Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Side 56
64
__________________________LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000
Tilvera I>V
Guðbrandur á Bassastöðum:
Skaut næstum
undan sér fótinn
- braust einsamall til byggða af ótrúlegu harðfylgi
„Mér fannst eins og ég hefði orð-
ið fyrir einhverju höggi en vissi
samt ekki í raun og veru hvað hafði
gerst; varð ekki var við neinn sárs-
auka. Skotið sem ég vissi að hafði
hlaupið úr byssunni hélt ég að hefði
farið út í loftið. En þegar ég ætlaði
að koma mér á fætur þá fylgdi fótur-
inn ekki eftir og sneri allt öðruvísi
en hann átti að gera.“
Þannig lýsir Guðbrandur Sverris-
son, bóndi og refaskytta á Bassa-
stöðum í Strandasýslu, fyrstu
augnablikunum eftir að skot hljóp
úr haglabyssu gegnum hægri fót
hans um hné og tætti bæði hold og
bein og hnjáliðurinn nánast hvarf.
Þetta gerðist 8. mars 1999.
Dagurinn sá var bæði bjartur og
fagur síðvetrardagur og geislandi
heiðskírt. Um morguninn fór Guð-
brandur að moka snjó með dráttar-
vél og snjóblásara eins og var vani
hans ákveðna daga. Hann kom heim
til sín um 11.30 og gleypti í sig dálít-
inn matarbita og honum halda eng-
in bönd. Fátt jafnast á við að fara til
fjalla við slíkar aðstæður og virða
fyrir sér dýrð náttúrunnar í vetrar-
búningi. Þá er veiðilöngunin í há-
marki. Ótal sinnum hefur hann
komið að rebba á slíkum dögum, oft
í námunda við grenstæði þar sem
hann lætur sólarylinn verma sig
meðan smáblundur er tekinn þegar
sól er hæst á lofti, og sent hann inn
í eilífðina. Þetta voru einmitt
kjöraðstæður til þess.
óskar eftir umboösmanni
í Grindavík.
^ | Uppiýsingar gefur Már í síma 550 5741.
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• iaugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekiö er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkurfyrir kl. 17
á föstudag
o\\t miKi hirpj^
V.
■^L
Smáauglýsingar
550 5000
Guðbrandur undir stýri
Guöbrandur hefur aukavinnu viö aö moka snjó á sínum heimaslóöum
og nýja dráttarvélin nýtist vet.
Guðbrandur gegndi auk þess því
starfi fyrir sveit sína að halda í
skefjum og reyna að fækka bæði ref
og mink.
Þaut í holti tófa
„Uppi á fjallinu, rétt sunnan við
Asparvík, verð ég var við tófu sem
er á skokki og ég fer þannig að
henni að hún er tilneydd að fara
niður fyrir klettabelti sem þama er.
Ég stöðva sleðann við klettabrún og
hugleiöi hvernig staða mín geti best
verið til að koma á hana skoti þeg-
ar hún fer með fram klettunum neð-
anverðum. Ég set strax skotið í
byssuna svo tófan heyri ekki hljóð-
ið sem alltaf heyrist þegar skot er
sett í byssu. Ég hef alltaf verið mjög
ákveðinn við sjálfan mig og aðra að
setja öryggið alltaf á þegar skot er
komið í svo engin hætta sé á ferðum
þó eitthvað komi upp á. Ég hef ekki
gengið nema örfá skref þegar ég fell
kylliflatur - það reyndist glærasvell
undir snjóhulu. Ég missi byssuna
og þá gerist það sem fyrst er frá
sagt.
Ekki var nú allt gáfulegt sem kom
upp í hugann þegar ég sá hvað gerst
Guöbrandur Sverrisson
Hann stendur viö nýja dráttarvéi
sem er meö sérsmíðuöu fótstigi svo
hann geti notaö fótinn. Guöbrandur
skaut næstum undan sér fótinn og
sýndi ótrúlegt haröfyigi viö aö kom-
ast einsamall til byggöa
eftir óhappiö.
hafði. Það fyrsta sem flaug gegnum
hugann var: Hvað get ég gert til að
ekki fréttist að ég hafi orðið fyrir
skoti úr eigin byssu?
Ég hef oft sagt við konuna mína
að undrast ekki um mig þó ég skili
mér seint og þess vegna veit ég að
það verður ekki farið að leita að
mér fyrr en undir kvöld. Það reyn-
ist þrautin þyngri að snúa sleðan-
um við því ekki er hægt að bakka
honum og ég hafði stöðvað hann
fremst á klettabrún. Ég dróst fram
og til baka milli endanna á honum
og hann færðist í hvert skipti nóg til
þess að ég gat loks ekið af stað.
Þá var að ákveða leiðina svo ég
lenti ekki í sjálfheldu því þarna eru
bæði klettar og hengjur og ekki
gekk að fara sömu leið til baka því
hún var bæði löng og krókótt. Ég
valdi leið niður á aðalveginn rétt
við bæinn Reykjarvík, þar sem heit-
ir Álfhóll; taldi mig þá ekki vera í
þeim hliðarhalla sem ég réði ekki
við og það gekk fljótt og vel.
Ruggaði fætinum fyrir þá
Nokkur óþægindi gerðu vart við
sig þegar ekið var á auðri jörðinni
en annárs var ég dofinn.
Þegár ég kom svo inn undir Ás-
mundarnes sé ég þyrlu Landhelgis-
gæsluimar og þá herti ég heldur á
mér. Ég vissi að björgunarhunda-
sveit hafði verið með æfingu við
Laugarhól en um þyrluna vissi ég
ekkert fyrr en hún blasti við. Þegar
ég kom inn undir Laugarhól er hún
á sveimi um Bjarnarfjörðinn.
Ég hafði strax orð á því að ég
þyrfti að fá far með þyrlunni suður
en þetta voru nú allt ókunnugir
menn og ég þekkti engan nema lögg-
una okkar, hann Höskuld. Hinir
hafa örugglega haldið að þeir sæju
þarna dæmigerðan bóndakarl, grá-
an mjög, í lörfum og á gömlum
vélsleða. Til þess að blessaðir menn-
imir áttuðu sig á því hvað hafði
gerst ruggaði ég dálítið fætinum fyr-
Pakki af
ryksugupokum
fylgir með f kaupbaeti
Vamperino SX
1.300 W
Fimmfalt filterkerfi
Tveir fylgihlutir
Pakki af
ryksugupokum
fylgir með f kaupbæti
# Pakkiaf
ryksugupokum
fylgir með i kaupbæti
Pakki af
ryksugupokum
fylgir með í kaupbæti
<Spí Vamperino 920* 1.300 W
Lengjanlegt sogrör
X Fimmfalt filterkerfi
Þrír fylgihlutir
Vampyr 5020
Ný, orkusparandi vél
Sogkraftur 1.300 W
Fimmfalt filterkerfi
Tveir fylgihlutir
CE-P0WER • Ný, kraftmikil
ryksuga í sportlegri tösku
Sogkraftur 1.600 W* Lengjanlegt sogrör
Rmmfalt filterkerfl • Tveir fylgihlutir
- i
_l^-|_ BRÆÐURNIR
Í©1 ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
UMBOÐSMENN
Sími 530 2800
www.ormsson.is
Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestfirðin Geirseyrarbúðin,
■ Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Pokahomið, Tálknafirði. Norðuriand: Radionaust, Akureyri. Kf. Steingrímsfjarðai; Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauöárkróki. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Vík,
Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þoriákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Klakkur, Vík. Reykjanes:
Ljósbogin Keflavík. Rafborg, Grindavík.