbíl á leið frá
Tyrklandi til Kosovo.
Völdin til sveitamanna
Vladimir Shoigu, ráðherra
björgunarmála í Rússlandi, sagði
á fundi nýlega
stofnaðs kosn-
ingabandalags
að svipta ætti
stjómmála-
menn í Moskvu
völdum og færa
þau í hendur
stjómmála-
mönnum á landsbyggðinni.
Stjómmálafræðingar telja að sam-
tök Shoigus hafi verið stofnuð til
höfuðs Primakov, fyrrverandi for-
sætisráðherra, og Luzhkov,
borgarstjóra Moskvu.