Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 13
13 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 PV__________________________________________________________________________________________________________________________Merming Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Góöa nótt Það er sérkennileg stemning sem skapast á Menningarnótt í miðborginni okkar á hverju ári. Umsjónarmaður gleymir seint menningamótt fyr- ir tveimur árum þegar hann lagði á fjögurra ára son sinn hrikalega þeysireið um hina ýmsu menningarviðburði - (m.a. að sitja undir löngum lestri Þorsteins Gylfasonar á ljóðaþýðingum), horfði að því búnu á flugeldasýningu sem fékk fllefldustu karlmenn til að nötra og rölti svo heim með barnungann hálftvö um nóttina. Það flökraði að umsjónarmanni að bamaverndamefnd kæmi ba-bú og hneppti hann í varðhald fyrir að vera að göltrast úti með böm um miðjar nætur en á menningarnótt gerist ekkert slíkt. Á Menning- arnótt má bæði sjá hjólastóla og barnavagna úti við á mjög ókristilegum tíma en það er allt í lagi. Á Menningamótt renna dagur og nótt saman í eitt. Hljóðljóð og Hlaðvarpi Og hvað er svo hægt að berja augum á þessu langa og skemmtilega afmæli borgarinnar? í stuttu máli er það svo margt að ógerningur er að gera því öllu skil - en hér á eftir fylgja nokkrar uppákomur sem augljóslega er fengur í. Einnig skal bent á visir.is, en þar birtist hin glæsilega dagskrá Menningarnætur óstytt. Á hádegi setur borgarstjóri Menningarnóttina og Reykjavikurmaraþonið um leið. Þá er um að gera að draga á fætur sér hlaupaskóna og hlaupa með. I Hlaðvarpanum verður heilmikið um að vera og er þar boðið til afmæliskaffis kl. 15. Helga Thorberg rekur sögu Hlaðvarpans, ljóð verða flutt og atriði leikin frá fyrri tíð, söngur, hljóðfæra- sláttur, glens, grín og gaman. Kl. 16 koma „2000 börnin" saman í Lækjargötu og syngja Þúsaldarljóð og úrvals djass verður á sama tíma á boðstólum í Norræna húsinu. í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi verður kl. 17 fluttur gjömingur Magnúsar Pálssonar Trúðarnir Barbara og Úlfar Halldóra Geirharösdóttir og Bergur Þór Ingólfsson munu lesa upp úr bankabókum landsmanna í ís- landsbanka FBA í gervi hinna ófyrirleitnu trúöa. Hljómar spennandi. „Þrígaldur þursavænn" í fjórum köflum af hljóð- um, atburðum og hljóðljóðum. Gjömingurinn tengist sýningunni Tími fresta flugi þínu, á Kjar- valsstöðum. Vilborg les fyrir börnin Eftir kvöldmat er kjörið að leggja leið sina í Grófarhúsið til þess að hlusta á þann mikla frá- sagnasnilling Pétur Pétursson segja gamansögur af nafnkunnum Reykvikingum. í sama húsi - á sama tíma lesa rithöfundamir Vilborg Dagbjartsdóttir og Sindri Freysson fyrir bömin en það verður í glænýrri barnadeild Borg- arbókasafnsins. Unnendur kórtónlistar ættu að fá eitthvað fyr- ir sinn snúð í íslensku óperunni frá 20-23 en þar koma fram Kór íslensku óperunnar, Gradualekór- inn og Fóstbræður, auk einsöngvara. Barbara og Úlfar - trúðamir ósvífnu - munu lesa upp úr bankabókum landsmanna í íslands- banka FBA en á sama tíma verða rithöfundar að lesa úr verkum sínum í bókakaffi Máls og menn- ingar, Súfistanum. Þar lesa meðal annarra Auður Jónsdóttir, Hrafn Jökulsson og Þorsteinn Guð- mundsson auk þess sem Steinunn Birna Ragnars- dóttir leikur á píanó. Upp úr miðnætti stíga á svið 'Óskar Guðjónsson og Delerað og flytja söngdansa Jóns Múla Árnasonar fram eftir nóttu. Egill Helgason syngur og flugeldar springa 1 Dómkirkjunni kl. 23 verður flutt leikrit Stef- aníu Thors, Laufey, sem byggt er á skáldsögu El- ísabetar Jökulsdóttur og á sama tíma verður Jón Gnarr að grínast i Iðnó. Eftir grínið er engin miskunn gefin og ofsafeng- in flugeldasýning í boði Orkuveitu Reykjavíkur hefst þá við höfnina. í fyrra var þar glæsilegasta flugeldasýning sem gerð hefur verið á íslandi og ætlaði sprengingum og húrrahrópum aldrei að Hrafn Jökulsson rithöfundur Hann hefur veriö afkastamikill á ritvellinum síö- asta ár og forvitnilegt aö heyra brot af því sem hann er aö fást viö þessa dagana. Hrafn veröur á Súfistanum ásamt fleiri höfundum kl. 20-23.30. Verðlaun Tómas- Pétur Pétursson þulur Pétur er þekktur fyrir aö kunna ógrynni skemmti- sagna um lífs og liöna Reykvíkinga og hvaö er betur viö hæfi á afmæli Reykjavíkurborgar? Áhugasamir ættu aö kíkja í Grófarhúsiö viö Tryggvagötu kl. 19.30 og hlusta á Pétur. linna. Gaman verður að sjá hvemig til tekst þetta árið. Eftir flugeldasýninguna mun hljómsveitin Geirfuglarnir leika fyrir utan sushi-staðinn Tvo fiska og með henni kemur fram stuðkóngurinn Egill silfur Helgason. í lokin verður svo hægt að fara á ball, ef fólk er ekki tilbúið að fara að sofa, því Magga Stína og Hringirnir hennar munu leika fyrir dansi í Hlað- varpanum frá miðnætti. Góða og gleðilega menningamótt. Magga Stína söngkona Hún treöur upp víös vegar um borgina á Menning- arnótt meö félögum sínum í hljómsveitinni Hr. ingi R. ar í dag er afmælis- dagur Reykjavíkur- borgar og í dag verður einnig formleg opnun Grófarhússins við Tryggvagötu, sem hýsa mun aðalsafn Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgar- skjalasafn Reykjavíkur og Ljósmynda- safn Reykjavíkur. Við samá tækifæri fer fram afhending Bókmenntaverð- launa Tómasar Guðmundssonar, starfs- launa listamanna Reykjavíkurborgar og styrks til tónlistarhóps Reykjavíkur árið 2000. 50 handrit bárust vegna Bókmennta- verðlauna Tómasar Guðmundssonar, en verðlaunin eru tvöfold í ár í tilefni menningarborgarársins og nema nú 600 þúsund krónum. Umsækjendur um starfslaun voru 96 og eru til úthlutunar 52 mánuðir. 11 umsóknir bárst um styrk til starfrækslu tónlistarhóps, sem nemur árslaunum tveggja listamanna sem þiggja starfslaun hjá Reykjavíkur- borg. Grófarhús verður opið almenningi á Menningamótt frá kl. 15-22, þar sem hægt verður að skoða húsið, njóta dag- skráratriða og sýninga. Landslagsmálarar í Gerðarsafni Á morgun kl. 15 verður opnuð í Gerð- arsafni sýning á graf- íkverkum og skissum eftir sex þýska mynd- listarmenn. Þessir listamenn, Otto Modersohn, Paula Modersohn-Becker (listaverk á mynd), Fritz Mackensen, Hans am Ende, Fritz Overbeck og Heinrich Vogeler, lifðu all- ir sitt blómaskeið á mörkum 19. og 20. alriqrirmai- íslenskum listunnendum gefst nú tækifæri til að sjá verk eftir þessa lista- menn, sem eiga ekki aðeins það sameig- inlegt að teijast til fremstu landslags- málara og áhugaverðustu listamanna Þýskalands á þessum tímamótum held- ur leituðu þeir og í sömu sveitina, í þorpið Worpswede, 20 kílómetra norðan við Bremen í norðurhluta Þýskalands. Víðátta sjóndeildarhrings þessa land- svæðis, sem skáldið Rainer Maria Rilke segir véra „undarlega andstæðu lands“, hin síbreytilega birta, skýjafarið, mó- kofarnir og býlin með stráþökunum urðu málurunum ungu tilefni mikillar rökræðu um hvernig megi nálgast nátt- úruna í myndlist, rökræða sem i raun tekur engan endi og er í fullum gangi enn í dag. Sýningin er sett upp í samvinnu Goethe-Zentrum Reykjavík og Lista- safns Kópavogs. Hún er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 11-17 og henni lýkur sunnudaginn 17. september. Tíminn í listinni Á morgun verður opnuð á Kjarvals- stöðum sýningin Tími - fresta flugi þínu sem unnin er í samvinnu við Reykjavík menningarborg. Sýningin er einnig af- rakstur samstarfs við Listasafnið í Bergen en sem kunnugt er þá er Bergen einnig menningarborg ársins 2000. Megininntak þessarar stóru sýningar er viðhorf listarinnar til tímahugtaksins. Þar er m.a. litið á hvemig tíminn kemur fram í sögulegri, trúarlegri og pólitískri list; portrettverkum og byggingarlist. Með tilvísun til timahugtaksins verða sömuleiðis skoðuð listaverk frá skissu til fullmótaðra verka. Meðal listamanna sem verk eiga á sýningunni era Dieter Roth, Kristján Guðmundsson, Erró, Felix Gonzales-Torres, Lawrence Weiner, Jos- eph Kosuth, Christian Boltanski, On Kawara, Per Kirkeby, Yoko Ono, Dennis Oppen- heim, Andres Serrano, Christo og Claude Rutault. Ár á götunnl „Tíminn hefur svo margbreytileg birtingar- form í listinni,“ segir Soffía Karlsdóttir, kynn- ingarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur, í spjaBi við menningarsíðuna. „Við getum tekið sem dæmi verk Tehching Hsieh sem er lýsandi dæmi um tímasýnina sem er eitt viöfangsefni sýning- arinnar og fjallar um það hvemig listamenn M1 OM), « Muktu, - t, 1, m«l* uti iMamii ulu llmamt I: cM i hmt m I, iiiauM ui mh ái I ulmpil, Verk é sýnlngunnl Tíml - fresta flugl þínu á KJarvalsstööum. sýna tímann í verkunum síniun. Hsieh læsti úti- dyrunum sínum árið 1981 og gaf út skriflega yf- irlýsingu þess efnis að hann kæmi ekki aftur heim fyrr en að ári liðnu. Þessu ári varði hann alfarið utan dyra aöeins með svefnpoka. Hann hélt dagbók og skráði ferðir sinar inn á kort sem öll hanga uppi á sýningunni. Hann lenti í lögg- unni og alls konar vandræðum, sem voru fest á filmu, auk þess sem svefnpokinn hans og föt eru höfð til sýnis. Það er mjög skemmtilegt að skoða verkið og ímynda sér hvemig þetta ár í lífl hans leiö,“ segir Soffia. Teklð fram fyrlr hendur tímans Á sýningunni er einnig lögð áhersla á tímann sem byggingarlegan hluta lista- verksins þar sem tíminn er gerður að raunverulegum og virkum þætti í lista- verkinu með því að leyfa hreyflngu, ferli og hrömun að taka fram fyrir hendur listamannsins. Verk Claudes Rutaults er dæmi um þetta, sem og verk Yoko Ono og Dieters Roths. Hluti verks Claudes Rutaults, Eitt málverk leiðir af öðru (Un tableau chasse un autre), hefur verið í vinnslu í undirgöngum við Flugvallarveg frá 19. júlí síðastliðnum, samkvæmt forskrift listamannsins. Þar voru settir upp tólf blindrammar með striga og þeir málað- ir samkvæmt fyrirmælum. Að sögn Soffiu átti að taka þetta samspil tímans við undirheimalistina niður rétt fyrir sýningu og flytja það á sýningarstað. Illu heilli fær þó eðlileg hrömun ekki notið sín í verkinu því óprúttnir skemmdarvargar tóku fram fyrir hendurnar á tímanum; úöuðu á verkið og ristu það í sundur. Engu að síður verð- ur verkið til sýnis á Kjarvalsstöðum, eins og listamaðurinn sagði fyrir um, enda má, þegar allt kemur til alls, finna í því eina af birtingar- myndum tímans og listarinnar. Sýningin stendur fram í október. Listaverk étin í Gallerí Reykjavík Gallerí Reykja- vík heldur upp á eins árs afmæli sitt á Menningarnótt Reykjavíkur 2000. Meðal þess sem :yivjavuv galleríið býður upp á að þessu sinni er stuttsýning Þorgerðar Sigurðardóttur þar sem gestum gefst kostur á að bragða á listaverkunum. Stuttsýning Þorgerðar er tvíþætt, annars vegar sýn- ishorn af nýjum verkum sem hún er aö vinna að fyrir stærri sýningu í Hafnar- borg f september en hins vegar myndir unnar áriö 1996, tréristur byggðar á brauðmótum, í þeim stíl sem sjá má á slíkum gripum á íslenskum byggðasöfn- um og Þjóðminjasafni. Með tréristum sínum þrykkir Þor- gerður á pappír en notar þær lika til að baka brauð handa gestum. Sá siöur var algengur á íslandi fyrr á tímum að þrykkja skreytingar og texta ofan á deig fyrir pottkökur. Brauð var ekki hvers- dagsfæða hér á landi á fyrri tíð og varla gert nema á hátíðum og tyllidögum. Gallerí Reykjavik býður nú gestum að bragða á svona hátíöarbrauði í tilefni ársafmælis. Brauðið er bakað í pitsu- ofni i takt við tímann en með þessa fornu hefð að fyrirmynd að gefa skreytt brauö á tyllidögum. Brauöið veröur á boðstólum á morg- un á milli kl. 17 og 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.