Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Qupperneq 9
9
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
X>V_________________________________________________________________________________________________Neytendur
Síðasta vígið að falla?
Þær fréttir berast nú að Bónus
hugleiði alvarlega að taka upp
kreditkort sem greiðslumiðil en fyr-
irtækið hefur barist hart gegn því
alla tíð og borið fyrir sig þau rök að
greiðslukort auki kostnað verslunar-
innar og hækki þar með vöruverð.
Líklegt er að af þessum breyting-
um verði enda íslendingar flestum
ef ekki öllum duglegri að nota
greiðslukort til viðskipta og nokkuð
víst að Bónus hafl orðið af all-
nokkrum viðskiptum vegna afstöð-
unnar. Kortin h£ifa ekki náð eins
mikilli útbreiðslu erlendis og marg-
ar matvöruverslanir taka ekki við
þeim. í stórverslunum, þar sem eru
sérstakar matvörudeildir, er víða
hægt að nota kortin í öllum deildum
nema matvörudeildinni og þykir
það sjálfsagt mál að greiða matinn
ofan í sig með reiðufé en ekki að
skuldfæra hann fram í tímann.
„Við erum að vinna í þessum
kortamálum og erum að reyna að fá
kortafyrirtækin til að samþykkja að
við leggjum ákveðna þóknun á við-
skiptin og teljum miklar líkur til að
það takist,“ segir Guðmundur Mart-
Koma kortin?
Þaö er líklegt aö Bónus takl upp kreditkort innan skamms. Skyldi vöruverd hækka? Eða tekst Bónusmönnum aö
knýja fram þær breytingar aö þeir sem nota kort greiöi fyrir þaö?
einsson hjá Bónus. „Þó svo það tak-
ist ekki þá ætlum við samt sem
áður að taka kortin inn en kostnað-
urinn fer ekki út í verðlagið þar
sem við teljum okkur ná auknum
viðskiptum með því að nota þau og
það hefur ákveðna hagræðingu i for
með sér.“
Hér gildir sú regla að ekki má
hækka verð þegar greitt er með
korti, þó svo það megi víða annars
staðar á þeim forsendum að meiri
kostnaður fylgi því að greiða á
þennan hátt. Á meðan svo er fer
kostnaðurinn í heild beint úr í verð-
lagið og allir neytendur greiða
hann, hvort sem þeir nota reiðufé
eða kort. Þetta er auðvitað alveg út
i hött og engin ástæða til að kredit-
kortafyrirtækjunum leyfist aö
stjóma því. Þeir sem greiða með
peningum, sem enn er langódýrasta
leiðin til að greiða fyrir vörur, þrátt
fyrir allt, eiga að njóta þess en þeir
sem fá peninga að láni með því að
greiða með korti eiga að greiða fyr-
ir það. -vs
Það er gott...
... að skræla og stappa kartöflur
sem soðið hafa of lengi. Hræra sam-
an við þær smávegis af mjólk, ofur-
litlu smjöri og einni eggjarauðu.
Sprauta þeim síðan á bökunarplötu
og baka í um það bil 10 mínútur við
góðan hita. Útkoman er bragðgott
meðlæti með aðalréttinum.
... að brjóta marensinn í litla bita
ef hann hefur slysast til að brotna
þegar hann var tekinn af plötunni.
Svo má setja hann í litlar skálar
ásamt ávöxtum eða sælgæti og
sprauta yfir með þeyttum rjóma.
Þannig er kominn fyrirtaks eftirrétt-
ur eða kökur á kaffiborðið.
... að nota rjóma sem orðinn er
svolítið súr sem sýrðan rjóma í pott-
rétti. Þá eru fyrst settar tvær tsk. af
sítrónusafa saman við rjómann og
hann verður alveg fyrirtaks bragð-
bætir. -vs
í skólanum...
Til starfa
Skólinn er vinnustaöur barnanna ekki síöur en
kennaranna. Þessir krakkar eru heilbrigðir og hraust-
ir og njóta þess aö vera i skóianum.
Þegar líður á sum-
arið fara foreldrar og
böm að huga að skól-
anum - hvemig hann
verði, hvað eigi að
kaupa, tískuna í skóla-
töskum (jú, það er
tíska þar líka) og stíla-
bókum.
Kennarar mæta til
starfa í síðustu viku
ágústmánaðar og fara
þá að útbúa lista fyrir
bekkina um það hvað
á að kaupa, væntan-
lega í samræmi við
það sem kenna á um
veturinn.
Við skólasetningu
er bömunum svo afhentur þessi listi
og þá hefst martröðin. Nemendur og
foreldrar þeirra þyrpast út, aka eða
ganga í bókabúðir og stórverslanir
sem selja skólavörur til þess að
kaupa eftir listanum. Umferðartepp-
ur myndast og langar biðraðir sem
reyna á taugamar verða til í verslun-
um.
„Þetta er allt hluti af hefðinni og
„rituatalinu" sagði einn fyrrverandi
kennari og brosti þegar Neytendasíð-
an spurði hvers vegna þetta væri
svona. „Það er ákveðin stemning sem
myndast og allir hafa gaman af.“
Sumir skólar kaupa sjálfir inn
En ekki hafa allir gaman af þessu
og það er alveg óskiljanlegt af hverju
ekki er hægt að hafa þessa lista til-
búna að vori svo foreldrar geti notað
sumarið til að bera saman verð og
gæði, kaupa í rólegheitum einn og
einn hlut ef þeim sýnist svo og eiga
svo allt tilbúið að hausti. Það eru
ekki miklar breytingar á þessum list-
um frá ári til árs, enda yfirleitt svip-
að kennsluefni, og það ætti ekki að
vera mikill vandi að eiga listana til-
búna - setja þá á Netið ef vill. Flestir
hafa orðið aðgang að því og ef eitt-
hvað sérstakt þarf að kaupa þá er
bara hægt að bæta þvi við eftir þörf-
um þegar líður á veturinn.
Óreyndir foreldrar vita t.d. ekki að
sumt af því sem á listanum er þarf
bamið ekki að nota fyrr en nokkrar
vikur eru liðnar af skólatímanum og
vel hægt að bíða með að kaupa það.
Einnig er það líklegra þegar liður á
haustið að barnið sé tilbúið að nota
eldri hluti og notaða fremur en í byij-
un skólaárs þegar þaö vill bara fá
nýja hluti cg er ekki til mnræðu um
að nota eitthvað sem var til í fyrra.
Undantekningar eru þó frá þessu.
Nokkrir skólar láta greiða pappírs-
kostnað og kaupa sjáffir það sem
bömin þarfnast og afhenda þeim eft-
ir þörfum.'
Aðrir afhenda listana bókabúðum
í nágrenninu, sem hafa tilbúna
pakka með viðkomandi vörum, en þó
ekki fyrr en á þessum ákveðna degi,
skólasetningardeginum.
Krafa foreldra hlýtur að vera sú að
hægt verði að nálgast þessa inn-
kaupalista fyrr og það hlýtur að vera
hægt að breyta þessu án þess að það
valdi of mikilli aukavinnu hjá kenn-
urum, þó svo hefðin krefjist þess að
nokkur þúsund foreldrar og böm fari
af stað á sama tíma til að kaupa söm-
ur vörur... -vs
Nýtt - reykingarpoki fyrir mat
í grillblaðinu sem fylgdi DV á
dögunum var sagt frá frábærri nýj-
ung, poka til reykingar og reyk-
steikingar á mat. Margir lesendur
hafa haft samband við blaðið til að
leita upplýsinga um það hvar þessi
poki fæst og nú hefur Neytendasíð-
an haft uppi á honum. Pokinn er
tvöfaldur og á milli laga eru reyk-
ingarspænir og sykur sem gefur
matnum gott bragð.
Innflytjandinn er Öryggi og Vöm,
sem er í síma 5515287, og þar feng-
ust þær upplýsingar að þessa ágætu
poka hefði verið hægt að fá um tíma
hér á landi. Með pokanum eru ein-
faldar leiðbeiningar á íslensku,
bæði um pokann sjálfan og eldun
ýmissa matartegunda í honum. Pok-
ann er hægt að nota í venjulegum
heimilisofni, eldstó eða ami og á
grilli og tekur um 25 mín. að elda 1
kg af flski, 75 mín. 1 kg af kjúkling-
um og um 80 mín. 1 kg af kjöti. -vs
J
HUSGAGNAVERSLUN
5)
op'
ð v\vKa
daSa
10
.18*30
V.au9a
tdaða
11^16
Sunn'
^udaO3
13
-16
Sófasett
SVcápaV
StóVa*
10-50%
Stendur til 27. ágúst
iunú
Smiöjuvcgur 2 • www.jsg.is • s. 587 6090
M.vjptCp.m
raögreiðslur, 36 mán.