Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 6
22
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 pv
VWPolo
Nýlega kynnti Hekla hf. nýjan
Volkswagen Polo sem er nokkuð
breyttur frá fyrirrennara sínum.
Hann er kominn með ný ljósker
bæði framan og aftan og nýja og
sérlega smekklega innréttingu -
allt miklu sportlegra en áður. Hann
er vel búinn miðað við smábíl og
meðal annars er í honum Alpine-
geislaspilari með 4 hátölurum.
Hann er í boði í nokkrum útgáfum
með vélar upp í 125 hestöfl, bæði
sjálfskiptur og beinskiptur. Hann
er einnig vel búinn frá öryggissjón-
armiði, með ijóra loftpúða, þar af
tvo fyrir hliðarárekstra sem komið
er fyrir í hliðum framsæta.
Ford Ka
Ka er minnsti bíllinn sem Ford
hefur í boði, tveggja dyra bíll, og
menn hafa ýmsar skoðanir á útliti
hans, hvort það sé fagurt eður ei.
Það gildir hið sama um Ka og
marga fleiri litla bíla að þeir henta
einkum fyrir tvo til ferða eða litlar
fjölskyldur því rýmið aftur í er frek-
ar skorið við nögl. Hins vegar er
þetta lipur bíll í akstri og þægilegur
innan sinna marka, hefur frískar
tökur og liggur ágætlega.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
IPVI
550 5000
Toyota
Yaris
Yaris er fyrsti
smábíllinn
frá Toyota
sem
virki-
lega
slær
gegn.
Hann
var
valinn
bíll
ársins
Evrópu
og kannski að vonum því hann var
fyrst og fremst hannaður með Evr-
ópumarkaðinn í huga. Þetta er líf-
legur smábíll, lipur í borgum og létt-
ur til langferða. Hægt er að draga
aftursætið fram og aftur eftir því
sem hentar með tilliti til
farþega og/eða
flutnings.
Peugeot 206
Liðlegur smábíll sem þykir fallegur á velli. Eins og frönskum bílum er títt
er hann fjarska þægilegur á vegi, með góða fjöðrun og ágætt veggrip. í mis-
hæðóttu landi eða þéttbýli er hann því skemmtilegri sem hann er valinn
með aflmeiri vél. í þéttbýli er hann liðlegur og léttur í snúningum og al-
mennt séð verður hann að teljast ágætlega hljóðlátur, ekki síst miðað við
sinn flokk
Hyundai Accent
Accent er bíll
sem margir þekkja
og notið hefur
ágætra vinsælda
hérlendis. Þegar
þetta er ritað er nýr
bíll að koma og hef-
ur ekki verið unnt
að taka hann til
kostanna við ís-
lenskar aðstæður
enn sem komið er
en af erlendum um-
sögnum að dæma er
sá nýi rúmbetri en
sá sem hann tekur við af, ekki síst í aftursæti. Nánari umfjöllun verður
væntanlega í DV-bílum á næstunni.
Fiat Punto
Á siðasta ári kom Fiat með alveg nýjan Punto og raunar í tveimur grunn-
útfærslum: tveggja hurða og fjögurra hurða. Að vélbúnaði er þetta sami bíll-
inn en að útliti til er ýmislegt fleira en hurðafjöldinn sitt með hverju snið-
inu og fjögurra
dyra bíllinn er
lengri en hinn. Fiat
Punto er ágætlega
búinn smábíll og
einn hinn álitleg-
asti í sínum flokki,
eins og glöggt má
sjá af sölutölum frá
meginlandinu þar
sem hann hefur
selst vel, t.a.m. í
Þýskalandi.
Ford Fiesta
Fiesta er ekki til
muna stærri en Ka
en er fjögurra dyra
og þar með þægi-
legri í umgengni -
og reyndar
rúmbetri aftur í, þó
hún beri þar hin
eðlilegu einkenni
smábílsins. Fiesta
fékk andlitslyftingu
í fyrra og er nú
komin með „New
Edge Design" líkt
og aðrir Fordbílar.
Það sem helst einkennir Fiesta er ágætlega skemmtilegir aksturseiginleik-
ar, góð vinnsla og ágæt fjöðrun.
Suzuki Wagon R+
Nýstárleg gerð minnstu fjölnotaMa. Enn minni Wagon R sló í gegn á
japönskum markaði og velti m.a.s. Toyota Corolla úr sessi sem söluhæsta
bílnum á heimamarkaði. Wagon R+ er sérstaklega hannaður fyrir Evrópu-
markað, stærri og
aflmeiri heldur
en sá sem Japan-
ar kaupa. Hann
er fáanlegur með
sjálfskiptingu
sem þykir + hér á
landi. Með einu
handtaki má
leggja niður hvort
aftursætið fyrir
sig og fá slétt
flutningsgólf aft-
ur í.
Nissan Micra
Nissan Micra hefur notið talsverðra vinsælda á íslandi. Þetta er liðlegur
og snaggaralegur smábíll sem kom fyrst fram árið 1993 en fékk andlitslyft-
ingu árið 1998. Hann er ágætlega úr garði gerður og rúmbetri en hann sýn-
ist utan frá. Hann er tiltölulega hábyggður og fyrir bragðið er auðvelt að
umgangast hann. Hann þykir sparneytinn og hagkvæmur í rekstri.
Opel
Sú Corsa sem
nú er í boði er
farin nokkuð að
reskjast: er frá
1993. Það breytir
því ekki að þeim
sem hafa kynnst
henni líkar hún
vel og þó hún sé
ekki ýkja stór
hefur hún
marga góða
kosti. Hún er
þokkalega rúm-
góð miðað við
stærð, þægileg í akstri og vel búin hvað óvirkt öryggi áhrærir. Þar að auki
er hún sparneytin og hefur komið prýðilega út í rekstri.
Verð 1.000.000
1.199.999
1.050.000 Volkswagen Polo
1.060.000 Ford Fiesta
1.089.000 Nissan Micra
1.089.000 Peugeot 206
1.095.000 Fiat Punto
1.099.000 SuzuM Wagon R+
1.130.000 Opel Corsa
1.160.000 Daihatsu Sirion
1.188.000 Renault Clio
1.195.000 Suzuki Baleno
IVECO
Sendibíll ársins 2000 í Evrópu
Vann þennan eftirsótta titil með yfirburðum.
Iveco Daily, sendibílI ársins 2000 er sterkur sigurvegari á góðu verði.
Við bjóðum 3000 gerðir af Daily, einnig ótrúlegt verð á kössum og vörulyftum.
Istraktor w
BlLAR fyrir alla
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SlMI 5 400 800