Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 Fréttir Tíð umferðarslys og óhöpp vekja spurningar: Meira en lítiö að - segir Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðaráðs Mörg dauðsföll ferðamanna Fleiri útlendingar hafa látist i umferðinni undanfarið en saman- lagt í mörg ár. Ferðaþjónustan lýsir yfir miklum áhyggjum. Fimm er- lendir ferðamenn hafa á skömmum tíma látist í slysum hér á landi, íjór- ir í bílslysum og einn á vélsleða. Dagur sagði frá. Undanfarnar vik- ur hafa alvarleg umferðarslys verið mjög áberandi hér á landi og fjöldi lát- inna á árinu er nú orðinn 2. í sumar hefur íjöldi óhappa og slysa þar sem rútur og stærri bíl- ar koma við sögu vakið sérstaka athygli og nú síðast þegar lá við stórslysi í rútu sem lenti í Jökulsá á Fjöllum. Þar var ekið inn á lokaðan vegarkafla vegna þess að bílstjóri taldi það óhætt. Ýmsar spumingar vakna í þessu sambandi og þá þá m.a. hvemig ökukennslu er háttað, ekki síst varðandi meirapróf. Óli H. Þórðar- son, framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs, segir að þar á bæ hafi menn einmitt verið að spyrja þessara sömu spuminga og hvort nægilega sé brýnt fyrir ökumönnum hvemig meta eigi aðstæður. „Við höfum eftirlit með þeim skólum sem kenna til aukinna öku- réttinda. Við munum nú taka sam- an hvemig þessu er háttað og ná- kvæmlega hvemig staðið er að öku- kennslunni. Ef við sjáum þar ein- hvem Akkilesarhæl, þá verður að bæta úr því. Það er mikill vilji hér innan Umferðarráðs að taka á þess- um málum og skoða hvað hefur virkilega farið úrskeiðis. Maður spyr sig: er ef til vill eitthvað sem ekki hefur verið gert rétt í undir- búningi og öðm? Á móti kemur að í hópi þeirra ökumanna sem hafa verið að lenda í slysum og óhöppum eru þrautreyndir bílstjórar. Þetta eru ekki allt menn sem nýkomnir eru úr ökunámi. Við ætlum okkur aö skoða þá þætti sem víð getum haft áhrif á. Það er eitthvað meira en lítið að þegar þarf að taka menn á miðjum aldri fyrir aö aka á 162 km hraða eftir öll þessi slys úti á vegum landsins." -HKr. Grænmeti hverfur úr skólagörðum barnanna í Breiðholtinu: Fullorðnir stela uppskeru barna - ömurlegt, segir leiðbeinandi barnanna Ferðamenn veltu bíl: Banaslys í Þorskafirði Banaslys varð i Þorskafirði skömmu fyrir klukkan þrjú í gær þegar fólksbíll með tveimur erlend- um ferðamönnum fór út af veginum og valt. Mennimir voru þýskir feðg- ar. Maðurinn sem lést var ungur maður en faðir hans, sem var öku- maður bílsins, var fluttur alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar til Reykjavíkur. Þyrlan var í eftirlitsflugi yfir Snæfellsnesi þegar kallað var eftir aðstoð hennar og kom hún því fljótt á slysstað. Einbreitt bundið slitlag er á veg- inum þar sem bíllinn valt og að sögn lögreglunnar á Patreksfirði er ekki vitað um tildrög slyssins. Rannsóknamefnd umferðarslysa fór á slysstað í Þorskafirði í gær til þess að kanna aðstæður. Þetta er 21. fómarlamb umferðar- innar á árinu 2000. -SMK Komið með slasaðan Þjóöverja. dvwynd s. Þýskir feögar veltu bíl sínum í Þorskafiröi um þrjúleytiö í gærdag meö þeim afleiöingum aö sonurinn, sem var farþegi í bílnum, lést. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fööurinn, sem ók bílnum, á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Innanlandsflugið hækkar Flugfélag íslands hækkar almenn fargjöld sín í innanlandsflugi að meðaltali um tæplega 10%. Meginá- stæður hækkunarinnar eru sagðar eldsneytisverðhækkanir og aukin skattheimta hins opinbera á seinni hluta ársins. Spáir 5,6% verðbólgu í nýrri verðbólguspá gerir Seðla- bankinn ráð fyrir 5,6% verðbólgu yfir árið 2000 í stað 5% í maí (og 3,8% í janúar). Versnandi horfur stafa að sögn bankans aðaflega af því aö gengi krónunnar sé yfir 5% lægra en í maíspánni. Seðlabankinn segir það valda áhyggjum að verð- bólguvæntingar yfir 5% virðist vera aö festast í sessi. Níu kæra kísilgúrinn Níu, einstaklingar og félagasam- tök, hafa kært ákvörðun Skipulags- stjóra um að heimila frekara kísil- gúmám úr Mývatni, en fleiri kærur kunna þó að vera í pósti. Úrskurður umhverfisráðherra verður að liggja fyrir innan átta vikna frá lokum kærufrests. Sjónvarpið sagði frá. Amma of tekjuhá Þórhildur Líndal, umboðsmaður bama, segir marga galla á framkvæmd laga um bamabæt- ur og fagnar áform- um stjórnvalda um að endurskoða barnabótakerfið. Dæmi eru um að stúlkur undir lög- aldri sem eignast börn fái ekki barnabætur vegna þess að afi og amma barnsins eru með of háar tekjur. Sjónvarpið sagði frá. Tjón ferðamanna bætt Ábyrgðartrygging ökutækja bæt- ir að fullu tjón ferðamannanna sem lentu í hrakningum í Jökulsá á Fjöflum þótt ökumaður hafi virt að vettugi merki um lokun. RÚV sagði frá. „Það er enginn vafi á að það er full- orðið fólk sem gengur hér um garð- ana að næturlagi og stelur frá börn- unum. Fólkið getur varla borðað allt það magn sem stolið er né heldur geymt það. Annaðhvort er þetta selt á veitingahús eða í verslanir," sagði Inga Rósa Sigurjónsdóttir, leiðbein- andi hjá Skólagörðum Reykjavíkur í Dalbæ við Vatnsveituveg, í samtali við DV. Bömin voru að ljúka sumarstarf- inu í rigningu og roki í fyrradag eftir góða sumardaga við ræktunina. Upp- skera barnanna virðist freista ófrómra borgara sem i skjóli nætur laumast í garða þeirra og velja sér þar hnúðkál sem er dýrt og lítið þekkt á íslandi enn sem komið er. Engin skemmdarverk hafa verið unn- in á görðunum að öðm leyti. „Það er búið að stela úr öllum görð- um sem hægt var að stela úr, meira að segja kennaragarðinum. Það er einn garður sem ekki var stolið úr og það er af því að stelpan hætti svo snemma að það vom bara kartöflur eftir í hon- um,“ sagði Rebekka Riviere, 10 ára Börnln og garöagróðurinn dv-mynd einar j. Þau voru aö Ijúka sumarstarfinu, krakkarnir í Dalbæ, í fyrradag. Veöriö var verra en þaö var mestan partinn í sumar en þau létu ekki deigan síga í upp- skerustörfunum. gömul stúlka úr Breiðholtinu, sem er ein þeirra barna sem stolið var frá. Þjófarnir hafa komið nokkrar næt- ur, fyrst um verslunarmannahelgina, síöan um síðustu helgi og aftur að- faranótt miðvikudagsins. Þeir fara í gróðurreiti hvers bams og leita að hnúðkáli og spínati og hirða það. Lög- reglan var látin vita en hefur ekkert getað aðhafst annað en að hafa augun hjá sér. „Þetta er alltaf sama tegundin af káli sem þjófarnir taka, hnúðkál, sem lítið er ræktað af á íslandi og fáir þekkja, en líka nokkuð af spínati. Hnúðkálið þykir mjög gott í austur- lenska rétti sem nú eru vinsælir. Við erum að tala um tiu kíló af kálinu sem stolið hefur verið frá bömunum, sem er talsvert magt,“ sagði Inga Rósa. „Þetta er ömurlega leiðinlegt. Hér eru átta til tólf ára krakkar sem hafa mætt í allt sumar til að reita arfa, vökva og hlúa að gróðrinum, síðan kemur að uppskerunni og þá er henni að hluta stolið," sagði Inga Rósa Sig- urjónsdóttir. -JBP/SMK Reykjavíkurmaraþon: Hlaupið um götur borgarinnar Fyrirkomulag og framkvæmd Reykjavíkurmaraþons var kynnt í vikunni á hádegisverðarfundi þar sem boðið var upp á spínat og aðra hollustu. DV er einn af aðal- styrktaraðilum Reykjavíkur- maraþons og fá áskrifendur blaösins afslátt af þátttökugjöld- um. Skráning hefst í dag kl. 18.00 i Skautahöllinni. Pastaveisla verö- ur á staðnum til kl. 21. Alvarlega slasaður Maður slasaðist alvarlega við vinnu sína á trésmíðaverkstæði á Selfossi klukkan rúmlega fimm í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og var hún komin á staðinn kl. 18.15. Maðurinn var flutt- ur á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann gekkst undir aðgerð og liggur nú á gjörgæsludeild. Hann hafði hlotið lífshættulega áverka á kviðarholi, að sögn læknis á slysa- deild. Slysið bar til með þeim hætti að vél skaut frá sér trélista sem hæfði manninn. Kárahnjúkavirkjun færist nær Skipulagsstofnun hefur með athuga- semdum og fyrir- vörum fallist á til- lögu Landsvirkjun- ar að áætlun um mat á umhverfisá- hrifum Kára- hnjúkavirkjunar. Skipulagsstofnun segir tillöguna ná til allra helstu þátta sem taka þarf á í mati á umhverfísáhrifum. Mbl. sagði frá. Mikið sölutap íbúða Sveitarfélögin innleystu um 140 félagslegar íbúðir í fyrra og seldu aftur á markaðsverði, þar af hátt í 90 á höfuðborgarsvæðinu. Söluhagn- aöur á höfuðborgarsvæðinu rann í Varasjóð viðbótarlána sem bætir þaö sem á vantaði úti á landi. Al- gengt var að sveitarfélög á lands- byggðinni þyrftu að selja íbúðimar með um 2 milljóna tapi. Dagur sagði frá. Ekki næturklúbbar á Akureyri Bæjarstjóm Akureyrar hefur hafnað ósk veitingastaðanna Seturs- ins og Venuss um að staðimir verði flokkaðir sem næturklúbbar og fái því að hafa annan afgreiðslutíma en aðrir veitingastaðir. Bæjarstjómin hefur takmarkað afgreiðslutíma vínveitingastaða í bænum frá því hann var gefinn frjáls fyrir fáum missemm. Mbl. sagði frá. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.