Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 18
18 Helgarblað LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 r>v Hættur með Leikur sjö hlutverk í einni og sömu uppfærslunni: er sem sagt kerfisbundið efnt til „fegurðar- samkeppna" þar sem hnén hafa úrslita- þýðingu og síðan er æðsti dómur endanlega felldur þegar fegurðardrottning íslands er kjörin við hátíðlega athöfn. Og Grímur hélt áfram: - Ég sá bara annað hnéð á þeirri sem sigraði og það nægði mér alveg. Hinar áttu ekki sjens. Og nú var Grímur rokinn á dyr í miklu uppnámi. Eftir sat ég og hugsaði sem svo: - Konum meö falleg hné hefur löngum verið það keppikefli að kvenleg fegurð sé borin á torg, enda vonlaust að markaðs- setja kvenfólk sem ekki hefur haft hnén til sýnis. Konur með ljót hné eru hins vegar á móti feguröarsamkeppnum af markaðs- fræðilegum orsökum. í andófi sínu gegn feguröarsamkeppnum bera konur með ljót hné það helst fyrir sig að slíkar sýningar séu niðurlægjandi fyrir veikara kynið, dagdraumafóður handa ógeðslegum og náttúrulausum karl- rembusvínum, og að uppákoman öll sé vanvirða við hugsandi fólk, jafnvel þó það sé kvenfólk. Þær segja að með fegurðarsamkeppnum séu einmitt konur sjálfar að viðhalda gam- alli og ógeðfelldri kvenímynd, sem sagt þeirri að notagildi kvenna fari eftir útlitinu. Við þessu öllu er hægt að beita gamaiii og sígildri röksemd: - Það verður þá bara að hafa það. Sannleikurinn er sá að ófríðum konum hefur oröið talsvert ágengt. Ég hef meira að segja heyrt því fleygt að í röðum atvinnurekenda séu þeir karlmenn til sem ráði til vinnu ófríðar hæfileika- konur þó þeim standi til boða óstarfhæfar fegurðardísir. Ótrúlegt en satt. Auðvitað geta konur með ljót hné verið frábærar til síns brúks, ekkert síður en konur með falleg hné. Hins vegar er ljóst að án kvenna með fal- leg hné væri líf hins hugsandi manns bæði litlaust og fánýtt, einkum utan heimilisins. Flosi Þegar feguröarsamkeppnin var afstaöin á dögunum kom Grímur frændi konunnar minnar í heimsókn eins og við höföum eig- inlega vænst. Grímur er nefnilega mikill keppnismað- ur, eöa kannski nánar tiltekið áhugamaður um hinar margvíslegustu keppnisgreinar um víðan völl; fótbolta, júdó, ameríska ruöninginn, körfuboltann og beisboll. Grímur hefur svo yfirgripsmikið vit á keppnisgreinum heimsbyggðarinnar að mann setur hljóðan þegar hann fer að láta ljósið sitt skína. Tvennt er það sem kemur Grími í ofboðslegt uppnám á ári hverju: Júróvisjón- keppnin og fegurðarsamkeppnin. Grímur var í svo miklu uppnámi um síð- ustu helgi þegar fegurðarsamkeppninni var sjónvarpað að hann var naumast í húsum hæfur. - Það vita það allir sem vilja vita það - æpti hann - að þetta fer allt eftir hnjánum. Hnén hafa alltaf og eru enn lögð til grund- vallar þegar kostir og eiginlekar kvenna eru metnir. Það eru hnén! hnén! og aftur hnén! Segðu mér hvemig hné hún hefur og ég skal segja þér hver konan er. Gæfa og gengi, farsæld og frami kvenþjóðarinnar hvílir nær eingöngu á hnjánum. Kona með ljót hné á sér öngva von nema þá helsta að veröa ræstitæknir því þá getur hún átölu- laust gengið með hnjáskjól í erli dagsins. Máltækið að láta kné fylgja kviði þýðir einfaldlega að fagurfræðileg fylgni sé milli kviðs og knjáa. Eða eins og stundum hefur verið sagt: - Vembd kona - vond hné. Kona sem ekki hefur hnén í lagi á sér öngva framavon, ekki einusinni í fisk- vinnu. Óskar Halldórsson réð aldrei stúlk- ur í síldarsöltun nema ganga fyrst úr skugga um það að hnén væru í lagi. Mikilvægi hnjánna verður seint fullmetiö þegar konur eru mældar og vegnar. Og það er þess vegna - hélt Grímur áfram - það er þess vegna sem sú sigraði sem vann fegurðarsamkeppnina í ár. Það voru hnén sem gerðu útslagiö. Nú var konan mín búin að gefast upp á Grími frænda sínum og rokin á dyr svo ég sat uppi með hann og get raunar ekki neitað því aö ég hef stundum svona lúmskt gaman af honum. Það fór ekkert milli mála að hann var kominn með konukné á heiiann og vék nú að fegurðarsamkeppninni um síðustu helgi. - Samkvæmt ævafornri skilgreiningu - æpti hann - skiptast konur í tvo hópa: kon- ur með falleg hné og konur með ljót hné. Konur hafa löngum verið verðlagðar eftir því hvorn hópinn þær fylia, en til að hægt sé að markaðssetja konur af einhverju viti unnustunni Keanu Reeves og unnusta hans, Jennifer Syme, hafa slitið samvist- um aðeins tveimur mánuðum eftir að fyrsta barn þeirra fæddist and- vana. Þeir sem til málsins þekkja segja hjónaleysin vera eyðilögð og enn ekki hafa kom- ist yfir barnmiss- inn en þau höfðu þegar geflö bam- inu nafn. Heimildarmaður segir að þrátt fyrir erfiðleikana hafi þau reynt af fremsta megni að halda sambandinu gangandi en að ást þeirra hafi einfaldlega ekki verið nógu sterk til að yfirstíga hinn erfiða barnmissi. Skilnaður þeirra er sagöur hafa verið tíðindalítill og á vinalegum nótum en Keanu mim hafa heilt sér út í vinnu til að beina athyglinni að öðru en vandamálum síðastliðinna mán- aða. Hann er núna aö vinna að nýrri mynd, The Gift, auk þess sem hann mim á næstunni gera tvær framhaldsmyndir við hina vinsælu Matrix. Maðurinn með mörgu andlitin - Tómas Lemarquis fer úr leiklist í myndlist Það eru hnén Engin hrollvekja Nýjasta kvikmynd Johnny Depps, The Ninth Gate, sem fram- leiðendur lýsa sem hryllingsmynd, virðist ekki ætla að fara frægðarfór um heiminn ef marka má viðbrögð á sér- stakri sýningu sem haldin var fyrir gagnrýnendur ný- lega. „Salurinn ætl- aði að springa af hlátri síðasta korterið eða svo,“ segir einn kvik- myndagesta. „Allir héldu að endir- inn væri um það bil að bresta á en hún hélt bara áfram. Ég held að enginn í satnum hafi vitað um hvað myndin væri,“ segir um- ræddur gestur. Á sama tíma hafði annar á orði að sem betur fer væru bara „niu hlið í myndinni". Það þarf víst ekki að hafa mörg orð um eftirmálann en myndin hefur í kjölfarið fengið afar dræm- ar viðtökur og mun miðasala hafa verið í lágmarki. Framleiðendurn- ir reyna þó að klóra í bakkann og reyta af sér brandara í gríð og erg, eða eins og einn þeirra hafði á orði: „Viö eru mjög ánægð yfir því að gagnrýnendur hafa náð húmornum í myndinni og við erum einnig ánægð með þá um- fjöllun sem myndin hefur fengiö." Hmm... fjörðurinn og útsýnið sem maður hefur hér gefur manni svo miklu meira en ef maður sæi bara blokk- ina á móti. Ég gæti þó vel hugsað mér að sýna erlendis og afla mér myndefnis þaðan,“ segir Tómas en hann er á leiðinni til Fílabeins- strandarinnar þar sem hann von- ast m.a. eftir að sækja sér myndefni í listsköpun sína. Aðspurður um hvort ekki sé erfitt að vera ungur listamaöur í dag í listaheimi sem oft á tíðum virðist stefnulaust rekald segist Tómas ekki líta á listina með þeim augum heldur fyrst og fremst út frá því sem einstaklingurinn er að skapa. í þessu eins og öðru eigi menn alltaf erfitt uppdráttar og þvi séu það alltaf einhverjir sem nái að skara fram úr á meöan aðrir nái því ekki. Hef áhuga á hegðun fólks Og Tómas er heldur ekki í vafa um hver markmið námsins eigi að vera: „Ég trúi því að listamaður eigi ekki að reyna að taka rökrænar ákvaröanir og horfa á sjálfan sig framkvæma hlutina og þar með leggja dóm á þá heldur mynda beint flæði við viðfangsefnið sem stjórn- ast af tilfinningum. Listamaðurinn á því að hverfa inn í hreint orkuflæði milli sjálfs sín og hlutar- ins. Ég hef líka áhuga á að læra um hegðun fólks og umhverfi. Maður heldur svo oft að maður sjái hluti í umhverfi sínu sem maður sér alls ekki. Listamaður á að áskapa sér fullkomna einbeitingu og innbyrð- ingu og þjálfa hið vökula auga, ekki þvinga aðstæðurnar til að gripa andartakið heldur mynda réttu aðstæðumar þannig að and- artakið komi til þín.“ - Hvað er fram undan hjá þér af verkefnum? „Við erum nú bara rétt búin að frumsýna Júlíus þannig að það ætti að vera nóg í bili. Annars mun ég einbeita mér að skólanum sem tekur sinn tíma. í sumar stendur svo jafnvel til að sækja mn styrk- veitingu hjá Reykjavíkurborg til að halda úti 12 manna listahópi sem í eru myndlistarmenn, leikar- ar, tónlistamenn og dansarar þar sem ætlunin er að standa fyrir ýmsum uppákomum." BÉk -KGP Fann listina í París „Ég hef verið að fást við listsköpun síðan ég var lítill strákur. Þaö var í París hins vegar sem ég fann út að myndlistin væri það sem ég vildi leggja fyrir mig, “ segir Tómas. . þegar að baki nokkra reynslu af leikhúslífinu og hafði m.a. tekiö þátt í árlegum uppfærslum Leik- félags Menntaskólans v/Hamrahlíð á meðan hann var við nám þar auk þess að vera í ýmsum aukahlutverk- um í einni uppfærslu Þjóðleikhúss- ins. - Hvert er hlutverk þitt í Júlíusi og hvernig myndirðu lýsa verkinu? „Ég leik spegilmynd Júlíusar sem er brúða auk þess sem ég fer meö sex önnur hlutverk sem þýðir aö skiptingar eru mjög hraðar og ég er stöðugt að breyta um persónu- einkenni. Verkið er líka þögult sem gerir það þeim mun meir krefjandi þar sem það byggir að veruiegu leyti á líkamstjáningu." Ur leiklfst í myndlist - Hvernig kom það til að þú ákvaðst að snúa þér að mynd- list? „Ég hef verið að fást við list- sköpun síðan ég var lítill strákur. Það var í París hins vegar sem ég fann út að myndlistin væri það sem ég vildi leggja fyrir mig.“ Tómas segist hafa fengist lítiliega við myndlist í París en þar studdist hann einkum við „efni fátæka mannsins" eins og hann kallar það og mótaði meðal annars þrívíð verk úr vír. Þegar hann sneri aftur til ís- lands fór hann í Iðnskólann í Hafn- arfirði áður en hann steig skrefið til fulls og innritaði sig í Myndlista- og handíðaskólann þar sem hann er nú við nám. - Hvernig líkar þér í Myndlista- og handíðaskólanum?" „Ég er mjög ánægður og vakna syngjandi sæll á morgnana. Það er mjög spennandi að fá að takast á við þetta.“ Á leiðinni til Fílabeinsstrandarinnar Þegar Tómas er spurður hvort hann gæti hugsað sér að lifa og starfa erlendis í framtíðinni sem listamaður segir hann: „Ég gæti ekki hugsað mér að búa annars staðar en á íslandi. Víðáttan, Síðastliðinn sunnudag frumsýndi íslenska leikhúsið og Hafnarfjarðar- leikhúsið veruleikinn Júlíus sem byggður er á samnefndri bamabók eftir Anne-Marie Chapouton og Jean Clavier. Veruleikur er íslenskt nýyrði sem leikhópurinn tók upp og dregið er af orðinu vera(ur) sem stendur fyrir enska orðið „object theater" og notað er um leikverk þar sem blandað er saman brúð- um, leikurum, gervum, grím- um og fleira. Einn þriggja aðila sem koma fram í sýningunni er Tómasar Lemarquis en hann nam leiklist viö Cours Florent í París og er nýútskrifað- ur leikari. Hann hefur þó ekki í hyggju að staldra um of við leiklistina og hefur þegar drifið sig í ann- Æ ars konar nám, nefnilega myndlist- amám. Leik Júlíus og sex önnur hlutverk - Hvernig var að læra leiklist í París? „Ég var svo heppinn að vera tek- inn strax inn á þriðja ár og kláraði skólann á einu og hálfu ári. Þetta var mjög lærdómsríkur tími og ég tók þátt í fjölmörgum uppfærslum innan skólans. Cours Florent er stór skóli þar eru um 800 nemendur og námið tekur að jafnaði um þrjú ár,“ seg- ir Tómas, en hann hafði 9*. m m '
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.