Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Blaðsíða 11
11
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
DV_________________________________________________________________ ~ Utíönd
3
Albright iofar í Chile
Madeleine Al-
bright, utanríkis-
ráöherra Banda-
ríkjanna, lofaöi íbú-
um Chiles í gær að
bandarísk stjórn-
völd myndu gera
opinber eins mörg
gögn og hægt væri
um mannréttindabrot í Chile og
samskipti Bandaríkjanna við her-
foringjastjóm Augustos Pinochets,
fyrrmn einræöisherra.
Kennedyfrændi fyrir rétt
Dómari í Connecticut hefur úr-
skurðað að næg gögn liggi fyrir til
að hægt sé að rétta yfir Kenn-
edyfrændanum Michael Skakel fyr-
ir morð sem hann framdi 1975.
SKjálfti í Japan
Jarðskjálfti sem mældist 4 á
Richter skók Tokyo, höfuðborg Jap-
ans, og eyjar suður af borginni í
morgun.
Endurfundir á enda
Kóreskar fjölskyldur, sem hafa
verið aðskildar í tugi ára, héldu til
síns heima í Norður- og Suður-
Kóreu eftir fjögurra daga samveru í
suðurkóresku höfuðborginni. Taiið
er að endurfundir þessir geti mark-
að þáttaskil í umræðu um samein-
ingu kóresku ríkjanna.
Sprengingar í Ríga
Nítján manns slösuðust þegar
tvær sprengingar urðu í flmm hæða
verslanamiðstöð í Ríga, höfuðborg
Lettlands, í gær.
Védrine til Grænlands
Hubert Védrine,
utanríkisráðherra
Frakklands, og eig-
inkona hans koma
til Grænlands í dag
til að vera viöstödd
opnun sýningar um
franska . heim-
skautafaranh Paul-
Emile Victor. Sýningin verður í
menningarhúsinu í höfuðstað
Grænlands, Nuuk.
Vilja Concorde I loftið
Frakkar og Bretar lýstu því yfir í
sameiningu í gær að þeir væru stað-
ráönir í að koma Concorde-farþega-
þotunum aftur á loft. Rekstur þeirra
hefur verið stöðvaður vegna flug-
slyssins í Paris í síðasta mánuði.
Blair leikur tennis
Mótmælt í Indónesíu
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, og ítalskur
starfsbróðir hans,
Giuliano Amato,
sameinuðu krafta
sína í gær þegar
þeir léku tvíliðaleik
í tennis á sveita-
setrinu í Toscanahéraði þar sem
Blair hefur eytt sumarleyfi sínu að
undanfomu. Blair og Amato höfðu
betur gegn andstæðingunum.
Dópsali tekinn
Lögreglan í Istanbúl hefur hand-
samað einn helsta heróínsmyglara
Evrópu, tyrkneskan mann, sem
hefur smyglað 3 tonnum af heróíni
til Spánar og fleiri landa.
Mótmælendur komu aö þinghús-
inu í Jakarta í Indónesíu í morgun
þar sem þingmenn eru að ljúka ár-
legri fundasetu sinni.
Pútín skammaður fyrir aðgerðaleysi í Kúrskslysinu:
Vonir bundnar við
erlendu aðstoðina
Unniö aö björgunarstörfum
Ekkert gengur enn aö bjarga áhöfn rússneska kafbátsins Kúrsk af hafsbotni.
Rússneskum björgunarskipum
mistókst enn í nótt að komast að
kjamorkukafbátnum Kúrsk sem
liggur stórskemmdur á botni
Barentshafsins með 118 menn um
borð. Vonir manna um að takast
megi að bjarga áhöfninni eru nú i
auknum mæli bundnar við erlenda
björgunarmenn sem eru á leið á
slysstað.
Bresk og norsk björgunarlið hraða
sér sem mest þau mega til Kúrsk
sem hefur verið að grafast æ dýpra í
sendinn hafsbotninn síðan báturinn
sökk á laugardag. Norsku og bresku
björgunarmennimir eru ekki vænt-
anlegir fyrr en á morgun og óttast
margir að það verði um seinan.
Rússneskir fjölmiðlar hafa veist
harkalega að Vladímír Pútín forseta
fyrir aðgerðaleysi hans. Forsetinn
hefur verið i sumarleyfi í strand-
bænum Sotsjí á meðan harmleikur-
inn hefur farið fram í Barentshafi.
Ilja Klebanov aðstoðarforsætisráð-
herra sagði á fundi með fréttamönn-
um í borginni Múrmansk að alit yrði
gert til að bjarga áhöfn kafbátsins.
Skoðun á framenda kafbátsins
hefur leitt í ljós umfangsmiklar
skemmdir á stefni hans. Klebanov
sagði að þær gætu verið til komnar
vegna áreksturs við óþekktan þung-
an hlut.
Ráðherrann sagði að margir úr
áhöfninni hefðu verið í framenda
kafbátsins þegar slysið varð á laug-
ardag. Orð hans virtust þar með
staðfesta fregnir fiölmiðla um að
fiöldi manns hafi látið lífið þegar
slysið varð.
Síðasta von áhafnar Kúrsk kann
að vera breskur dvergkafbátur sem
er á leið á slysstað.
Rússar féllust ekki á margítrekuð
boð Breta um aðstoð fyrr en á mið-
vikudag.
„Það eina sem við viljum gera er
að komast á staðinn og gera okkar
besta til að bjarga þeim,“ sagði Alan
Hoskins, foringi í kafbátabjörgunar-
deild breska sjóhersins.
Götutrúöur í pílagrímsferö
Eros heitir hann, þessi barnungi götutrúöur frá Mexíkó. Hann er einn fjölmargra landa sinna sem lagöi upp í píla-
grímsferö til aö heiöra mynd af Kristi sem á spænsku heitir El Senor de Chaima. Hér hefur Eros litli stillt sér upp viö
hlið myndar af meyjunni frá Guadalupe. Götutrúöar ganga yfir fjöll og firnindi og vaöa ár á árlegri þriggja daga göngu
sinni frá Mexíkóborg til bæjarins Chaima sem er 90 kílómetrum vestar.
Saumaö aö Milosevic
; Andstæöíngar Júgóslavíuforseta
hafa til afnota skrifstofu í Búdapest
sem Bandaríkjamenn borga fyrir.
Andstæðingar
Milosevics fá að-
stoð að vestan
Bandarísk stjómvöld vörðu í gær
þá ákvörðun sína að opna skrifstofu
í Búdapest til að styðja við bakið á
stjórnarandstæðingum í Júgóslavíu.
Sögðu þau að slík skrifstofa myndi
stuðla að sameiningu krafta and-
stæðinga Slobodans Milosevics for-
seta.
Einn leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar í Júgóslavíu og embættis-
maður stjómvalda fordæmdu áform
Bandaríkjamanna þegar þau voru
kunngerð fyrr í vikunni og sögðu
þau íhlutun í júgóslavnesk innan-
rikismál. Júgóslavar kjósa sér nýj-
an forseta og þing þann 24. septem-
ber næstkomandi. Milosevic er í
framboði.
Vill að eldflauga-
varnarkerfi verði
rætt innan ESB
Holger K. Niel-
sen, formaður sós-
íaliska þjóðar-
flokksins (SF) í
Danmörku, vill að
dönsk stjórnvöld
taki upp áform
Bandaríkjamanna
um eldflauga-
varnakerfi upp á
Niels Helveg vettvangi Evrópu-
e ersen sambandsins. Hann
hefur skrifaö Niels Helveg Petersen
utanríkisráðherra bréf þar sem
hann skorar á hann að sýna að Dan-
ir hafi þau áhrif innan ESB sem
þeir státi sig af.
„Ég skora á Niels Helveg Petersen
til að taka málið upp innan ESB til
að þar verði tekin sameiginleg af-
staða,“ segir Nielsen í viðtali við
Politiken.
Nielsen bendir á að mörg Evrópu-
ríki hafi þegar lýst yfir andstöðu
við eldflaugavarnakerfið og gagn-
rýnir um leið dönsk stjómvöld fyrir
að segja pass. Hann telur að kerfið
verði upphaf nýs vopnakapphlaups.
Enn verið að
rannsaka Clinton
vegna Lewinsky
Mikil reiði ríkir nú í Hvíta hús-
inu vegna frétta um að nýr rann-
sóknarkviðdómur sé að skoða sam-
band Bills Clintons forseta við Mon-
icu Lewinsky.
I fréttum CNN og annarra fiöl-
miðla í gær kom fram að Robert
Ray, sérlegur saksóknari í málinu,
hefði kvatt nýjan kviðdóm saman í
síðasta mánuði til að kanna stað-
hæfingar um meinsæri af hálfu
Clintons og að hann hafi hindrað
framgöngu réttvísinnar. Ray hefur
sagt að hann muni íhuga að ákæra
forsetann eftir að hann lætur af
embætti i janúar.
„Það er mikill óþefur af málinu,“
sagði Jake Siewert, talsmaður Hvíta
hússins.
Fréttimar um nýju rannsóknina
birtust aðeins nokkrum klukku-
stundum áður en A1 Gore varafor-
seti þáði tilnefningu sem forsetaefni
demókrata í kosningunum í haust.