Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1999, Síða 21
I
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999
jólaundirbúnittgurinn í
DV
desember.
25
Jólavaka ófáanleg
Eftir jól eru jólasögurnar teknar
úr hillunum og þær færðar til
geymslu, enda ekki margir sem
spyrja eftir slíkum bókum á öðr-
um árstímum. „Ég hugsa að fólki
fyndist skrýtið að sjá bækur um
jólin í hillunum í júni,“ segir Ingi-
björg. Bækumar eru öðrum þræði
settar i geymslu sökum plássleysis
í hillum Borgarbókasafnsins i
Þingholtsstræti, en þangað litum
við inn fyrr í vikunni.
„TO okkar leitar líka mikið fólk
sem vantar jólasögur fyrir fullorð-
ið fólk. Þær eru lesnar upp í
klúbbum, í félagsstarfi aldraðra og
á jólaskemmtunum. Það þarf að
hafa meira fyrir því að flnna þess-
ar sögur en jólasögur handa böm-
um.“
Jólasögur handa
fullorðnum er
meðal ann-
ars að
fmna í bókinni Jólavaka, safnriti
úr íslenskum bókmenntum í sam-
antekt Jóhannesar úr Kötlum.
Bókin var gefin úr árið 1945 en er
nú ófáanleg nema í bókasöfnum og
hjá fomsölum. í henni er að finna
bæði þjóðsögur, ljóð og og kafla úr
íslenskum ritum allt frá 13. öld og
fram á þessa sem fjalla um jólin.
Ingibjörg nefnir tvær aðrar bækur
í svipuðum dúr en öllu nýlegri. í
jólaskapi eftir Áma Bjömsson frá
1983 er aðeins smærri i sniðum og
hið sama má segja um Jólaljós, en
í henni er eingöngu að finna jóla-
sögur, bæði innilendar og erlend-
ar. Bókasafnsverðimir í Borgar-
bókasafni benda fólki einnig á að
leita að jólasögum í smásagnasöfh-
um eftir þekkta höfunda á borð við
Gunnar Gunnarsson, Jónas Áma-
son og Jakob Thoraren-
sen sem allir hafa
ð sögur
a gerast
um jól.
Þessi myndskreyting er úr bókinn Barn er fætt í Betlehem. Hún er sérstak-
lega ætluð yngstu kynslóöinni því textinn er stuttur og myndirnar bæði stór-
ar og litskrúðugar.
Hrekkjóttir jólasveinar á Hvammstanga:
Tóku slökkvibílinn og
keyrðu með blikkandi ljós
Það er alveg víst að jólasveinam-
ir, sem heimsóttu Hvammstanga
þegar kveikt var á jólatrénu þar,
hafa ekki með öllu aflagt alla
hrekki. Þegar sveitarstjórinn hafði
kveikt á ljósunum á jólatrénu og
kór leikskólabama var búinn að
syngja jólalög var gengið í kringum
jólatréð. Sú skemmtun hafði þó ekki
staðið lengi þegar heyrðist i sirenu
slökkvibílsins á staðnum og hann
rennur beint inn á plan félagsheim-
ilisins með ljósin blikkandi og und-
arlegt keyrslulag. Sannaðist þá aö
illt er að kenna gömlum hundi að
sitja því þarna voru komnir pöm-
piltar í rauðum búningum með al-
skegg, glaðir og kátir karlar sem
stukku út úr og ofan af bílnum við
mikinn fognuð bamanna. Þeir drifu
sig í hringinn og sungu nokkur lög
en útdeildu síðan nammi fyrir alla.
Þeir voru rétt að verða búnir að
gefa úr pokum sínum er slökkvilið-
stjórinn mætir uppgallaður með
sírenu og blikkljós á tækjabil
slökkviliðsins alveg „bálvondur"
við þessa karla og þurfti átök til að
ná af þeim slökkvibílnum en sem
betur fer hafði slökkviliðsstjóri bet-
ur og íbúar Húnaþings vestra geta
verið rólegir um jól og áramót þar
sem tryggilega er gengið frá því aö
þessir sveinar komist ekki iim í
slökkvistöðina aftur.
-Guðrún Jóh.
Jólasveinninn sem hnuplaði slökkvibíinum var vinsæll.
Hér er hann á spjalli við ungan mann.
Borgarbókasafnið dregur jólasögurnar fram í byrjun aðventu.
Aöeins bækur um jólaföndur ogjólaútsaum eru teknar úrgeymslu
strax í september.
Jól í Ólátagarði vinsæl
Eina bók nefnir Ingibjörg sem
hentað gæti fullorðnum jafnt sem
bömum. „Þessi bók höfðar til allra
þótt hún sé sett upp eins og barna-
bók.“ Bókin heitir Barnanna hátið
blíð og kom út hjá Forlaginu árið
1993. Vilborg Dagbjartsdóttir og Þor-
valdur Kristinsson tóku saman efni i
bókina, en hún byggist upp á íslensk-
um og erlendum jólasögum í bland
við fróðleik um jólin eftir Þórunni
Valdimarsdóttur og ljóðum sem birt-
ar eru söngnótur við. Bókin er
skreytt léttum og finlegum blýant-
steikningum eftir Hlín Gunnarsdótt-
ur og er sérlega eiguleg.
Af bókum sérstaklega ætluðum
börnum má nefna Jól í Ólátagarði
eftir Astrid Lindgren. Stöðugar vin-
sældir hennar má vel merkja af því
að Borgarbókasafn á 55 eintök af bók-
inni og voru þau flestöll í láni þegar
við vorum á ferð. Bókin kom fyrst út
árið 1968 og hefur verið endurútgefin
nokkram sinnum síðan. Önnur vin-
sæl bók fyrir yngstu börnin er sér-
í jólaskapi:
Sígild blanda af þjóölegum fróöleik,
sögum og frásögnum.
stök útgáfa af jólaguðspjallinu, Barn
er fætt í Betlehem. Bókin er með
stuttum texta og stórum fallegum
glitrandi myndskreytingum.
-MEÓ
Sörur
- hreint sælgæti
Efni:
100 g saxaðar möndlur
2 eggjahvítur
3/4 dl sykur
1/2 dl vatn
3 eggjarauður
150 g smjör
kakóduft eftir smekk
100 g suðusúkkulaði.
Aðferð:
1. Blandið saman möndlum og
sykri. Þeytið svo eggjahvítumar og
blandið möndlusykrinum saman við.
Setjið með teskeið á plötu, klædda
bökunarpappír, og breiðið blönduna
þunnt út.
2. Bakið í u.þ.b.10 mín. við 200-225"
C eða 160’ C á blæstri. Kælið.
3. Hitið vatn og sykur í potti og lát- .
ið sjóða. Bráðin er hæfilega heit þegar
dropi sem settur er í kalt vatn stífnar.
Hellið þessu í mjórri bunu út í eggja-
rauðumar og þeytið á meðan.
4. Hrærið smjörið þar til það verð-
ur mjúkt og blandið því smám saman
saman við eggjarauðuhræruna. Hrær-
ið vel í og bætið síðan kakói út í eftir
smekk.
5. Bræðið súkkulaðið og smyrjið á
meðan eggjarauðukreminu neðan á
kökurnar. Kælið.
6. Penslið yfir kremið með bræddu
súkkulaðinu og kælið kökurnar.
Geymið í vel lokuðum plastpoka í
kæli eða frysti.
DUBLIN
AISLANDI
Nú einnig í Ármúla 38
Verðhrun á fatnaði:
Herranáttföt kr. 500-700
Allar herrapeysur kr. ÍOOO
Herrabuxur kr. 700
Kvenbuxur kr. 800
Falleg rúmteppi kr. 2500
Gullfallegir borðlampar
frá kr. 5995
klassískur jólapappír kr. 250
Crayola-teikniborð kr. 1299
Bangsar frá kr. 299
Syngjandi jólaálfur kr. 799
Syngjandi snjókarl kr. 3000
Líkan af leikvelli Manchester Utd FC
kr. 5995
Mikið úrval af teletubbies frá 299
Ódýrt sjampó, hárlakk, rakspíri o.fl.
Munið tilboð á borðbúnaði á Fosshálsi.
Dublin á íslandi,
Fossháisi 1 (Hreystihúsinu)
Opið virka daga 12-19.
Laugadaga 11—18 og sunnud. 13-18.