Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1999, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
Fréttir
Stuttar fréttir dv
Finnur Ingólfsson, veröandi seðlabankastjóri, í viötali við DV:
Framkvæmt mun
verða á Eyjabökkum
- vildi ekki hætta sér út í skítkast sem formaðurinn varð fyrir í kosningunum
„Ég haföi gaman af slagnum í gegn-
um árin. Fjölskyldan var hins vegar
orðin þreytt þannig að þetta var ágætt.
Hugmyndin að þessu kom aftur á móti
frá Kristinu, konu minni,“ segir Finn-
ur Ingólfsson um brottfór sína úr póli-
tík og það að hann mun að öllum
líkindum taka við stöðu seðlabanka-
stjóra um áramót. Bankaráð
Seðlabankans hittist í dag og mun
leggja niðurstöðu sína fyrir
forsætisráðherra i framhaldi af því.
Frétt DV i gær um að Finnur væri á
fórum úr pólitík kom mjög flatt upp á
marga.
„Ég velti þessu fyrst fyrir mér eftir
kosningamar í vor en aðdragandinn
núna var mjög stuttur."
En hvaða ástæður lágu að baki
ákvörðuninni aðrar en þær sem snúa
að fjölskyldunni? „Það má segja að
nokkrar líkur hafi verið á því að ég
hefði tekið við formennsku í Fram-
sóknarflokknum eftir 3-4 ár, en emb-
ætti formanns er ekki eitthvað sem
maður hoppar inn í og út úr.“ Þá
nefndi Finnur að eftir þá hörðu
gagnrýni sem Halldór Ásgrímsson
mátti þola fyrir síðustu kosningar sá
hann að það var ekki eitthvað sem
hann vildi hætta sér út í.
Um gagnrýni sem kom fram á hæfni
hans í stöðu bankastjóra í gær, m.a.
frá Steingrími J. Sigfússyni, formanni
VG, sagði Finnur: „Það mátti alveg bú-
ast við þessu frá Steingrími, hann spil-
ar sig alltaf sem jómfrú í stjómmálum
þrátt fyrir að vera þekktur fyrir að
hafa tekið þátt í pólitískum ráðning-
um. Málið er bara að það er ráðið póli-
tískt í stöðuna og það þarf að vera
Sveitarstjóri Dalabyggðar:
Hætti af
leiðindum
Stefán Jónsson viðskiptafræðing-
ur, sem verið hefur sveitarstjóri Dala-
byggðar sl. hálft annað ár, sagði starfi
sinu lausu i skyndi fyrir viku. Stefán
segir uppsögn sína alfarið vera af per-
sónulegum ástæðum og að hún eigi
sér enga rót í ágreiningi innan sveit-
arstjómarinnar.
„Ákvörðunin er
mín og tengist ein-
göngu mínum per-
sónulegu högum
og á ekkert skylt
við neinn ágrein-
ing og annað verð-
ur ekki gefið upp
af minni hálfu,“
.. ., segirStefán.
Stefán Jonsson, porsteinn Jóns-
sveitarstjori SQn sem á sætj j
Dalabyggöar. sveitarstjóm
Dalabyggðar fyrir minnihluta Sam-
stöðulistans, segir Stefán í raun ekki
hafa gefið mjög ítarlegar skýringar á
ákvörðun sinni þegar hann kynnti
hana á fundi sveitarstjómarinnar á
þriðjudag í síðustu viku.
„Ástæðan sem Stefán gaf var að
honum hefði aldrei fundist hann
passa almennilega í starfið og að það
lagaðist ekkert. Hann orðaði það
þannig að ef menn væru í flík sem
þeir líkaði illa við þá endaði það með
að þeir fæm úr henni,“ segir Þor-
steinn. Hann segir að sveitarstjórnin
verði að taka uppsögn Stefáns eins og
öðra sem ber að höndum. „En manni
finnst það slæmt að maður sem er
ráðinn skuli ekki tolla lengur."
Uppsagnarfrestur Stefáns er þrír
mánuðir. Áður en hann tók við starfi
sveitarstjóra Dalabyggðar var hann
starfandi stjórnarformaður íslensks
skelfisks á Flateyri. -GAR
þannig, það þarf
að vera góð sam-
vinna og jafnvægi
milli ríkisstjómar
og bankans.
Ummæli Sverris
Hermannssonar í
gær komu mér
aftur á móti á
óvart.“
í hrossarækt
Blaðamaður DV
og ljósmyndari
hittu Finn og
konu hans, Krist-
ínu Vigfúsdóttur,
ásamt dóttur
Finnur er alsæll
meö skítaskófl-
una í hesthús-
inu.
þeirra, Huldu, fyrir í hesthúsi hans
sem hann festi nýverið kaup á. Þar er
Finnur um þessar mundir að koma sér
upp góðri aðstöðu og hyggst ásamt fjöl-
skyldu sinni veija mörgum stundum
þar. Þá tjáði Finnur blaðamanni að
hann væri farinn að standa í hrossa-
rækt sér til gamans á Kóngsbakka
ásamt nokkrum félögum sínum.
En hvemig heldur Finnur að mál-
efni Fljótsdalsvirkjunar þróist nú þeg-
ar hann yfirgefur skútuna? „Ég er
sannfærður um að hægt verður að
ljúka framkvæmdum á Eyjabökkum.
Það er sömu forsendur og vom árið
1995 þegar þorri almennings var fylgj-
andi virkjun en byggðarsjónarmið
vega þyngra. Það eina sem hefúr
breyst er viðhorf almennings. Það sem
veldur því er að fólkið hefur það betra
og telur sig því geta valið og hafnað.
Málið er bara að það er ekki langt í
næstu kreppu og bygging álvers myndi
ekki aðeins fresta henni heldur líka
byggja undir það að við þurfúm ekki
að fara í gegnum aðra kreppu. Við
myndum ekki fara í eins djúpa lægð.“
Finnur vildi ekkert segja um það
hver væri best til þess fallinn að taka
við embætti varaformanns. En hvem-
ig er framtíðin hjá flokknum? „Það em
nokkrir vel til þess fallnir að verða
varaformaður flokksins. Tímasetning-
in er mjög góð því kjörtímabilið er ný-
hafíð og því gefst nýjum manni góður
tími til að sanna sig og styrkja flokk-
inn fyrir næstu kosningar."
-hdm
Finnur Ingólfsson er kominn í hrossarækt og á hraöri leiö út úr pólftík. Seðlabankinn er næsti vinnustaður hans. Hér
er hann í hesthúsinu ásamt eiginkonu sinni, Kristínu, og dóttur, Huldu. DV-myndir GVA
Nýtt alheimsjarðskjálftakort gefið út:
ísland ofarlega á lista
- er í hópi sex öflugustu jarðskjálftasvæða jarðarinnar
Samkvæmt nýju alheimskorti
(First Global Earthquake Hazard
Map), sem kynnt var í San
Francisco fyrir jól og sýnir helstu
jarðskjálftasvæði heimsins, er ís-
land þar ofarlega á blaði. Það er
nefnt í sömu andrá og Suður-Kali-
fomía, suðaustanvert Hawaii, Tyrk-
land, Taiwan og landamærasvæði
Indlands og Kína.
Gerð þessara hættukorta hófst
1992 sem sérverkefni, International
Lithosphere Program, sem er styrkt
af Sameinuðu þjóðunum sem helg-
uðu þennan áratug m.a. átaki til að
draga úr skaða af völdum náttúru-
hamfara. Jarðskjálftakortin sem nú
hafa verið gefin út byggja á rann-
sóknum og upplýsingum sem
spanna 2000 ára jarðskjálftasögu.
Um 500 vísindamenn hafa unnið að
þessari kortagerð i sjö ár en vonast
er til að þau geti komið þróunar-
löndum að góðum notum til að
byggja á reglur um nýja bygginga-
staðla. Nú er verið að skoða hversu
mikill fólksfjöldi býr á þessum
mestu jarðskjálftasvæðum heims.
„Það er um 15% lands á jörðinni
á svæði þar sem meira en 10% líkur
eru á miklum jarðskjálftum innan
næstu 50 ára,“ segir Kay Shedlock
hjá bandarísku jarðfræðistofuninni.
Á þessum svæðum er um helmingur
af stærstu borgum jarðar. Hins veg-
ar er um 40% þurrlendis jarðar talið
vera á svæði sem er þokkalega ör-
uggt. Shedlock bendir einnig á að
virk jarðskjálftasvæði skarti ein-
staklega fallegu umhverfi sem fólk
vilji búa í. Því sé mikilvægt að skil-
greina hættuna og vita hvað við er
að fást. -HKr.
Boðar breytta stefnu
„Brotthvarf
Finns felur i sér
ákveðna yfirlýs-
ingu um
áherslubreyt-
ingar, segir
Ólafur M.
Magnússon, for-
maður SÓLar í
Hvalflrði, sem fagnar því að
verðandi foringi flokksins í
Reykjavík er náttúruverndar-
sinni.
Mikið afrek
„Það er „afrek" að tapa helm-
ingi fylgisins á aðeins 7 mánuð-
um, “ segir Ágúst Einarsson vara-
þingmaður á vefsíðu sinni um
fylgishrun Samfylkingarinnar í
skoðanakönnunum frá síðustu
kosningum.
Vann 24,5 milljónir
Karlmaður fékk 24,5 milljónir í
sinn hlut þegar dregið var í Heita
potti Happdrættis Háskóla fs-
lands í gær.
Skynsamlegt
Utanríkisráðuneytið telur að
sú ákvörðun að fresta því að
skipa í stöðu forstjóra Flugstöðv-
arinnar hafi bæði verið skynsam-
leg o'g í samræmi við lög. Hæfhi
umsækjenda um stöðuna var
ekki borin saman áður en setn-
ing núverandi forstjóra var fram-
lengd. RÚV greindi frá.
Áhyggjur fanga
Fangar hafa áhyggjur af því að
fá ekki þak yfír höfuðið þegar
þeir ljúka afplánun. Þeir hafa
líka áhyggjur af fjármálum, til
dæmis meðlagsskuldum, og af-
komu íjölskyldunnar. RÚV
greindi frá.
Féll fram af brún
ísklifurmaður sem var ásamt
þremur félögum sínum við klifur
í Hörgárdal í gær féll fram af
brún og meiddist lítils háttar.
Hagnaður
Hagnaður af
rekstri Hrað-
frystihúss Eski-
fjarðar fyrstu
níu mánuði
ársins var 105,5
milljónir
króna. Þar af
var afkoma af
reglulegri starfsemi eftir skatta
um 65,3 milljónir króna.
Hlífðargeraugu
Líkt og þrjú síðastliðin ár gef-
ur Blindrafélagið öllum 12 ára
börnum í landinu hlífðargler-
augu til að nota um áramótin.
Aukin viðurlög
í skýrslu Rannsóknamefndar
umferðarslysa fyrir árið 1998 er
lagt til að eftirlit lögreglu með
umferðarlagabrotum verði aukið
og hugað verði að því hvort ekki
sé rétt að herða viðurlög og refs-
ingar.
Athvarf lokað
Miðbæjarathvarf fyrir ung-
linga í Reykjavík verður lokað á
gamlárskvöld.
Svipaður halli
Flest bendir til að viðskipta-
halli landsmanna verði svipaður
á næsta ári og því sem nú er að
líða, eða um 38 milljarðar króna.
Bjóða út
Friðrik Soph-
usson, forstjóri
Landsvirkjun-
ar, segir það
liggja ijóst fyrir
að bjóða verði
út að nýju fram-
kvæmdir við
Fljótsdalsvirkj-
un. Breytingar hafi orðið það
miklar varðandi hönnun verks-
ins frá því að viljayfirlýsing var
undirrituð árið 1991. Mbl. greindi
frá.
Kærði nauðgun
Átján ára gömul stúlka kærði
starfsmann veitingahúss við
Laugaveg fyrir nauðgun i fyrr-
inótt.
-hlh
1