Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 11
13 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
27
Dabo-dekk
framleidd
á íslandi
í vörubíladeildinni eru dekkin kaldsóluð á meðan framleiðslan í fólksbíladeildinni byggir á
heitsóluðum dekkjum.
Endurvinnsla
með gufu á
dekkjum
í Hveragerði
í Hveragerði er nú um þessar
mundir að hefjast framleiðsla á
Dabo-dekkjum frá Hollandi. Þessi
dekk voru áður framleidd í Hollandi
en íslenskir aðilar hafa nú keypt
framleiðsluna og flutt verksmiðjuna
til landsins. Dabo-dekkin eru sóluð
dekk en byggja á evrópskum gæða-
stöðlum og eru ein af fáum sóluðum
dekkjum sem bílaframleiðendur í
Evrópu viðurkenna undir bíla sína.
Til að ná þessari gæðastýringu
þurfti að huga að mörgum þáttum.
Fenginn var sérfræðingur í fram-
leiðslunni frá Englandi til að keyra
saman framleiðsluna og þjálfa
starfsmenn. Við framleiðsluna er
aðeins belgur notaðra dekkja nýttur
og þarf hann að standast sérstakt
gæðapróf áður en honum er hleypt
út í framleiðsluna. Hráefnin í fram-
leiðslu Dabo eru framleiðsluleynd-
armál en þegar upp er staðið er
komið sólað dekk sem stenst ströng-
ustu kröfur erlendra skoðunarstofa
eins og TUV í Þýskalandi og má
nota til aksturs allt að 210 km
hr/klst. Erlend skoðunarstofa
fylgist svo með gæðum framleiðsl-
unnar.
Grænni framleiösla
Notast er við gufu í frámleiðslu
dekkjanna sem nóg er af í Hvera-
gerði og gerir það framleiðsluna
„grænni" en annars staðar þar sem
mengandi efni eru notuð. Fram-
leiðslugeta verksmiðjunnar er
250-300.000 dekk á ári en fyrsta árið
er gert ráð fyrir að framleiða um
100.000 dekk. Dabo ætlar sér mark-
aðshlutdeild á íslandi þótt aðal-
markaður þeirra hafi verið og verði
í Evrópu og vegna hagkvæmni í
framleiðslu munu þeir geta boðið
sóluð dekk á lægra verði hérlendis
en sést hefur áður. Einnig verður
framleiðsla á kaldslóluðum vöru-
bíladekkjum og er sú framleiðslu-
lína búin bestu tækjum sem völ er
á. Öll framleidd dekk eru númeruð
þannig að ef eitthvað kemur upp á
er hægt að rekja framleiðsludag og
hver vann við framleiðslu þess og ef
hægt er að rekja gallann til fram-
leiðslunnar er verksmiðjan ábyrg.
Framleislan hér á landi mun verða
í nánu samstarfi við verksmiðju í
Hollandi sem framleiðir öll stærri
vinnuvéladekk undir sama nafni en
alls munu um 12—15 manns hafa at-
vinnu af þessu hérlendis.
Bílkó í Kópavogi er nú orðið
heildsala þessara dekkja og er kom-
ið með sérstakt húsnæði að Smiðju-
vegi 34 undir þessa starfsemi sína.
Þar er hægt að fá dekk undir allar
tegundir fólksbila, vinnuvélar,
vörubíla og jeppa.
-NG
/
IJrval
- gott í hæginda.stólinn
Jón Kristinn Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Dabo á íslandi.
Myndir: DV-bílar Eva Hreinsdóttir
Framleiöslan í Hveragerði fer fram að Austurmörk 16 þar sem áður voru til húsa BB dekk.
baueno
Langar þig tii þess?
SUZUKI Baleno fæst fjórhjóladrifinn,
með spræka og skemmtilega 1600
vél, bæði í Sedan og Wagon útfærsl-
unum. Fjórhjóladrif er alveg ómetan-
legt við þær aðstæður sem við búum
við hér á ísiandi, ekki bara svo við
komumst leiðar okkar, heldur bætir
það aksturseiginleika og stöðugleika
bílsins við allar aðstæður. Svo eru
Baleno 4x4 bílarnir afar vel búnir
staðalbúnaði, bæði þæginda- og
öryggisbúnaði. SUZUKI bílar eru
þekktir fyrir hagkvæmni í rekstri og
sparlega eldsneytisnotkun. Er þetta
ekki einmitt bíllinn sem þig vantar?
Baleno - Fólksbíllinn
TEGUND: VERÐ
1.3 GL 3d 1.195.000 KR.
1.6 GLX 4x4 4d abs 1.595.000 KR.
1.6 GLX WAG0N 4x4 abs 1.695.000 KR.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Hefur þú upplifað Baleno 4x4 þjóta í gegnum snjóinn
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson,
Grænukinn 20, simi 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95.
Keflavík: BG bílakringlan, Grðfinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.