Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1999, Page 8
8
ÍTMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Frakkland:
Milljón heimili
án rafmagns
Franska ríkisstjómin lagði í
gær fram 1,6 milljarða króna til
hjálpar- og uppbyggingarstarfs á
svæðunum sem verst urðu úti i
jólaóveðrinu. Að minnsta kosti 70
manns létust. Neyðarástand ríkir
í mestöllu Frakklandi og sex þús-
und hermenn vinna nú að hreins-
un víðs vegar.
Miklu magni af olíu skolaði á
land á vesturströndinni þar sem
olíuílutningaskipið Erika fórst
fyrir tveimur vikum. Sérþjálfaðir
starfsmenn ásamt sjálfboðaliðum
vinna nú myrkranna á milli við
að hreinsa ströndina.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
_______um sem hér segir:______
Álfhólsvegur 26, þingl. eig. Ragnhildur
Ólafsdóttir og Guðmundur Ólafur Heið-
arsson, gerðarbeiðendur fbúðalánasjóður
og Kaupþing hf., fimmtudaginn 6. janúar
2000, kl, 13.30.______________
Hamraborg 26, 1. hæð D, þingl. eig. Sig-
urður Hilmar Ólason, gerðarbeiðendur
lbúðalánasjóður, Samvinnusjóður Islands
hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og
Vátryggingafélag Islands hf., fimmtudag-
inn 6. janúar 2000, kl. 16.00.
Nýbýlavegur 96,0101, þingl. eig. Guðjón
Engilbertsson og Dóra Ingólfsdóttir,
gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður og
sýslumaðurinn í Kópavogi, fimmtudag-
inn 6. janúar 2000, kl. 14.30.
Þinghólsbraut 28, jarðhæð, þingl. eig.
Valgerður G. Hannesdóttir, gerðarbeið-
andi Samvinnusjóður íslands hf.,
fimmtudaginn 6. janúar 2000, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
Breskir íhaldsmenn í uppnámi:
Major segir William
Hague til syndanna
Áfram rætt við flugræningjana í Afganistan:
William Hague, leiötogi breskra
ihaldsmanna, reyndi í gær aö
stappa stálinu í liðs-
menn sína við árþús-
undamót. í staðinn fékk
hann aðeins skammir
frá John Major, fyrrum
forsætisráðherra. Og
var þó varla á það bæt-
andi frá gagnrýninni
sem Kenneth Clarke,
fyrrum fjármálaráö-
herra íhaldsmanna, jós
yfir leiðtogann fyrr í
viktmni.
John Major sagði í
grein í tímaritinu Spectator að
fhaldsflokkurinn undir forystu
Hagues myndi aldrei fara með sigur
af hólmi í þingkosningum ef flokk-
urinn færðist lengra til hægri en
orðið er. Hann hvatti Hague til að
leita á önnur mið en hægri aflanna
í flokknum. Stuðningur hægri-
manna væri nauðsynlegur
en hann væri ekki nóg til
að vinna í kosningum.
Major sagði að aftur-
hvarf til stefnumála
Thatcher-tímans kynni að
höfða til grasrótarinnar í
flokknum en það dygði
ekki til að laða að flokkn-
um óákveðna kjósendur.
Clarke sagði fyrr í vik-
unni að undir forystu
Hagues væri íhaldsflokkur-
inn að verða ókjósanlegur.
Tony Blair forsætisráðherra ætti
að kætast við þessi innanbúðarátök
í íhaldsflokknum, ekki síst þegar
nýjustu skoðanakannanir sýna að
Verkamannaflokkur hans hefur
tuttugu prósentustiga forskot.
Viðræðurnar á
viðkvæmu stigi
Indverskir emhættismenn héldu
samningaviðræðum við flugræn-
ingja sem hafa indverska farþega-
þotu með meira en 150 manns á
valdi sínu áfram í morgun. Ind-
versk stjómvöld báru til baka frétt-
ir um að þau hefðu fallist á að
sleppa hluta þeirra sem fanga sem
flugræningjamir vilja fá í skiptum
fyrir gíslana.
„Ekkert slíkt samkomulag er til,“
sagði Raminder Singh Jassal, tals-
maður indverska utanríkisráðu-
neytisins, við fréttamann Reuters í
Nýju Delhi. Flugræningjamir hafa
krafist þess að 36 uppreisnarmenn
frá Kasmír verði leystir úr haldi.
Flugvélinni var rænt á aðfanga-
dag þegar hún var á leiö frá Nepal
til Indlands og hún hefur verið á
flugvellinum í Kandahar í Afganist-
an frá því á jóladag.
Vestrænir stjómarerindrekar
sem hafa fylgst með flugráninu
sögðu að svo virtist sem viðræðum-
ar við ræningjana væru á mjög við-
kvæmu stigi.
Utanríkisráðherra talebana-
stjómarinnar í Afganistan sagði í
morgun að samningaviðræðumar
hefðu hafist að nýju. Flugræningj-
amir féllu i gær frá kröfu um fjórt-
án milljarða lausnargjald fyrir gísl-
ana. Þá gerði ráðherrann lítið úr
auknum liðsafnaði talebana á flug-
vellinum í Kandahar.
Abdut Wakil, utanríkisráðherra talebanastjórnarinnar i Afganistan, ræðir við
fréttamenn á flugvellinum í Kandahar þar sem flugræningjar hafa haft ind-
verska farþegaþotu á valdi sínu síðan á laugardag.
gamiar^kvold
Salín hans Jóns mins
ásamt
DJ Leroy Johnson
-
m
I
Leikhuskjallarinn / Hverfisgotu 19 / Simi 551 9636
Föngum fagnað
Tuttugu og sex palestínskum
fongum var fagnað innilega í gær
en þeim var sleppt vegna ákvæða
í friðarsamningi ísraela og
Palestínumanna.
Sýknaður af njósnum
Rússneskur dómari sýknaði í
gær fyrrrnn flotaforingjann, Alex-
ander Nikitín, af
ákæra mn njósnir
og sölu ríkisleynd-
armála. Nikitín
var gefið að sök að
hafa selt upplýs-
ingar um geisla-
virka mengun í
Norðuríshafinu
þegar hann varm fyrir norsk um-
hverfisvemdarsamtök.
Börn grilla Bradley
Bill Bradley, sem keppir að því
að verða útnefiidur forsetafram-
bjóðandi demókrata, komst í hann
krappan í gær. Bradley hitti fyrir
hóp bama skammt frá bænum
Concord í New Hampshire og bjóst
við auðveldum fundi. Börnin
komu á óvart með því að spyija
Bradley erfiðra spuminga um ríki-
dæmi hans og hvort hann ferðað-
ist í glæsikerrum. Bradley varð
hálfhvumsa í fyrstu en náði að
bjarga sér fyrir hom.
Saddam sóttur heim
Zírínovskf, leiðtogi frálslynda
lýðræðisflokksins í Rússlandi, fór
í kurteisisheimsókn til Saddams
Husseins í írak í gær. Zírínovskí
hefur verið tiður gestur í Bagdad
þar sem hann hefur sýnt forsetan-
um samstöðu sína í baráttunni
gegn viðskiptabanni S.Þ.
Grimmilegt morö
Hollenska lögreglan handtók
breskan mann í gær, gnmaðan
um að hafa með grimmilegum
hætti myrt átján ára gamlan pilt í
Skotlandi í síðustu viku. Piltur-
inn hafði verið afhöfðaður.
Stríðsglæpamaður
Lögregla á Englandi rannsakar
nú hvort eitthvað sé til í ásökun-
um um að hinn 86 ára Konrad
Kaljes, sem búsettur er i landinu,
sé stríðsglæpamaður. Kaljes er
grunaður um að hafa myrt 30 þús-
und gyðinga í Lettlandi í seinna
stríði. Hann neitar ásökunum.
Tipper útskrifuð
Varaforsetafrúin Tipper Gore
var útskrifuð af John Hopkins
sjúkrahúsinu í
Baltimore í gær.
Tipper gekkst
undir aðgerð
þar sem hnúður
á skjaldkirtli
var fjarlægður.
Aðgerðin gekk
vel en frekari
krabbameinsrannsókn bíður
varaforsetafrúarinnar í upphafi
nýs árs.
Bandaríkin:
Forrík hjón yfir-
gefa veikt barn
Tiu ára drengur, sem þjáist af
hreyfihömlun og er bundinn við
hjólastól, var skilinn eftir á
sjúkrahúsi í Delawere á annan í
jólum. Steven litli er eina barn
Richards og Dawn Kelso sem eru
forrík og hafa getað keypt sólar-
hringsumönnun fyrir soninn. Svo
brá við um jólin að hjúkrunar-
fólkið fékk frí í tvo daga og þurftu
foreldramir að taka við umönnun
sonarins. Það reyndist þeim
ofraun og ákváðu þau að grípa til
þess óyndisúrræðis að yfirgefa
soninn.
Þau gáfu sig fram við lögreglu á
þriðjudag og vom sett í varðhald
en sleppt skömmu síðar gegn
tryggingu. Málið þykir hið alvar-
legasta og munu hjónin koma
fyrir rétt í mars á næsta ári.