Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2000, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2000
DV
5
Fréttir
Jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar:
Níu milljónir á fjölskyldu
- göng milli Fáskrúdsfjardar og Reyðarfjarðar kosta 18 milljónir á fjölskyldu
Hagkvæmni vegaframkvæmda
má reikna á mismunandi vegu en
oftar en ekki eru góðar vegasam-
göngur þó taldar ein helsta forsenda
byggðar víða um land.
í nútímaþjóðfélagi þýðir ekki
lengur að bjóða fólki upp á einangr-
un eins og áður þótti ekkert tiltöku-
mál. Þá voru samgöngur á sjó og
síðar með sjóflugvélum oft eina
tenging stórra byggðarlaga við um-
heiminn. Við slíkt sættir fólk sig
ekki lengur og flytur frekar á brott
en að láta fjötra sig í slíka einangr-
un. Pólitíkusar hafa þó ekki treyst
sér til að ákveða líf og dauða byggð-
arlaga út frá ísköldum hagkvæmnis-
forsendum. Því hefur þróun í vega-
gerðartækni verið gripin fegins
hendi og ekki þykir lengur þrek-
virki að bora göng í gegnum fjöll og
jafnvel undir hafsbotninn.
Til að reyna að spyrna gegn fólks-
flótta af landsbyggðinni og efla
möguleika byggðarlaga til aukinna
samskipta á atvinnusviði hefur nú
m.a. verið ákveðið að veita níu
milljarða króna aukið framlag til
vegagerðar fram til 2004. Jarðgöng
fyrir vestan, norðan og austan eru
meðal þeirra verkefna sem njóta
góðs af þessari aukningu. Þar er
m.a. ætlunin að styrkja og vegteng-
ingu Siglfirðinga við Ólafsfjörð með
jarðgöngum upp á 5,3 milljarða
króna.
Hagkvæmni slíkra framkvæmda
getur verið snúið að meta og þar
kemur m.a. til hinn félagslegi þáttur
sem erfitt er að verðleggja. Út frá
tölulegum staðreyndum má þó velta
upp ýmsum spurningum sem enn er
ósvarað. Það mætti t.d. leggja þá
spurningu upp við Siglfirðinga
hvort þeir myndu heldur kjósa að fá
aura í vasann til að flytja á brott í
stað jarðganga til Ólafsfjarðar.
íbúar á Siglufirði voru sam-
kvæmt tölum Hagstofu íslands 1.561
þann 1. desember sl. Ef þessum 5.300
milljónum króna yrði úthlutað til
íbúa Siglufjarðar og þeim gert að
flytja sig til „hagkvæmari" svæða
þá væri það drjúgur peningur í vas-
ann. Þannig fengi hver einasti íbúi
Siglufjarðar 2.242.152 krónur í flutn-
ingsstyrk, eða 8.968.608 krónur á
hverja fjögurra manna fjölskyldu. Á
síðasta ári hefði slík upphæð t.d.
dugað fyrir góðri fjögiura herbergja
íbúð í Breiðholtinu í Reykjavík.
Ef 655 íbúum Fáskrúðsijarðar
yrði á sama hátt boðið að flytja I
stað þess að fá til sin göng frá Reyð-
arfirði þá fengi hver þeirra 4.580.152
krónur í sinn hlut. Það gerir
18.320.608 krónur í flutningsstyrk
fyrir hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu. Það sem gerir Fáskrúðs-
fjarðardæmið kannski dálítið öðru-
vísi en Siglufjarðardæmið er að
Siglufjörður er endastöð í vegakerf-
inu en göng til Fáskrúðsfjarðar
nýttust fleiri byggðarlögum bæði
sunnan og norðan fjarðarins.
-HKr.
Siglfiröingar fá jarðgöng
Flutningsstyrkur í staö þess að bora gat til Ólafsfjaröar gæti veriö álitlegur peningur.
DV-MYNDIR SIGURÐUR K. HJALMARSSON
Helgileikur grunnskólanema
Elstu nemendur Grunnskóla Mýrdalshrepps sýna hér helgileik á Kristnihátíð í
félagsheimilinu Leikskálum í Vík.
Elsti íbúinn mætti
Kristnihátíðargestir, taliö frá vinstri, Grétar Einarsson meö son sinn Fjöini og
langamma Fjölnis, Þorgeröur Einarsdóttir frá Þórisholti í Mýrdal sem dvelur
nú á Dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík. Hún er elsti íbúi Mýrdalshrepps, 99 ára
gömul.
Upphaf kristnihátíðar
DV. VÍK í MÝRDAL:
Upphaf Kristnihátíðar í Mýrdal
hófst fyrir skömmu með messu i
Vikurkirkju. Ungir jafnt sem aldnir
sóttu hátíðardagskrá í félagsheimil-
inu Leikskálum og þar voru ríku-
legar kafflveitingar í boði kirkju-
sókna og fyrirtækja í Mýrdal.
Séra Haraldur M. Kristjánsson
setti hátíðina og Kolbrún Hjörleifs-
dóttir skólastjóri opnaði myndlist-
arsýningu bama úr Leikskólanum í
Suður-Vík og Grunnskóla Mýrdals-
hrepps.
Raforkubændur hafa sótt um leyfi til að framleiða og selja raforku:
Vilja virkja á land-
areignum sínum
- von á að fá grænt ljós á framkvæmdir í næsta mánuði
Raforkubændur er hópur bænda
á landsvísu sem eiga aðgang að
vatnsföflum á landareignum í
sinni eigu. Undanfarin misseri
hefur Landsamband raforku-
bænda reifað hugmyndir sínar við
fufltrúa RARIK, löggfldingarstofu,
Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands
og fleiri aðila um að framleiða
orku með litlum rafstöðum bæði
til einkaneyslu og almennrar sölu.
Gera raforkubændur sér vonir um
að fá aðgang að almennu dreifi-
kerfi Landsvirkjunar verði sam-
keppni í raforkuiðnaði gefin frjáls.
Hér á landi eru nú þegar á annað
hundrað rafstöðvar sem framleiða
raforku til einkaneyslu en í Noregi
og Svíþjóð hafa menn stigið skrefið
til fufls og þar geta bændur nú bæði
framleitt og selt raforku.
I samtali DV við Ólaf Eggertsson
bónda á Þorvaldseyri kom fram að
ef leyfi til að selja raforku hér á
landi fengist myndi það skipta sköp-
um fyrir dreifðari byggðir landsins.
Samkvæmt úttekt sem raforku-
bændur hafa látið gera yrði stofn-
kostnaður við virkjunina allt að
helmingi lægri hjá þeim en hjá
stóru raforkuverunum. Að auki
yrði rekstrarkostnaður í lágmarki.
Nú í sumar verður þremur virkj-
unum hleypt af stokkunum í til-
raunaskyni og þá verður hugað að
ýmsum öryggisþáttum og hvort
virkjanirnar uppfyUi öll skilyrði
sem vænst er af þeim. Ef aflt geng-
ur að óskum eiga bændur aflt eins
von á því að virkjanaleyfi verði gef-
ið út í næsta mánuði.
-KGP
Stéttarfélagið Samstaða:
Lægstu laun fara
í 100 þúsund
DV, AKUREYRI:_____________________
„Við erum búin að gera hér á bUinu
20 tU 30 vinnustaðasamninga og fleiri
eru í farvatninu," segir Valdimar
Guðmannsson, formaður stéttarfélags-
ins Samstöðu í Húnavatnssýslum, en
þar hefur verkfaUi sem hefjast átti sl.
sunnudagskvöld verið aflýst. Hjá
Samstöðu var VMSÍ-samningurinn
feUdur og síðar einnig annar samn-
ingur sem gerður var í kjölfarið við
Samtök atvinnulifsins.
Valdimar segir að það sé gnmd-
vaUaratriði í þeim vinnustaðasamn-
ingum sem gerðir hafa verið heima
í héraði að laun hækki meira um
þrenn næstu áramót en í öðrum
samningum og verði grunnlaun því
orðin 100 þúsund krónur í janúar
2003 á móti 193 þúsundum hjá þeim
sem samþykktu VMSÍ-samninginn.
Samninganefnd Samstöðu hefur
lýst yfir miklum vonbrigðum með
að ekki tókst fara fram með sameig-
inlega kröfu ófaglærðra starfs-
manna hjá þeim stéttarfélögum sem
aðUd eiga að ASÍ og segir samninga-
nefhdin að forusta hreyfingarinnar
skuldi verkafólki skýringu á þeirri
ákvörðun sem leiddi tU mun lægri
kjarasamninga tU handa þeim lægst
launuðu í landinu en væntanlega
hefði náðst með sameiginlegu átaki.
-gk
Valdimar Guðmannsson
„Lægstu laun hjá okkur fara í 100
þúsund krónur. “