Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2000, Side 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað f DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
f hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2000
Faðir Bjarkar:
Yrði ekki
hissa þó
að Björk
hætti við
„Björk hefur sagt það við okkur
innan fjölskyldunnar að hún verði
meira og minna frá næstu mánuðina
við kynningu á myndinni víðs vegar
um heimsbyggðina. Ég yrði hins veg-
ar ekki undrandi -
eftir því sem ég
þekki skapferli
Bjarkar - að eftir
þessar uppákomur
undanfarna daga
þá muni hún ein-
faldlega gefa því
langt líf,“ sagði
Guðmundur
Gunnarsson, faðir
söngkonunnar Bjarkar, við DV í
morgun.
Guðmundur segir að frétt Jylland-
sposten i fyrrakvöld þar sem m.a. er
greint frá því að heimildamynd um
kvikmyndina Dancer in the Dark, sé
i uppnámi vegna viðkvæmra atriða
um Björk sé „útspil framleiðanda
kvikmyndarinnar" - útspil sem hann
verði ekki hissa á að verði til þess að
Björk dragi sig jafnvel til baka frá
áður umsömdum kynningum í sum-
» ar-
Mia Elming, talsmaður kvikmynda-
fyrirtækisins Zentropa, sem framleið-
ir Dancer in the Dark, er stödd í
Cannes þar sem myndin verður frum-
sýnd í dag. Hún sagði við DV í morg-
un að hún vissi ekki hvort Björk
myndi mæta á blaðamannafund sem
fram fór eftir að DV fór í prentun.
Varðandi það hvort Björk myndi
mæta á blaðamannafundi sagði Guð-
mundur, faðir Bjarkar, að Einar Öm
Bendediktsson, kynningarfulltrúi
hennar, hefði farið gagngert til Cann-
es með söngkonunni til að vera við-
staddur blaðamannafundi með henni.
-Ótt
Hellissandur:
^ Húsbranntil
kaldra kola
Gamalt tvilyft steinhús á Hell-
issandi brann til kaldra kola í morg-
un. Húsið, sem stóð við Hellisbraut
9, var notað sem sumarhús og var
mannlaust þegar eldurinn kviknaði.
Slökkviliðið og lögreglan í Ólafs-
vík voru kölluð á staðinn rétt eftir
klukkan 4.30 í morgun og var húsið
þá alelda. Húsiö var læst svo
slökkviliðið þurfti að brjótast inn til
þess að slökkva eldinn og gekk það
greiölega. Engin slys urðu á fólki en
húsið er ónýtt. Ékki er búið að
rannsaka upptök eldsins, en líklegt
er talið að kviknað hafi í út frá raf-
magni. -SMK
Boginn spenntur
Davíð Oddsson spennir bogann til hins ýtrasta í Logarska-dalnum í Slóveníu þar sem hann er í opinberri heimsókn. Meö honum erJanez Drnovsek,
forsætisráöherra Slóveníu.
Hannover dreginn til Reykjavíkur í morgun:
Reykkafarar búnir
eiturefnamælum
- um borð ásamt hafnsögumanni, skipstjóra, vélstjóra og fulltrúum eigenda
Grænlenski togarinn Polar
Nanortalik kom með þýska frysti-
togarann Hannover i togi inn á ytri
höfnina í Reykjavík á áttunda tím-
anum í morgun.
Menn frá slökkviliði Reykjavikur
sigldu á móti skipunum og fóru um
borð í Hannover til að kanna
ástandið ásamt hafnsögumanni.
Með þeim voru vélstjóri og skip-
stjóri af Hannover og fulltrúar eig-
enda skipsins.
Þegar skipverjar yflrgáfu
Hannover, áður Guðbjörgu ÍS 46,
um kl. 7 á mánudagsmorgun var öll-
um dyrum og lúgum skipsins lokað.
Þá mun enn hafa verið mikill hiti
og reykur í skipinu. I gær lagði eng-
an sjáanlegan reyk frá skipinu og
því var talið líklegt að eldurinn
væri kulnaður. Slökkviliðsmenn
höfðu þó allan vara á og voru vel
búnir reykköfunartækjum og efna-
mælitækjum til að mæla hugsanleg-
ar eiturgufur um borð. Ekki voru
sjáanlegar skemmdir á ytra birgði
skipsins, eigi að síður er talið að
skemmdir inni í skipinu séu um-
talsverðar.
Að sögn Jóns Viðars Matthiasson-
ar varaslökkviliðsstjóra voru enn
glæður í vélarrúmi skipsins þegar
slökkviliðsmenn fóru þar niður. Þó
var enginn meiriháttar eldur. Hann
sagði menn hafa viljað þaulkanna
aðstæður um borð áður en komið
væri með Hannover að hafnarbakk-
anum.
Upptök eldsvoðans verða ná-
kvæmlega rannsökuð en þar sem
togarinn er nú skráður í Þýskalandi
þarf það að gerast í náinni sam-
vinnu við þarlend yfirvöld.
-HKr.
DVWND S.
Reykjavíkurhöfn í morgun
Slökkviliösmenn sigldu á hafnsögubát til móts viö Hannover.
Ásólfsstaðir í Þjórsárdal:
Stríðsástand í sumarparadís
- bóndi heftir för 60 hjólhýsaeigenda
Bóndinn á Ásólfsstöðum í Þjórs-
árdal hefti for 60 hjólhýsaeigenda
sem ætluðu að njóta vorblíðunnar í
sumarparadís sinni í Þjórsárdal
um síðustu helgi. Um miðnætti á
laugardaginn hóf bóndinn að grafa
holu í jörð sína við veginn sem
liggur að leigulóðum hjólhýsaeig-
endanna sem eru í landi Skógrækt-
arinnar. Bóndinn gróf fram eftir
nóttu og myndaðist við það haugur
á veginum sem lokaði fyrir alla
umferð.
„Við þurftum að kalla til lög-
reglu því við gátum ekki yfirgefið
bústaði okkar á sunnudaginn
vegna haugs bóndans. Hér var
alltaf friður og gott veður en nú
ríkir striðsástand vegna aðgerða
bóndans á Ásólfsstöðum sem legg-
ur okkur í einelti," sagði einn hjól-
hýsaeigandinn sem ekki vildi láta
nafns sins getið vegna þess við-
kvæma ástands sem skapast hefur í
Þjórsárdal. „Þegar lögreglan kom
með gröfu frá hreppnum til að fjar-
lægja hauginn kom bóndinn
askvaðandi og lagði blátt bann við
að haugnum yrði aftur mokað ofan
í holuna því hann ætti holuna og
réði því hvort hún væri eða færi.“
í landi Skógræktarinnar við Ás-
ólfsstaði i Þjórsárdal eru 125 jarð-
fost hjólhýsi. Hreppsnefndin hefur
nú ákveðið að glerhýsi sem reist
hafa verið við gafla margra hjól-
hýsanna verði að hverfa og hafa
eigendumir ákveðinn frest til að
verða við þeirri samþykkt hrepps-
nefndarinnar. Þá mun framtíð hjól-
hýsanna í Þjórsárdal vera í óvissu
vegna stöðugrar rimmu sem er á
milli bóndans á Ásólfsstöðum og
hjólhýsaeigendanna.
-EIR
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI