Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Síða 16
16
ennmg
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999 IjV
Pólitíska landslagið
Stundum er talað um pólitískt
landslag en þá er yfirleitt átt við
huglægar hæðir og dalverpi sem
valda vatnaskilum í pólitíkinni á
hverjum tíma. Norðmaðurinn Pat-
rick Huse sem um þessar mundir
sýnir í Vestursal Kjarvalsstaða hélt
hinsvegar fyrir stuttu fyrirlestur um
landslagið sem pólitískt afl. Því mið-
ur hafði ég ekki tök á að fara en
giska á að efnið hafi tengst því, sem
hann sagði í viðtali hér í blaðinu fyr-
ir nokkru, er hann líkti íslensku
náttúrufari við andófsafl, jafnvel
hryðjuverkaafl.
Myndlist
Áslaug Thorlacius
amar eru auk þess undir
þykku gleri. Þessar óskOj-
anlegu og tilgerðarlegu um-
búðir eru sýningunni ekki
til framdráttar.
Pólitíska yfirlýsingin í
öræfalandslagssýningu
Listasafns íslands er öllu
læsilegri en með henni er
m.a. bent á gildi fagurfræð-
innar þegar flóknar spum-
ingar um verðmætamat og
landnýtingu em vegnar.
Hafa ber í huga að fagur-
fræði snýst ekki eingöngu
um form og lit og þó snyrti-
lega sé gengið frá stórfram-
kvæmdum á hálendinu
skipta hughrifin ekki
minna máli, hin magn-
þrungna tilfmning fyrir
ósnortnu sköpunarverki
náttúmnnar. Þessi tilfinn-
ing er afar sterk í mörgum
verkum á sýningunni; ég nefni t.d. gullfallegar
kvöld- og næturstemningar á suðurveggnum.
Á sýningunni em verk eftir gamla meistara,
minni spámenn og örfáa samtímamenn. Ekki
ætla ég mér að gagnrýna einstök verk en það
er stór galli á sýningunni hve samhengið er
brotið og hve slæmt jafnvægi ríkir milli tíma-
bila.
Það er jákvætt að Listasafn íslands skuli
taka þátt i umræðunni um mikilvægasta deilu-
mál þjóðarinnar. Um leið má leiða hugann að
samspili frelsis listarinnar og hins frjálsa
markaöar. Rétt fyrir opnun sýningarinnar,
nokkmm dögum eftir að islenskir listamenn
fjölmenntu uppá hálendið til að sýna náttúr-
unni samstöðu, var Listasafn íslands vettvang-
ur fyrir fund FBA og Landsvirkjunar þar sem
erlendum bönkum og fjármagnseigendum vom
kynntir fjárfestingarkostir á íslandi. Má ætla
að bréfin í eyðileggingu hinnar ósnortnu nátt-
úru norðan Vatnajökuls hafi þar verið ofarlega
á sölulistanum.
Sýning Patricks Huse á Kjarvalsstöðum
stendur tii 24. október. Safnið er opið alla
daga kl. 10-18.
Öræfalandslag í Listasafni íslands stendur til
28. nóvember. Safnið er opið alla daga nema
mán. kl. 11-17.
Hvort sem sýningin sjáif er póli-
tísk yfirlýsing eður ei er yrkisefni Huse ís-
lenskt landslag. Þó ekki póstkortastaðirnir
Kvöld eftir Jón Stefánsson á sýningunni Öræfalandslag í Listasafni Is-
lands.
Ein af teikningum Patricks Huse á sýningunni á Kjarvals-
stöðum undir þykku gleri.
heldur hraunbreiðan og eyðisandurinn, kraft-
mikil og úfin náttúra, gróðurvana og full af
endurtekningu. Flest eru málverkin gríðar-
lega stór og á sinn hátt glæsileg. Þau em mál-
uð með þurrum og þekjandi litum í brúnum
og gráum tónum ásamt miklu svörtu og sýna
endalausar breiður af grjóti og hrauni, nibb-
um og totum. Myndflöturinn iðar af óróleika,
kaldur og harðneskjulegur. Nokkuð öðru
máli gegnir um teikningar hans, en þéttriðið
net af fínlegum línum og tærari litur glæða
þær ríkari tilfinningu.
í ofannefndu viðtali staðhæfir
Huse að íslenskir landslagsmálarar
máli sig út úr landinu, sjálfur máli
hann sig inní það. Hvort hann á
við að íslenskir málarar séu allir
að búa til glansmyndir veit ég ekki
en hans markmið er augljóslega
hið gagnstæða. Samt get ég ekki
séð aö þessar myndir fjaili af miklu
næmi um innviði náttúrunnar.
Þvert á móti þykja mér þær yfir-
borðslegar og jafnvel skopmynda-
legar (sér i lagi þær totóttu).
Yfirskrift sýningarinnar, Rifa,
hefur samkvæmt sýningarskrá
jarðfræðilega tilvísun i sprungu-
svæði eins og það sem gengur
þvert gegnum ísland. Kannski er það skýring-
in en „rifa“ er alltof veikburða orð fyrir þá
náttúrukrafta sem um ræðir. Sömuleiðis eru
textamir á veggjunum sérkennilegir; mér dett-
ur i hug að listamaðurinn treysti ekki lands-
lagsmálverkinu sem tjáningarformi og hyggist
gefa sýningunni þyngd með djúpt hugsuðum
kenningum. Á sama hátt vantar traust til verk-
anna sjálfra en þau eru römmuð inn í stál eins
og til að herða þau upp og viðkvæmar teikning-
Fyrirlestrar og námskeið
I dag kl. 12.30 kynna ljósmyndararnir Einar
Falur og Ragnar Axelsson (á mynd) eigin verk
í fyrirlestrum í Listaháskólan-
um í Laugamesi, stofu 024.
Námskeið opin almenningi
á næstunni em „Myndvinnsla
fi. Photoshop" þar sem unnið
verður með breytingar og lag-
færingar á tónum og lit. Kenn-
ari er Leifur Þorsteinsson ljós-
myndari og umsjónarmaður
tölvuvers LHÍ. Kennt verður í
LHÍ í Skipholti 1, stofu 301,
vikuna 25.-28. október kl 18-22.
Einnig verður námskeiðið „Þróun bygging-
arlistar og skipulags á 20. öld, yfirlit". Tilgang-
ur þess er að varpa ljósi á helstu þætti í ís-
lenskri skipulags- og húsagerðarsögu á 20. öld.
Gerð verður grein fyrir hugmyndum og kenn-
ingum sem mest áhrif hafa haft á mótun
byggðar hér á landi með tilvísun í verk helstu
arkitekta. í fjórum fyrirlestmm verður m.a.
íjallað um heimastjómarárin og upphaf stein-
steypunotkunar, verk fyrstu arkitektanna,
skipulagshugmyndir 3. áratugarins, kreppuár-
in og upphaf módemisma, þróun þeirrar
stefnu eftir stríð og breytt viðhorf í húsagerð
eftir 1970. Kennari er Pétur H. Ármannsson,
arkitekt og deildarstjóri Byggingarlistardeild-
ar, Kjarvalsstöðum. Kennsla fer fram í hús-
næði Listaháskóla íslands mánudaga og
fimmtudaga, 25. október - 4. nóvember, kl.
20-22.30. Námskeiðið er samvinnuverkefni
Listasafns íslands og Listaháskóla íslands.
Námskeið um
myndlistarvörur
Slippfélagið stendur fyrir námskeiði um
Lukas myndlistarvörur á fostudaginn kemur,
22. október, kl. 14 í aðalstöðvum Slippfélagsins
að Dugguvogi 4. Fyrirlesari verður Joachim
H. van Beek frá Þýskalandi sem talar á ensku
en starfsmaður Slippfélagsins verður honum
(og þátttakendum) til halds og trausts. Nám-
skeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Ljóðatónleikar
Annað kvöld kl. 20.30 heldur sópransöng-
konan Elín Huld Árnadóttir sina fyrstu op-
inberu einsöngstónleika á íslandi í Salnum
í Kópavogi við undirleik pianóleikarans
Williams Hancox. Á efnisskrá tónleikanna
eru sönglög eftir Vincenzo Bellini og Hugo
Wolf, Mignon ljóðin eftir Franz Schubert og
einnig verða fluttir þrír ljóðaflokkar eftir
Pál ísólfsson, Maurice Ravel og Claude
Debussy.
Chaplin við lifandi undirleik
Ógleymanleg sena úr The Kid: Flækingurinn og drengurinn eru á
flótta undan laganna verði - sem stendur á bak við þá!
Á fimmtudagskvöldið kl. 20 verður
þögla meistaraverkiö, Borgarljósin
eftir Chaplin, endursýnt í Háskóla-
bíó við undirleik Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands, en miklu færri komust að
en vildu á þann atburð í fyrra. „Það
var slegist um miðana!" segir Oddný
Sen, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins. Á laugardaginn kl. 17 verða svo
kvikmyndimar Drengurinn (The
Kid) og Iðjuleysingjamir (Idle Class)
sýndar á sama stað, einnig við undir-
leik Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Hljómsveitarstjóri er þýski tónlistar-
maðurinn og stjórnandinn Frank
Strobel.
Oddný Sen, rithöfundur og kvik-
myndafræðingur, stendur fyrir þess-
um sýningum og viðurkennir fúslega
að það geri hún af ástríðu. „Þegar ég
var við nám í Paris fyrir mörgum
áram fór ég á sýningu á mynd D.W.
Griffiths, Intolerance, fjögurra
klukkutíma mynd, þar sem Sinfóníu-
hljómsveit Parísarborgar lék undir.
Ég hef aldrei gleymt þessari uppá-
komu og ég held að það sé vegna þess
að það eru töfrar að verki í lifandi
samspili kvikmyndar og tónlistar."
Oddnýju langaði til að fleiri yrðu
þessarar reynslu aðnjótandi og ákvað
að prófa að gera þetta heima. Hreyfi-
myndafélagið varð þó fyrri til með
sýningu á Vindinum eftir Sjöström við
undirleik Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands árið 1994. „Árið eftir settum við
hjá Kvikmyndasafni íslands upp
Metropolis við undirleik tveggja pí-
anista og sýningin vakti rífandi fógn-
uð,“ segir Oddný. „Myndin var sýnd
án hlés í þrjá og hálfan tima og fólk af öllu tagi,
frá fjögurra ára börnum upp í gamalmenni við
hækjur, sat bergnumið! Síðan hefur verið ein
sýning á ári og nú er þetta orðin hefð.“
Oddný lítur á þetta tiltæki sem svar við
tæknibrellunum sem eru allsráðandi í kvik-
myndum okkar tíma. „Við erum orðin svo firrt
að við eigúm bágt með að greina á milli listar
og rusls," segir hún, „það er hollt að hverfa aft-
ur til upprunans við og við.“ Og í ljós hefur
komið að fólk hefur afar gaman af að upplifa
kvikmyndir eins og þær voru fyrir tima tal-
mynda. Hljóðið var reyndar komið til sögunn-
ar þegar Chaplin gerði Borgarljósin 1931 en
honum fannst gæðin ekki nógu mikil og ákvað
að hafa myndina þögla.
Hin sígilda andhetja
Borgarljósin eru ein af
klassískum perlum kvik-
myndasögunnar. Þar verður
Flækingurinn ástfanginn af
blindri blómasölustúlku og
ákveöur að reyna að veita
henni sjónina með dýrri
læknisaðgerð en ratar í ótrú-
legustu ævintýri við fjáröflun-
ina. Drengurinn var gerð árið
1921 og sýnir Flækinginn í
grátbroslegum uppákomum
við barnauppeldi. Sú mynd
festi Chaplin í sessi sem
virtasta kvikmyndaleikara og
leikstjóra samtímans. Ári
seinna gerði Chaplin Iðjuleys-
ingjana. Þar er Flækingurinn
í tvöföldu hlutverki; annars
vegar sem hann sjálfur og
hins vegar sem viðutan eigin-
maður í sumarleyfi með konu
sinni.
Chaplin lagði áherslu að
gera Flækinginn að tákn-
mynd fyrir baráttuþrek
mannkyns - manninn sem
lætur aldrei bugast og missir
aldrei sjálfsvirðinguna hvað
sem á dynur en er einnig
svarinn fjandmaður borgara-
legra gilda. Flækingurinn er
fyrsta andhetja kvikmynd-
anna, margræður í ærslafull-
um einfaldleik sínum, spegill
mannlegra tilfinninga sem
hefúr haft víðtæk áhrif á per-
sónusköpun margra þekkt-
ustu kvikmyndagerðarmanna sögunnar.
Að viðburðinum standa Kvikmynda-
sjóður, Kvikmyndasafn íslands og Sinfón-
íuhljómsveit íslands með stuðningi
Germaníu. Tekið er á móti pöntunum í
síma 562 2255, og gætið þess að panta tím-
anlega!
í jöklanna skjóli
„í jöklanna skjóli" heitir nýútkominn
geisladiskur frá Karlakómum Jökli í
Hornafirði. Þetta er fyrsti hljómdiskur kórs-
ins en hann hefur starfað frá árinu 1973.
■ Lagaval er ijölbreytt, hefðbundin
karlakóralög, lög og/eða ljóð eft-
ir homfirska höfunda og auk
þess nokkur lög eftir hinn kunna
lagahöfund Magnús Eiríksson.
Stjómandi Jökuls, Jóhann Morá-
vek, útsetti fyrir kórinn lög
| Magnúsar Eiríkssonar og fékk hann til liðs
s við kórmenn félaga úr hljómsveit Hauks
í Þorvaldssonar, ennfremur 15 ára gamlan
saxófónleikara, Sveinbjöm Pálsson, og slag-
verksleikarann Jón Björgvinsson.
Eins og fyrr segir er stjómandi kórsins
Jóhann Morávek og píanóleik annast Guö-
| laug Hestnes. Skifan sér um dreifingu.
Finnrás á Súfistann
Annað kvöld verður finnskt kvöld á Súfist-
anum - bókakaffí í verslun Máls og menning-
ar, Laugavegi 18. Þar mun hinn frækni finnski
ritíjöllistahópur The Fabulous Four and A
Blondie (Hin fjögur' fræknu og
: Ljóska) skýra i tali og tónum
frá því helsta sem er á döfinni
i finnskri ritlist og fjalla um
muninn á finnskum og íslensk-
um bókmenntum. Dagskráin
fer fram á finnsku, sænsku,
i ensku og íslensku.
Einnig les Guðrún Sigurðar-
dóttir úr þýðingu sinni á
jj; skáldsögunni Ári hérans eftir
í i finnska rithöfundinn Aarto Paasilina sem ný-
lega kom út hjá tslenska kiljuklúbbnum.
Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur ókeyp-
is og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
'