Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Side 58
V 66 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 Tilvera r>v dbandagagnryni Sparkler: ★★i Glit- meyjar og fölnandi stjörnur Gott er að dreyma um að slá í gegn, helst að verða ríkur og jafhframt að njóta hins besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Ekki eru allir svo heppnir að geta notið lífsins, aðrir ganga 1 gegnum það í blekkingaheimi og sumir kynn- ast einfaldlega varla lífsnautnum. Aðalpersónan í Sparkler virðist vera týpan sem hefur gengið í gegnum lífið í blekkingaheimi. Hún glitrar og hún ætlar að gera eitthvað. Hún er Melba May. Líf Melbu er þó fábrotið þar sem hún býr í hús- vagni, reyndar þeim flottasta í hús- vagnahverfmu, en peningar litlir og eiginmaðurinn upp á fáa fiskana. Þeg- ar Melba kemst að því að eiginmaður- inn heldur fram hjá þá er flúið í faðm mömmu gömlu. Ekki þýðir þó að húka ■* heima öllum stundum og Melba fer út á lífið. Þegar hún hittir svo þijá unga menn úti á lífmu telur hún örlögin hafa gripið í taumana og nú ætli hún að gera eitthvað við líf sitt. Myndin hefur upp á skemmtilega karaktera að bjóða. Mamma Melbu May er hreint og beint snilldarlegur karakter. Gaman er að sjá eldri pæjur sem hafa ekki verið að „meika það“ í liftnu en geta litið út eins og stjömur við réttu tækifærin. Það er svo hrylli- lega mikið af gelgjumyndum að létt % blanda af unglingagelgjuleikurum og eldri virkar hér mjög vel. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Darren Stein. Aöalhlutverk: Park Overall, Veronica Cartwright, Jamie Kennedy, Steven Petrarca og Freddie Prinze, Jr. Bandarisk, 1997. Lengd: 96 mín. Bönnuð innan 12 ára. -GG Outside Providence: ★★★ Enn einn " ung- lingur- inn á krossgöt- um Stundum er líflð einfaldlega ekk- ert flókið. Það eru grunnatriðin sem gilda og ekkert annað kemst að. Hvað ætti ungur, áhyggjulaus strák- ur að hugsa um annað en góðar stundir með félögimum og jafnvel að ná athygli hins kynsins? Ja, er ekki allt upptalið? Timothy „Dildo“ Dunphy er stefnulaus unglingsstrákur sem stefnir einna helst í ræsið ef eitthvað er. Hann og félagar hans eyða mest- um tima sínum í að komast í vímu og vera í vímu. Timothy á yngri bróður, sem er í hjólastól, sem hann sýnir þó umhyggju og foður sem er frekar kaldranalegur. Vegir lífsins eru þó margbreytilegir og Timothy er send- ur nauðugur í heimavistarskóla. Þar hefst svo skemmtilegt uppgjör stráks- ins á sjálfúm sér og lífinu. Myndin er nokkuð skemmtileg og fyndin. Þó dettur hún niður á köflum en þar sem persónusköpunin er prýðileg þá stendur maður sig aö þvi að glotta á sumum alvarlegri köflum myndarinnar. Þó nokkuð er af ör- smáum bröndurum sem skapa al- menna ánægjulega heild áhorfunar. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Michael Cor- rente. Aöalhlutverk: Shawn Hatosy, Jon Abrahams, Tommy Bone, Jonathan Brandis, Jack Ferver, Adam Lavorgna, Jesse Leach, Gabriel Mann, Kristen Shor- ten, Amy Smart, Alex Toma, George Went ■* og Alec Baldwin. Bandarísk, 1998. Lengd: 100 mín. Bönnuö innan 12 ára. -GG Enginn Óskar fyrir Sjötta skilningarvitið Nei, ekki fengu aðstandendur þessarar stórgóðu myndar að taka með sér heim svo mikið sem eina einustu styttu, þótt hún hafi verið í hópi þeirra mynda sem flestar til- nefningar fengu. Alls voru þær sex talsins, fyrir bestu mynd, bestu leik- stjóm, besta frumsamda handrit, besta karlleikara í aukahlutverki, besta kvenleikara í aukahlutverki og bestu klippingu. í tilefni af út- gáfu myndarinnar á myndbandi nú í vikunni í kjölfar óskarsverðlauna- hátíðarinnar aðfaranótt mánudags ætla ég að líta á hvern flokk fyrir sig, bera saman við verðlauna- hafann og reyna að meta hvort ég sé sammála vali amerísku kvikmynda- akademíunnar. Lúffaði fyrir American Beauty Það var American Beauty sem bar sigurorð af The Sixth Sense í flokkunum besta mynd, besta leik- stjóm og besta frumsamda handrit. Vissulega er The Sixth Sense frá- bær mynd í alla staði, en American Beauty hittir beint í mark í ádeilu sinni á ameríska drauminn og kem- ur vel við kauninn á þjóðarsál- inni. Hún á einfaldlega meira erindi til áhorfenda og á Óskarinn fyrir bestu mynd skilið fyrir þær sakir. Tvær frábærar myndir, en ég er sam- mála vali akademíunnar. Oft er það leikstjóri bestu myndar- innar verðlaun fyrir bestu leikstjóm en þó era undantekningar á því. í flokknum besta mynd eru metin al- hliða gæöi myndarinnar en í flokkn- um besti leikstjóri er litið til frammistöðu leikhópsins og því hlýtur frábær leikur Kevin Spacey og Anette Bening í aðalhlutverkun- um að hafa fleytt Sam Mendes lang- leiðina að Óskamum. Hins vegar er það spurning hvort það sé ekki meira leikstjómarafrek að leiðbeina síðri leikurum þannig að þeir nái stjömuleik. í þessum flokki ftnnst mér að M. Night Shyamalan hefði alveg eins átt skilið Óskar, sérstak- lega í ljósi magnaðrar frammistöðu sem hann laðar fram úr leikara á bamsaldri, Haley Joel Osment. Litli drengurinn með tilnefn- inguna Frammistaða hans þótti nógu góð til að tilnefna hann til óskarsverð- launa en mann grunar þó að það sé að hluta til komið af því hversu ungur hann er. Það heföi þó verið gaman að sjá hann taka á móti stytt- unni en ekki þótti mér neitt verra að sjá eðalleikarann Michael Caine taka á móti verðlaununum af stakri hógværð. Hins vegar fannst mér einkennilegt af aka- demíunni að halda því fram að r j stráksi hefði verið í aukahlut- verki en varla hefði hann átt meiri séns í Kevin Spacey. Ástr- alska leikkonan Toni Collette var hins vegar í réttum flokki, en þar vann Angelina Jolie _ fyrir Girl, Interr-i demían hefur löngum verið hrifin af geðsjúklingahlutverkum, svo valið kom ekkert á óvart. Handritið að The Sixth Sense hef- ur að geyma einhverja óvæntustu og alflottustu sögufléttu sem ég hef séð í áraraðir. Það dugði henni þó ekki til að hafa Óskarinn af Americ- an Beauty sem tefldi fram hvassri en þó léttlyndri þjóðfélagsádeilu sem sameinaði listilega vel þá kosti að skemmta áhorfendanum og gefa honum jafnframt eitthvað til að hugsa um. Ég á erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja hand- rita. Ekki tíl að rífast yfir Að lokum er það klippingin og ég get ekkert kvartað undan því að The Matrix hafl hrifsaö þá styttu eins og þrjár aðrar, allar fyrir tæknilega hluti, enda var sú mynd algjört þrekvirki tæknilega séð og frumkvööull á því sviði. Þótt klipp- ingin hafi verið vel gerð í The Sixth Sense, eins og reyndar öll tæknileg úrvinnsla, þá er The Matrix bara í sérflokki hvað það varðar. Niðurstaða min er sú að í flokk- unum besti leikstjóri og besta frum- samda handrit (hugsanlega einnig besta leikkona í aukahlutverki) hefði The Sixth Sense átt óskarinn skilið alveg til jafns við American Beauty (og Girl, Interrupted), og hefði kannski mátt fá a.m.k. einn þeirra, þótt varla sé hægt aö rífast hástöfum yfir því. American Beauty er sérlega vel að styttunum komin. Hins vegar má segja að það sé sama hversu góða mynd þú gerir, þú getur aldrei átt Óskarinn vísan því það er alltaf möguleiki á að einhver annar geri enn betur. Pétur Jónasson The Sixth Sense Haley Joel Osment og Bruce Willis í hlutverkum sínum í mynd sem tilnefnd var til sex óskarsverölauna en fékk engin. Y f irnáttúrlegt drama Það getur oft verið erfltt að hafa litla krakka í stóram hlutverkum í stórmyndum. Oft vantar þá þroska og reynslu til að gefa hlutverkinu dýpt og verða því veiki hlekkurinn í leik- hópnum, sérstaklega ef þeir eru með- al stjömuleikara. Hinn ungi Haley Joel Osment stóð sig þó svo vel í hlut- verki stráksins sem sér dautt fólk að hann var tilnefndur til óskarsverð- launa fyrir leik sinn. Toni Collette fékk einnig tilnefningu fyrir hlutverk móður stráksins, en ekki Brace Will- is fyrir hlutverk sálfræðingsins sem reynir að hjálpa stráksa, þótt hann standi sig alveg prýðilega, enda miklu betri leikari en margir halda sem að- eins sjá hasarmyndimar hans. Þessi mynd er alls ekki hryllings- mynd, þótt sum atriðin séu fremur óhugnanleg. Ég myndi fremur kalla þetta yfimáttúrlegt drama sem fjall- ar um viðbrögð fólks við hlutum sem ekki rúmast í efnisheiminum. Hæg og vönduð uppbygging sögunn- ar, ásamt vandaðri persónusköpun, góðum leik og lýtalausri tæknilegri úrvinnslu, gerir þetta að einkar áhugaverðri mynd sem grípur áhorfandann fostum tökum. Rúsín- The Sixth Sense ★★★★ an í pylsuendan- um er síðan óvænt og sér- lega vel hugsuð söguflétta í lokin sem breytir öllum forsendum sem áður hafa verið gefnar. Það er einmitt mjög gaman að sjá myndina í annað skipti og taka betur eftir því hvað sögufléttan er óaðfinnanleg. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: M. Night Shyamalan. Aöalhlutverk: Bruce Willis, Haley Joel Osment og Toni Collette. Bandarísk, 1999. Lengd: 103 mín. Bönn- uö innan 16 ára. -PJ Geena Davis í nýjustu kvikmynd sinni, Stuart Little Ætlar aö flytja sigyfir í sjónvarpiö. Geena Davis í sjónvarpið Fallandi kvikmyndastjömur leita gjarnan í sjónvarpið til að halda sér í sviðsljósinu. Stutt er síðan Charlie Sheen samþykkti að taka að sér hlutverk Michaels J. Fox i Spin City þar sem sá síöarnefndi verður að hætta vegna veikinda. Þótt Sheen sé fallandi stjama þá er það ekki meira en svo að hann gat haft það í gegn að tökustaður þáttanna var færður frá New York til Los Angeles þar sem hann á heima. Geena Davis hefur ekki átt miklu láni að fagna í kvikmyndaheimin- um að undanfornu. Það er af sem áður var þegar hún var eftirsóttasta stjarnan í Hollywood. Byrjunin á óförum hennar má rekja til Cutt- hroad Island, sem var með dýrari myndum sem gerðar hafa verið og kolféll. Hún sýndi síðan góða takta í The Long Kiss Goodnight, virki- lega góðri sakamálamynd sem átti skilið betri aðsókn en raunin varð. Síðan hefur lítið frést af henni þar til nú en samkvæmt fréttum ætlar hún að fylgja fordæmi Sheen og fara yflr í sjónvarpið. Hefur hún sam- þykkt að taka að sér hlutverk í nýrri sjónvarpsseríu, Lost and Found.. Hún mun leika konu á fer- tugsaldri sem gengur vel í við- skiptaheiminum. Líf hennar tekur miklum breytingum þegar kún kynnist ekkjumanni með tvö börn. Laun Davis verða ekkert til að skammast sín fyrir. Mun hún fá 200.000 dollara fyrir hvern þátt, en þeir verða í fyrstu lotu 22, þannig að heildartekjur hennar verða 4,4 milljónir dollara fyrir syrpuna; auk þess verður hún titluð framleiðandi. Lgp Lake Placid: ★★ Króksi étur Kana Myndir um dýr sem stækka upp úr öllu valdi og herja á mannskepnuna eru eitt þekktasta og um leið ófrumlegasta form hryllingsmynda (King Kong, Alligator, Anaconda, Godzilla o.s.frv.). Maður á eiginlega aldrei von á góðu frá höfundum slíkra mynda. Ef grunnhugmyndin að baki sögunni er ekki skárri en þetta, þá er varla hægt að búast við mjög snjöllu handriti. í friðsælu vatni verður allt í einu vart við risastóran krókódíl sem snæðir menn og skepnur í gríð og erg. Hópur fólks fer í útilegu að kanna málið og ákveður síðan að veiða króksa eftir að hafa dundað sér um stund við sundæfingar í kringum hann. Þetta er næstum því jafn spennandi og veðurfréttimar (með fullri virð- ingu fyrir veðurfræðingum) og með heimskulegri myndum. Hópurinn sem fer á króksaveiðar er svo bjána- lega saman settrn- að það hálfa væri nóg, og persónusköpunin er bæði ýkt og asnaleg. Þrátt fyrir það verð ég að viðurkenna að ég hafði lúmskt gaman af myndinni, því að hún var svo gjör- samlega út í hött að það jaðraði við súrrealisma. Ég ætla því að líta á hana sem meðalgóða grínmynd. Svo eru líka furðugóðir leikarar í henni. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Steve Miner. Aöalhlutverk: Bill Pullnam, Bridget Fonda, Oliver Platt og Brendan Gleeson. Bandarísk, 1999. Lengd: 1999. Bönnuö innan 16 ára. -PJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.