Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Page 50
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 DV .vera Tvöföldun í flugumferö Á næstu 15 árum er gert ráð fyrir fíugfarþegum i Evrópu muni fjölga um helming. Umferðarþungi á flugvöllum: London meö flesta flugfar- þega Ef spár ganga eftir á Qöldi flugfar- þega innan Evrópu eftir að tvöfaldast á næstu flmmtán árum. Árið 2015 er gert j^áð fyrir 1.1 milljarður manna muni ferðast flugleiðis í álfunni. Þetta er mun meiri aukning en áður hafði ver- ið gert ráð fyrir. Til marks um mikla fjölgun má nefna að árið 1998 voru flugfarþegar í Evrópu 541 milljón en í fyrra fóru rúmar 900 milljónir manna um evrópska flugvelli. Mest flugumferð í heiminum er um London en 62.2 milljónir farþega fóru um Heathrow en ef Stansted og Gatwick eru taldir með var fjöldi flug- farþega á síðasta ári 102 milljónir. Mest umferð um stakan flugvöll er á ^Kartsfield-vefli í Atlanta en þar fóru tæpar 80 milljónir farþega mn í fyrra. O’Hare flugvöllur í Chicago lenti í öðru sæti með 72 milljónir og Los Angeles í því þriðja með 63.9 milljónir farþega. Sydney í Astralíu Ólympíuleikarnir verða haldnir í þessari vinsælu ferðamannaborg i haust. Ólympíuleikar í Sydney: * Hundleiðir á hamaganginum Árum saman hefur Sydney í Ástralíu verið í toppsæti þegar áhugaverðustu ferðamannaborgir heims eru valdar í könnunum. Ástralía er í tísku um þess- ar mundir og ekki spillir fyrir að Ólympíuleikar verða haldnir í borginni í haust. Síðastliðin sjö ár hefur undirbúning- ur fyrir Ólympíuleikana staðið yfir í borginni og uppbyggingin verið gríðar- leg. Nú, þegar liður að leikunum, herma fregnir að borgarbúar sjálfir séu orðnir hundleiðir á öllum hamaganginum og áhugi á leikunum hefur minnkað. Uppbyggingin er hins vegar góð fyrir '’í'erðamenn því hótelrými hefur verið margfaldað i borginni og að minnsta kosti tólf hótel af stærri gerðinni hafa risið á síðustu misserum. Þá hafa iþróttamannvirki verið reist víða og jámbrautakerfið allt endurhannað og bætt. Hundruð þúsunda ferðamanna munu vafalaust leggja leið sína tfl borgarinnar i september til þess að upplifa leikana og þeir geta verið vissir um að sú Sydn- ey sem við þeim blasir verður fallegri og betur skipulögð en nokkru sinni áður. Býrðu í Kaupmannahöfn? Ertu á leiðinni ??? 1 www.islendingafelagid.dk Víkingaæði í Dölunum MYNDIR: MAGNUS HJORLEIFSSON. Víkingaæðiö í Dölum Hluti þátttakendanna, kennararnir og tveir ungir gestir: Frá vinstri, aftari röð: Sigrún Halldórsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, (á bak við Birgit), Birgit Kryger, Ásta Sigurðardóttir, Bæring Jónsson, Eric Zelinke, Ása Gísladóttir, Elín Melsteð. Fremri röð: Guðborg Tryggvadóttir með Elínu Huld, Inga Guöbrandsdóttir, Nanna Hjaltadóttir, Snæbjörg Bjartmarsdóttir, Ólafía Ólafsdóttir og Aron Snær. DV, BUÐARDAL:_____________________ Dalamenn hugsa um fátt meira þessa stundina en víkingatímann. Sumir segja að hálfgert víkingaæði hafi runnið á íbúa héraðsins. Ný- lega lauk í Búðardal tveggja vikna námskeiði sem handverksfélagið Bolli stóö fyrir í gerð víkinga- klæðnaðar og muna frá tímum Ei- ríks rauða. Um 15 manns tóku þátt í námskeiðinu. Kennarar voru frá Leöurgerð Hér eru þeir Eric og Bæring við leð- urvinnu á námskeiðinu, klæddir glæsilegum búningum fornmanna. í nýjum fornmannabúningum til Eiríksstaða Að námskeiðinu loknu fóru þátttak- endur, klæddir í nýsaumaða fom- mannabúninga ásamt tilheyrandi, að Eiríksstöðum í Haukadal þar sem teknar voru myndir í tilefhi nám- skeiðsins og eins er fyrirhugað að nota þær í kynningarbækling fyrir Eiríks- staðanefndina tfl þess að kynna fyrir- huguð hátíðahöld í sumar. Ungur víkingur og annar eldri Eric Zelinke kennir Aroni Snæ sitthvað sem getur nýst víkingum og köppum í lífínu. Hinn danski Eíríkur rauöi Hér eru Eiríkur danski, Birgit Kryger og Bæring, fornmaður og Dalamaður, við Eiríksstaði hina nýreistu, sem ferðafólk mun áreiðanlega fýsa að sjá í sumar. Svona skæddust menn til forna á hátíðisdögum, í leðurskóm eins og þessum sem fólkið í Dölum lærði að búa til. Eiríkur lét þess getið að hann hefði notað þetta slæma veður undanfamar vikur og prófað víkingafatnaðinn og það hafi komið sér á óvart hversu hlý fötin reyndust í stormi, snjókomu og frosti. -MB Vígalegur kappi Bæríng Jónsson á Saursstöðum er vígalegur með boga sinn og örvar þar sem hann skimar (væntanlega eftir óvinum) frá bæ sínum, Eiríks- stöðum. Búningurinn er litaður úr íslenskum jurtalitum eftir fornum aðferðum. Danmörku, þau Eric Zelinke forn- leifafræðingur, eða Eiríkur rauði eins og hann kallar sig, og Birgit Kryger, textílhönnuður frá Rybe Vikingcenter. Þau kenndu þátttak- endum aö vinna muni úr tré og leðri auk klæðskurðar úr hör og vaðmáli og spjaldvefnað. Eiríkur rauöi ekki svo slæmur Eiríkur og Birgit hafa verið á ís- landi áður og lýstu bæði ánægju sinni yfir verunni í Dölunum. Eirík- ur er einlægur aðdáandi nafna síns Eiríks rauða og segir hann ekki hafa verið eins slæman mann og menn haldi fram. Hann ætlar sér að koma í sumar með fjölskyldu og vini og taka þátt í víkingahátíðun- um sem fyrirhugaðar eru. Birgit segir fólkið á námskeið- inu afar laghent og áhugasamt, gaman hafi verið að kenna þeim þetta gamla handverk og þetta hafi verið auðvelt verk því allir séu greinilega vanir að vinna í hönd- unum. Þau era afar ánægð með afrakst- ur námskeiðsins, munirnir eru fjölbreyttir og vel gerðir. Auk jurtalitaðs fatnaðar mátti sjá ekta leðurskó, tréskálar, útskomar og skreyttar skeiðar úr tré, hnífa, veski, skartgripi, sliður fyrir vopn og hnífa, borða ofna með spjald- vefnaði og ein frúin var að búa sér til boga. Machu Picchu í Perú: Vilja margfalda straum ferðamanna Þrátt fyrir að fjöldi ferðamanna til Machu Picchu í Perú hafi slegið öfl met í fyrra eru yfirvöld landsins á þeirri skoðun að hleypa eigi enn fleira fólki að þessum einstöku minjum um Inka á landinu. Rústir Machu Picchu frá 15. og 16. öld, sem telst einn helgasti staður Inka, standa hátt í Andesfjöllum og hing- að til hafa langferðabílar mest verið notaðir til að ferja fólk til og frá staðnum. Nú eru uppi hugmyndir um að byggja kláfferju frá dalbotni og upp að rústunum. Með ferjunni telja yfirvöld að bæði megi koma fleiri ferðamönnum til Machu Picchu og eins verði auðveldara að halda reglu á ferðamannastraumn- um. Þegar er farið að bera á miklum mótmælum vegna fyrirhugaðra framkvæmda og mótrökin þau að mannvirki sem þetta muni skaða hið fagra landslag fjallanna. í fyrra heimsóttu 360 þúsund ferðamenn Machu Picchu og var það aukning um 20% frá árinu áður. Stjórnvöld I Perú vilja gjarna að tala ferðamanna verði í kringum 2 milljónir á ári sem myndi þýða að 6.800 manns heimsæktu rústirnar á Helgur staöur Machu Picchu frá 15. og 16. öld telst til helgustu staða Inka. degi hverjum. Andstæðingar þess- ara hugmynda benda á rannsóknir sem sýna að rústimar þola alls ekki meiri ágang en sem nemur um þús- und ferðamönnum á dag. Ef af byggingu kláfferjunnar verður er liklegt að sá tími sem hver ferðamaður fær að dvelja i rústunum verði styttur til muna og vafalaust mun mörgum þykja það súrt í broti. Vinsældir Machu Picchu meðal ferðamanna kunna að verða þessum merka stað að falli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.