Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Page 31
31 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 x>v__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Ólafur J. Kolbeins Sölufulltrúi Hiti færðist í leikinn þar sem fleira og fleira fólk sem vann að útsendingu Stöðvar 2 á keppninni mætti á staðinn til að gera sig og aðra klára í slaginn. Það var farin að myndast ringulreið - nú var að duga eða drepast - ekki yrði aftur snúið. í miðri ringulreiðinni fékk ég þá hugdettu að ég þyrfti að klippa á mér toppinn svo ég hefði betri yfirsýn yflr svið og áhorfendur. Ég leitaði á náðir fagfólks sem kippti því í liðinn og að þvi loknu leið mér betur. Hárið á mér á met í hraövexti þannig að klippingin sem minn frá- bæri klippari, Ingvi, hafði gert fyrir skemmstu var nánast úr sér vaxin. Gekk eins og í sögu Klukkan 20.00 kom öll dómnefnd- in niður til okkar og þar á meðal var sjálf gyðjan, Claudia Schiffer. Þau tóku í höndina á okkur öllum og spjölluðu við okkur um allt mögulegt, frá vélsleðum upp I barnsfæðingar. Claudia var öll hin almennilegasta og bæði geislandi og falleg. Á þessum tímapunkti var flðringur farinn að gera vart við sig ✓ Eg er fegurð- ardrottning... Elva Dögg Melsteð, ungfrú ísland.is, lýsir krýningardeginum inn yfir því. Það kom hins vegar á daginn að hún hafði rétt fyrir sér. Claudia bar nafn mitt sem sigurveg- ara fram með nokkrum ágætum. Ég tölti upp á svið og var hin rólegasta. Ég er þakklát sjálfri mér fyrir að hafa verið svona róleg. Ég heyrði vini og vandamenn fagna úti í sal þegar ég kom inn á svið. Þegar ég hafði tekið við blómi og titli ætlaði ég að gleyma að fá kórónuna og stillti mér upp hjá stallsystrum mín- um. Nafna mín Eiríksdóttir var svo elskuleg að hvísla því að mér að núna ætti ég að fá kórónuna. Það gekk nú nokkuð brösulega að setja hana á mig þar sem hún sneri vit- laust til að byrja með. Það var gam- an að fara í myndatöku með Claudiu og hún spjallaði eitthvað við mig. Ég verð að játa það að ég man ekkert hvað hún sagði. Andrea tók örstutt viðtal viö mig, lyklarnir að Bensinum voru afhent- ir og nú upphófst tfmi faðmlaga og hamingjuóska. í kjallaranum var flöldi manns og innan skamms voru flölmiðlar mættir á staðinn. Þórey mín náði í kærastann minn, vini og vandamenn sem þorðu ekki að koma niður fyrr en að gefnu leyfi. Þá upphófst ein mesta gleði sem ég hef upplifað; það var ógleymanleg stund að hitta mömmu og Magga og alla hina sem fylgst höfðu með mér. Ég fór í nokkur viðtöl en ferðinni var heitið á Astró þar sem flörið lifði fram eftir nóttu. Dagurinn var einn draumur í dós! SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00. Laugardagurinn 25. mars 2000. Ég vaknaði fyrir allar aldir, miðað við það að ég hafði ætlað að sofa eins lengi og ég mögulega gæti og mætti. Einhver spenningur greip þá um sig i draumaheimi undirmeðvitundarinnar og ég glaðvaknaði. Unnustinn, Magn- ús, svaf eins og hann ætti líflð að leysa. Ég byrjaði á því að fara í bað þar sem barnaefnið á Skjá einum var ekki byrjað þar eð klukkan var aðeins 08.30. Ég lá í baðinu eins lengi og ég mögulega gat, án þess þó að storka húðfrumunum um of. Ætli ég hafl ekki verið aðeins of róleg í tíðinni þar sem tíminn flaug áfram og enn á ný var ég á síðustu stundu. Það var mæt- ing í Perlunni klukkan 12.30 en „generalprufa" átti að byrja klukkan 13.00. Rauður engill Keppendur hittust í kjallara Perlunnar en þar var aðstaða okkar. Allir höfðu sömu sögu að segja og höfðu vaknað langtum fyrr en ætlað var. Þrátt fyrir það voru allir nokkuð hressir, fyrir utan myrkrið sem hrjáði okkur til að byrja með. Við spjölluð- um við Ingu okkar sem stappaði í okk- ur stálinu. Einhver seinkun varð á generalprufunni sem kom sér þó ágætlega þar sem við höfðum nóg að spá og spekúlera varðandi daginn og kvöldið. Prófraunin hófst og gekk nokkuð vel - það stress sem hafði safnast upp í biðinni var á burt. Örlít- ið spennufafl í formi þreytu gerði vart við sig á þessum tímapunkti. Eins og engill af himnum ofan kom sendill á rauðum bíl með sex kassa af rjúkandi og ilmandi pitsum. Við hámuðum þær í okkur þar eð við viss- um allar aö ekki myndum við borða öllu meira þann daginn. Hef ekki undan að klippa Nú er klukkan orðin um það bil þrjú. Þá hófst fórðun og hárgreiðsla. Ágætlega gekk að farða mig og hár- greiðslan gekk enn betur og hraðar. Þá upphófst enn ein biðin. Við biðum og spjölluðum. Einhverjar voru með rúllur í hárinu og myndaði það heim- ilislega stemningu í kjallara Perlunn- ar, allavega fyrir mig. íslenska dóm- nefndin kom niður og hitti okkur ör- stutt þar sem við vorum í óðaönn að undirbúa okkur á líkama og sál. / miðri ringulreiðinni fékk ég þá hugdettu að ég þyrfti að klippa á mér toppinn svo ég hefði betri yfirsýn yfir svið og áhorfendur. stress keppenda og aðstandenda. Það var mjög gott að hafa þær þarna til að létta andrúmsloftið. Spjallað við Claudiu Þegar úrslit 3. og 2. sætis voru kunn magnaðist spennan. Einn keppenda hvislaði því að mér að ég yrði í fyrsta sæti en ég hristi haus- Þú færð þriggja dyra SUZUKI Swift á a&eins 980.000 kr. Swift er fyrir þá sem eru að leita sér að liprum, ódýrum og áreiðanlegum bíl. Hann er með gott innanrými og er vel búinn með vökvastýri, rafmagn I rúðum og speglum, hita í sætum, samlæsingar og margt fleira. Swift er ekki hvað síst þekktur fyrir sparneytni og hagkvæmni í rekstri og kemur jafnan út með eina lægstu bilanatíðni allra bíla í könnunum. Það er því engin furða að hann sé afar góður I endursölu, hann bara einfaldlega endist og endist! Swift - Spameytni bíllinn TEGUND: VERÐ: SWIFT GLS 3-d 980.000 KR. SWIFT GLX 5-d 1.020.000 KR. þar sem stöðugt var verið að minna á að þetta væri að nálgast. Stundin rann upp og allir voru komnir í rétta röð - spenningurinn gerði mjög vart við sig. Það féll í minn hlut að opna sýninguna fyrir hönd keppenda og ég var dálítið stressuð síðustu sekúndurnar fyrir fyrstu innkomuna. Þegar á sviðið var komið var þetta ekkert mál og allt gekk mjög vel. Á milli atriða og sýninga var nægur timi til að skipta um fót og koma sér í aðra stemn- ingu. Niðri hjá okkur var fuflt af fólki og mikið líf. Það næsta sem ég þurfti að gera var að sýna fyrir Morgan. Það gekk eins og í sögu og ég hafði mjög gaman af. Þar á eftir var sýning frá DKNY þar sem við máttum hafa það eins skemmtflegt og við vildum. Fyrir vikið var sýn- ingin lifandi og skemmtileg. Að henni lokinni voru „andlit fyrir- tækja“ valin. Þar hreppti ég titilinn Japis-stúlkan. Fyrir það fékk ég mini-diskspilara sem kemur sér mjög vel. Það var skemmtilegt að sjá að titlarnir dreifðust á margar stelpur. Eftir þetta fórum við í kjól- ana og biðum niðri eftir úrslitum dómnefndar. Helga Braga og vin- kona hennar, Lilja Ósk, sáu um að kitla hláturtaugarnar og minnka SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is $ SUZUKI /4*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.