Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 5
FÚSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
I>V
Fréttir
5
Hert löggæsla í Húnavatnssýslu dregur úr dauðaslysum:
Slysagildrur í Skagafirði
Flest banaslys á íslandi verða í
Reykjavík og nágrenni og á Suður-
lands- og Vesturlandsvegunum í ná-
grenni borgarinnar. Eins og DV
greindi frá hafa orðið 198 dauðaslys í
umferðinni á árunum 1990 til 1999.
Það sem af er árinu 2000 hafa 20
manns farist af slysfórum í umferð-
inni. Sá tollur sem umferðin hefur
tekið af mannslífum frá ársbyrjun
1990 til dagsins í dag er því 218 manns
sem samsvarar nær öllum íbúum
Hriseyjar. Þegar skipting dauðaslysa
í umferðinni eftir landsvæðum er
skoðuð kemur í ljós að mun færri
dauðaslys eru í Húnavatnssýslu en til
dæmis í Skagafirði og í Eyjafirði.
„Nálægt þéttbýlinu og út af þétt-
býlisstöðunum eru flest slysin og það
er nokkuð klárt samhengi milli ek-
inna kílómetra og slysa,“ sagði Óli
H. Þórðarson, framkvæmdastjóri
Umferðarráðs.
Hann bætti því við að hörð lög-
gæsia á vegum í Húnavatnssýslu
gæti verið ástæða þess hve fá dauða-
slys hafa orðið þar síðustu 10 árin,
þrátt fyrir þunga umferð um svæðið.
„Áherslan þar hefur verið mjög
mikil á umferðarþáttinn og þótt það
sé náttúrlega aldrei hægt að fullyrða
um það þá má segja að það hafi
áhrif. Sýnileg löggæsla á vegum er
gríðarlega mikilvæg," sagði Óli H.
Á annan tug dauðaslysa hafa orð-
ið í Skagafirði og nágrenni síðustu
10 árin og má rekja ástæður þeirra
aö hluta til einbreiðra brúa og blind-
hæða í vegakerflnu.
„Vegageröin hefur nú verið að lag-
færa það gríðarlega mikið á undan-
fómum árum, en það verður ekki
allt gert í einu. Meðal annars voru
gul, blikkandi ljós sett á einbreiðar
brýr í Skagafirðinum og við höldum
að það hafi verið umtalsverð slysa-
vörn,“ sagði Óli H.
Undir Vatnajökli hafa orðið til-
tölulega fá umferðarslys seinustu 10
árin og taldi Óli H. að líkleg skýring
þar væri sú að útsýni er gott á veg-
unum á söndunum.
Á síðustu 20 árunum hefur öku-
tækjum íslendinga fjölgað um
100.000. Á undanfomum tíu árum
hafa 194 manns látið lífið í umferðar-
slysum hér á landi og á þriðja þús-
und manns slasast alvarlega.
Óli H. útskýrði að árið 1987 var
hámarkshraöi á þjóðvegum landsins
hækkaöur úr 80 km/klst. upp í 90
km/klst. án þess að löggæsla efldist í
samræmi við þaö.
Þegar skipting banaslysa milli
dreifbýlis og þéttbýlis er skoðuð
kemur í Ijós að á síöasta áratug hef-
ur slysum í dreifbýli fjölgað töluvert
en fækkað í þéttbýli. -SMK
SUSHI
á föstudögum
Tilbúnir bakkar
með blönduðum fisk
og hrísgrjónarúllum
é
nátiúrulega 1
heilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
BEINSKIPTUR KR.
1
SJÁLFSKIPTUR KR.
.748.000
.848.000
Grjótháls 1
Sími 5751200
Söludeild 5751280
Staðalbúnaður: Skynvædd sjálfskipting (HIVEC) sem lagarsig að aðstæðum og þínu aksturslagi,
2.01136 hestafla vél, TCS spólvörn og stöðugleikastýring, ABS hemlalæsivörn, 4 llknarbelgir,
hæöarstillanleg öryggisbelti, fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn, hljómflutningskerfi með 6
hátölurum, stillanlegir höfuðpúöar, rafknúnir hliðarspeglar, litað gler, rafknúnar rúður, samlitir
stuðarar, innbyggt barnasæti með 4 punkta öryggisbelti og margt, margt fleira.
2G02
HfA WOfcLQ CUP
j^)REA|AB^N
OHicial Pattner
HYunoni
mei1fö,,u