Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000
Frjálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
VTsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: [SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
r
Utrásin heldur áfram
Útrás íslenskra fjármálafyrirtækja heldur áfram. í lið-
inni viku var tilkynnt um kaup Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins á enska einkabankanum R. Raphael & Sons.
Kaupverðið er um einn milljarður króna. Kaupþing hf.
hefur verið leiðandi í útrás íslenskra fjármálafyrirtækja
á erlenda markaði, en flest fjármálafyrirtæki hafa beint
eða óbeint haslað sér völl í öðrum löndum á undanfóm-
um árum.
Miðað við fjárhagslega stöðu Fjárfestingarbankans er
kaupverðið ekki hátt, né heldur ef miðað er við markaðs-
verðmæti bankans sem nú er alfarið í eigu einkaaðila.
Tíminn mun hins vegar leiða í ljós hversu skynsamleg
kaupin eru - hvort arðsemi þeirra verður eins og að er
stefnt og hluthafar Fjárfestingarbankans gera kröfu til.
Frá því Fjárfestingarbankinn tók til starfa hefur hann
verið leiðandi í mörgum nýjungum á íslenskum fjár-
málamarkaði og mótað samkeppnisumhverfi sem við-
skiptavinir fjármálastofnana hafa fengið að njóta. Kaup-
in á R. Raphael & Sons eru hluti af eðlilegri þróun á
starfsemi bankans, þar sem þjónustan er útvíkkuð með
því að bjóða einstaklingum einkabankaþjónustu.
Byltingin á fjármálamarkaðinum, sem hófst 1984 þeg-
ar bankar og sparisjóðir fengu takmarkað frelsi til að
ákvarða vexti, heldur því áfram. Þannig hafa ferskir
vindar fengið að leika um fjármálamarkaðinn og jarðveg-
ur fyrir umfangsmika einkavæðingu ríkisfyrirtækja hef-
ur orðið til. Umfangsmesta einkavæðing íslandssögunn-
ar, þegar meirihluti ríkisins í Fjárfestingarbankanum
var seldur, var drifin áfram af fjármálafyrirtækjum. Fyr-
ir nokkrum árum hefði slík einkavæðing ekki verið
möguleg. Fram undan er sala á Landssímanum og þar
munu fj ármálafyrirtækin leika lykilhlutverk.
Aukið frelsi og vel menntaðir nýir menn, sem beita
áður óþekktum vinnubrögðum, hafa ráðið mestu í þeirri
ánægjulegu þróun sem orðið hefur. Leiðin hefur að vísu
verið grýtt og margir misstigið sig og á stundum virðist
sem glópalán hafi verið yfir íslenskum fármálamarkaði
þar sem lítið mátti út af bera svo að illa færi.
Á síðustu misserum hafa orðið róttækar breytingar á
íslensku viðskiptalífi og fjármálafyrirtækin hafa verið
drifkraftur þessara breytinga sem annars hefðu ekki náð
fram að ganga. Um leið hefur almenningi gefist færi á að
taka beinan þátt í atvinnulífinu með kaupum á innlend-
um og erlendum hlutabréfum.
Ævintýri i Stoke
Ævintýrið í Stoke heldur áfram en íslenskum Qárfest-
um gafst í liðinni viku tækifæri til að taka þátt í því með
kaupum á hlutabréfum í eignarhaldsfélagi sem heldur
um meirihluta í þessu fomfræga enska knattspymu-
félagi. Enn er of snemmt að spá um hvernig ævintýrið
endar, en Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari og
núverandi knattspyrnustjóri Stoke, hefur ekki vanist
öðm en að ná sínu fram. Eins og Guðjón segir sjálfur í
viðtali við DV í dag eru leikmenn liðsins búnir að finna
þefinn „af því hversu gaman það er að vinna“.
Kaupin á meirihluta í Stoke City eru aðeins enn eitt
dæmið um útrás íslendinga og íslenskra fyrirtækja á
hinum ólíku sviðum, allt frá flármálaþjónustu til fisk-
sölu, frá knattspyrnu til hátæknifyrirtækja.
Óli Bjöm Kárason
Meö birtingu úrskuröa óbyggöanefndar um mörk þjóölendna og eignarlanda í uppsveitum Árnessýslu kom í
Ijós aö nefndin hirti ekki einu sinni um aö fylgja þekktum landamerkjum bújaröa og afrétta. - Hjörieifur Ólafs-
son, bóndi að Fossi, bendir á fyrirhuguö ný landamerki búsins. (Myndin birtist meö viötali í DV í október sl.).
Ríkisfrekjan í
algleymingi
öll lögð á einstaklingana,
engin á ríkið.
Hliðstæð regla gildir
um úrskurðarvald um
mörk þjóðlendna. Það
er falið svonefndri
óbyggðanefnd, sem for-
sætisráðherra (= rikið)
tilnefnir Eilla. Nefndar-
menn skulu fullnægja
skilyrðum til að gegna
héraðsdómaraembætti,
sem merkir að þeir
verða að vera lögfræð-
ingar. Þannig hljóta
nefndarmenn allir að
hafa kenningar sínar
um eignarrétt úr einni
og sömu lagadeildinni,
kannski úr sömu náms-
Kjallarinn
Gunnar Karlsson
prófessor
Þjóðnýting er
það kallað þegar
ríkið gerir eignir
upptækar í stórum
stíl, einkum þær
sem má nota til at-
vinnurekstrar.
Hún var aðferð
kommúnista á 20.
öld til að leggja
undir sig atvinnu-
líf í löndum þar
sem þeir höfðu þeg-
ar lagt undir sig
ríkisvaldið; á
henni byggðist al-
veldi kommúnista-
stjórna í atvinnulífi
Sovétríkjanna og
fylgiríkja þeirra í
Áustur-Evrópu og
gerir enn á Kúbu.
Þjóönýtingar-
lögin íslensku
Lengst af hefur
verið lítið um þjóð-
nýtingu á íslandi.
Þar hefur samruni
ríkisvalds og auð-
valds gerst á hinn
veginn; auðvaldið
hefur lagt ríkis-
valdið undir sig með samþykki
þegnanna í kosningum. Nú dugir
það ekki lengur ríkisstjóm Davíðs
Oddssonar og Halldórs Ásgríms-
sonar.
Áriö 1998 lögleiddi Alþingi
stjórnarfrumvarp um þjóðlendur.
Þar segir að allt land utan eignar-
landa sé þjóðlendur og íslenska rík-
ið sé eigandi þeirra, „þó að einstak-
lingar eða lögaðilar kunni að eiga
þar takmörkuð eignarréttindi." En
réttindi í þjóðlendu eiga menn að-
eins að því leyti sem þeir geta fært
sönnur á þau. Sönnunarbyrðin er
bókinni og fyrirlestrum sama
kennarans.
Eignarnám óbyggöanefndar
Á síðasta ári fóru að birtast úr-
skurðir óbyggðanefndar um mörk
þjóðlendna og eignarlanda í upp-
sveitum Árnessýslu. Þá kom í ljós
að nefndin hirti ekki einu sinni um
að fylgja þekktum landamerkjum
bújarða og afrétta. Þess í stað klauf
hún bújarðir niður eftir hæðarlín-
um og úrskurðaði ríkinu yfirleitt
cillt land ofan 250 metra yfir sjávar-
máli. Ekki hefur verið upplýst
hvort þetta stafar af því að nefndin
haldi að landnámsmenn íslands
hafi afmarkað heimalönd eftir hæð-
arlínum eða að hún hafi villst á 250
metra hæðarlínunni og landa-
merkjalínu á íslandskortinu. Ég
hugsa að kortanotkun sé ekki
kennd mikið í lagadeOdinni, svo að
nefndinni var kannski vorkunn.
Þjóðlendulögin eru ekkert annað
en þjóðnýting, eins og PáO Ragnar
Steinarsson benti á í frábærri
grein í Morgunblaðinu 6. janúar,
og framkvæmdin minnir á það þeg-
ar kommúnistastjóm Sovétrikj-
anna rak bændur af jörðum sínum
í nafni almannahagsmuna. PáU
nefnir líka aðra hliðstæðu, sem ég
get ekki stOlt mig um að taka upp.
Þegar Englendingar fóru að fiytjast
tO Nýja-Sjálands á 19. öld settust
þeir að innan um frumbyggjana,
Maoría, og námu þar land. Þegar
Maoríar sögðust eiga landið
spurðu Englendingar: „Hvar eru
bréf ykkar upp á það?“ En Maoríar
notuðu ekki ritmál og þekktu enga
pappíra og áttu því engan rétt.
Ruddaskapur ríkisins
Nú er að vísu hægt að áfrýja úr-
skurði óbyggðanefndar, en þá til
annarra lögfræðinga sem hafa
væntanlega lesið sömu bókina og
glósað sömu fyrirlestrana.
En jafnvel þótt mál bænda
kunni að eiga eftir að lenda á
borði siðaðra dómara áður en lýk-
ur, þá er framkoma ríkisvaldsins í
málinu óþolandi. Það kann að
vera eðlilegt að einstaklingur geri
tO að byrja með ýtrustu kröfur í
ágreiningsmáli og láti dómstólum
eftir að skera þær niður. En ríkið
er of stórt og máttugt tO að það
megi koma fram af slíkum hroka
og slíkri frekju.
Gunnar Karlsson
Skoðanir annarra
Vinna kvótakerfínu ógagn
„Það er sjáifsagt að láta reyna á lögin en það á að
gera fyrir Hæstarétti íslands en ekki úti á sjó. Þeir sem
ætla að láta reyna á lögin úti á sjó á meðan málið er tO
meðferðar fyrir Hæstarétti eru að vinna málstað
þeirra, sem berjast fyrir breytingum á kvótakerfinu
ógagn. Nú má vel vera, að þeir sem standa að útgerð-
um þessara 30 báta hafi afit önnur sjónarmið í þessu
máli en hin almenni borgari og þess vegna fari hags-
munir þeirra og almennings í landinu ekki saman.
Þeir sem nú stimda heimOdalausar veiðar eru með þvi
að gerast bandamenn þeirra, sem vOja óbreytt kerfi.“
Ur forystugreinum Mbl. 14. janúar.
Framboósreikningar Ólafs
Ragnars ókomnir
„Fyrsta frétt Ríkissjónvarpsins sl. fimmtudagskvöld
var um að kosningabarátta Ólafs Ragnars Grímssonar
fyrir fjórum árum hefði kostað 42 mOljónir króna. Sig-
urður G. Guðjónsson stjórnarmaður í stuðnings-
mannafélagi Ólafs Ragnars kynnti þessa niðurstöðu
fyrir sjónvarpsáhorfendum. Hann gat þess jafnframt
að það hefði tekið þessi fjögur ár að safna fyrir kostn-
aðinum. ítarlegri upplýsingar fengu áhorfendur ekki
og voru því engu nær, enda hafði áður verið áætlað að
kostnaðurinn væri á þessu róli. TO dæmis sagðist Sig-
urður „ekki alveg með það á hreinu" eftir fjögurra ára
yfirlegu yfir bókhaldinu hvað forsetinn lagði íram
sjálfur. Eins og menn muna ætlaði Ólafur Ragnar að
birta reikninga framboðsins eftir kosningar. Það hefur
ekki verið gert þótt heOdarkostnaður hafi loks verið
gefinn upp nú.“
Ur Vef-Þjóðviljanum 14. janúar.
Símsvari er sjálfvirk tilkynning
„Lögin miðast við að virða hinn almenna rétt borgar-
anna, en ekki rétt þeirra sem vOja hugsaniega misnota
upplýsingar. Það má ekki rugla saman fjarskiptalögum
og lögreglumálum. Þetta kemur ekkert við öryggi gagn-
vart brotamönnum, verið er að vemda almenn mann-
réttindi og persónuréttindi og það er almennt kurteisis-
atriði að benda mönnum á að upptaka sé í gangi tO að
forðast misskilning. Símsvari er tO dæmis sjálfvirk tO-
kynning um upptöku, svo dæmi sé tekið.“
Árni Johnsen svarar Degi um endurskoðun ákvæða
í fjarskipalögum. 14. jan.