Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 1>V ’38 Kia Sportage Þetta er alvörujeppi, byggöur á grind, með hátt og lágt drif og tengjanlegt framhjóladrif. Hann er að flestu leyti sami bíllinn og Kia Grand Sportage - Sport- age Wagon nema hvað hann er minni og því ekki eins rúm- góður. Ford Puma Puma er nettur kúpubakur frá Ford, gerður á sömu grunnplötu og Fiesta. Þetta er sportútfærsla og sem slíkur sportlegur útlits og í innréttingum og • raunar i akstri líka. Hann er vegna byggingarlagsins ekki eins rúmgóður og Fiestan og er enda ætlaður til nota fyrir ann- an lífsstíl og ágæt- lega skemmti- legur sem slíkur. Chrysler Neon Chrysler Neon hefur ekki verið mikið í umræðunni hér á íslandi en e.t.v. verður breyting á því nú þegar Chrysler-umboðið flyst á nýjar hendur. Neon er með minnstu amerísku bflum og í upphafl var sagt að með honum væri Chrysler að bjóða upp á japanska hönnun með amerísku innanrými. Með sameiningu Chrysler og Daimler Benz hefur opnast nýr möguleiki í mark- aðssetningu þessa netta Ameríkubíls á Evrópumarkaði. Alfa Romeo 156 Þetta er bíllinn sem kom meira að segja framleiðendum sinum á óvart: Á þeim þremur árum sem hann hefur verið í boði er búið að selja á þriöja hundrað þúsund bíla af þessari gerð. Hann þykir fallegur en einkum þó skemmtilegur akstursbíll og í hann er hægt að velja margs konar vélar og búnað. Áhuga- verðasta við- bótin er svokölluð Sele- speed-skipting, kúplingslaus skipting sem hægt er að nota sem sjálf- skiptingu eða skipta sjálfur - jafnvel bara með tökkum á stýrishjóli. Daewoo Leganza Þetta er fólksbíll fullrar stærðar og agætlega búinn sem slíkur, með allan heföbundinn öryggisbúnað eins og nú tíðkast, svo sem læsivarðar bremsur og tvo líknarbelgi. Leganza er ágætlega rúmgóð og ágætur ferðabíll. Á meg- inlandsmarkaði er honum talið heldur til last að ekki skuli fást i hann stærri vélar en raun ber vitni en við íslenskar aðstæður dugar tveggja lítra 136 ha. vélin ágætlega. itÖ 'Sf Sportbílalakk $ áallabfla. BILALAKK ISLAKK sérverslun með bílalakk Suzuki Vitara SE Þennan bil er í rauninni óþarfi að kynna fyrir íslendingum, svo vel sem hann hefur kynnt sig gegnum tíðina. Eins og aðrir Suzuki-jeppar er hann byggður á grind, með millikassa með háu og lágu drifi og tengjanlegu framdrifl. Þetta eru spar- neytnir bílar og traustir og fara ágætlega á vegi. Ökumaður og farþegar sitja hátt og sjá vel yflr. Auðvelt er að fella niður aftursætið ef þörf er á auknu flutningsrými. Hyundai Sonata Sonata er fullvaxinn fólksbíll, ágætlega rúmgóður og þægilegur. Hann er ágætlega bú- inn með tilliti til árekstursöryggis, með fjóra líknarbelgi, styrktarbita í hurðum og læsi- varðar bremsur, svo nokkuð sé nefnt. Sonatan er ágætlega þægilegur í akstri og hentar vel til lengri ferða, en er jafnframt þokkalega liðleg- ur í hversdagsakstri innanbæjar. Mazda 626 626 Mazdan er í efri millistærð og fáanleg í margvíslegum útfærslum: stallbakur, hlaðbakur og langbakur. Almennt séð eru þessir bílar þokkalega og upp í ágætlega rúmgóðir og ágæt- lega búnir. Þeir eru með góða fjöðrun og fara vel á vegi og, eins og Mazda almennt, eru þetta traustir bílar og líklegir til að endast vel. Kia Grand Sportage í Kia Grand Sportage-jeppanum fá kaup- endur vel búinn bíl á góðu verði. Kia-umboð- ið var til skamms tíma hjá Jöfri en er nú flutt til nýrra eigenda í Hafnarfirði. Sporta- ge er byggöur á grind með millikassa og háu og lágu drifi og flokkast því réttilega undir jeppaskilgreininguna og að auki er hann með tregðulæsingu á afturdrifi. Hann er með 120 hestafla bensínvél og rúmar vel flmm manns án vandræða. *s» Mitsubishi Galant Galantinn er stóri fólksbillinn frá Mitsubishi og er nú fáanlegur með vél af GDI-útfærslu eins og Carisma- billinn, bara stærri og aflmeiri. Þetta er afar vel búinn bíll, með fjóra líkn- arbelgi og hitastýringu svo nokkuð sé nefnt. Galantinn hefur fengið orð fyr- ir fallegan frágang, þægileg sæti og prýðilegt akstursöryggi. Volvo 40 Eins og aðrir VolvobOar er Volvo 40 fáanlegur með auð- kennisstafnum S fyrir fólksbfl en V fyrir langbak. Uppruna- lega er þessi bíll þróaður i samvinnu við Mitsubishi og NedCar og framleiddur í Hollandi. Eins og í öðrum Volvobílum er mikið lagt upp úr öryggi, bæði virku og óvirku, með WIPS og SIPS, fyrir utan spymustýringu og skrikvöm. S40 Silverline er um þess- ar mundir á sérstöku tilboði hjá umboðinu. Audi A3 Audi A3 er i Golf-stærðarflokki og í rauninni afar líkur þeim bíl, enda frá sama framleiðanda. Til að byrja með var hann aðeins fáanlegur tveggja hurða en nú er fjögurra dyra Audi A3 í boði líka. Þessi bíll hefur fengið orð fyrir aö vera þægilegur í umgengni, vel smíðaöur og kvillalítill og öryggis- búnaður hans mun vera einn hinn besti sem fyrirfinnst í bíl af þessum stærðarflokki. Verð 2.000.000 - 2.499.000 2.008.000 Ford Mondeo 2.030.000 Jeep Wrangler 2.040.000 Fiat Barchetta 2.050.000 Audi A4 2.075.000 Nissan Vanette Combi 2.090.000 Fiat Coupé 2.099.000 Suzuki Grand Vitara 2.110.000 Mitsubishi L200 2.115.000 Honda Accord 2.119.000 Hyundai Coupé 2.170.000 Mitsubishi Space Wagon 2.180.000 Saab 9-3 2.180.000 Toyota Celica 2.190.000 Kia Camival 2.198.000 Subaru Forester 2.200.000 Isuzu pickup 2.225.000 Honda CR-V 2.230.000 Nissan Terrano II 2.265.000 Ford Ranger 2.290.000 Galloper 2.290.000 Toyota Hiace 2.299.000 Toyota Hilux DC 2.340.000 Land Rover Freelander 2.398.000 Hyundai Starex 2.468.000 Volkswagen Caravelle ........... .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.