Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 Helgarblað Styður Bræðurna írski leikarinn Liam Neeson sem vanur er aö halda skoöunum sínum út af fyrir sig hefur nú stokkið upp til handa og fóta til að verja gamla skóla- kennara sína sem tilheyra trúarhóp sem kalla sig hina Kristnu Bræður. Eins og margir írar gekk Liam í kaþ- ólskan skóla en ólíkt mörgum hef- ur hann ekkert nema gott um þá reynslu að segja. Liam heiúr beint máli sínu til leikara á borð við Gabriel Byme og Pierce Brosnan sem báðir hafa gagnrýnt Bræð- uma sem þeir segja hafa beitt lík- amlegu ofbeldi gegn nemendum þegar þeir vom í skólanum auk þess sem þeir hafl verið hrotta- fengnir og grimmir að þeirra sögn. Liam tekur hins vegar lítið mark á öllu þesu fjaðrafoki eða eins og hann sagði: „Ekkert þessu líkt hef- ur nokkum tímann hent mig.“ Nú er hins vegar bara að bíða og sjá hvort frekari árekstra er von á milli leikaranna í framtíðinni og þá spyija menn sig náttúrulega hvor hafl betur Bond eða Jedi? Eykur umsvifin Söngkonan Celine Dion stendur svo sannarlega við kveðin orð þeg- ar hún segist vilja vemda einkalíf sitt fyrir ágangi fjölmiöla. Nýlega festi hún kaup á húsi við Aðmiráls- vík á Flórída en staðurinn státar af stærðargirðingu sem enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi. Hins vegar mun Celine ekki hafa fundist nóg um grind- verkið því stuttu seinna bætti hún um betur og keypti land á Bjam- arey sem er í víkinni ekki langt frá húsi hennar. Á Bjamarey ætl- ar söngkonan að byggja annað hús fyrir 60 milljónir króna en með því móti ætti Celine vonandi að hljóta hinn langþráða frið sem hún sækist svo mjög eftir. Iðnað- armenn og sveitungar hennar úr Aðmírálsvík hafa því heldur betur kæst yfir tíðindunum og sjá fram á mikil uppgrip. Segir sagan að þegar þeir hafl frétt af fyrirætlun- um Dion hafi þeir slegið upp helj- arinnar veislu. Heygarðshornið Kominn heim aftur - Kristján Baldursson til Útivistar eftir 10 ára starf fyrir keppinautinn „Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað aftur. Margir hafa boðið mig velkominn og ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem fram undan eru. Það má segja að ég sé kominn heim aftur.“ Kristján M. Baldursson tók við starfi framkvæmdastjóra Útivistar 1. febrúar sl. Kristján byrjaði sem áhugamaður að starfa hjá Útivist árið 1976, ári eftir að félagið var stofnað. Útivist var stofnuð sem klofningshópur út úr hinu gamal- gróna Ferðafélagi Islands og réð þar einkum ósætti frumkvöðuls Útivist- ar, Einars Guðjohnsens, við ríkj- andi stefnu Ferðafélagsins. „Ég kynntist helstu frumkvöðlum Útivistar mjög vel og vann mikið með þeim. Þar voru menn eins og Einar Guðjohnsen, Jón I. Bjamason og Þorleifur Guðmundsson. Miklir úrvalsmenn." Kristján starfaði lengi fyrir Úti- vist en árið 1990 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Ferðafélags íslands og gegndi því starfi í sam- fleytt 10 ár áður en hann sneri aft- ur. Hann segir að umskiptin hafi farið fram í fullri sátt og góð sam- skipti og samvinna séu félögunum báðum nauðsynleg. Lovísa Christi- ansen, sem lét af embætti formanns Útivistar á síðasta aðalfundi, lýsti því svo að Kristján væri búinn að vera í 10 ára starfsþjálfun. „Útivist veröur 25 ára á þessu ári. Sá jákvæði félagsandi og öflug sjálf- boðavinna sem félagið hefur alltaf byggst á lifir enn góðu lffi meðal fé- lagsmanna og ungt fólk sækir mikið í ferðir til okkar og það verður mik- ið um dýrðir á afmælisárinu." Útivist á tvo skála í Básum í Þórs- mörk, einn á Fimmvörðuhálsi, ný- lega endurbyggðan skála í Skæling- um, rétt austan Eldgjár, og einnig nýlega endurreistan skála undir Sveinstindi á svipuðum slóðum. „Þetta er hluti af samstarfi félags- ins við Skaftárhrepp. Við erum að byggja upp nýja gönguleið sem ligg- ur frá Sveinstindi og vestur í Eldgjá og Hólaskjól. Til þess höfum við endurbyggt tvo gamla gangna- mannakofa og erum þannig að varð- veita menningarverðmæti um leið og við eignumst húsaskjól.“ Kristján hóf ferii sinn í útivistarbransanum sem starfsmaöur Útivistar áriö 1976. Hann tók viö sem framkvæmdastjóri Útivistar 1. febrúar sl. eftir 10 ára starf hjá keppinautnum. Litla félagið og stóra félagið Þegar þessi tvö félög, sem keppa á hinum svokallaða útivistarmarkaði, eru borin saman kemur mikill stærðarmunur í ljós. Útivist er með um 1.600 skráða félaga meðan Ferðafélag íslands hefur 7.500 til 8.000 eftir árum. Útivist á fimm skála á fjöllum en Ferðafélagið 17 en 34 séu skálar aðildarfélaganna á landsbyggðinni taldir með. Er ekki sjálfsagt mál að sameina félögin? „Það hefur stundum verið rætt og á ýmsum tímum hefur verið áhugi á því. Ég kom til starfa hjá Ferða- félaginu á sínum tíma, m.a. vegna þess að þáverandi forseti, Höskuld- ur Jónsson, hafði mikinn áhuga á aukinni samvinnu eða sameiningu félaganna. í dag sýnist mér ekki vera grund- völlur fyrir sameiningu en félögin geta aftur á móti unnið saman á ýmsum sviðum. Mér fmnst samkeppni að mörgu leyti vera af hinu góða. Hún heldur okkur vakandi og hvetur til meira framboðs á ferðum og gönguleið- um.“ Ferðalög innanlands hafa verið starf og áhugamál Kristjáns í tæp- lega 25 ár. Hefur hann einhvem tíma til að ferðast sjálfur? Alltaf á ferðinni „Ég hef alltaf ferðast talsvert því ég hef gripið i að vera fararstjóri. Ég fer af og til í dags- og helgar- ferðir og helst vil ég komast i eina góða 4-5 daga gönguferð á hverju sumri. Ég hef einnig lengi haft áhuga á ferðalögum um nágranna- lönd okkar, Færeyjar, Grænland og Noreg, og stefni m.a. á Færeyja- ferð með Útivist um hvítasunn- una. Ég er með stóra fjölskyldu svo hin seinni ár hefur Þórsmörkin verið vinsæll áningarstaður. En í sumar hyggjumst við ganga milli skála frá Sveinstindi í Eldgjá með eldri börnin. Böm geta oft miklu meira en maður heldur og ég held að flestir krakkar ráði við langar gönguferðir um 8-9 ára aldurinn." Útivist hefur fitjað upp á ýms- um nýjungum í starfinu og nægir að nefna hina sívinsælu Jóns- messugöngu yfir Fimmvörðuháls þar sem stór hópur gengur yfir fjallið að næturlagi og nýtur töfra náttúrunnar. Einnig mætti nefna jeppadeild Útivistar og heimasíðu félagsins, www.utivist.is sem er af- skaplega virk að sögn Kristjáns. „Við reynum að halda henni vel við og það kemur mér á óvart að sjá hve mikið af bókunum og skráningum á nýjum félögum kemur í gegnum heimasíðuna. Við reynum að vera í takt við tímann og þá vill fólk ferðast með okkur.“ -PÁÁ Gubmundur Andri Thorsson skrifar í Helgarblaö DV. Hækkanir eru alltaf öðrum að kenna Þeir eru þungbærir þessir tveir sem hcifa hertekið alla auglýsinga- tíma sjónvarpsstöðvanna í þvi skyni að múta þjóðinni til að hlusta á sig og þeir eru vissulega alvarleg áminning um það hvað gerist verði rás eitt lögð niður: allt útvarp í landinu verður þá undirlagt af að- skiljanlegum pörum af karlkyns röflurum og fróðleikur aftekinn með öllu. Samt er eitthvað heiðarlegt í þess- ari ágengu sölumennsku. Þeir koma til dyranna eins og þeir eru klædd- ir, menn sem virðast hafa svo fátt fram að færa sjálfir að þeir þurfa að borga fólki stórfé fyrir að hlusta á sig. Hið sama verður ekki sagt um veldið sem kennir sig til hringsins, hælist i nafni sínu um af því að hafa sölsað undir sig nánast afla smá- söluverslun í landinu með afleiðing- um sem hvert einasta heimili fmn- ur í buddunni - Baug og nýjustu herferðina hjá þeim sem sýnilega er hönnuð af einhverri ímyndar- fabrikku og fréttatilbúningsstofu. Hver var aftur heitstrengingin hjá þeim? Að þeir ætluðu að stilla sig um að hækka hjá sér álagning- una í tvö ár? Á maður að ærast af fögnuði yfir því? Fólk er ekki flfl og finnur í buddunni sinni hvort verð lækkar eða hækkar, og af því ræðst hvort það hefur dálæti á fyrirtækj- um - ekki ímynd. Ef þeir vilja end- urheimta fyrra dálæti þjóöarinnar á Bónusbúðunum veröa þeir að lækka hjá sér verðið, það. svo einfalt er Þegar fyrirtæki á borð við Baug eru farin að ráðast í ímyndarher- ferðir er eitthvað ískyggilegt á ferð- inni. ímynd er bara orð sem vantar -un aftan við. Það táknar að hag- ræða þurfi sannleikanum. Verslun sem hugsar um hag neytenda og reynir að halda verði niðri eins og kostur er þarf ekki á ímynd að halda. Bónusmenn geta vissulega sagt að þeir séu alltaf með lægsta vöruverðið: Holtakjúklingurinn hjá þeim er ódýrari en hann er í öllum hinum búðunum sem þeir eiga líka. Það er sem sé dýrara að kaupa Holtakjúlkinginn í Nýkaup vegna þess að þar eru flottari innréttingar. En Holtakjúklingur er alltaf sá sami fyrir því. Hækkanir eru alltaf öðrum að kenna en þeim sem standa fyrir þeim og hagnast á þeim. Eða það Fólk er ekki fífl og finnur í buddunni sinni hvort verð lœkkar eða hœkkar, og af því rœðst hvort það hefur ddlceti á fyrirtœkj- um - ekki ímynd. Ef þeir vilja endurheimta fyrra dálœti þjóðarinnar á Bónusbúðunum verða þeir að lækka hjá sér verðið, svo einfalt er það. mætti að minnsta kosti ætla af opin- berri umræðu hér á landi. Bensín- félögin hér skiluðu methagnaði síð- asta ár vegna gengdarlausra hækk- ana úti í heimi sem skiluðu sér greiðlega hingað, með stórkostlegum og stigmagnandi áhrifum á verð- bólgu og vísitölur, en sjá skyndilega öll tormerki á þvi að lækkun á heimsmEU’kaði skili sér nú og fara út í einhverjar tæknilegar útlistanir á því sem enginn hefur forsendur til að þjarka við þá um. Það eina sem við vitum er að bensínið lækkar aldrei þegar það á að lækka. Trygg- ingarfélögin sem sömuleiðis skiluðu methagnaði síðasta ár vegna yfir- gengilegra hækkcma á gjaldskrá sinni búast í kjölfar kjarasamninga -—r. til að demba nýjum og gjörsamlega rakalausum hækkunum yfir lands- lýð. Seðlabankinn hyggst enn hækka vexti til þess hægja á verð- bólgunni sem stafar fyrst og fremst af hækkunum á bensíni og trygging- um. Almenningur fær þannig alls staðar að blæða, á þannig von á því að þurfa að borga meira af húsnæð- inu, meira af bílnum sem allir neyð- ast hér til að eiga út af fávíslegu skipulagi samgangna og ekki er að vænta lækkandi matvöruverðs, því enn er grænmeti hér tollað eins og jagúarbílar. Engu er líkara en að gjörvallt for- stjóragengi landsins hafi skorið upp herör til að reyta af almenningi það litla af peningum sem enn kunna að leynast einhvers staðar undir kodda. Engu er líkara en að þeir hafi sammælst um að gera okkur öll að marxistum. Eins og þeh haga sér virðist islenskur efnahagsvandi ein- vörðungu stafa af taumlausri og andfélagslegri græðgi stórfyrirtækj- anna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.