Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Side 32
> 44 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999 I>"V nn & Ummæli Utgefendur vilja mig ekki „Það er alltaf ný plata á döfinni en það vill stranda á tvennu. Annað eru útgefendur sem vilja lítið við mig kannast og hitt eru pening- ar sem vilja ekki þekkja mig. Ég vona að þetta hljómi ekki of eymd- arlega.“ Megas í Fókusi um vand- ræði við plötuútgáfu. Fæða börn hlekkjaðar „Alþjóðasamningar hanna að hlekkir séu notaðir á fanga, þ.á m. notkun fótjárna. í trássi við alþjóðasamninga eru jámhlekkir víða notaðir í bandarískum fangelsum og dæmi eru um að óléttar kon- ur hafi fætt börn sín hlekkj- aðar við rúm.“ Jóhanna K. Eyjólfsdóttir í Mogganum um mannrétt- indabrot í Bandaríkjunum. Ekki alveg sköllótt „Ég er mjög glöð yfir því að íslenskar stelpur eru að verða duglegri að raka sig. Sjálf geng ég nú ekki um alveg sköllótt að neðan heldur kýs ég að halda einhverju eftir. Að vera vel rök- uð að neðan er bara miklu þægilegra og snyrtilegra og mér finnst alveg ógeðslegt að sjá stelpur í sundlaugun- um sem eru loðnar niður á hné.“ Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir stílisti í Fókusi um rökunar- tísku. Ríkisstjómin bjó til snjóbolta „Skuldirnar jukust um 50 milljarða og flæða þessir fjár- munir inn í þjóðfélagið og ekkert á bak við þá nema syndandi fiskurinn i sjónum og flótti af landsbyggðinni á suðvesturhomið sem spreng- ir upp fasteignaverö og veld- ur þenslunni. Þennan snjó- bolta bjó rikisstjómin til og stækkar hann glatt i skjóli hennar." Halldór Halldórsson í Mogganum um skuldasöfn- un íslenskra útgerða. Brekkukambur Þúfufjall Eystra- \ Kambshorn 1000 Bjarteyjá sandur Hvalstöö Leggjuin Akureyri undir okkur Bandalag íslenskra leikfélaga var stofnað árið 1950 og hefur innan sinna raða 72 leikfélög og leikdeild- ir ungmennafélaga. Bandalagið rek- ur umfangs- ______________________ mikla þjónustu- miðstöð á Laugavegi 96 í ■ Reykjavík, þar er stærsta leikrita- safn landsins og selur einnig farða og aðrar leikhúsvörur og sinnir ráð- gjöf og samningagerð fyrir leikfélög- in. Einnig njóta skólar, jafnt grunn- skólar sem framhaldsskólar, þjón- ustu hjá BÍL og er hún mikið notuð. Guðrún Halla Jónsdóttir frá Selfossi er varaformaður Bandalags ís- lenskra leikfélaga en bandalagið á 50 ára afmæli á næsta ári og verður haldið veglega upp á það. „Það er nú ýmislegt sem gert verður til þess að halda upp á af- mælið. En hæst ber þó líklega Leik- listarhátíðina á Akureyri 21.-25. júní 2000. Við munum setja mikinn svip á Akureyri í kringum Jóns- messuna. Þarna munu í það minnsta 11 leikhópar sýna verk sín um allan bæ, auk þess sem nám- skeið, fyrirlestrar og vinnubúðir (workshops) af ýmsu tagi verða í boði. Við erum staðráðin í að leggja undir okkur Akureyri og sýna þann slagkraft sem leikfélögin og Banda- lagið búa yfir,“ sagði Guðrún Halla Jónsdóttir í samtali við DV. „Miðað við áhugann á hátíð- inni, sem speglaðist i hópavinnu á haustfimdi Bandalagsins, er fólki óhætt að bóka Akureyri sem skemmtilegasta stað á ís- landi þá daga sem hátíðin stendur yfir. Upphaflega komu nokkrir staðir til greina, t.d. Reykjavík og ísafjöröur, en við töldum of mikið um að Maður dagsins vera í menningarborginni til að fá þá athygli sem við ættum skilið. Og þótt ísafjörður væri spennandi kost- ur óttuðumst við að hann yrði ekki , nægilega stór fyrir það umfang sem á hátíðinni verður --------------- og svo er bara staðreynd að það er auðveldara að halda athygli fjölmiðla á Akureyri en á ísafirði.“ sagði Guð- rún Halla. Hvernig gengur aö fá fólk til að leika i dag er það erfiðara en áður? „Það er misjafnt eftir leikfélögum hvernig gengur að fá fólk til starfa. Sum leikfélög eiga það sterka hefð og harðan leikarakjarna að vanda- málin liggja frekai' í aðstöðu og pen- ingaleysi en að fólk sé ekki til í að vinna. Auðvitað er oft erfitt að manna mjög stórar sýningar en það er afar sjaldgæft að hætt sé við upp- setningar af þeim sökum. Fólk er líka misjafnlega virkt, sumir eru svo illa haldnir af leikbakteríunni að þeir lofa að nú verði þeir ekki með en eru svo manna fyrstir á samlestur þegar vetrarstarfið hefst. Það er aðstöðuleysið sem plagar mest og slæm fjárhagsstaða, ekki skort- ur á góðu fólki.“ Guörún Halla á fjögur böm, það em þau Marí- anna Ósk, 17 ára, Berg- þóra Kristín, 10 ára, Brynjólfur, 7 ára, og Sigfríður Aldís, 6 ára. -DVÓ Guðrún Halla Jónsdóttir, vara- formaður BÍL. Fyrirlestur á vegum Háskóla íslands: - Reynsla Dana af gagnagrunn- um á heilbrigðissviði Háskóli íslands stendur fyrir opnum fyrirlestri um reynslu Dana af miðlægum gagnagrunni á heilbrigðis- sviði í kvöld. Fyrirlesturinn hefst kl. 20 í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla • íslands. Fyrirlesari er Fyrirleslur Thorkild I. A. Sörensen, prófessor og yfirlæknir við Institut for Sygdomsfore- byggelse í Kaupmannahöfn. Á fyrirlestrinum ætlar Thorkild Sörensen að miðla _ áheyrendum af sérþekkingu * sinni á stærsta gagna- grunni Dana, Landspati- entregistret, sem tekur við upplýsingum úr sjúkra- skýrslum frá danska heil- brigðiskerfinu. Sá gagna- grunnur hefur verið nýttur á margvíslegan hátt til læknisfræðirannsókna. Að fyrirlestri loknum verða opnar umræður. Thorkild I. A. Sörensen nam læknisfræði við há- skólann i Kaupmannahöfn og er sérfræðingur í lifrar- sjúkdómum. Hann er deild- arforseti heilbrigðisvísinda- deildar Kaupmannahafnar- háskóla og er formaöur í fé- lagi sem fjallar um heim- speki, siðfræði og aðferðir í læknisfræði. Myndgátan Fórnar höndum Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Moppulist í Galleríi i 8 Sýningin Mop Art, Dust traces hefur verið opnuð í Galleríi i8. Að henni stendur tvíeykið Trash/Tresures en í því eru lista- konumar Ina T. og Beu T. Þær búa og starfa i Aachen í Þýskalandi og hafa starfað að Mop Art verkefninu í tvö ár. Þær ferðuðust hingað í fyrra og sóttu þá um að sýna hér og nú er sú sýning orðin að veruleika. Þær segja að hugmyndin að Mop Art, eða moppulistinni, hafi kviknað i umferðarteppu á hraðbrautinni A2 í september 1993 en þær byrjuðu að vinna að henni fjórum árum seinna. Þær fást nú við það stóra verkefni að kanna þörf fólks á 20. öldinni fyrir hreinleika. Meðal muna á sýning- unni eru rykgildrur, ljósmyndir af moppum og margt fleira. Listakon- Sýningar urnar vilja opna augu sýningargesta fyrir viðteknum viðhorfum í garð óhreininda. Þær benda á að það er algeng hugsun að andstæðan við röð og reglu sé einungis til staðar vegna mistaka við tiltekt. Við það verður augljós sú þversögn sem hugsunin um röð og reglu er stödd í, því sá sem tekur til framleiðir ósjálfrátt óhreinindi. Hreinsun á einum stað býr til óhreinindi á öðrum. Listakon- urnar segja að tími sé kominn til að líta á hvemig skipulag annarra lítur út og bera saman bækm-nar. Ekki þrátt fyrir, heldur vegna ólíkra við- horfa sem angra þá sem telja eigið viðhorf það rétta. Þetta getur reynst erfitt en getum við sætt okkur við eitthvað minna? Viljum við að að- eins standi eftir ein hrein og klár veröld eða mega heimar sem krefjast óreiðu og óhreininda einnig vera til í kringum okkur? Sýningin er styrkt af Göethe- stofnuninni í Þýskalandi en henni lýkur 31. október. Bridge Lánið lék við dálkahöfund og Rúnar Einarsson í þessu spili sem kom fyrir í hausttvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur síðastlið- inn þriðjudag. í sætum a-v voru bræðurnir Anton og Sigurbjöm Haraldssynir sem þurftu að sætta sig við botn í spilinu. Hendi vesturs er af því taginu sem ekki sést dag- lega við græna borðið og Anton ákvað að hindra á fjórum tíglum í upphafi. Vestur gjafari og allir á hættu: * G10987 * Á108542 * D * G 4 - 44 - ♦ K10987542 4 108753 4 ÁKD5 V KD6 * 63 * ÁK96 Vestur Norður Austur Suð Anton Rúnar Sigurbj. ísak 4 4 dobl pass 5 4 pass 5 * pass 6 4 pass 6 4 p/h Dálkahöfundur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar vestur var búinn að hindra á fjórum tíglum og félagi hans í norður búinn að gefa úttektardobl. Úttektardobl norðurs uppfyllir ekki kröfur um punkta- styrkleika en er eigi að síður vel ígrundað þar sem líklegt má telja að suður eigi lengd í öðrum hvorum hálitanna. Ef þær forsendur eru fyr- ir hendi getur hönd norðurs verið sterk i sókn þrátt fyrir punktafæð- ina. Dálkahöfundur ákvað að keyra að minnsta kosti í hálfslemmu og var svo lánsamur að Rúnar valdi spaðalitinn framyfir hjartalitinn í annarri tilraun. Sex hjörtu er ekki hægt að vinna með tígulútspili en 6 spaða var auðvelt að vinna í þessari legu. Útspil austurs var tígulás og Rúnar trompaði næsta tígul heima. Hann lyfti nú spaðaás og lagði næst niður hjartakóng. Þegar legan var ljós var auðvelt mál að trompa eitt hjarta í blindum og taka síðan trompin af austri. N-s var eina parið í 6 spöðum. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.