Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1999, Blaðsíða 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1999
Sviðsljós
Britney langar
í áramótasólina
Táningastjarnan Britney
Spears hlakkar mikiö til árþús-
undamótanna á föstudagskvöld.
Hún ber þó nokkum kviðboga
fyrir því sem komandi ný öld ber
í skauti sér.
Britney hefur ekki enn ákveö-
iö hvar hún ætlar að fagna nýju
árþúsundi. Helst langar hana
suður á bóginn þar sem sólin
skín og þá vill hún hafa fjöl-
skyldu sína og nánustu vini hjá
sér. Að öðru leyti ætlar stjarnan
að borða góðan mat og borða
mikið af sætindum. Aðspurð seg-
ist Britney telja sjónvarpið mik-
ilvægustu tækninýjungina síð-
ustu þúsund árin.
Madonna oftast
milli tannanna
Poppstjarnan Madonna var
oftast milli tannanna á slúður-
dálkahöfundum í Ameriku á ár-
inu sem er að líða, það er ef ekki
em taldir stjómmálamenn eins
og Bill Clinton forseti og við-
hengi hans, frúin og Monica.
Slefberar töluðu 170 sinnum um
Madonnu en næst á eftir henni
kom Gwyneth Paltrow, með 130
skipti. Ben Affleck naut góðs af
furðulegu sambandi sínu við
Gwyneth og var þess vegna
nefndur oftar á nafn en til
dæmis Brad Pitt. Jennifer Lopez
var líka nokkuð umtöluð.
Fræga fólkið vill líka eiga náðug jól:
Katazeta og Mikki
leika á blaðamenn
Catherine Zeta-Jones var ekki
fyrr lent á Heathrow-flugvelli við
Lundúni um jólaleytið en orðrómur
fór á kreik um að allt væri nú búið
milli hennar og stórstjörnunnar
Michaels Douglas. Þannig var að
Kata litla kom alein heim til Bret-
lands til að eyða jólunum í faðmi
fjölskyldunnar í Wales.
Fyrirfram hafði verið búist við að
Kata myndi taka þátt í glæsiveislu
Douglasfjölskyldunnar vestur í
Hollywood um jólin. En þess í stað
laumaðist hún bara heim til pabba
og mömmu í Mumbles, nærri borg-
inni Swansea.
En þetta var of gott fyrir slúður-
blaðamenn til að geta verið satt.
Umtalaðasta parið í Hollywood var
ekki hætt að vera saman. Skötu-
hjúin brugðu hins vegar á þetta ráð
til að fá frið fyrir ljósmyndurum.
Það kom í Ijós þegar vel sjáandi
maður tók eftir Mikka í spássitúr
nærri heimili foreldra Kötu á að-
fangadag.
Michael var efst í huga að snæða
með 84 ára gamalli ömmu ástkon-
unnar og nöfnu, svo og öðrum úr
fjölskyldunni.
Svo úthugsaðir voru klækimir að
amma gamla var með hlutverk sitt
á hreinu. Ef einhver spurði, vissi
hún ekki betur en bamabamið ætl-
aði að dvelja vestanhafs yfir jólin.
„Ég sendi henni meira að segja
jólakort þangað,“ bætti amma við
með miklum sannfæringarkrafti.
Þeir sem sáu til Kötu og Mikka á
aðfangadag sögðu að þau hefðu látið
Catherine Zeta-Jones er enn með ve^ hvort að öðru en sjálf neituðu
honum Michael Douglas. tau a^ ræða samband sitt.
Johnny Depp
viðurkennir
efnamisnotkun
Stórleikarinn Johnny Depp
hefur opnað hjarta sitt og viður-
kennt að hafa
misnotað flkni-
efni um ævina.
Og kemur sos-
um fáum á
óvart. Þrálátur
orðrómur hafði
jú lengi verið á
kreiki þar um.
„Það er ekki til það eiturefni
sem ég hef ekki troðið í mig,“
segir kvikmyndastjarnan í við-
tali við tímaritið Detour Maga-
zine. Og ástæðan fyrir misbrúk-
inu var einföld:
„Ég reyndi að eyðileggja mig. í
mörg ár var það ósk min að
vinna mér skaða.“
Leikarinn lenti oft í vandræð-
um vegna eiturátsins en þakkar
nú fjölskyldunni fyrir að hafa
stutt sig. Hann segir einnig í við-
talinu að svona fíkniefnavand-
ræði séu meðfædd, bendir á að í
æðum hans renni bæði indíána-
blóð og írskt.
Sophie Rhys Jones, öðru nafni greifynjan af Wessex, eiginkona Játvarðar Englandsprins og tengdadóttir Elísabetar drottningar, var glæsileg aö vanda þeg-
ar hún kom til guðsþjónustu í kirkju Sandringham-hallar aö morgni jóladags. Hefö er fyrir því að breska konungsfjöiskyldan hlýöi saman á jólaboöskapinn
í kirkju heilagrar Maríu Magdalenu. Fjölskyldan mætti eins og hún leggur sig, að Vilhjálmi litla prinsi undanskildum. Hann var veikur.
Leiðin til skattaafsláttar um áramótin liggur um Landsbréf eða næsta Landsbanka.
Fjárfesting í hlutabréfasjóðum Landsbréfa fyrir áramót tryggir allt að 61.344 kr. skattaafslátt.
Hlutabréfasjóðir Landsbréfa eru íslenski hlutabréfasjóðurinn og íslenski fjársjóðurinn.
Ávöxtun frá áramótum* íslenski hlutabréfasjóðurinn 25,3%
íslenski fjársjóðurinn 25,4%
Elizabeth Hurley:
Skvísa aldarinnar
Úrslitin komu ekki á óvart. Leik-
konan og fyrirsætan Elizabeth
Hurley var kjörin skvísa aldarinnar.
Skaut meira að segja þeirri fom-
frægu Audrey Hepburn ref fyrir rass.
Það var tímaritið Ign For Men sem
stóð fyrir kosningunni. Alls bárust
tillögur um 63 skvísur en engin
komst með tærnar þar sem Liz hafði
hælana. Audrey Hepburn varð í öðru
sæti og lýstu margir yfir erflðleikum
við að velja milli þessara tveggja
kvenna.
„Salómon konungur hefði einnig
lent í vandræðum hérna,“ hélt einn
lesendanna fram
I tímaritinu þar sem úrslitin voru
kynnt segir að Liz hafi sýnt það og
sannað að hún sé enginn aukvisi og
eigi því skilið að hljóta titilinn skvísa
aldarinnar. Ef menn skyldu hafa
gleymt þvi þá kemur Liz fram í
myndunum um Austin Powers.
Fyrirsætan og leikkonan Elizabeth
Hurley getur veriö ánægö meö
nýjasta titilinn í safni sínu.