Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1999, Qupperneq 36
Vinningstolur laugardaginn: 16.10.
17f20 *31
W
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5af 5 0 3.216.120
2. 4 af 5+^B . 302.850
3. 4 af 5 44 11.870
4. 3 af 5 1.670 720
Jókertölur
vikunnar:
0
6
8
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Sá fyrir sér fyrirsögn í DV er hann fékk í sig slysaskot:
Oddvitinn skaut
sveitarstjórann
- á rjúpnaveiðum þegar skot hljóp í fót sveitarstjórans
„Þegar ég áttaði mig andartaki
eftir skotið og uppgötvaði að ég var
ekki lífshættulega slasaður þá sá ég
fyrir mér fyrirsögn í DV - Oddvit-
inn skaut sveitarstjórann! Stutta
stund var mér hlátur í huga. Odd-
vitinn fékk auðvitað áfall enda var
þetta slæm lífsreynsla fyrir hann.
46)n þetta er að jafna sig núna,“ sagði
Reynir Þorsteinsson, sveitarstjóri á
Raufarhöfn, í samtali við DV.
Reynir var með oddvita Raufar-
hafnarhrepps, Þór Friðrikssyni, á
rjúpnaveiðum á föstudag á fjallgaröi
milli Þórshafnar og Raufarhafnar.
Þegar þeir höfðu skotið hvor á sína
rjúpuna varð slys:
„Við gengum samsíða með um
tíu metra millibili. Þór var fyrir
ofan en ég neðar í farvegi. Hann
var með tvíhleypu. Þegar hann
hleypti af kom fyrst ekkert skot. Þá
skaut hann úr hinu hlaupinu. Þeg-
ar við gengum að rjúpunurfi opn-
aði Þór byssuna, tók tóma skot-
hylkið úr og setti nýtt. Þegar hann
smellti byssunni aftur hljóp fyrra
skotið úr.
Ég fann samstundis roknahögg
eins og verið væri að lemja mig i
fótinn með stórri sleggju. Sem bet-
ur fer hafði Þór ekki beint byssunni
hærra en raun bar vitni. Ég gat
ekki annað en haft gaman af þessu
og sá fyrir mér fyrirsögn DV - Odd-
vitinn skaut sveitarstjórann. En
þegar við gengum áleiðis að bílnum
fann ég að það var ekki í lagi með
fótinn á mér,“ sagði Reynir.
Sigurður Halldórsson, læknir frá
Kópaskeri, gerði að sárum sveitar-
stjórans. „Hann sargaði höglin úr
löppinni á mér. Ég tel sennilegt að
fjallgönguskór sem ég keypti í
Skátabúðinni hafi bjargað löpp-
inni. Verst er að annar skórinn er
ónýtur. Ég er allur að koma til
núna enda er Sigurður góður
læknir," sagði sveitarstjórinn.
Hann sagði að þeir Þór teldu að
svokallaður pinni i tvíhleypu odd-
vitans hefði staðið á sér þegar
fyrra skotið hljóp ekki úr byss-
unni. -Ótt
Garðar BA á strandstað í gær.
DV-mynd Hafþór
Sluppu heilir
Tveir menn komust heilir á
húfi í land er sex tonna vélbátur,
Garðar BA 62, strandaði við svo-
kallaða Hnífaflögu sunnanvert í
Kollsvík vestan Patreksfjarðar á
^laugardagskvöldið.
Hægviðri var á strandstað er
óhappið var og lítill sjór. Lögregl-
an á Patreksfirði hafði samband
við menn í björgunarsveitinni í
Rauðasandshreppi hinum forna
og héldu þeir þegar á strandstað.
Tóku þeir á móti mönnunum í
fjörunni. Að sögn lögreglu var
farið á strandstað á sunnudags-
morgun til að reyna að bjarga
einhverjum verðmætum úr bátn-
um. Þá var hann nokkuð heilleg-
ur en síðdegis í gær var hann
orðinn gjörönýtur.
„Við sluppum báðir ómeiddir,"
sagöi Björgvin Helgi Fj. Ás-
björnsson skipstjóri sem hafði
verið að veiðum ásamt Rúnari
' ' Haukssyni háseta. -HKr.
Vantraust rætt á kjördæmisþingi Framsóknar:
Dregið úr látum
Vantraust á forystu Framsóknar-
flokksins í Reykjavík var rætt á
kjördæmisþingi Reykjavíkurfélag-
anna um helgina. Óskar Bergsson,
sem bar upp vantrauststillögu á
stjóm Framsóknarfélags Reykjavík-
ur á aðalfundi félagsins fyrir
nokkru, hóf umræðuna á þinginu.
Aðalsteinn Magnússon, formaður
stjómar, svaraði honum. Umræðan
snerist að hluta til um hvort Óskar
ætti að segja af sér trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn þar sem hann væri
eins óánægður með störf forystunn-
ar í Reykjavík og raun bæri vitni.
„Óskar ræddi þessi mál og ég fór
yfir stöðuna eins og hún er frá mtn-
um sjónarhóli,“ sagði Aðalsteinn
Magnússon, formaður stjórnar FR.
„Óskar var ekki að reyna að æsa til
ófriðar en reyndi fremur að halda
andlitinu. Mér finnst menn vera að
reyna að draga úr þessum látum
sem urðu á dögunum. Ég sagði að
enginn hefði sagt að Óskar ætti að
segja af sér heldur ætti hann ein-
ungis að hugsa sinn gang.“
Óskar Bergsson kvaðst ekki tilbú-
inn til að tjá sig um hvort hann
myndi segja af sér trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn. Nánar á bls. 6.
-JSS
Vegleg flugeldasýning við Kringluna:
Skelkað fólk hringdi í lögreglu
unar á stækkaðri Kringlu í Reykja-
vík. Fylltu bílar öll stæði og götur
í nágrenninu er mannfjöldinn
fylgdist með sýningunni sem var
mjög tilkomumikil en hjálparsveit
skáta sá um framkvæmdina. Að
sögn lögreglu gekk allt slysalaust
en mikið hringt og kvartað vegna
hávaða frá sýningunni. í nágrenn-
inu býr talsvert af gömlu fólki og
sagði lögreglumaður að sumir
hefðu hreinlega verið hræddir
vegna sprenginganna.
-HKr.
Mikil flugeldasýntng var haldin
á laugardagskvöldið í tilefni opn-
Fólk fylgdist hugfangið með.
DV-mynd S
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 1999
„Viðtökurnar voru alveg frábærar," sagði Skarphéðinn Jónsson, versiunar-
stjóri BT, en fjórða verslun BT var opnuð í Reykjanesbæ á iáugardag og sú
fyrsta utan höfuðborgarsvæðisins. „Hér var dyravörður sem hleypti inn í
hollum en biðröð var hér langt upp á götu og þeir fyrstu komu um klukkan
þrjú um nóttina. Næstum öll opnunartilboðin kláruðust strax á laugardag.
DV-mynd Arnheiður
Veðrið á morgun:
Rigning
sunnanlands
Á þriðjudag gerir Veðurstofa
íslands ráð fyrir suðvestanátt,
8-10 m/s. Súld eða rigning verður
öðru hverju sunnanlands en skýj-
að með köflum norðan- og vestan-
lands. Hiti verður á bilinu 5-10
stig yfir daginn en nálægt frost-
marki norðan- og vestanlands að
næturlagi.
Veðriö í dag er á bls. 45.
MERKILEGA MERKIVÉLIN
brother PT-igoa
Islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær llnur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443