Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2000, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2000
Skoðun
En hvað var nú þetta?
- „Pariö var í tötrum, það birtist eins og útigangsmenn. “
Eurovision-laginu
— klúðrað af Sjónvarpinu
Spurning dagsins
Ætlarðu að fylgjast með
keppninni Ungfrú ísland?
Torfi Geir Hilmarsson, 13 ára:
Ég er ekki viss, en þær eru voöa
sætar allar.
Björn Þór Ingason, 14 ára:
Ef ég verö heima þá geri ég þaö.
Þetta eru allt svaka gellur.
Sigurgísli Júlíusson, 13 ára:
Já, eflaust, þær eru allar
voöa flottar.
Atli Már Gylfason nemi:
Já, þaö ætla ég aö gera. Þetta eru
allt flottar stelpur.
Steinar Davíð Ásgeirsson nemi:
Já, þetta eru allt flottar stelpur í ár.
Björgvin Árnason nemi:
Auövitaö, þetta eru flottar gellur.
Jónas Hallgrímsson
skrifar:
Þjóðin sameinaðist enn einu sinni
sl. laugardagskvöld til að horfa á
„Eurovision" og til að fagna fram-
gangi íslenska lagsins „Tell Me“.
Menn höfðu spáð og spekúlerað.
„Mömmu dreymdi níunda sætið“,
sagði í fyrirsögn í blaði og aðra
konu dreymdi fyrir tólfta sæti. - Við
erum nú ekki heilbrigðir, Islending-
ar, að hafa svona eftir. Eða hvað?
Auðvitað er þessi keppni bara
græskulaust gaman og afþreying og
þannig á hún líka að vera. Við þurf-
um ekki að leggjast í draumfarir, án
þess aö maður ráði svo sem hvað
mann dreymir.
Gott og vel, við settumst við tækin
allir sem einn og horfðum og horfð-
um. Og lögin komu hvert af öðru. ís-
lenska lagið líka. Ég var einn þeirra
sem spáði því velgengni. Lagið var
gott og stóð framar mörgum öðrum
lögum þama. Og flutningurinn var
prýðilegur hjá söngparinu og bak-
röddunum.
Oskar Sigurösson
s krifar:___________________________
Það ætlar ekki af okkur að ganga
þegar kemur aö efnahagsmálunum.
Nú höfum við búið við góðæri og
lága verðbólgu um nokkurt skeið.
Allir hrósa happi og þjóðin hefur
sjaldan lifað lengra samfellt hag-
sældarskeið. Við bjuggum við lágt
mat á gjaldmiölinum um áratuga-
skeið og gengisfellingar eftir pöntun
frá fiskvinnslufyrirtækjum. - Þetta
er aö baki.
En það eru ekki allir á því að
þetta góðæri skuli endast. Og heldur
ekki á því að gjaldmiðillinn styrkist
- og alls ekki of mikið! Nú eru
komnir grátkórar úr flestum at-
„Fylgist Sjónvarpið ekkert
með tímanum eða lœtur það
hönnuðum stöðnuðum í
œskudýrkun á óróaseggjum
eftir að hengja einhverjar
druslur utan á skemmti-
krafta á vegum þess?“
En hvað var nú þetta? Parið var í
tötrum, það birtist eins og útigangs-
menn. Söngvarinn tattóveraður og í
einhverju pilsi. Átti þetta að vera
kósakkapils, eða var hér aöeins um
að ræða þennan „einfalda smekk"
sem svo ríkulega hefur búið um sig í
huga margra íslendinga? Því druslu-
legri til fara, þeim mun betri árang-
ur í starfi og leik?
Allir aðrir sem komu fram í
keppninni voru vel til hafðir, í sínu
„finasta". Danimir, við aldur, komu,
sungu og sigruðu og voru í nokkuð
hefðbundnum jakkafotum! Hver stóð
að þessari ákvörðun um klæðnað
„Er nú ekki tími til kom-
inn að fyrirtœki þessi, bœði
í sjávarútvegi og ferðaþjón-
ustu, noti niðurskurðar-
hnífinn á sig sjálf. Byrji á
því að lœkka laun hátekju-
höfðingjanna við stjómvöl-
inn ífyrirtœkjunum?“
vinnugreinum, einkum þeim sem
tjasla saman einhverju til útflutn-
ings. Þeir krefjast þess að krónan,
sem er að verða að alvöru gjald-
miðli, verði rýrð hiö bráðasta. Sem
unga söngparsins? Það hlýtur að
skrifast á Sjónvarpið, þetta gelda
apparat sem hefur fengið að ganga
sjálfala, allt frá að Vilhjálmur Þ.
skrúfaði frá bununni í árdaga.
Fylgist Sjónvarpið ekkert með tíman-
um eða lætur það hönnuðum stöðn-
uðum 1 æskudýrkun á óróaseggjum
eftir að hengja einhverjar druslur
utan á skemmtikrafta á vegum þess?
- Á Sjónvarpið verður líka að skrifa
210 sekúndna myrkur sem eyðilagði
að hluta til áhorf okkar íslendinga í
miðjum klíðum.
Ég legg nú til - nei, ég krefst þess,
að Sjónvarpið verði lagt niður, það er
örvasa öldungur og þjónar engu hlut-
verki lengur. Nú er komin fram
miklu betri lausn á þessari tegund
ljósvakamiðla. Menntamálaráðherra
á að þekkja sinn vitjunartíma í þessu
efni. Gjaldskylda á landsvísu fyrir
Sjónvarpið og Rás 2 flokkast undir
opinber hermdarverk. - Og sumt er
einfaldlega ekki við hæfi. Eins og t.d.
nauðungaráskrift að fjölmiðli og tötr-
um klæddir skemmtikraftar.
sé; við fáum okkar veröbólgu og vol-
æði eins og endranær. Grátkóramir
og stjómendur þeirra eru komnir á
svið. ámátlegir og klökkir og heimta
niðurskurð góðærisins.
En þeir em klókir. Þeir segja: hér
er ekki krafa um „gengisfellingu"
heldur að , jafnvægi" komist á í hag-
kerfinu því það er „tilkostnaður-
inn“ sem fer hækkandi. Er nú ekki
tími til kominn að fyrirtæki þessi,
bæði í sjávarútvegi og ferðaþjón-
ustu, noti niðurskurðarhnífinn á sig
sjálf. Byrji á því að lækka laun há-
tekjuhöfðingjanna við stjómvölinn í
fyrirtækjunum? - Við munum sann-
arlega fá verðbólguna og volæðið ef
við biðjum um það. Allir sem einn.
Viljum verðbólgu og volæði
Dagfari
Björk stendur við samninginn
Landar Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu, og
nú kvikmyndastjörnu, hafa fæstir skilið hana. Víst
var hún þekkt en lögin hennar vora flókin og erfltt
að raula með. Það syngur enginn lög Bjarkar í
rútubílum eða partíum. Hún er í annarri vidd en
fjöldinn og gildir þá einu hvort rætt er um
raddsviðið eða lífsmátann almennt.
Það var ekki fyrr en Björk „meikaði" það í út-
löndum að hún varð okkar, almenningseign á ís-
landi. Þótt við næðum ekki lögunum sáum við að
útlendu sérfræðingarnir tóku henni og því sem
hún var að gera opnum örmum. Þeim treystum við
betur en eigin tóneyra. List hennar hlaut að vera
stórkostleg fyrst þeir sögðu það.
Frægðin kemur að utan og það átti svo sannar-
lega við um Björk. Margir hérlendir tónlistarmenn
hafa ætlað sér heimsfrægð með litlum árangri.
Björk ætlaði sér hins vegar enga frægð. Hún vildi
aðeins sinna tónlist sinni við bestu aðstæður.
Frægðin var eins konar fylgifiskur sem gladdi
söngkonuna ekkert tiltakanlega. Hún vildi lifa
ótrufluð eigin lifi en það reynist oft erfitt þeim
sem lengst ná.
í list sinni og lífi er Björk í senn framleg og
fúrðuleg. Það þykjumst við vita, landar hennar.
Það vita lika þeir sem fýlgjast með í heimi popps-
ins. Þessum frumleika og um leið stríðu tilfinning-
Hún veit sem er að hún uppfyllir
best samningsbundin loforð um
kynningu myndarinnar með því að
mceta alls ekki á frumsýningu.
um hefur danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von
Trier nú fengið að kynnast. Björk leikur aðalhlut-
verk í mynd hans, Dancer in the Dark, sem kepp-
ir um æðstu verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Á ýmsu mun hafa gengið meðan á tökum
stóð. Þar mættust stálin stinn þegar tveimur list-
rænum sérvitringum var gert að vinna saman.
Þær fréttir berast nú frá Danaveldi að Björk hafi
í samningi fallist á að kynna myndina, láta sjá sig
með öðrum stjömum og veita viðtöl. Þessu sósíal-
lífi neitar Björk og segja dönsk blöð frá því að
söngkonan sé gersamlega laus við að hafa áhuga á
að aðstoða leikstjóra og framleiðendur myndarinn-
ar við að koma henni á framfæri.
Þama er líkt á komið með danskri alþýðu nú og
var meðal landa Bjarkar í árdaga söngferils henn-
ar. Danimir hafa engan skilning á hugarheimi
listakonunnar. Hún veit, sem er, að hún uppfyllir
best samningsbundin loforð um kynningu myndar-
innar með því að mæta alls ekki á frumsýningu.
Með þvi að gefa skít í myndina, leikstjórann og
alla sem að komu vekur hún um leið feiknaathygli
á myndinni. Áhorfendur munu því þyrpast á mynd-
ina til þess að sjá leikafrek þessarar skiýtnu konu.
Kvikmynd Lars von Triers er því borgið. Svo er
Björk fyrir að þakka. „
Háskólinn og
einkaframtaúkið
Selma hringdi:
Ég er hissa á
hve fáir einkaðilar
sem þó hafa yfir
miklum fjármun-
um að ráða eru lít-
ið áberandi í
menntakerfi okk-
ar. í Reykjavíkur-
bréfi Mbl. er
minnst á Háskól-
ann og skólagjöld-
in. Þar er getið
eins manns, Gunnars Björgvinssonar
í Lichtenstein, sem geflð hefur fjár-
muni til að stofna kennarastöðu í
frumkvöðlafræðum við Háskólann.
Fleiri íslendingar hafa komið við
sögu á svipaðan hátt og stofnað sjóði,
t.d. til styrktar efnilegum nemendum.
Ég minnist t.d. Sigurliða heitins
Kristjánssonar (annar eigandi Silla
og Valda) og konu hans sem stofnuðu
slíkan sjóð. Hvar era nýríku ofurhug-
ar nútímas hér á landi? Hvað með
milljarðamanninn úr Samherja og
fleiri slíka? Er einkaframtakið ekki
betur stætt eftir allt?
Stimpluö
Samfylking
Ágústa Ólafsdóttir hringdi:
Ég vil taka undir prýðisgóðan leið-
ara IDV sl. laugardag undir yfirskrift-
inni „Frímerktur flokkur" þar sem
innihaldið er aðallega hin stórfurðu-
lega afstaða Samfylkingarinnar að
verja stuld á póststimpli Alþingis á
um 16 þúsund sendibréf. Stjórnmála-
flokkur sem vill hafa það á bakinu að
stimpla sig inn í þjóðarvitundina á
þennan hátt í upphafi göngu sinnar
sem nýr flokkur verður varla langlíf-
ur. Þetta er með furðulegri pólitiskum
fyrirbærum hér á landi í seinni tíð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
Inga Jóna Þórðardóttir.
En veröa þær í framboöi?
Hvorug marktæk
Kjartan Sigurðsson skrifar:
Ég heyrði á tal þeirra Ingibjargar
Sólrúnar borgarstjóra og Ingu Jónu
Þórðardóttur, oddvita sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm, i þætti Egils
Helgasonar sl. sunnudag. Þar var
minnst á Reykjavíkurflugvöll í lokin
og i máflutningi þeirra beggja kom
fram staðfesting á því að þær vildu að
flugvöllurinn yrði hér til ársins 2016.
Þetta hefur ekki verið staðfest af þess-
um konum áður. Þá veit maður það.
Hvað þá á að taka við í innanlandsflug-
inu vegna landsbyggðarfólksins sem
þessar stjórnmálakonur virðast fyrst
og fremst bera umsorgun fyrir kom
ekki fram hjá þeim. Hitt veit ég, þær
kýs ég ekki til stjómunarstarfa fyrir
Reykjavíkurborg úr þvi sem komið er.
Forsetinn betur
settur
Steingrímur Sigurðsson skrifar:
Enginn vafi er á því að forsetinn
okkar er miklu betur settur með
þeirri breytingu sem nú er búið að
gera á skattreglum hans. Með því er
hann loks orðinn fremstur meðal
jafningja og hefur auk þess rýmra
svið til sjálfsákvarðana en áður. Ég
er ekki viss um nema þessi breyting
sé einmitt að undirlagi hans sjálfs,
sem er líka skiljanlegt. Bara að allir
„hinir“ fari ekki fram á endurskoð-
un sinna launa því þá er allt unnið
fyrir gýg og kjarasamningar upp í
loft með meiru.
wszamm*.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Gunnar
Björgvinsson
í Uchtenstein
Hefur sannaö
gildi auösins.