Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Blaðsíða 25
29 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 3> V Tilvera - Umhverfismál: Skothylk- in burt - markmiðið að eftir þrjú ár verði not uð skothylki óþekkt úti í náttúrimni Skotvís - félag skotveiðimanna, umhverfisráðuneytið og Olís standa fyrir umhverflsátaki meðal skot- veiðimanna sem nefnist Láttu ekki þitt eftir liggja. Sigmar B. Hauks- son, formaður Skotvíss, segir að makmiðið með átakinu sé að auka umhverfisvitund skotveiðmanna og fá þá til að safna saman notuðum skothylkjum og bæta þannig um- gengnina um landið. „Hylkin eru úr plasti og í sterkum litum og mjög áberandi. Mörgum þykja hylkin lýti í náttúrunni og þau segja fólki að þar hafi verið skotveiðimaður á ferð og að hann sé umhverfissóði. Þetta viljum við forðast. Ef það er pláss fyrir skotin i veiðiferðina þá er líka pláss fyrir þau heim. Skotveiði- menn eru ekki meiri sóðar en aðrir, þeir skilja hylkin eftir af athugunar- leysi og við ætlum að taka á því. Skotin eru í sterkum litum til þess að auðvelt sé að finna þau og nú er enginn afsökun lengur fyrir að hirða þau ekki. Markmiðið er að eft- ir þrjú ár verði notuð skothylki óþekkt úti í náttúrunni. Olís ætlar að leggja okkur lið með því að hafa á boðstólum sérstaka poka fyrir skothylkin og þeir ætla líka að taka á móti þeim. Jafnframt liggja frammi þátttökuseðlar sem þeir sem skila inn skotum geta fyllt út. Seölarnir fara svo i pott sem dregið verður úr í lok veiðitímabils- ins og tveir heppnir aðilar fá vegleg hvatningarverðlaun. Við ætlum líka að gefa út plakat sem dreift verður inn allt land þar sem allir eru beðn- ir um að sáfna notuðum skothylkj- um og skila þeim inn.“ Sigmar segir að hér sé um brýnt umhverfismál að ræða og verkefni til framtíðar. „Umhverfisráðherra heldur yfir okkur verndarhendi og styður verkefnið og svo skiptir nátt- úrlega miklu máli að geta skilað hykjunum á ákveðinn stað.“ -Kip Sviðsljós Kryddpían Victoria bítur frá sér: Hvorki lauslát né drekkur sig fulla Kryddpían Victoria Beck- ham hefur oft verið gagnrýnd fyrir peninga- eyðslu og mun- aðarlíf sitt. Hún er þó aldeilis ekki á því að biðjast afsökun- ar á því né heldur neinu öðru. „Ég drekk mig ekki fulla og ég sef ekki hjá hverjum karlin-um á fætur öðrum. Mér finnst ég vera góð fyrirmynd bama og ungl- inga,“ segir Vict-oria í viðtali við breska blaðið Vlktoria kynnfr nýja plötu Kryddpían Victoria Adams Beckham var vonandi vel skóuö þegar hún kom tii útvarpsstöövar í Manchester í vikunni til aö auglýsa nýjan hljómdisk sinn. Sunday Mirror. Victoria við- urkennir að hún eigi tvö þúsund skópör. Og hvað með það? myndi nú einhver segja. Annars segir hún að þrír mikilvægustu þættir lífs hennar um þessar mund-ir séu móðurhlut- verkið, eiginmað-urinn David Beckham fót-boltasparkari og tónlistin. En Victoria er einmitt að gefa út fyrstu sóló- plötuna sína. David fékk leyfi frúarinnar til að syngja með í einu laginu. Foreldrar á gamalsaldrl Rokkarinn síungi, David Bowie, og eiginkona hans, fyrirsætan Iman, eignuöust litla dóttur í vikunni og var barninu gefiö nafniö Alexandria Zara Jones. Stúlkan vó um 15 merkur. Bowie er 53 ára en frúin er ekki nema 45 ára. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotvíss Skothylki eru \ sterkum litum og því mjög áberandi \ náttúrunni. Upp með a H m m Sparibrosið "myndarleg tilboð á Sparidögum á heimsþekktri gæðavöru Olympus C-860 Stafræn myndavél 1,3 pixel Rétt verð 38.900 Tilboðs verð 29.900k«fl Olympus C-21 Stafræn myndavél 2,1 pixel Rétt verð 69.900 Tilboðs verð 54.900. Lágmúla 8 • Sími 530 2800 Ætöky, www.ormsson.i6 «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.