Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 2
18
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 H>"V
Svona
líta
bílarnir
út
Eins og undanfarin ár gefur DV
nú út sérstakt aukablaö með yfir-
liti yfir þá fólksbíla og jeppa sem
vitað er að verða í boði á íslensk-
um bilamarkaði á yfirstandandi
ári. Við fylgjum hefðinni með því
að gefa tæknilega lýsingu og verð á
þessum bílum í sérstakri töflu sem
menn geta tekiö úr blaðinu og
geymt sér til þæginda og fróðleiks
síðar meir, ef það hentar.
Þegar undirbúningur þessa blaös
var á lokastigi var gerð breyting á
lögum um vörugjald sem snertir
bílainnflutninginn talsvert þar sem
gjaldflokkum bíla var fækkað úr
sex í tvo. Þetta breytti nokkuð því
sem þegar var frágengið og varð að
vinna sumt upp á nýtt. Aðalatriðið
er þó að í fyrrgreindri upplýsinga-
töflu eru nú tveir dálkar yfir verð.
Annar segir frá verðinu eins og
það var fyrir gjaldflokkabreytingu,
hinn eins og það er eftir hana. Við
þykjumst vita að það muni mörg-
um þykja ærið forvitnilegt til sam-
anburðar - hvaö hefur lækkað?
Hvað hefur hækkað?
Þá fitjum við líka upp á þeirri
nýbreytni núna að birta myndir af
þeim bílum sem boðnir eru ásamt
örstuttri umsögn um nokkra kosti
þeirra eða eiginleika. Undanfarin
ár hefur nokkuð borið á gagnrýni
þess efnis að ekki hafi verið nógu
mikið af bílamyndum í þessu sér-
blaði. Úr því er nú bætt.
í þessari léttu umfjöllun er bíl-
um raðað eftir verðflokkum. Rétt
er að benda á og undirstrika að
það verð sem tilgreint er í blaðinu
er í öllum tilvikum lægsta verð á
hverri tegund eða undirgerð. Verð-
ið hækkar að sjálfsögöu eftir bún-
aði frá því grunnverði sem hér er
gefið. -NG/SHH
Væntan-
legir
bílar
- verð liggur
ekki fyrir
Audi A2
Audi A6 Allroad
Lexus LS430
Lexus RX300
Mercedes Benz C-klassi
Nýr Pajero
Porsche 911 Turbo
Skoda Fabia
Toyota RAV 4
Volvo S70 AWD
Audi A2
Þessi bíll er
væntanlegur á ár-
inu og er hinn
minnsti í Audi-fjöl-
skyldunni. Hann er
byggður á svokall-
aða „spaceframe“-
álgrind og yfirbygg-
ingin er gerð á ál-
ramma þannig að
bíllinn sjálfur er
mjög léttur. Samt er
þetta fjögurra dyra
bifl þannig að auð-
velt ætti að vera að
umgangast hann og
ekki spillir að í boði veröa sparneytnar vélar, þar á meðal þriggja lítra TDI-
vélin sem í litla VW Lupo-bílnum heldur sig innan við 3 lítra á hundraðið.
Mitsubishi Pajero - nýr
Þetta er nýr bíll frá
grunni og sameinar
enn betur en
áður megin-
kosti hrað-
brauta-
bíls og
fjalla-
jeppa.
Grindin
er sam-
byggð við
yfirbygging-
una og þannig
næst samtímis út
lægri þyngdarpunktur og
meiri veghæð. Hinn nýi Pajero er
sérlega hljóðlátur í akstri
og stöðugur á vegi
og rúmar mjög
vel, bæði í
aftursæti
og fram-
sæti.
Tveggja
manna
„auka-
sæti“ er
aftast í
bílnum en
rennt ofan í hólf
gólfi þegar ekki er
verið að nota það.
Lexus LS430
LS430 er nýjasti
billinn frá Lexus og
er einn best búni lúx-
usbíflinn á markaðin-
um i dag. Við hönnun
hans var leitast við að
hafa loftmótstöðu eins
litla og mögulegt var,
enda er hún sú
minnsta í sínum
flokki, eða 0,25 Cd.
Fyrir vikið er hann einstaklega hljóðlátur en það er ekki það eina sem prýö-
ir þennen bíl. Hann er búinn öflugri V8 bensínvél sem hefur 4') Newton-
metra af togi. Vel er séð fyrir öryggi með 8 öryggispúðum sem staðalbúnaö
og þægindin eru sér á parti. Meðal annars skynjar miðstöðin mun á sól og
skugga og hluti hennar er í sætunum þannig að þau verða aldrei of heit eða
köld. Vel fer einnig um aftursætisfarþega sem geta stillt aftursæti með raf-
magnsbúnaði úr niðurfellanlegum miðjustokki.
Lexus RX300
Nýi Lexus RX300
er lúxusbíll með út-
lit og eiginleika
jeppa. Hann er með
sívirkt íjórhjóladrif,
tengt aflmikilli 220
hestafla V6 vél úr
áli. Hann er með
spólvörn og í sjálf-
skiptingunni er bún-
aður sem læsir
henni og kemur í
veg fyrir að hún
„slúðri“. Með þess-
ari vél fer hann úr
kyrrstöðu i hundrað kílómetrana á 8,8 sekúndum sem er gott fyrir bíl sem
er 1770 kíló. Eins og aðrir lúxusbílar frá Lexus er RX hlaðinn búnaði og all-
ur öryggisbúnaður er staðalbúnaður þar.
Audi A6 Allroad
Audi Quattro Allroad er nokkuð sérstakur í sínum flokki aldrifsfólksbíla.
Þessi skemmtilegi bíll er væntanlegur hingað fljótlega og er með loftpúða-
fjöðrun á öllum fjórum hjólunum sem virkar þannig að skynjarar fylgjast
með undirlaginu og hækka bílinn upp þar sem þörf er talin á. Ökumaður-
inn getur einnig stjómað veghæðinni með takka úr mælaborðinu. Bíllinn er
með tvær geröir véla, báðar öflugar bensín- og dísilvélar. Bensínvélin er 2,7
lítra, V6, með tvöfaldri túrbínu og pumpar út 250 hestöflum. Allroad er all-
vel búinn og mjög vel búinn og ætti að henta mörgum íslendingnum vel.
Porsche 911 Turbo
í þessum nýja bíl frá Porsche fær maður allt sem hægt er að fá í alvöru-
sportbíl. Með túrbínunni spýtir hann bílnum úr 0 í 100 km/klst. á aðeins 4,2
sekúndum. Hann er uppfullur af nýjustu tækniundrunum frá Porsche og má
þar til dæmis nefna eigið stöðugleikakerfi, fjórhjóladrif og í heddunum er
„VarioCam Plus“-kerfið. Eins og flestir Porsche-bílamir er hann fáanlegur
með Tiptronic S skiptingunni og síðast en ekki síst eru nýju keramikbrems-
urnar í þessum bíl en þær minnka ófjaðraða þyngd bílsins og gera hann
þannig skemmtflegri í akstri.
Skoda Fabia
Þetta er nýjasti bíllinn frá Skoda. Hann var frumkynntur á alþjóðlegu
bílasýningunni í Frankfurt í haust sem leið og vakti þar strax mikla athygli.
Hann ber augljósan útlitskeim af tékkneskum uppruna sínum en hvað
tæknibúnað og frágang áhrærir virðist hann nú vera kominn til jafns við
þýska frænd-
ur sína í
Volkswagen-
fjölskyldunni.
Þessi bíll er
ákaflega vel
búinn og bú-
ast má við að
hann veki
mikla athygli
þegar hann
verður kynnt-
ur á íslandi í
næsta mán-
uði.
Mercedes Benz C-klassi
C-klassinn frá MB er alveg nýr og var frumkynntur í marsmánuði síðast-
liðnum. Þegar þetta er ritað er lítið vitað um í hverju hann er breyttur frá
eldri árgerðum. Það sem fyrir liggur á þessari stundu er að endurhönnunin
tók fjögur ár og kostaði 1,36 milljarða evra. Nánari upplýsingar um þennan
bíl berast væntanlega á næstunni.
Alfa
frá kr. 1.790.000
Opið á laugardögum kl 13 -17
Istraktor ?,9
BlLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐJ • Cim«* - S fÍÍ7 5 4 0 0 » 0 0
í dag. Fyrirgefðu sjálfum þér og endurlifðu kynnin af
þinní bestu akstursupplifun.