Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2000, Qupperneq 13
13
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2000
DV__________________________________ Útlönd
CIA refsar fyrir árásina á kínverska sendiráðið í Belgrad:
Einn var rekinn
og sex tyftaðir
Bandaríska leyniþjónustan CLA
greindi frá því í gær aö einn starfs-
maður heföi verið rekinn vegna
mistaka sem hann gerði og leiddu
til þess að flugvélar Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) gerðu loftárás
á kínverska sendiráðið í Belgrad í
átökunum í Kosovo í fyrra.
Að sögn embættismanns CIA,
sem ekki vildi láta nafns sins getið,
voru sex aðrir starfsmenn tyftaðir,
þar af einn háttsettur.
George Tenet, forstjóri CIA, hefur
þegar refsað mönnunum. Ákvörðun
þar um var tekin i kjölfar umfangs-
mikillar rannsóknar á loftárásina í
maí í fyrra.
Þrír kínverskir borgarar létu lífið
í árásinni og tuttugu aðrir hlutu
sár.
Flugvélar NATO höfðu ætlað að
gera árás á birgðastöðvar júgóslav-
neska hersins.
Einhverjir starfsmannanna fengu
Refsivöndur CIA á lofti
Svona leit kínverska sendiráðiö í
Belgrad út eftir loftárás NATO í fyrra.
CIA hefur refsað fyrir mistökin.
munnlega refsingu en aðrir fengu
bréf þar sem þeim var meðal annars
tilkynnt að þeir fengju ekki neina
stöðuhækkun í einhvern tima. Sex-
menningamir samþykktu allir á
einn eða annan hátt skotmarkið
sem sá brottrekni hafði valið.
Einn starfsmaður CIA fékk hins
vegar hrós fyrir að reyna árangurs-
laust að koma í veg fyrir sprengju-
árásina þegar hann hafði áttað sig
á að rangt skotmark hafði verið
valið.
Árásin spillti mjög samskiptum
Bandarikjanna og Kína og hefur
ekki enn gróið um heilt. Æstur
múgur rést meðal annars á banda-
ríska sendiráðið í Peking skömmu
eftir að árásin var gerð.
Bandarísk stjómvöld héldu því
statt og stöðugt fram að árásin hefði
verið slys en ekki gerð af ásettu
ráði. í yfirlýsingu frá CIA í gær var
sú fullyrðing ítrekuð.
Poul Nyrup Rasmussen
Færeyingar vantreysta danska for-
sætisráðherranum.
Poul Nyrup:
Hagar sér eins
og nýlenduherra
Fjármálaráðherra Færeyja,
Karsten Hansen úr Þjóðveldis-
flokkinum, segir að Poul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, komi fram við Fær-
eyinga eins og nýlenduherra.
„Hann segir svo margt sem
bendir til að hann vilji ekki
sleppa takinu af Færeyjum,“ segir
Hansen í viðtali við danska blað-
ið Jyllands-Posten.
Hann telur ljóst að Nyrup vilji
ekki láta minnast sín sem forsæt-
isráðherrans sem glataði hluta af
ríkinu. „Mannleg viðbrögð," segir
Karsten Hansen.
Lömbin borin til slátrunar
Palestískir hellisbúar slógu upp veislu í gær til að fagna því að ísraelar
leyfðu þeim að snúa aftur í helia sína í eyðimörkinni í Júdeu. Af því tiiefni var
lömbum slátrað og vinum og ættingjum boðið að gæða sér á kræsingunum.
Nýj
ar vorur
Handofin rúmteppi, tveir púöar fylgja.
Ekta síðir pelsar.
Síðir leðurfrakkar.
Handunnin húsgögn.
Arshátíðar- og fermingardress.
Handunnar gjafavörur.
Kristall - matta rósin, 20% afsl.
opa Sigurstjarnan
virka daaa 11-18,
laugard. 11-15
í bláu húsi við Fákafen.
Sími 588 4545.
uwsSBPas
VW Golf, f. skrd. 8.5.1998,
bsk., 5 dyra, ekinn 21 þ. km, svartur.
Verð kr. 1.320.000.
VW Passat, 4x4, f. skrd. 2.7.1999,
bsk., 5 dyra, ekinn 14 þ. km, grár.
Verð kr. 2.290.000.
VW Polo, f. skrd. 22.2.1996,
bsk., 3 dyra, ekinn 92 þ. km, grænn.
Verðkr. 680.000.
VW Passat, 1800, f.skrd. 21.5.1997,
ssk., 4 dyra, ekinn 59 þ. km, rauður.
Verð kr. 1.690.000.
Subaru Legacy GL 4wd, f. skrd. 2.7.
1993, bsk., 5 dyra, ekinn 135 þ. km, grár.
Verð kr. 850.000.
Toyota Hiace, bensín, f. skrd. 22.7.1999,
bsk., 4 dyra, ekinn 12 þ. km, hvítur.
VW Transporter, vsk-bíil, f. skrd. 26.4. Nissan Patrol, 2,8, dísil, f. skrd. 19.5.
Verðkr. 1.630.000. Verð kr. 1.190.000. rauður. Verð kr. 2.300.000. Borgartúni 26, ámar 561 7510 & 561 7511
úrval nHa*ra bíla af öllu^ sfaröu^ og ger*u»») / Margar bifreiðar á söluskrá okkar er hægt að greiða með Visa eða Euro raðgreiðslum