Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2000
DV
Fréttir
9
Vegamálin á norðausturhorninu í miklum ólestri:
Niðurlægjandi
fyrir íbúana
- segir stjórn Ferðamálafélagsins Súlunnar á Þórshöfn
DV, AKUREYRI:______________________
„Færa má rök fyrir því að nú-
verandi ástand vega reisi skorður
við eflingu ferðaþjónustu, einkum
með tilliti til skipulagðra ferða,“
segir í ályktun aðalfundar Ferða-
málafélagsins Súlunnar á Þórs-
höfn, en þar var sérstaklega
ályktað um samgöngumál vegna
slæms ástands vega á norðaustur-
hominu utan við hringveginn
sjálfan.
í ályktuninni er skorað á stjóm-
völd að hraða framkvæmdum við
uppbyggingu vega á norðaustur-
landi og að einskis verði látið
ófreistað til að svo megi verða. Þar
segir að færa megi rök fyrir því að
núverandi ástand vega reisi skorð-
ur við eflingu ferðaþjónustu. Sem
dæmi megi nefna að aðalsam-
gönguleið íbúa Þórshafnar til Ak-
ureyrar að sumri sé um Öxarfjarð-
arheiði en veginum um heiðina
hafl lítt eða ekkert verið haldið við
frá því hann var lagður, árið 1940!
Leiðin um Melrakkasléttu sé 70 km
lengri, þar sé lélegur vegur sem
þurfi að aka átta mánuði á ári.
„Á sama tíma og ferðamannaiðn-
aðurinn hefur á sl. árum verið
helsti vaxtarbroddur islensks efna-
hagslífs fær svæði eins og okkar
hvergi notið sín m.t.t. hinna
ómögulegu vegasamgangna og
samkeppnisaðstaðan versnar ár
frá ári. Með framansagt í huga
skorar stjóm Ferðamálafélagsins
Súlunnar á stjórnvöld að til að-
gerða verði gripið, enda ekki ein-
ungis um brýnt mál að ræða, held-
ur er ástandið beinlínis niöurlægj-
andi fyrir ibúa norðausturlands,“
segir í ályktuninni.
-gk
Fyrstu verkin í stóru ferli
Krakkarnir sjálfir tóku fyrstu skóflustungurnar, margar skóflustungur, og eftir örfáa mánuöi verður þarna komiö mikiö
mannvirki, fullkominn leikskóli barnanna í bænum.
Einkarekinn leikskóli rís fyrir áramót:
Biðlistar blásnir burtu
DV, GRINDAVIK:________________________
Stór og myndarlegur hópur leik-
skólabarna tók fyrstu skóflustung-
umar að nýjum einkareknum leik-
skóla í Grindavík á dögunum.
Byggingu hússins á að ljúka fyrir
áramót og mun hýsa 110 til 120
böm. Þá verður loksins hægt að
bjóða öllum bömum bæjarins á
aldrinum 2 til 6 ára leikskólapláss.
Jafnvel er möguleiki á að taka á
móti börnum frá 18 mánaða aldri
en það fer eftir skiptingu heils-
dags- og hálfsdagsplássa. Mikill
skortur hefur verið á leikskóla-
plássum í bænum og börn oft kom-
in vel á þriðja ár þegar þau hafa
komist í leikskólann, enda hefur
uppbygging verið mikil og fólki
fjölgað mjög í bænum.
Bygging og rekstur leikskólans
er með öðru sniði en tíðkast hefur.
Um er að ræða einkaframkvæmd.
Fyrirtækið ístak byggir húsnæðið
en fyrirtækið Nýsir er eigandi
þess og gerir þjónustusamning við
Grindavíkurbæ. ístak og ráðgjaf-
arþjónustan Nýsir munu sjá um
allan rekstur á húsnæði, lóð og
tækjum, en Grindavíkurbær leigir
alla aðstöðu og greiðir starfsfólki
laun.
Samningurinn er gerður til 24
ára og greiðir bærinn 23 milljónir
króna á ári fyrir þjónustuna. Bæj-
aryfirvöld telja að þetta sé mun
hagkvæmara rekstarform en að
byggja og reka eigin leikskóla.
-ÞGK
Fimmtán sprenglærðir bú-
fræðingar frá Hvanneyri
DV, HVANNEYRI:______________________
Bændadeild Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri var slitið síðastlið-
inn fóstudag. Á þessu skólaári innrit-
uðust 84 nemendur til náms. Af þeim
innrituðust 36 í reglulegt nám við
bændadeildir skólans og 24 í fjarnám
í búfræði og 16 í búvísindadeild. Af
nemendum bændadeilda var 21 innrit-
aður í 1. bekk á haustönn og luku 19
nemendur prófum og síðan hafa 9
nemendur innritast til námsdvalar nú
í vetur og er allmikið spurst fyrir um
búfræðinámið. 15 nemendur voru inn-
ritaðir í 2. bekk. Af 24 nemendum sem
innrituðust í fjarnámið gengu 17 upp
til prófa sem nú standa yfir.
Nú útskrifuðust 15 búfræðingar eða
allir þeir nemendur sem hófu nám í 2.
bekk á síðasta ári. Bestum árangri á
búfræðiprófi náði Siguijón Þorsteins-
son sem fékk 9,5 í aðaleinkunn, Sig-
urður Þ. Guðmundsson og Hallfríður
Ólafsdóttir fengu 8,5. -DVÓ
DV-MYND DANIEL V. OLAFSSON
Til þjónustu reiöubúin
Fimmtán nýútskrifaöir og sprengiæröir búfræöingar eru hér ásamt Magnúsi
Jónssyni, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, á hátíölegri stundu.
SÖFNUNARSJDÐUR
LÍFEYRI S RÉTTI n da
Ársfundur
2000
Arsfundur Söfnunarsjóás lífeynsréttinda veráur
haldinn í Fundar og ráástefnusölum ríkisins
Borgartúni 6, í sal 2 á 4. hæá, Reyhjavíh,
miávihudaginn 17. maí 2000 og hefst hl. 16.00.
Dagsk rá funá arins er:
1. Flutt skýrsla stjómar.
2. Sam Jryhkt ir Söfnunarsjóásins.
3. Kynntur ársreihningur.
4. Gerá grein fyrir tryggingafræáilegri útteht.
5. Fjárfestingastefna sjóásins shýrá.
6. Onnur mál.
Alli r sjóáfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisjtegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjorn
Söfnljnarsjóðs lífeyrisréttinda
Smáauglýsingar
atvinna
550 5000
www.brimborg.is
brimborgar
Renault Traffic 2,201/96
5 g., 5 d., hvítur, ek. 80 þús.km, framdrif.
Verð 1.190.000 Tilboð 950.000
Daihatsu Cuore 1,0 09/99
Ssk., 5 d., rauður, ek. 2 þús.km, framdrif.
Verð 900.000
Ford Focus 1,6 03/99
5 g., 5 d., silfurl., ek. 20 þús.km, framdrif.
Verð 1.400.000
Ford Puma 1,4 04/99
5 g., 3 d., silfurl., ek. 13 þús.km, framdrif.
Verð 1.570.000
Subaru Legacy 2,0 04/99
Ssk., 5 d., vínrauður, ek. 18 þús.km, 4x4.
Verð 1.970.000
Daihatsu Sirion 1,011/98
Ssk., 5 d., grænn, ek. 8 þús.km, framdrif.
Verð 1.030.000
Toyota Corolla 1,3 06/95
5 g., 4 d., silfur, ek. 75 þús.km, framdrif.
Verð 830.000 Tilboð 690.000
Renault Megané 1,611/96
Ssk., 5 d., vínrauður, ek. 60 þús.km, framdrif.
Verð 1.050.000 Tilboð 950.000
Q,
brimborg
Reykjavik • Akureyrl
Opið laugardaga 11-16