Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 T>V nn Ummæli Kvóta- dómurinn ,,Það er sérkennDegt að , fylgjast með glað- . hlakkalegum við- brögðum stjómar- andstöðunnar á ! þingi út af , nýjasta kvóta-, dómnum. Ekki er að sjá að skilningur þeirra á afleiðingum dómsins risti djúpt ef hann verður staðfestur í Hæstarétti. Viðbrögðin eru frekar í takt við úrslit úr íþróttakappleik. Kristján Pálsson alþingis- maður, í DV. Bulla mikið „Menn bulla allt of mikið. Við munum ekki róa kvóta- lausir nema Hæstiréttur stað- festi dóminn enda erum við löghlýðnir borgarar." Helgi Ingvarsson, útgerðar- maður og skipstjóri, í DV. Gagnrýnislaust flaður „Kastljós Sjónvarpsins er reyndar ennþá að minnsta kosti eitt- hvert gagnrýnis- lausasta flaður , sem lengi hefur . \ sést í íslensku ” sjónvarpi." Illugi Jökulsson, á Rás 2. Fyllum upp tómarúm „Ég held að við séum að fylla upp í ákveðið tómarúm sem var hjá Sjónvarpinu.“ Gísli Marteinn Baldursson, annar umsjónarmanna Kast- Ijóss, í Morgunblaðinu. Á hröðum flótta „Það verður aldrei sátt um það kerfi, þar sem örfáum er skömmtuð ókeyp- is verðmæti, 'sem þjóðin öll á sam- eiginlega. Þótt, Sjálfstæðisílokk- urinn sé á hröð- um flótta frá sjálfum sér í málinum er það hans vandamál en ekki þjóðarinn- ar.“ Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður, í Morgun- blaðinu. Rússneskt samyrkjubú „Gamla kerfið er eins og rússneskt samyrkjubú þar sem allir mótorsportklúbbar eiga að leggja allt sitt í búið en fá skammtaðan sjónvarpstíma og tekjur eftir hugmyndum ör- fárra manna.“ Karl Gunnlaugsson, stjórnar- maður í hinu nýstofnaða Mótorsambandi íslands. Georg Hermannsson, framkvæmdastjóri Hyrnunnar í Borgarnesi: Maður hefur ekki gott af því að sitja of lengi í sama starfinu" DV, Borgarnesi: „Mér líst vel á nýja starfið,“ segir Georg Hermannsson, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Hyrnunnar í Borgar- nesi. Hyrnuna þekkja allir lands- menn, hvort sem þeir eru á leiðinni norður, suður, vestur eða austur, því þar er gott að stoppa, enda staðurinn fyrsta flokks. Georg tók við starfmu nú um áramótin en áður starfaði hann sem ijármálastjóri Kaupfélags Borgfirðinga. Ástæðan fyrir því að Georg sóttist eftir starfmu segir hann að rekstur Kaupfé- lags Borgfirðinga m.S..,, haft breyst á síð- IVIaOUr ustu árum og muni breytast enn, m.a. með væntanlegri byggingu nýs verslunarhúss. Eftir sölu rekstrareininga og stofnun hluta- félaga um önnur svið starfseminnar er kaupfélagið eingöngu að verða verslunar- og þjónustufyrirtæki. „Þó ég hafi unnið lengi hjá Kaupfélaginu hefur það ekki verið samfellt. Maður hefur ekki gott af því að sitja of lengi í sama starfinu. Með því að skipta endurnýjar maður sig og því hef ég til þessa skipt um starf á svona 7 ára fresti. Ég var búinn að vera fjármála- stjóri í 7 ár og greip því tækifærið núna enda hnútum kunnugur í Hymunni. Þegar hún var í byggingu 1991 vann ég að því að skipuleggja fyrirkomu- lag í rekstri hennar og sá þá m.a. um kaup á öllum búnaði. Þá hef ég haft áhuga á og í störfum mínum töluvert tengst samgöngu- og ferðamálum á ýmsum sviðum. Georg er með próf frá Samvinnu- skólanum. Hann var um tima við nám og störf í Danmörku, vann í nokkur ár í Sparisjóði Mýrasýslu, vann sem verslunarstjóri hjá KB, var kaupfé- lagsstjóri í Vestmannaeyjum í 7 ár, fulltrúi kaupfélagsstjóra hjá KB, for- stöðumaður verslunarsviðs KB og loks fjármálastjóri KB. „Þegar Hym- an var opnuð 1991 var hún um margt öðruvísi en aðrir án- ingarstaðir við dagsins íslenska þjóð- vegi enda lögðum við metnað í að rísa undir einkunnar- orðum Hyrn- unnar: „ferða- mannaþjón- usta í fremstu röð“.“ Georg seg- ist ekki vera með það á reiðum hönd- um hve margir heimsæki Hymuna á ári hverju en eftir að Hvalfjarðargöng- in voru opnuð hefur velta Hyrnunnar aukist. Hvemig sérðu Hyrnuna fyrir þér í framtíðinni? „Þjónusta og starfsemi í Hyrnunni mun verða með svipuðum hætti og verið hefur. Við munum leggja áherslu á að ráða við aukna umferð með það í huga að þeir sem til okkar koma eru flestir á ferð og vilja fá skjóta og góða þjónustu fyrir sig og bílinn. Með tilkomu nýs verslunarhúss KB við hlið Hyrnunnar með annan þjónustutíma munum við þó gera einhverjar breyt- ingar í Hymunni. Georg hefur áhuga á ferða- lögum og útivist. Þá hefur hann árum saman stundað sundleikfimi, skokk og gönguferðir, gjarnan um óbyggðir. Eiginkona Georgs er Helga Helgadóttir og vinn- ur hún við verslunarstörf hjá KB. Þau eiga tvö böm; Helga, sem starfar sem markaðsfulltrúi á GLV ehf. í Reykjavík og á 4 börn, og Hrafnhildi sem starfar sem kennari við Hrafnagils- skóla í Eyja- firði og kenn- ir auk þess „Tae bo“ í Vaxtar- ræktinni á i Akureyri. -DVÓ Til móts við nýja tíma Samfylkingarfélagið á Reykjanesi efnir til funda- herferðar með þátttöku þing- manna og vara- þingmanna kjör- dæmisins í öllum bæjarfélögum vikuna 17,- 21. janúar. í kvöld verður fundur kl. 20 í Þinghól, Hamraborg 11, Þar mæta til leiks Guð- mundur Árni Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir . Á sama tíma-------------- verða á fundi í Sandgerði Rann- veig Guðmunds- — dóttir og Ágúst Einarsson. Á morgun kl. 20 verður fundur á Ásláki í Mosfellsbæ þar sem Rannveig Guðmunds- dóttir og Lúðvík Geirsson mæta og í Verkalýðshúsinu í Grindavík þar sem þing- mennimir Sigríður Jóhann- esdóttir og Guðmundur Árni Stefánsson verða. Beta námskeið Nú er að hefjast Beta námskeið, sem er fram- hald á Alfa námskeiði í Biblíuskólanum við Holtaveg. Á námskeið- Guðmundsdóttir. jnu sem hefst á morgun Rannveig Kópavogi. Samkomur kl. 19, er leitast við að hjálpa nútímafólki að lifa trúarlífi, einnig er lögð áhersla á að auka þekkingu -------á Biblíunni og lestri hennar. Námskeiðið stend- ur í tiu vikur. Skráning fer fram á skrif- stofu SÍK-KFUM-KFUK. Myndgátan © 2&oé eyþon,- Kvaðratrót Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Maureen Fleming. Myndbands- upptökur og fyrirlestur í Listaklúbbi Leikhúskjallarans í kvöld fjallar Maureen Fleming dansari og danshöfundur um efn- ið The Changing Role of Art in Society. Maureen kom hingað fyrst árið 1996 er hún sýndi verk sitt Eros á Listahátið í Reykjavík. Hún fæddist í Japan, lærði klass- ískan dans og einnig butho-dans undir handleiðslu Kazuo Ohno og Min Tanaka (sem var gestur Listahátíðar 1980). Undanfarin ár hefur Maureen ferðast víða um heim með danssýningar, hafði um skeið aðsetur hjá La Mama í New York og kennir nú hjá Ex- perimental Theater Wing við New York University. Dans Að þessu sinni var Maureen með námskeið I Kramhúsinu sem lauk með sýningu hennar og þátt- takenda í Tjarnarbíói í gærkvöld. í Listaklúbbnum sýnir Maureen Fleming myndbandsupptökur af list sinni og greinir meðal annars frá því hvernig hún notar marg- miðlun og fjölbreytilega ljóstækni á danssýningum sinum. Fyrirlest- urinn fer fram á ensku. Dagskráin hefst kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30. Bridge Þegar þessar línur eru skrifaðar var 4 umferðum af 19 lokið í Reykja- víkurmótinu í sveitakeppni. Staðan á toppnum var kunnugleg og stiga- hæstu sveitir landsins á toppnum. Sveit íslandsmeistara Samvinnu- ferða var efst með 91 stig, Subaru- sveitin (Jón B., Aðalsteinn, Sverrir, Sigurður Sv.) í öðru sæti með 89 og sveitir Amar Arnþórsonar og Flug- leiða fraktar jafnar í þriðja sæti með 79 stig. Spil 10 í fjórðu umferð er nokkuð óvenjulegt, því standa má alslemmu í tígli á aðeins 24 punkta. Enginn spilari náði þó alslemmunni en hálfslemma náðist þó á 7 borðum af 20. Austur gjafari og allir á hættu: 4 Á3 4» G108732 •f ÁG2 * 09 4 DG542 44 K95 ♦ 96 * 762 4 87 4» - 4 KD108753 * ÁK43 Á 6 borðum létu NS sér nægja að spila 5 tígla á hendumar en 4 spilar- ar völdu 3 grönd sem lokasamning (11 eða 12 slagir). Eitt par spilaði bútasamning í grandi en tvö fóru vill vega þegar þau völdu að spila 4 hjörtu. Sá samningur var ekki vænlegur til árangurs og fór í öðru tilfellinu 2 niður og í hinu 3 niður. ísak öm Sigurðsson 4 K1096 44 ÁD64 4 4 * G1085

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.